Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1997, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1997, Qupperneq 8
32 MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1997 íþróttir DV Cedric Henderson í Cleveland til vinstri og Terry Davis t liöi Washington eigast viö í NBA-deiidinni um helgina. Símamynd Reuter NBA-deildin um helgina: Jordan með 49 - Atlanta Hawks tapaði sínum öðrum leik í röð Isaac Austin átti stórleik þegar Miami Heat sigr- aöi Toronto í NBA-deildinni aðfaranótt sunnudags. Austin átti besta leik sinn á ferlinum, skoraði 33 stig, hirti 22 fráköst og var algerlega óstöðvandi. Hann hefur í síðustu leikjum Miami tekið stöðu miðheijans Alonzo Mouming sem enn er meiddur. Orlando Magic er á mikilli siglingu þessa dagana og liðið vann fimmta leik sinn í röð gegn 76ers eftir rólega byrjun. „Mínir menn eru famir að leika sem liðsheild og famir að treysta hver öðrum," sagði Chuck Daly, þjálfari Orlando, eftir leikinn. Sigur Orlando var merkilegri fyrir þær sakir að Penny Hardaway lék ekki með Orlando vegna meiðsla. Charlotte Homets er einnig á góðu róli þessa dag- ana. Liðið vann fjórða sigurinn í röð og það var Vla- de Divac sem átti heiðurinn af sigrinum. Divac stal knettinum á lokasekúndunum og skoraði úr tveim- ur vítaskotum að auki sem nægði til sigurs. Nýliðinn Brevin Knight, sló í gegn er Cleveland sigraði Washington. Knight gaf 20 stoðsendingar á félaga sína sem skiluðu körfu og munar um minna. Atlanta Hawks hefur ekkert gengiö í síðustu tveimur leikjum og liðið tapaði öðrum leik sinum í röð eftir frábæra byrjun. Detroit, sem ekki hefur gengið vel í byrjun, sigraði Atlanta og það var ekki sist að þakka sterkri endurkomu Joe Dumars í liðið en hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Ekkert gengur hjá Dallas þessa dagana og um helgina setti félagið nýtt met. Liðið skoraði aðeins 62 stig gegn Milwaukee og steinlá auðvitað í kjölfar- ið. Eldra metið í lágu stigaskori hjá Dallas var frá því í mars er liðið skoraði einungis 65 stig gegn Utah Jazz. Houston Rockets vann góðan sigur gegn Golden State og þurfti ekki að sýna meistaratakta til að inn- byrða sigurinn. Kevin Willis tók 19 fráköst auk þess að skora 22 stig. Hittni Houston var léleg í leiknum, aðeins 38%. Aðfaranótt laugardags Glen Rice fór á kostum fyrir Cleveland gegn Miami. Leikurinn vair jafn framan af en í fjórða leikhluta gerði Cleveland endanlega út um leik- inn með því að vinna, 40-19. Litið gengur hjá Wasinghton þessa dagana og liðið beið sinn fiórða ósigur í röð gegn New York. „Við sýndum að það býr heilmargt í liðinu. Það er bara vonandi að þessi leikur gefi okkur byr í seglin," sagði Patrick Ewing. Boston vann góðan sigur á New Jersey og var Dee Brown, þjálfari Boston, ánægður með strák- ana sína eftir leikinn. „Þessir strákar eru alltaf að læra og liðið verð- ur betra með hveijum leik,“ sagði Brown. Minnesota tapaði sínum þriðja heimaleik í röð gegn sterku liði Cleveland. Þetta var sjötti sigur- inn í röð hjá Cleveland gegn slöku liði Minnesota. Michael Jordan bar lið Chicago uppi gegn Clippers, skoraði 49 stig og þar af níu síðustu stig liðsins í leiknum. Clippers hefur aðeins unnið einn leik og tapað ellefu. San Antonio er að leika illa þessa dagana. í leiknum gegn Seattle skoraði liðið aðeins 74 stig sem er lægsta skor liðsins til þessa í vetur. -SK/-JKS NBA-DEILDIN Föstudagur: Charlotte-Miami.......119-102 Rice 25, Divac 22 - Hardaway 23, Austin 21. Washington-New York . .. 