Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998
Fréttir
Dómsmálayfirvöld ákveöa alþjóðlegar aögeröir til aö ná „flóttaföngum“
Framsalskrafa
15 íslendinga
heim:
á
Fangelsismálastofnun er að und-
irbúa beiðnir þar sem farið verður
fram á að 15 íslendingar verði fram-
seldir frá ýmsum löndum til afþlán-
unar fangelsisdómum hér á landi -
dæmt fólk sem hefur farið úr landi á
siðustu tíu árum og ekki hefur tek-
ist enn að láta afplána fangelsisrefs-
ingar sínar. Um er að ræða fangels-
isrefsingar allt upp í fjögur ár.
Samkvæmt upplýsingum DV
standa vonir til þess að Ólafúr Þór
Þórhallsson, sem dæmdur var í 4ra
ára fangelsi í mars 1991 fyrir stór-
Eftirlitin
sameinuð
- Steingrímur sér
Nefnd, sem Finnur Ingólfsson
skipaði undir forsæti Guðmundar
Skaftasonar, fyrrv. hæstaréttar-
dómara, hefur lagt til að Banka-
eftirlitið og Vátryggingaeftirlitið
verði sameinaö. Nefndin, sem
hefur nýlokið störfum og skilað
áliti til ráðherra, var ekki sam-
mála í áliti sínu, en Steingrímur
Hermannsson seðlabankastjóri
skilaði séráliti. Álit meirihlutans
tekur mið af þeim breytingum og
samruna sem hafa orðiö milli
banka og tryggingarfélaga, en
þessi starfsemi hefur runnið sam-
an að meira eða minna leyti und-
anfarin misseri. Telur nefndin
eðlilegt aö ein eftirlitsstofnun fari
því með mál þessara atvinnu-
greina og aö með því megi ná
fram samnýtingu sérfræðiþekk-
ingar og sparnaði í rekstri.
Þá kemur fram í áliti meiri-
hlutans að talið er jákvætt ef
starfsemi Bankaeftirlitsins verð-
ur flutt úr húsnæöi Seðlabank-
ans. Á þaö er bent aö þaö geti
talist óeðlilegt sambýli bankans
og óháös eftirlitsaðila meö öllu
bankakerfmu. Sérálit Steingríms
lýtur að efasemdum um hvemig
sambandi hinnar nýju stofnunar
viö Seðlabankann eigi að vera
háttaö í framtíðinni. Ekki náðist
í Steingrim Hermannsson í gær
til að fá nánari skýringar á sér-
áliti Seðlabankans. -phh
Bond-leikurinn:
Nafn sigurveg-
arans datt út
Þaö vakti athygli að nafn sig-
urvegarans í James Bond-leikn-
um var ekki meðal þeirra sem
boðaöir voru í Morgunblaðinu
sl. laugardag í úrslitakeppni
spumingaleiksins á Hótel Is-
landi. Trausti S. Kristjánsson
sigraði í leiknum, sem fram fór á
Hótel íslandi, og hlaut í verðlaun
glæsilegan BMW-bíl. Margir
hafa hringt í DV og fundist
maökur vera í mysunni.
„Það er ekkert óeðlilegt á ferð-
inni. Skýringin er sú að það
duttu út nöfn tveggja aðila sem
dregnir vom út til að taka þátt
spurningaleiknum á Hótel ís-
iandi. Trausti var annar þeirra
og hann er vel að sigrinum kom-
inn eins og allir sáu á Hótel ís-
landi á laugardagskvöld þar sem
hann fór i gegnum 46 spumingar
og tryggði sér sigur,“ sagði Ragn-
ar Már Vilhjálmsson, á markaðs-
deild SAM- bíóanna, aðspurður
um máliö. -RR
fellt kókaínmisferli, verði framseld-
ur. Hann flúði úr landi fljótlega eft-
ir dómsuppkvaðningu. Yfirvöldum
hér á landi er kunnugt um hvar
hann býr erlendis.
Elsta málið er frá árinu 1988. Þar
er um að ræða mann sem hlaut 18
mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
brot. Fyming fyrir brot á bilinu
eins til fjögurra ára fangelsi er tíu
ár en fimm ár fyrir styttri fangelsis-
refsingar.
Að sögn Þorsteins A. Jónssonar,
forstjóra Fangelsismálastofnunar,
er vitað um dvalarlönd og jafnvel
einnig dvalarstaði upp undir helm-
ings fimmtánmenninganna:
„Það var á mánudaginn sem
ákvörðun dómsmálaráðuneytisins
um þetta lá fyrir,“ sagði Þorsteinn
um framsalsbeiðnirnar fimmtán.
