Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Page 2
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 JjV 16 &ikmyndir Vinsælasta óháða myndin Yfirleitt er þaö svo í Banda- ríkjunum aö kvikmyndir gerðar af svokölluðum óháða kvik- myndaiðnaði eiga erfltt uppdrátt- ar, oft vegna þess að engir pen- ingar eru til að markaðssetja þær. Það skiptir því miklu aö fá þekktan leikara til að leika fyrir iítið. Leikstjórinn Kasi Lemmons gerði Eve’s Bayou fyrir aðeins 4 milljónir dollara og er hún vin- sælasta óháða kvikmyndin á síð- asta ári, tók inn 13,2 milljónir dollara. Myndin fékk mjög já- kvæða dóma hjá gagnrýnendum en það sem gerði útslagiö um vinsældir myndarinnar er að eitt aðalhlutverkið leikur Samuel L. Jackson. Einföld ráðagerð Bridget Fonda, sem hefur feng- ið góða dóma fyrir leik sinn í nýjustu kvikmynd Quentins Tar- antinos, Jackie Brown, er að hefja leik í A Simple Plan sem fjallar um tvo bræður sem finna fjórar milljónir dollara i flaki flugvélar og ákveða að halda pen- ingunum. Bræðurna leika Bili Paxton og Billy Bob Thomton. Áður en Fonda birtast á hvtta tjaldinu í A Simple Pian munum við sjá hana í The Break up og The Road to Graceland. •T' » L f ■ Múmían endurgerð Brendan Fraser, sem slegið hefur í gegn í George of the Jungle, hefur verið ráðinn til að leika í The Mummy, sem er end- urgerð kvikmyndar frá árinu 1932 og var sú mynd með Boris Karloff í aðalhlutverki. Leikur Fraser amerlskan hermann í frönsku útlendingahersveitinni sem fer í fjársjóðsleiðangur með félögum sínum. í pýramída ein- um vekur hann óvart upp múm- tu. Leikstjóri og handritshöfund- ur er Stephen Sommers. Þess má til gamans geta að Fraser hefur nýlokið við að leika í Gods and Monsters sem íjallar um ævi leikstjórans James Whale sem meðal annars leikstýrði Franken- stein og the Bride of Franken- stein. Tarantino á Broadway Enginn efast um hæfileika Quentins Tarantino sem leik- stjóra. Hingað til hefur ekki þótt ástæða til að hæla honum sem leikara og hefur það oftar en ekki verið sagt að hann ætti al- fariö að snúa sér að handritsgerð og leikstjóm en láta aðra um að leika í kvikmyndum. Það er greinilegt að Tarantino annaö hvort les ekki dóma um leikhæfi- leika sína eða hann tekur ekki mark á þeim þvi hann hefur samþykkt að leika á Broadway í Wait until Dark en eftir þessu leikriti var gerð fræg kvikmynd. Þegar hann tilkynnti þetta sagði hann í leiðinni að hann „væri mjög, mjög, mjög stoltur af leik sínum 1 From Dusk till Dawn.“ Fjögur ástarbráf Stanley Tucci, sem leikstýrði hinni eftirminnilegu kvikmynd Big Night, hefur fullgert handrit eftir skáldsögunni Four Letters of Love sem hann mun einnig leikstýra. Sagan er ástarsaga og segir frá tveimur íjölskyldum i Dublin sem eiga það sameigin- legt að innan beggja flölskyldn- anna eru sjúkir einstaklingar. Veikindin leiða saman hin ungu Nicholas og Isabel sem verða ástfangin hvort af öðru. Stutt er síðan Stanley Tucci leikstýrði The Imposters sem er endur- gerð Ship of Fools sem gerð var snemma á sjöunda áratugnum. t : i Óárennilegir stríðsmenn tilbúnir til átaka. Mortal Kombat: Upprunalega var Mortal Kombat tölvuleikur sem fljótt varð óhemju- vinsæll. Eigendum tölvuleiksins þótti upplagt að gera kvikmynd upp úr leiknum og fengu til liðs við sig kvikmyndafyrirtækið New Line til að takast verkefnið á hendur. Fyrir tveimur árum kom slðan á markaðinn Mortal Kombat, sem segja má að hafi verið ein rússíbanaferð frá upphafi til enda. Vinsældir myndarinnar urðu svo miklar að ákveðið var að gera framhald sem hlaut heitið Mortal Kombat: Annihil- ation. Einn framleiðandi myndarinnar, Larry Kasanoff, sem einnig er eigandi fyrir- tækisins sem framleitt hef- ur tölvuleikinn segir að nú hafi þeir leyft sér allt sem þeir sáu ekki fram á ?