Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
25
Patti
- pönkdrottningin í sviðsljósið á nýjan leik
eir sem fylgdust með
rokktónlist um miðjan
áttunda áratuginn muna
eflaust eftir bandarísku
söngkonunni Patti Smith.
Smith var á sínum tíma talin
upphafsmaður pönksins vestra,
bæði með hráinn og einfoldum
melódíum i keyrslulögum sínum
en ekki síst vegna texta sinna sem
ætíð voru byggðir á þjóðfélagsá-
deilum. Ekki var þó eingöngu um
að ræða hrátt og taumlaust rokk
hjá Smith og hljómsveit hennar
því hún virtist hafa mikla hæfi-
leika til að semja sorglegar og ang-
urværar ballöður og er þá
skemmst að minnast lagsins
Because the night sem hún samdi
með Bruce Springsteen. En það er
kannski ekki síst þessu lagi að
þakka og flutningi Springsteen
sem Smith hefur haldið sér á floti
síðustu fimmtán árin eða þann
tíma sem hún hefur verið úr sviðs-
ljósinu og heimurinn gleymt
henni.
Patti Smith er fædd árið 1946 í
Chicago en ólst upp í New Jersey.
Hún leitaði strax á vit ljóðagerðar og
gaf út ljóðabækur um og eftir 1970.
Áhugi hennar á rokktónlist var þó
aldrei langt undan og hún fór að
nota tónlistina með ljóðum sinum
þegar hún kom fram í neðanjarðar-
klúbbum í New York.
Smith sem hafði áður gefið út
ljóðasmáskífúna Piss Factory árið
1974 hóf innreið sína í heim rokktón-
listar ásamt hljómsveit sinni, The
Patti Smith Group árið eftir með
breiðskífunni Horses. Á næstu árum
komu út fleiri plötur með sveitinni,
Radio Ethiopia (1976), Easter (1978)
og Wave ( 1979). Allt urðu þetta plöt-
ur sem áttu eftir að hafa mikil áhrif
á tónlistarmenn. Einn af þeim er
Michael Stipe, söngvari R.E.M.. Það
var því ekki að R.E.M. færi þess á
leit við Smith að hún syngi með
sveitinni bakraddir í nokkrum lög-
um og einnig hefur U2 átt við hana
samstarf. Smith sem giftist Fred
„Sonic“ Smith, upphafsmanni sveit-
arinnar MC5, dró sig í hlé næstu ár-
in og ferðaðist um gjörvöll Bandarík-
in með eiginmanni sínum og vann
að ljóðagerð. Það var ekki síst vegna
fjárskorts sem ákveðið var að gefa út
nýja plötu árið 1988. Smith sem var
ólétt að sínu fyrsta bami á þessu
tímabili hafði nú gjörbreytt um stíl.
Textar plötunnar Dream of Life fjöli-
uðu um Móður Jörð og andlega ást,
þema sem var einfaldlega ekki til í
heimi rokktónlistar.
Platan hlaut því frekar dræmar
viðtökur hjá gagnrýnendum og aðdá-
endum söngkonunnar.
Patti Smith er fædd árið 1946 í Chicago en ólst upp í New Jersey. Hún leitaði strax á vit Ijóðagerðar og gaf út Ijóða-
bækur um og eftir 1970. Áhugi hennar á rokktónlist var þó aldrei langt undan og hún fór að nota tónlistina með Ijóð-
um sínum þegar hún kom fram í neðanjarðarklúbbum í New York.
Smith
Eiginmaðurinn lást
Það urðu síðan þátta-
skil í lífi Patti Smith þeg-
ar eiginmaður hennar lést
úr hjartaáfalli 1994, aðeins
rétt rúmlega fertugur. Það
var eins og eitthvað hefði
ýtt á hana og sköpunar-
kraftiuinn braust nú fram
óbeislaður. Platan Gone
Again sem kom út 1996
var af mörgum talin með betri rokk-
plötum ársins. Og í fyrra kom síðan
platan Peace And Noise sem hefur
fengið mjög góða dóma gagnrýnenda
og Patti Smith m.a. verið tilnefnd til
Grammyverðlauna fyrir besta flutn-
ing á rokklagi og er það lagið 1959 af
plötunni Peace and Noise.
Smith er komin í gamla formið og
notar samfélagsskoðun óspart í text-
um sínum.