„Þetta er ekki gott ástand þama
við laxeldisstöðina. Þar em nokkur
stór og djúp ker full af vatni. Þetta
er mikil slysagildra fyrir bömin
sem em oft að leika sér þama. Ég á
sjálfúr lítinn strák og hann er mjög
spenntur fyrir þessum stað. Ég hef
kvartaö oft við yfirvöld því kerin
em opin og auðvelt fyrir bömin að
fara eða detta ofan í þau. Það er
hins vegar ekkert gert í málunum.
Það virðist þurfa slys þama til að
yfirvöld opni augun fyrir þessari
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
„Þetta er búið að vera í umfjöllun
hjá okkur og ráðuneytinu nú og áð-
ur. Ráðuneytið ákvað síðan að allir
dómþolar sem talið er að séu erlend-
is verði eftirlýstir og óskað eftir
framsali á þeim til þess aö þeir af-
pláni sínar refsingar hér á landi.
Við emm að byrja að undirbúa það
hættu,“ segir Guðmundur Hreins-
son, Kjalnesingur.
Guðmundur er mjög ósáttur við
hve illa er gengið frá við laxeldis-
stöðina Njörva á Kjalamesi. Fyrir-
tækið ísbú á stöðina en engin starf-
semi hefur verið þar í töluverðan
tíma. Guðmundur segir að einn
starfsmaður komi einu sinni á dag í
eftirlitsferð en stoppi stutt við. Ker-
in sem Guðmundur talar um em
um þriggja metra djúp og full af
vatni. Fleiri Kjalnesingar sem DV
mál. Þar sem við vitum hvar menn
eru er hægt að beina framsalsbeiðn-
um beint til viðkomandi lands. í
öðram tilvikum þarf að lýsa eftir
mönnum," sagði Þorsteinn.
Erlendur Baldursson, deildarstjóri
hjá fangelsismálastofnun, sagði að
hingað til hefði það ekki verið álitið
stórt vandamál að dómþolar reyndu
vísvitandi að koma sér undan fang-
elsisrefsingum hér á landi. Fullnusta
fangelsisrefsinga gengi í raun betur
hér en í öðrum löndum, sennilega
vegna legu landsins. Aðspurður um
tegundir þeirra brota sem fimmtán-
menningamir voru dæmdir fyrir
sagði Erlendur að þar væri um að
ræða, auk fikniefnamála, allt frá ölv-
unarakstri upp í nauðgunarbrot.
Lengd refsinganna er frá einum
mánuði upp í fjögur ár. -Ótt
ræddi við tóku undir þetta með
Guðmundi og em margir uggandi
um ástandið með tilliti til mikils
umgangs bama á þessum slóðum.
Guðmundur segir að ástandið sé
búið að vera svona í hátt á annað
ár.
Vanskapaður fiskur
„í einu kerinu er töluvert af
dauðum, vansköpuðum laxi sem
hefur greinilega verið mjög sýktur.
Það var eitthvað af heilbrigðum lif-
andi laxi fyrir nokkmm mánuðum
en hann er þar ekki lengur. Á dög-
unum, þegar ég var á gangi þama
nálægt, mætti ég mink með dauð-
an lax í kjaftinum. Þetta er auðvit-
að ófært ástand," segir Guðmund-
ur.
„Starfsemi hefur legið niðri hjá
Njörva í þónokkum tíma. Forsvars-
menn fyrirtækisins hafa talað um
að hætta starfsemi og reynt að selja
þetta fyrirtæki, m.a. til okkar, en
það hefur ekki gengiö. Ég lét fjar-
lægja bretti sem vom þama við ker-
in til að krakkamir gætu ekki rað-
að þeim upp til að auðvelda sér að
klifra upp í kerin," segir Jónas Vig-
fússon, sveitarstjóri á Kjalamesi,
aðspurður um málið. -RR
Eitt af kerunum sem blasa við fyrir neðan laxeidisstöðina. Þau eru full af
vatni og stórhættuleg börnum sem sækja mikið á þetta svæði, að sögn
margra ibúa Kjalarness sem DV ræddi við. DV-mynd ÞÖK
SeyöisQörður:
Grænmeti sótt í garðinn
DV, Seyðistirði:
Hlýindi hafa verið óvenju-
lega mikil og stöðug hér það
sem af er þessum vetri. Víða
má sjá græna slikju á grónu
landi sem vitnar um vaknandi
gróðumál. Frostdagar hafa ver-
ið sárafáir og frostið vægt.
Mörg tré og runnagróður
brama og sýna lífsmark sem
annars er með öllu óvanalegt á
þessum árstíma.