• að geta í fyrri myndinni , og hafi Mortal Kombat verið hröð sé framhaldið enn hraðara. Mortal Kombat: Anni- hilation er fyrst og fremst ævin- týramynd sem gerist í framtíð- inni. Tækninni hefur að sjálf- sögðu fleygt fram og óvinur- inn er ekki mennsk- ur. Bar- dagasiðir hafa lítið breyst og eru aust- urlenskar. sjálfs- vamar- íþróttir í há- vegum hafð- ar. Enn eina ferðina er ver- ið að bjarga jörðinni frá tor- tímingu. Óvin- irnir ráða yflr mun meiri þekk- ingu á leyndum öflum alheimsins, en misreikna sig þegar þeir halda að mannkynið sé auðveld bráð. I helstu hlutverkum eru Robin Shou, sem lék sigurvegarann í Mor- tal Kombat-keppninni í fyrri mynd- inni, Talisa Soto, Brian Thompson, Sandra Hess og James Remar. Leik- Er hann að leikstýra kvikmynd í fyrsta sinn. Robin Shou er Bandaríkjamað- ur.sem hafði aldrei leikið í kvik- mynd. Var hann orðinn viðurkennd- ur sjálfsvamaríþróttamaður þegar hann ákvað að fara til Hong Kong og reyna fyrir sér í þar- lendum kvik- myndum. í Hong Kong lék hann í tuttugu kvik- myndum. Þegar honum var boðið aðalhlutverkið í Mortal Kombat flutti hann aftur til Bandaríkj- anna. Auk þess að hafa leikið í Mortal Kombat myndunum lék hann bróður hins nýlátna Chris Farleys í Beverly Hills Ninja. . stjori er John ^ R. Leonetti, sem var kvikmynda- tökumaður við gerö fyrri myndarinnar Robert Shou, iengst til vinstri, lék einnig hlutverk hetjunnar í fyrri myndinni. Á myndinni til hliðar er Talisa Soto í hlutverki Kitana prinsessu. Tomorrow Never Dies ★★★★ Bond þarf hér að díla við athyglissjúkan fjölmiölamðgúl með hjátp kínverskrar súperpíu. Brosnan er snillingur í því að halda hárfinu jafnvægi milli sjálfsháðs og alvöru og það er að stórum hluta honum að þakka hve Tomorrow gengur vel upp, bæði sem grín og hágæöa hasar. Myndin er ómissandi skemmtun t skammdeginu og Brosnan hér með yfiriýstur besti Bond- inn. -úd L.A. Confidental ★★★★ Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratug- arins eru sögusviðið t óvenju innihalds- ríkri og spennandi sakamálamynd sem enginn ætti að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Titanic ★★★★ Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fttonskrafti tókst James Cameron að koma heilli t höfn dýrustu kvikmynd semgerð hefurveriö. Fullkomn- unarárátta Camerons skilar sér í eðlilegri sviösetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leonardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftirminnileg í hlutverk- um elskendanna. -HK Barbara ★★★★ Vel upp byggð og vel lelkin mynd í alla staði, sérstaklega vakti það ánægju hversu vel allar aukapersónur og smáat- vik voru vel ogfimlega útfærð. Myndatak- an er áferöarfalleg og aldrei of uppskrúf- uö í landslagsyfirliti og dramattskum veö- urlýsingum en nýtti jafnframt vel náttúru- fegurð eyjanna. -úd Sling Blade ★★★★ Billy Bob Thornton (leikstjóri, handrit