Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Síða 8
IAGUR 1. DESEMBER 1997 Golf: Westwood sigurvegari Bretinn Lee Westwood tryggöi sér í gærmorgun sigur á opna ástralska meistaramótinu i golfi. Westwood og heimamaðurinn Greg Norman luku báðir keppni á 274 höggum en Westwood hafði betur í bráðabana á 4. holu. Það leit allt út fyrir sigur Normans á mótinu en þegar tvær holur voru eftir var hann með tveggja högga forskot á Westwood. Á síðustu holunni þrípúttaði Nor- man og fékk skolla og það nýtti Westwood sér vel og tókst að jafha metin með því fara hringinn á 72 höggum og háðir luku þeir keppni á 14 höggum undir parinu. í bráðabananum léku báðir fyrstu þijár holumar á pari en á fjórðu holunni urðu Norman á slæm mis- tök þegar honum mistókst að setja niður pútt af stuttu færi en Westwood setti niður eins og hálfs metra pútt og tryggði sér þriðja sig- urinn á stórmóti á skömmum tíma en hann var hlutskarpastur á mót- um á Spáni og í Japan. Fyrir sigur- inn hlaut Westwood 700.000 dollara. í þremur næstu sætum komu ástralskir kylfingar. Craig Perry lék á 275 höggum, Stephen Leaney 277 og Nick O’Hem á 278. -GH íþróttir Bland í poka Hilde Gerg frá Þýskalandi sigraði á heimsbikarmóti I samhliða svigi í Kalifomíu aðfaranðtt laugardagsins. Hún sigraði löndu sína, Martinu Ertl, i úrslitaviöureign en aðeins 15/1000 úr sekúndu skildu þær að. Andreas Goldberger frá Austurríki, einn fremsti skíðastökkvari heims, fékk á föstudag neitun frá Júgóslavíu eftir að hann óskaði eftir að keppa fyrir hönd landsins. Áður höfðu Bosnía, San Marino og Grenada hafn- að því að fá hann í sinar raðir. Gold- berger er hættur í landsliði Austur- rikis en þar var honum neitað um að æfa eingöngu hjá sínum þjálfara. Lillehammer í Noregi og Helsinki í Finnlandi ætla að sækja í sameiningu um vetrarólympíuleikana 2006. Alpa- greinamar fæm þá fram í Lille- hammer en norrænu greinamar í Heísinki. Dieíer Thoma frá Þýskalandi sigraði í heimsbikarmóti í skföastökki sem fram fór í Lillehammer á laugardag. Colin Montgomerie frá Skotlandi hefur verið valinn kylfmgur ársins í Evrópu, þriðja árið i röð. Michael Chang, þriðji besti tennis- leikari heims, gaf í skyn eftir ósigur Bandarikjamanna gegn Svium um helgina að hann myndi fljótlega leggja tennisspaðann á hilluna. Hon- um hefur ekkert gengið undanfama mánuði og segist enga ánægju hafa af íþróttinni lengur. Katja Seizinger frá Þýskalandi sigr- aði i heimsbikarmóti í risasvigi i Kalifomíu í fyrrakvöld. Isolde Kostner frá Italíu varð önnur og Kathárina Gutensohn frá Þýskalandi þriðja. Manuel Lapuente hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs Mexíkós í knatt- spymunni í stað Bora Milutinovic sem var óvænt látinn taka pokann sinn á dögunum. Þetta er i annað sinn sem Lapuente tekur við starfi landsliðsþjálfara en hann stjómaöi liðinu árið 1992. -VS/GH NBA-DEILDIN Aöfaranótt laugardags: Boston-Phoenix......frl. 108-112 Waiker 27, Mercer 26, Barros 17 - Rob- inson 26, Chapman 24, McDyess 15. Charlotte-Cleveland......91-97 Wesley 17, Phills 17, Mason 16 - Person 33, Ugauskas 15, Kemp 13. Orlando-Milwaukee........94-90 Price 22, Hardaway 19, Outlaw 15 - Robinson 29, AUen 16, Brandon 13. Philadelphia-LA Lakers . . 