Sunnudaginn 4. janúar kom
ég aö Múlavegi 39. Þar búa
hjónin Lukka Sigríður, ljósmóð-
ir og hjúkrunarfræðingur, og
Þorkell Helgason ásamt böm-
um sínum Elínrósu og Eyjólfi.
í haust höfðu þau á upp-
skeratímanum skilið eftir lítt
sprotnar gulrætur í garöinum
við hús sitt. Nú, tæpum þremur
mánuðum síðar, sækja þau eftir
hendinni gulrætur i garðinn. í
hinu milda veðurfari haustsins
höfðu gulræturnar haldið
áfram að vaxa. Hið smávægi-
lega frost hafði ekki skaðað þær
neitt.
-JJ
Þorkell og Eyjólfur mefl gulræt-
ur úr garðinum.
DV-mynd Jóhann
Full ker af vatni viö laxeldisstöðina á Kjalarnesi:
Hættuleg slysagildra
- segja íbúar - vanskapaöur og dauður fiskur í kerunum
Stuttar fréttir i>v
Umhverfismerktur fiskur
Erlendar vottaðar og umhverf-
ismerktar
sjávarafurðir
era væntan-
legar á mark-
að á þessu ári.
Benedikt
Sveinsson,
forstjóri ÍS,
segir við
Morgunblaðið
að ekki sé ástæða til ótta vegna
óvottaðra íslenskra sjávarafurða.
Jón og Anna á toppnum
Jón og Anna em vinsælustu ís-
lensku nöftiin. Flestum bomum
voru gefin þessi nöfn á síðasta
ári, að sögn Morgunblaðsins.
Sá elsti 104 ára
Elsti núlifandi íslendingurinn
er 104 ára í dag. Það er Valfríður
Guðmundsdóttir frá Heimaskaga
á Akranesi. Hún býr á Droplaug-
arstöðum í Reykjavík. Morgun-
blaðið sagði frá.
Villigötur
Skrifstofustjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu
segir við Dag
að landlæknir
sé á villigötum
i yfirlýsingum
um ótímabær-
ar útskriftir
sjúklinga af
spítölum.
Skýringa veröi
að leita á hvaö búi að baki.
Sérffæðiiæknar vilja meir
Sérfræöilæknar krefjast
60-70% hærri greiðslna frá
Tryggingastofnun fyrir þjónustu
sína á læknastofúm. Fyrir sum
verk vilja þeir 200% meira. Al-
mannatryggingakerfið leggst í
rúst verði farið að kröfúnum.
RÚV og Stöð 2 sögðu frá.
Ólga hjá FÍ
Flugfélag íslands hætti í gær
flugi frá Akureyri til Raufarhafh-
ar og Egilsstaða. Ólga er meðal
starfsmanna vegna uppsagna. Til
stendur að bjóða hlaðþjónustuna
út. RÚV og Dagur sögðu frá.
Slæm fyrir landsbyggöina
Rafmagnshækkun Landsvirkj-
unar kemur verr niður á lands-
byggðinni en höfúðborgarsvæð-
inu. Rafveita Reykjavíkur hefúr
lækkað smásöluhlutdeild sína í
samræmi við samþykkt borgar-
ráðs. RÚV sagði frá.
Sektin talin nást inn
RÚV segir líkur á aö Þórður Þ.
Þórðarson, sem dæmdur var i 50
milljóna króna sekt fyrir skatt-
svik, geti trúlega greitt sektina.
130 milljóna króna skattskuld
hans fáist hins vegar varla greidd.
Mest af Corolla
Toyota Corolla var mest seldi
nýi bíllinn á íslandi á síöasta ári.
Alls seldust 985 eintök og var hlut-
deild Corollu 9,7%. Næstur var
Subaru Impreza með 5,3% hlut-
deild. Morgunblaðið sagði frá.
Þorsteinn heiðraöur
Þorsteinn E. Jónsson flugstjóri
verður heiðursgestur á útskrift-
arhátíö bandaríska flughersins í
Alabama í vor, aö sögn Morgun-
blaðsins. Þorsteinn var orr-
ustuflugmaður í breska flughem-
um á stríðsárunum og flugstjóri
á íslandi, Afríku og Lúxemborg
að stríðinu loknu.
Hafnarstræti aftur lokaö
Hafnarstræti, sem opnað var á
ný fyrir bílaumferð við Lækjar-
torg fyrir jól-
in, hefur verið
lokað á ný.
Kaupmenn og
Miðbæjarsam-
tökin hafa
mótmælt lok-
uninni og
skora á Ingi-
björgu Sól-
rúnu Gisladóttur borgarstjóra að
opna götuna á ný. -SÁ