og aðalhlutverk) er hér að vinna meö klass- fsk temu svo sem spurninguna um sak- leysi, vit og muninn á réttu og röngu. Með ótrúlega góðri persónuskópun og vel skrifuðu handriti tekst Thornton að skapa virkilega áhugaverða og ánægjuiega kvik- mynd sem þrátt fyrir hægan gang og þungan undirtón er bæði grtpandi og fyndin. -úd Event Horizon ★★★* Geimskipið Lewis & Clark leggur upp t leiðangur til aö bjarga tilraunaskipinu Ev- ent Horizon sem hefur verið tý-nt í 7 ár. Bresk áhrif leyna sér ekki hér, bæði hvað varðar gotneska hönnun, góöan leik og gæðahrylling. Meö vel heppnaöri hönnun og flottu útliti, magnaðri tónlist og há- gæða ískrandi spennu er varla hægt að ímynda sér að hægt sé að gera betur í svona geimhorrorhasar. -úd Lína lanqsokkur ★★★ Lina langsokkur er löngu orðin klasstsk og þaö vill stundum gleymast að hún er ekki erfð með genunum heldur lesin á bókum. Lína er hinn stjórnlausi óska- draumur allra barna, frjáls, óháö og ger- samlega sjálfstæð, þvt hún bæði getur allt og leyfir sér allt. Þarna tókst vel til hvað varðaði teikningar og útfærslur og það er óhætt að mæla meö þessum Ltnu-pakka fyrir böm á öllum aldri. -úd Starship Troopers r★★ Starship Troopers fer hægt af staö en í seinni hluta myndarinnar er ekkert hlé á spennunni. Þrátt fyrir að uppskeran sé innihaldslttil og óvenjublóðug mynd sem á flest allt undir glæsilegum tæknibrell- um mæli ég meö henni. Brellurnar eru það góðar að flestir hnökrar gleymast eöa skipta ekki máli.-ge Stikkfrí ★★ Gott handrit og góða barnaleikara þarf til að gera góða barnamynd og þetta er aö finna t kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk þess gerir góðlátlegt grín að þeim að- stæöum sem börn fráskilinna foreldra lenda t. Skemmtileg og Ijúf fyrir alla fjöl- skylduna. -HK Perlur og svín ★★★ Fyndin mynd um hjón, sem kunna ekki aö baka en kaupa bakarí, og son þeirra sem selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar jónasson hefur einstaklega skemmtilegan húmor sem kemst vel til skila og í leiðinni kemur hann við kaunin á landanum. Ólafia Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Siguröarson eru eftirminnileg í hlutverkum hjónanna. -HK Með fullri reisn ★★★ Eftir að hafa hneykslast upp í háls (og verða léttskelkaðir líka) á hinum ttur- vöxnu fatafellum The Chippendales upp- götva þeir félagar Gaz (Robert Cariyle) og Dave (Mark Addy) að það að fækka fötum uppi á sviði er hið aröbærasta athæfi. Þaö er varla hægt að hugsa sér betri ávís- un upp á skemmtun en svona sögu og svo sannariega skilaði myndin þvt gríni sem hún lofaði, með fullri reisn.-úd Air Force One ★★★ Harrison Ford er trúverðugur forseti BandartKjanna, hvort sem hann setur sig t spor stjómmálamannsins eða fyrrum Vi- etnam-hetju t spennumynd sem er hröð og býöur upp á góð atriði. Brotalamir t handriti ásamt klisjukenndum persónum veikja hana þó til muna. -HK The Game ★★á The Game nær að skapa skemmtilegt andrúmsloft þar sem ofsóknarótti og framandi umhverfi haldast ágætlega t hendur. Douglas sýnir góð tilþrif t leik sín- um og aukahlutverkin eru vel mönnuð. Helsti galli hennar er sá að grunnhug- myndin gengur ekki upp og hnökrar t frá- sagnarfléttunni gera þessa annars skemmtilegu spennumynd að innantómri vitleysu. -GE I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.