Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Side 4
28 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997 29 íþróttir Geir Hallsteinsson: „Einu númeri betri en við“ „Júggarnir eru bara einfaldlega einu númeri betri en við. Við erum hins vegar með gott lið sem hafði alla burði til að komast í úr- slitin og því er maður mjög svekktur að það skyldi ekki tak- ast. Við gátum alveg búist við því að tapa þessum leik í Júgóslavíu en hefðum átt að geta gert betur gegn þeim heima og ég tala nú ekki um leikinn gegn Litháunum úti,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari Breiðabliks og gamall ref- ur i handboltanum. „Júgóslavarnir virðast eiga óendanlega mikið af góðum leik- mönnum. Þeir koma alltaf með Geir Hallsteinsson. góða leikmenn og eru alveg frægir fyrir góða markvörslu. Mark- varsla þeirra í síðari hálfleik fer langt með að klára leikinn fyrir þá. Á meðan eru okkar markmenn ekki að verja nóg enda vömin frekar slök. Það er spuming hvort það hefði ekki hreinlega mátt taka tvo leikmenn Júgóslavanna úr umferð á tímabili, svona til að taka einhverja áhættu í stöðunni. Á tímabili fannst mér aðeins spuming um herslumun á að við myndum rífa þá alveg frá okkur og maður veit ekki hvemig Júgg- arnir hefðu bmgðist við því.“ „Ég held íslenska liðið hljóti að taka einhverjum breytingum fyrir næsta verkeftii. Menn í liðinu em að komast á aldur og þeir sjálfir hljóta að vera búnir að fá nóg. Þarna er maður að tala um menn eins og Geir, Júlíus, Valdimar og jafnvel markverðina tvo. Mig grunar aö einhverjir þessara manna hljóti að ætla að draga sig út úr þessu. Við þurfum ekkert að kvíða framtíðinni. Við eigum fullt af góðum handboltamönnum og það er ákveðið púsluspil fram und- an hjá Þorbimi hvemig hann mannar liðiö. Það kemur alltaf maður í manns stað,“ sagði Geir. -GH Svíar sýndu styrk sinn - og tryggöu sér sæti til Ítalíu Undankeppni Evrópumóts lands- liða í handknattleik lauk í gær og nú er ljóst hvaða 12 þjóðir leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn á Ítalíu næsta sumar eins og fram kemur annars staðar hér á síöunni. Svíar töluðu um að leikur þeirra gegn Ungverjum væri sá mikilvæg- asti hjá þeim í 8 ár en þeir urðu að vinna sigur til að tryggja sig í úrslit- in. Hið geysireynda lið Svía sýndi svo sannarlega styrk í Globen höll- inni glæsilegu í Stokkhólmi þegar það vann átta marka sigur á Ung- verjum, 31-23, en staðan í hálfleik var, 16-10. Gamla kempan Magnus Wislander skoraði 7 mörk eins og hinn ungi Johan Pettersson en hjá Ungverjum voru Joszef Elez og Gulyas með 5 mörk hver. Danir sátu eftir með sárt enniö þrátt fyrir sigur gegn Pólverjum á heimavelli, 26-23, þar sem Svíar höfðu betur gegn Ungverjum. Christian Hjermind skoraði 7 mörk fyrir Dani en Nowakowski var markahæstur hjá Pólverjum með 9 mörk. Norðmenn og Spánverjar léku til úrslita um annað sætið í 4. riðli eft- ir að Norðmenn höfðu óvænt unnið heimaleikinn í Noregi í síðustu viku. Spánverjar hefndu ófaranna á heimaveUi sínum í gær og unnu 10 marka sigur, 30-20. Guijosa Castilla var í miklum ham hjá Spánverjum og skoraði 12 mörk en Vatne skor- aði mest fyrir Norðmenn, eða 6 mörk. Það verður gaman að fylgjast með Þjóðverjum í úrslitakeppninni á Ítalíu en síðustu misserin hafa þeir þýsku haft frekar hægt um sig og voru til að mynda ekki með á HM í Kumamoto. -GH rh stolen Magnus Wislander, fyrirliöi Svla, er hér aö skora eitt af sjö mörkum sínum gegn Ungverjum