í viðtali nýlega sagði Smith að ný
plata væri á leiðinni aðeins þremur
mánuðum eftir að Peace And Noise
kom út. Smith gaf þær skýringar að
andagift sveitarinnar væri í hámarki
og því engin ástæða tii að gefa ekki
út plötur með stuttu millibili. -ps
Röng leið á toppinn hjá
Þegar Brad Nowell, söngvari
Sublime, lést af völdum eiturlyfja-
neyslu héldu margir að það yrði
hljómsveitinni að fjörtjóni. Hins
vegar fór það ekki svo. Breiðskífa
Sublime seldist í næstum tveimur
milljónum eintaka og varð Sublime
ein af hljómsveitum ársins 1997.
Mánuði eftir að söngvari hljóm-
sveitarinnar lést sökum heróín-
neyslu var upptökustjóri hljóm-
sveitarinnar enn í sjokki. Hann sat
einn í íbúð sinni og var frekar þung-
ur á brún. Brad Nowell átti langan
feril að baki í fíkniefnum en hafði
náð að losa sig úr viðjum þeirra
tímabundið. Það sem varð honum
SUBLIME
að falli var neysla annarra meðlima
hljómsveitarinnar Sublime og varð
það til að ýta honum út af beinu
brautinni. Hlutimir litu því ekki
vel út í byrjun árs 1997 hjá útgáfú-
fyrirtæki Sublime, söngvarinn lát-
inn og ekki hægt að finna neinn til
að fylla skarð hans. En þrátt fyrir
þetta tók plata hljómsveitarinnar að
seljast eins og heitar lummur.
Sublime fóru ekki. í nein útvarps-
eða blaðaviðtöl og ekki voru haldn-
ir tónleikar til að fylgja plötunni eft-
ir. Háskólaútvarpsstöðvar tóku
hana hins vegar upp á arma sína og
fljótlega varð lagið Wrong Way vin-
sælt um gervöll Bandaríkin.
Sublime á það nú til frægðar að
hafa gert skacore að vinsælli tón-
listarstefnu. Þar sem pönki, poppi
og skacore-tónlist frá Jamaica er
blandað saman. Þó svo hljómsveitin
Sublime sé nú hætt störfum er út-
gáfu á tónlist hennar ekki lokið. Til
stendur að gefa út á næstunni safn-
plötu með sveitinni sem inniheldur
b-hliðar og áður óútgefið efni. Innan
fárra ára kemur lika út sólóskífa
með Brad Nowell og tónleikaplata.
Eftirlifandi meðlimir Sublime hafa
nú gengið til liðs við nýjar hljóm-
sveitir enda þykir ekki fært að
halda hljómsveitinni gangandi á
Brads.
Rúnar Júl. og
Tryggvi
Húbner
Rúnar Júlíusson og
Tryggvi Húbner leika fyr-
ir gesti Feita dvergsins í
kvöld og annað kvöld.
Sveitin er skipuð þeim
Guðmundi Símonarsyni,
söngvara og gítarleikara,
og Guðlaugi Sigurðssyni
hljómborðsleikara.
Spur á Gaukn-
um
Galabandid
Hljómsveitin Gala-
bandið, ásamt Önnu Vil-
hjálms, heldur upp stuð-
inu á Næturgalanum í
Kópavogi í kvöld og ann-
að kvöld.
Á sunnudagskvöldið
leikur hljómsveit Hjör-
dísar Geirsdóttur gömlu
og nýju dansana.
SÍN á
Pollinum
Nú um helgina leikur
hljómsveitin SÍN á veit-
ingastaðnum Við Pollinn á
Akureyri. Hljómsveitin
leikur létta tónlist sem all-
ir geta sveiflað tánum með.
Hljómsveitin Spur
mun leika á veitinga-
staðnum Gauki á Stöng í
kvöld og annað kvöld.
Meðlimir sveitarinnar
eru: Telma Ágústdóttir,
Gunnar Þór Jónsson,
Ríkharður Arnar, Páll
Sveinsson og Jón Örvar
Bjarnason.
Svensen og
Hallfunkel
Gleðigjafarnir Svensen
og Hallfunkel leika fyrir
dansi á veitingastaðnum
Gullöldinni í kvöld og
annað kvöld.