82-104 Webber 15, Strickland 14 - Johnson 23, Starks 17. Boston-New Jersey .....101-93 Walker 24, Edney 12, Minor 12 - Gatling 22, Gill 14, Cassell 14. Minnesota-Cleveland .... 80-103 Carr 19, Gamett 18 - Person 22, Kemp 19, Henderson 19. Seattle-San Antonio....94-74 Baker 22, Hawkins 18 - Williams 13, Alexander 10. LA Clippers-Chicago .... 102-111 Murry 24, Barry 17 - Jordan 49, Longley 22. Vancouver-Denver.........99-96 Rahim 28, Thorpe 17 - Stith 22, Newman 22. Laugardagur: Philadelphia-Orlando .... 94-108 Stackhouse 16, Iverson 14 - Strong 21, Grant 20. Indiana-Charlotte........94-95 Miller 23, Smits 19 - Rice 22, Divac 18. Cleveland-Washington . . 110-101 Person 31, Kemp 24 - Strickland 27, Howard 24. Detroit-Atlanta.........87-85 Willaims 23, Hiil 19 - Leattner 25, Mutombo 19. Miami-Toronto ....... 108-104 Aystin 33, Majerle 16 - Wallace 28, Stoudamire 21. New Jersey-Portland.....93-87 Gattling 23, Gill 19 - Anderson 20, Sabonis 19. Dallas-Millwaukee.......62-83 Finley 12, Bradley 11 - Brandon 18, Allen 17. Houston-Golden State .... 90-84 Willis 22, Drexler 17 - Sprewell 28, Marshall 14. Denver-Seattle ..........80-84 Washington 22, Gamett 12 - Payton 20, Schrempf 12. Utah-San Antonio........103-74 Malone 20, Homacek 19 - Robinson 22, Alexander 13. Shaquille frá i tíu daga Shaquille O’Neal, miðheiji LA Lakers, verður frá keppni í tíu daga vegna meiðsla, að sögn lækna liðsins. Hann meiddist á kviði í leiknum gegn Minnesota í síðustu viku. Hann missir af þremur leikj- um gegn Miami, Boston og Phila- delphia. Pippen klár í janúar Scottie Pippen hjá Chicago Bulls verður klár í slaginn upp úr miðjum janúar. Hans er sárt saknað hjá liðinu og segist Mich- ael Jordan hlakka mikið til að fá hann til baka. -JKS Bland í poka Skoski kylfingurinn Andrew Coltart varð sigurvegari á stór- móti atvinnumanna í Ástralíu um helgina. Coltart lék holurnar 72 á 285 höggum, þremur högg- um undir pari. „Ástœðanfyrir þvi að ég sigr- aði að þessu sinni er að ég var mun þolinmóðari en aðrir kepp- endur,“ sagði Coltart eftir sigur- inn. Stuart Appleby og Stephen Allan komu næstir, fiórum högg- um á eftir Coltart. Ástralir eru líklegir til að hljóta 32. og síðasta sætið á HM í Frakklandi næsta sumar. Ástral- ir gerðu 1-1 jafhtefli við írani í íran á laugardag og eiga heima- leikinn eftir. Terry Venables, þjálfari Ástr- ala, var yfir sig ánægður með sína menn og sagði þetta eftir leikinn: „Þetta var ótrúlega erfitt. Ég veit að reynslumestu leikmenn í heimi eiga erfitt með að leika í íran af mörgum ástæð- um.“ George Foreman hefur ákveð- ið að leggja hanskana á hilluna og hætta ótrúlegum ferli sem hnefaleikari. Shannon Briggs sigraði For- eman um helgina á stigum. For- eman er 48 ára gamall og var elsti heimsmeistari hnefaleika- sögunnar. Hann gerði um tíma 10 ára hlé á skrautlegum ferli. -SK Tilboð baðherbergissett! Kr. 23.000,- stgr. Salerni með stút í vegg eða gólf. Hörð seta og festingar fylgja. Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá sama aðila sem tryggir sama litatón á salerni, salernissetu, handlaug og baðkari. Forðist ósamstæða litatóna! Handlaug á vegg. Stærð 55 x 43 cm VERSLUN FYRIR ALLA ! Vib Fellsmúla Sími 588 7332 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 VISA RAÐCREIÐSLUR LEMWáSÉI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.