í Globen-höllinni I Stokkhólmi. Reuter Ólafur Stefánsson skoraöi 3 mörk gegn Júgóslövum í gær. Þau dugöu skammt því íslendingar töpuöu meö fjögurra marka mun og eru úr leik í Evrópukeppninni. Atli Hilmarsson, þjálfari KA: onorigoi Lykilmennirnir náöu ser ekki á strik „Auðvitað hélt mað- ur í vonina um að okkur Atli Hilmarsson, þjálfari ís- landsmeistara KA, sat eins og fleiri íslendingar sem límdur fyrir framan sjónvarpsskjáinn þegar leikur Júgóslava og íslendinga var sýndur i beinni út- sendingu á RÚV. „Þetta eru geysileg vonbrigði vegna þess að við erum að spila þessa leiki gegn Júgóslövum langt undir getu í báðum leikjunum. Það er því mjög súrt að vera ekki með í úrslita- keppninni. Ég reiknaði með að við yrðum iýrir ofan Litháa í riðlinum og að við myndum frekar vinna þá á útivelli heldur en Júgóslavana." leggja Júgóslavana en fyrir framan sex þúsund brjálaða áhorfendur reiknaði maður kannski ekki með sigri. Lykilmenn í liðinu, eins og Patrekur og Ólafur, náðu sér ekki á strik og ég var óánægður með Duranona. Það vantaði miklu meiri ógnun þeim megin. Geir og Konráð voru báðir að spila vel og markvarslan var ágæt á köflum. Guðmundur hélt okkur til að mynda á floti með frábærri markvörslu undir lok fyrri hálfleiks. Vömin var frekar döpur og þó svo að Jovanovic hafl verið tekinn mjög vel komu nýir menn inn og fóra illa með okkur og virtust koma strákun- um í opna skjöldu enda var kannski ekki búið að kortleggja þá. „Maður er enn svekktari þegar maður ber lið íslendinga og Litháa saman. Við eigum að vera með miklu sterkara lið og það er bara sár- grætilegt að horfa upp á að Litháar verði með í úrslita- keppninni en ekki við íslending- ar.“ „Það var auðvitað slæmt að Dagur skyldi ekki vera með í þessum leikjum en á ekki að vera nein afsökun. Patrekur hefur margoft spilað á miðjunni og það á ekki að vera neitt vandamál þó svo að einn lykilmann vanti." - Sérð þú fyrir þér miklar breytingar á liðinu fyrir næsta stórverkefni sem hefst næsta haust? „Án þess að ég viti nokkuð um það þá hef ég trú á að menn eins og Valdimar, Geir og Júlí- us fari jafnvel út úr þessu. Ég held að þessir menn hafi upplifað allt í þessu og það er bara spuming hvenær þeir taka þessa ákvörðun. Ef þeir hafa hins vegar gaman af þessu áfram er sjálfsagt að þeir verði með lengur. Þeir hafa getuna enn en spumingin er hvenær á að yngja upp. Það væri kannski slæmt ef þeir hættu allir í einu en ég held samt að við eigum menn sem geta tekið við hlutverkum þeirra." Hlúa vel aö efniviðnum „Við komum til með að byggja liðið í kring- um Dag, Ólaf og Patrek. Þessir menn era orðn- ir gífurlega reyndir og ég held að við þurfum ekkert að óttast i framtíðinni. Það er ágætur efniviður hér heima og við verðum bara að hlúa vel að honum,“ sagði Atli. -GH Atli Hilmarsson, þjálfari KA-manna, segir sárt fyrir íslendinga aö falla út úr keppninni því þeir séu meö miklu sterkara liö en Litháar. - íslendingar úr leik í Evrópukeppninni eftir fjögurra marka tap gegn Júgóslövum í gær Hann reyndist of stór bitinn fyrir íslenska landsliöið í handknattleik í Podgorica, höf- uðborg Svartfjallalands, í gær en liðið laut þá í lægra haldi fyrir hinu geysisterka liði Júgóslava, 30-24, i síðasta leik sínum í und- ankeppni Evrópumóts landsliða. Fyrir leik- inn var vitað að ekkert nema sigur myndi duga islenska liöinu til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni á Ítalíu næsta sumar og verkefnið gat ekki verið