105-95 Iverson 31, Jackson 16, Stackhouse 13 - CampbeU 19, Bryant 19, Van Exel 14. Indiana-Chicago...........94-83 MiUer 24, Smits 18, Rose 13, Best 11 - Jordan 26, Longley 14, Brown 8. Detroit-New York..........86-78 WilUams 26, HiU 24, Dumars 13 - Ewing 27, WiUiams 13, Starks 13. DaUas-Toronto.............93-91 Scott 21, Finley 15, Walker 14 - Christie 27, WaUace 21, Jones 12. Denver-Minnesota..........95-84 Newman 31, Jackson 14, Garrett 10 - Gugliotta 18, Gamett 17. Utah-Golden State .......111-82 Malone 21, Foster 18, Homacek 14 - SpreweU 30, MarshaU 15, Shaw 8. Portland-Houston..........89-98 Rider 20, Grant 15, Trent 14 - Drexler 24, Johnson 21, WiUis 12. Seattle-Sacramento......113-96 Baker 21, Schrempf 18, EUis 16 - Richmond 21, Funderburke 16. LA CUppers-New Jersey . . 92-104 Barry 16, Taylor 15, Wright 13 - Kittles 25, CasseU 25, GUl 17. Allen Iverson átti stórleik með Philadelphia í sigrinum á Lakers. Hann skoraði 31 stig og átti 8 stoðsendingar. Charles Oakley hjá New York tók út eins leiks bann gegn Detroit. Hann sló Otis Thorpe hjá Vancouver í leUc liðanna um síðustu helgi. Mark Price tryggði Orlando sigur á MUwaukee meö fjórum vítaskotum á lokasekúndunum. Denver vann langþráðan sigur eftir að hafa tapað fyrstu 12 leikjunum á tímabilinu. Aöfaranótt sunnudags: Atlanta-Charlotte.........98-80 Smith 23, Laettner 20, Mutombo 10 - Rice 19, Mason 9, Divac 9. Cleveland-Boston.........103-97 Kemp 19, Ugauskas 16, Person 14 - Walker 24, Mccarty 15, Mercer 14. Miami-Milwaukee ..........87-93 Hardaway 26, Austin 23, Mashbum 10 - AUen 24, Brandon 19, Robinson 18. New York-Phoenix........102-80 Starks 22, Ewing 21, Houston 21 - Mcdyess 10, Kidd 10, WiUiams 19. Washington-Chicago .......83-88 Howard 22, Webber 21, Strickland 21 - Jordan 29, Kukoc 15, Wennington 10. Minnesota-Vancouver . . . 106-87 Gugliotta 23, Carr 17, Marbury 14 - Daniels 16, Rahim 15, B.Edwards 10. San Antonio-DaUas ........96-87 Robinson 18, Duncan 17, Johnson 16 - Finley 35, Scott 16, Reeves 11. Golden State-Houston .. . 100-107 MarshaU 24, SpreweU 22, Smith 14 - Barkley 43, Drexler 17, Willis 15. LA CUppers-Utah...........91-94 Piatkowski 20, Rogers 19, Murray 18 - Malone 42, Homacek 17, Anderson 11. „Okkur tokst þaðM - Svíar hrepptu Davis-bikarinn Sviar tryggðu sér glæsilegan sigur á Bandaríkjamönnum, 3-0, í úrslita- leik Davis-bikarsins i tennis í Gautaborg á laugardaginn. Þetta er sjötti sig- ur Svía í þessari óopinberu heimsmeistarakeppni landsliða og hann var '' óvæntur. Flestir spáðu Bandaríkjamönnum sigri en þeir hafa unnið keppnina í 31 skipt i. Svíar unnu báöa einliðaleikina á föstudag. Jonas Björkman vann Michael Chan 3-1, og Magnus Larsson vann Pete Sampras sem hætti keppni vegna meiðsla, 2-1 undir. Síöan réöust úrslitin á laugardag þegar þeir Björkman og Nicklas Ivulti sigr uöu Todd Martin og Jonathan Stark i þremur settum í tvíliöaleik. „Þeir voru ekki margir sem spáöu því aö viö næðum þetta langt. En okkur tókst það,“ sagöi Björkman, himinlifandi eftir sigurinn frammi fyrir 11 þúsund áhorfendum i Gautabore. -VS New York-leikmennirnir Charles Oakley, liggjandi á gólfinu, og Chris Mills eiga hér i höggi viö John Williams og Antonio McDyess hjá Phoenix f leik félaganna í Madison Square Garden í New York í fyrrinótt. Reuter NBA-körfuboltinn: Barkley í ham fran varö á laugardag 32. og síóasta þjóöin til aö tryggja sér sæti í lokakeppni HM í