Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Blaðsíða 5
19
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 ★
m helgina
Konukvöld
í Eyjum
í kvöld verður efnt til konukvölds á
HB-pöbb í Vestmannaeyjum.
Dagskráin hefst kl. 22 með söng
þeirra Stefáns Hilmarssonar og Eyjólfs
Kristjánssonar. Þeir munu syngja lög
eftir Simon og Garfunkel af mikilli
list. Ýmislegt tleira verður á boðstól-
um sem gleður augun og andann.
Hljómsveitin Hálft í hvoru leikur
síðan tyrir dansi ásamt Stefáni Hilm-
arssyni. Athygli er vakin á því að hús-
ið verður opnað fyrir karlmenn eftir
miðnætti.
Dansinn er bæði góð íþrótt og falleg listgrein:
Dansinn dunar
Á sunnudaginn
verður opið hús hjá
Danssmiðju Her-
manns Ragnars og
Dansskóla Auðar
Haralds. Milli kl. 13
og 17 gefst gestum og
gangandi kostur á
að líta inn og virða
fyrir sér salarkynni
skólans. Ýmsar upp-
ákomur verða á
staðnum og ungir
sem aldnir munu
stíga dans í Skip-
holtinu. Kynning
verður á starfsemi
skólanna og sýndir
verða dansar sem
kenndir verða í vet-
ur: bama- og sam-
kvæmisdansar, kán-
trí, break, diskó,
rokk, s+epp og annað
sem hrífúr hugann.
Einnig verður
skírteinaafhending
fyrir skráða nem-
endur og tekið verð-
ur á móti greiðslum fyrir námskeiðin.
Kennarar og starfsmenn skólans verða á staðnum og gefa upplýsingar um
starfsemi vetrarins.
Lúörasveit verkalýösins hefur á aö skipa um 40 hljóöfæraleikurum.
Lúðrasveit verkalýðsins:
Síðbúnir áramótatónleikar
Lúðrasveit verkalýðsins heldur
áramótatónleika sína í Ráðhúsi
Reykjavíkur á morgim, kl. 14.
Á efiiiskrá tónleikanna eru m.a.
verk eftir Ludwig van Beethoven,
Leroy Anderson, Fredrick Löwe, G.
Rossini, Kenneth J. Alford, Robert
Russel Bennet, J.F. Wagner og H.C.
Lumbye.
Einleikarar á trompet verða Öm
Hafsteinsson, Ásdís Þórðardóttir og
Jenný Jónsdóttir.
Alls leika um 40 hljóðfæraieikar-
ar með Lúðrasveit verkalýðsins.
Stjómandi sveitarinnar er Tryggvi
M. Baidvinsson.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
www.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.is;
* * * ÁáAM***
m
®tír
ISi •! ^DINGA
M
m
m
%
m
. mrnu
ISÍUNDINC, A
• ****** !
«ÆTTIR
t-NDINGA
u
;líETTIR
íSiWndinc; a
a - t
P'!£
O
1> - 1
U - O
Ættfrccði vefur DV
******
3
w.dv.js www.dv.iswww.dv.is, wv/.w.dv.js www.dv.)swww.dv.is www.dvj's; www.dv.R
WWW.ClV.iSwww.dv.is www.dv.ís
w w w. d v. i s
j H Aðgangur ókeypis fyrst s nnj j j I
Frá því ættfræðisíða DV hóf göngu sína 20. júlí 1987 hafa ættfræðingar og
blaðamenn DV rakið ættir og æviágrip um 11.000 íslendinga á síðum blaðsins.
Alls koma vel á annað hundrað þúsund manns við sögu í ættrakningum DV
á vefnum. Frá deginum í dag eru ættfræðigreinar DV aðgengilegar almenningi
á Netinu. Á Ættfræðivef DV er hægt að fletta upp nöfnum fólks
í stafrófsröð eða leita að því með öflugri leitarvél.
Fyrst um sinn verður aðgangur ókeypis að þessum hafsjó fróðleiks.