þyngra fyrir ís- lenska liðið. Menn bára smá von í brjósti vitandi það að íslenska landsliðið hefur oft unnið mikil- væga leiki þegar mikið hefur legið við, eins eins og fyrir réttu ári þegar Danir voru lagð- ir á svo eftirminnilegan hátt að velli í Ála- borg í undankeppni HM. Kraftaverkiö skilaöi sér ekki En kraftaverkið sem menn töluðu svo margir um fyrir leikinn i gær skilaði sér því miður ekki og þar með er ljóst að íslending- ar sitja eftir heima þegar úrslitakeppnin fer fram á Ítalíu. Júgóslavar, sem fyrir leikinn vora búnir að tryggja sér sigurinn í riðlinum, gáfu okk- ar mönnum engin grið fyrir framan stuðn- ingsmenn sína heldur léku þeir af krafti og innbyrtu öraggan sigur. íslenska liðið barð- ist þó lengi vel af miklum móð en þegar um 10 mínútur vora eftir urðu strákamir að játa sig sigraða. Júgsóslvar náðu góðum leikkafla, komust 6 mörkum yfir og þar með var eftirleikurinn auðveldur. Góður fyrri hálfleikur fslendingar léku fyrri hálfleikinn mjög vel. Konráð Olavsson gaf tóninn með því að skora fyrsta markið og eftir að liðin höfðu skipst á að hafa forystuna gengu liðin jöfn til leikhlés. Guðmundur Hrafnkelsson fór á kostum á lokakafla fyrri háifleiksins og varði hvert dauðafæri Júgóslava á fætur öðra. Þá var Konráð í miklum ham og skor- aði fimm mörk í hálfleiknum. Geir Sveinsson skoraöi fyrsta mark síðari hálfleiksins og hafi maður haldið að ís- lenska liðið væri að taka leikinn í sinar hendur var það öðru nær. Júgóslavar náðu undirtökunum í leiknum og náðu snemma þriggja marka forskoti, 19-16. íslendingar neituðu að gefast upp, minnkuðu muninn í eitt mark og allt stefndi í æsispennandi lokakafla. En leikmenn íslenska liðsins fóra illa að ráði sínu. í stöðunni 22-21 misnotuðu þeir tvö dauðafæri og eftir að Júgóslavar náðu tveggja marka forskoti misstu íslend- ingar á skömmum tíma tvo leikmenn út af og smátt og smátt sigu Júgóslavar fram úr. Góöur leikur Konráös Konráð Olavsson átti mjög góðan leik, skoraði góð mörk úr hominu og leysti vel inn á línuna þar sem hann skoraði tvö mörk, Geir Sveinsson og Valdimar Gríms- son áttu báðir ágæta kafla en Valdimar svo og Bjarki Sigurðsson fóra báðir illa meö góð færi úr hægra hominu. Ólafur Stefánsson lék nokkuð vel i fyrri hálfleik, var ógnandi og skoraði 3 góð mörk en í þeim síðari var allur vindur úr honum og því mátti íslenska liðið alls ekki við. Patrekur náði sér ekki á strik og markvörður Júgóslavanna var með öll ráð hans í hendi sér. Markvörðunum Guðmundi og Bergsveini verður ekki kennt um tapið, þeir vörðu báðir ágætlega en vömin var einfaldlega ekki nógu vel á verði. Vörnin réö ekki viö Petric og Kokir Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari tók þá ákvörðun að taka Stojonovic úr umferð all- an tímann en hann lék okkar menn grátt í fyrri hálfleiknum. Þetta skilaði sér ekki því íslenska vömin réð ekki við ungu mennina Vladimir Petric og Branko Kokir. Þessir leikmenn skoraöu 12 af mörkum Júgóslva í leiknum en þeir fengu ekkert að spreyta sig í fyrri leiknum. Þetta eitt sýnir styrk Júgóslavanna sem era með eitt allra bestu landsliðs heims um þessar mundir. Eftir frábært gengi á HM í vor átti maður fastlega von á að íslendingum tækist í fyrsta skipti að keppa í úrslitum Evrópumótsins og því hlýtur þessi niðurstaða núna að vera mjkil vonbrigði. Það er stutt á milli hláturs og gráts í íþróttum. í vor fagnaði þjóðin með strákunum besta árangri íslendinga á HM fyrr og síðar en