knattspyrnu. fran- ar náöu þá jöfnu, 2-2, viö Ástrala f Mejbourne en áöur höföu liöin gert 1-1 jafntefli f fran. franar, sem aöeins hafa einu sinni áöur komist f lokakeppnina, voru lengst af 2-0 undir en jöfnuöu og sigruöu þar meö á fleiri mörkum á útivelli. Ali Daei, einni af frönsku hetjunum, er hér fagnaö af stuöningsmönn- um sem hefja á loft mynd af trúarleiötoganum sáluga, Ayatoliah Khomeini. Sfmamynd Reuter Tvær gamlar kempur, Charles Barkley og Karl Malone, fóru á kostum með liðum sínum I NBA-deild- inni í körfuknattleik í fyrrinótt. Malone skoraði 42 stig fyrir Utah þegar liðið lagði LA Clippers að velli og Barkley gerði enn betur og skoraði 43 stig þegar Hou- ston sigraði Golden State. Barkley héldu engin bönd, hann hitti úr 15 skotum af 20 utan af velli og misnotaði aðeins eitt vítaskot af 12. Þá tók hann 15 fráköst í leiknum. Fram- an af leik stefiidi í annan sigur Golden State á tímabilinu. Liðið náði um tíma 19 stiga foyrstu, 44-25, en Houston skoraði 12 síðustu stigin í fyrri hálfleik og 15 fyrstu stigin í þriðja leikhluta og þar með Houston komið með tökin á leikn- um. Gengi LA Clippers er svipað og hjá Golden State, aðeins tveir sigurleikir í 16 leikjum. Maðurinn bak við sigur Utah var Karl Malone og hann innisiglaði sig- ur sinna manna með körfú 23 sekúndum fyrir leikslok. Malone var öflugur í síð- asta leikhlutanum og skoraði þá 16 af 42 stigum sínum í leiknum. „Við náðum góðum köflum í leiknum af og til en lékum iila þess á milli. En við náðum upp góðri vöm á lokakaflanum og það gerði gæfumuninn," sagði Jerry Sloan, þjálfari Utah, eftir leikinn. Langþráður sigur hjá Milwaukee Eftir að hafa tapað 17 leikjum í röð gegn Miami náði Milwaukee loks að vinna sigur og það á heimavelli Miami. Það var einkum og sér í lagi góður leikur Terrells Brandons í síðari hálf- leik sem skóp sigur Milwaukee en hann skoraði þá 17 stig og Miami tókst aðeins að gera 13 stig í síðasta leik- hlutanum. „Það vantaði allan neista í leik okkar og menn hugs- uðu fyrst og fremst um að sleppa þægilega frá leiknum. Það gengur ekki í þessari deild,“ sagði Pat Riley, þjálf- ari Miami, sem var ailt annað en ánægður með sína menn. Patrick Ewing og félagar hans í New York unnu auð- veldan sigur á Phoenix í annað sinn á leiktíðinni. New York, sem hefúr unnið átta leiki með meira en 20 stiga mun í vetur, réð ferðinni allan leikinn og í fyrri hálf- leiknum náði Phoenix aðeins að skora 27 stig. Jordan öflugur Washington lék síðasta heimaleik sinn í US Airways Arena-höllinni og kvaddi hana með tapi gegn meistur- um Chicago. Michael Jordan fór fyrir sínum mönnum í Chicago og skoraði 29 stig. Jordan hitti úr 10 af 21 skoti sínu í leiknum, 8 af 12 vítaskotum rötuðu rétta leið, hann átti 3 stoðsendingar og stal tveimur boltum. Þá var Dennis Rodman öflugur undir körfúnni og hirti 17 frá- köst. Næsti heimaleikur Washington verður í nýrri höll, MCI Center-höllinni, og kannski verður gengið hjá lið- inu betra þar en Washington hefur tapað sjö af átta heimaleikjum sínum á tímabiiinu. San Antonio Spurs vann fimmta sigur sinn í röð þeg- ar liðið lagði Dallas að velli. David Robinson skoraði 18 stig, tók 12 fráköst og blokkaöi 3 skot og nýliðinn Tim Duncan gerði svipað, skoraði 17 stig, tók 13 fráköst og blokkaði 5 skot. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.