nú sitjum við eftir með sárt ennið. Veröur endurnýjun? Eftir þessi úrslit hljóta menn að setjast niður og hugsa um framtíðina. Liðið er enn ungt að áram og næsta stóra verkefniö hjá liðinu hefst næsta haust þegar undankeppni fyrir HM í Egyptalandi 1999 hefst. Þar verður við ramman reip að draga því aðeins efsta liðið í riðlinum vinnur sér sjálfkrafa sæti í þeirri keppni. Það má búast við ein- hverjum breytingum á liðinu og ekki þyrfti að koma á óvart ef að leikmenn á borð við Geir Sveinsson, Valdimar Grímsson og Júlí- us Jónasson segðu skilið við landsliðið eftir áralanga og dygga þjónustu. Tapiö í Kaunas gerði gæufmuninn Það var til of mikils að ætla af strákunum að leggja Júgóslava að velli á þeirra heima- velli en menn hljóta að naga sig í handar- bökin eftir að hafa leikið illa gegn Litháum í Kaunas og tapað þar dýrmætum stigum. Þá kom það berlega í ljós að fjarvera Dags Sigurðssonar í leikjunum gegn Júgóslövum veikti það mikið varðandi sóknina og Ólafur Stefánsson var nánast eins og hálfur maður. -GH Iþróttir EVRÓPUKEPPNI 1. riöill: Króatía-Portúgal. 28-25 Rúmenía-Makedónía 32-25 Króatia 6 4 0 2 166-145 8 Makedónía 6 3 0 3 181-181 6 Rúmenía 6 3 0 3 151-160 6 Portúgal 6 2 0 4 151-163 4 2. riöill: Júgóslavía-Ísland.............30-26 Litháen-Sviss.................31-26 Júgóslavía 6 4 2 0 167-140 10 Litháen 6 3 1 2 156-155 7 Island 6 2 1 3 157-161 5 Sviss 6 0 2 4 146-173 2 3. riöill: Tékkland-Frakkland...........20-20 Slóvenía-israel..............35-21 Frakkland 6 5 1 0 158-124 11 Tékkland 6 2 2 2 141-146 6 Slóvenía 6 3 0 3 161-155 6 ísrael 6015 133-168 1 4. riöill: Þýskaland-Slóvakía ..........30-25 Spánn-Noregur................30-20 Þýskaland 6 4 1 1 144-123 9 Spánn 6 3 1 2 162-137 7 Noregur 6 2 0 4 136-157 4 Slóvakía 6 2 0 4 148-173 4 5. riöill: Danmörk-Pólland..............26-23 Svíþjóð-Ungverjaland........31-23 Ungverjal. 6 4 Svíþjóö 6 4 Danmörk 6 3 Pólland 6 0 1 1 146-138 9 0 2 156-139 8 1 2 133-134 7 0 6 128-152 0 Þessar þjóðir keppa á Italíu Þá er oröið ljóst hvaða 12 þjóð- ir leika til úrslita um Evrópu- meistaratitilinn í handknattleik en keppnir verður haldin á ítal- íu næsta vor. ítalir verða með sem gestgjaf- ar og Rússar sem núverandi Evr- ópumeistarar en hinar 10 þjóð- imar era: Krótatía, Makedónía, Júgóslavía, Litháen, Frakkland, Tékkland, Þýskaland, Spánn, Ungverjaland og Svíþjóð. -GH Júgóslav (14)30 ísland (14) 26 0-1, 1-2, 4-2, 6-4, 6-8, 9-9, 11-9, 13-11, (14-14), 14-15, 17-15, 20-17, 20-19, 22-21, 27-22, 30-24, 30-26. Mörk Júgóslavíu: Branko Kokir 6, Valdimir Petric 6, Dragan Skribic 5, Igor Butulija 4/4, Rastko Stefanovic 3, Ivan Lapcevic 2, Vladimir Stanjevic2, Nedeljko Jovanovic 1. Varin skot: Dejan Peric 15. Mörk fslands: Valdimar Grímsson 7/2, Konráö Olavsson 6, Geir Sveinsson 5, Ólafur Stefánsson 3, Patrekur Jóhannesson 3, Bjarki Sigurðsson 1, Róbert Duranona 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9, Bergsveinn Bergsveinsson 6. Brottvlsanir: Júgóslavía 12 mín, ísland 8 min. Dómarar: Lang og Reisinger frá Austurriki, ekkert út á þá að setja. Áhorfendur: Um 5000 og geysilega vel með á nótunum. Maður leiksins: Branko Kokir (nr. 11) 1 Júgóslavíu. Þannig komu mörkin: Hraöaupphlaup: Júgóslavia 4, ísland 4. Langskot: Júgóslavía 9, fsland 3. Lína: Júgóslavia 4, fsland 7. Gegnumbrot: Júgóslavía 6, ísland 3. Horn: Júgsóslavía 6, ísland 3. Víti: Júgsóslavía 4, ísland 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.