Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Side 12
26 myndbönd
k: kr
MYNDBAdDA
Absolute Power **■■<.
Yfirhylming á æðstu stöðum
Clint Eastwood leikur þjófinn Luther Whitney sem við innbrot verð-
ur vitni að morði. Morðinginn er sjálfur forseti Bandaríkjanna og
Luther ákveður að klekkja á honum. Það er hægara sagt en gert því
hann er sjálfur grunaður um morðið og bæði löggm'nar og leyniþjónust-
an eru á eftir honum. í stil við aldur sinn reynir Eastwood hér að byggja
upp spennu með refskák hugans fremur en líkamlegum hasar og gerir
það ansi vel framan af. Upp úr miðbiki myndarinnar fer hins vegar að
halla undan fæti og niðurlagið er afar klúðurslegt og ófullnægjandi.
Uppbygging sögufléttunnar er með sóma en ekki er nógu vel greitt úr
henni. Góðir leikarar gera mikið fyrir myndina og gera hana vel þolan-
lega áhorfs. Clint gamli þarf ekki annað en að vera hann sjálfur og Gene
Hackman er skínandi góðm- í hlutverki forsetaluðrunnar. Þá eru Ed
Harris og Scott Glenn traustir í sínum hlutverkum en best allra er samt
Judy Davis í hlutverki hinnar siðblindu starfsmannastýru forsetans.
Góðir leikarar ná að hífa myndina örlitið upp fyrir meðalmennskuna.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Clint Eastwood. Aðalhlutverk: Clint
Eastwood, Gene Hackman og Ed Harris. Bandarisk, 1997. Lengd: 116
mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Lost Highway:
Týndur söguþráður
David Lynch hefur löngum verið mikið fyrir að
I gera myndir sem meðaljóninn hefur litla möguleika
i á að fá botn í. Lost Highway er sennilega sú mynda
I hans sem hvað erfiðast er að skilja og í rauninni er
RRnWW/la myndin óskiljanleg. Til að fá eitthvað út úr henni
þarf áhorfandinn að slökkva á rökhugsuninni og láta
m skilningarvit sín í hendur leikstjóranum. Af öllum
síðari verkum hans er Lost Highway það sem líkast
j|L P er Eraserhead. Lynch notar ljós og skugga mikið til
_■ ______ að ná fram hughrifúm og öðru hverju notar hann
tónlist líka. Framan af myndinni er hann heldur
mikið að nostra með lýsinguna og náði ekki alveg að fanga athygli mína
en það lagaðist þegar á leið. Einn galli við þetta innhverfa kvikmynda-
form er að leikaramir fá lítið að njóta sín þrátt fyrir að vera löngum
stundum í mjög náinni nærmynd. Bill Pullnam og Balthazar Getty eru
réttilega afar týndir og ráðvilltir í tvíburahlutverkum sínum, Patricia
Arquette á góða spretti í sínum en Robert Loggia fangar athyglina einna
best, enda býður hlutverk hans upp á hvað mest tilþrif. Ég hafði gaman
af ýmsu í myndinni en nenni ekki að læra kvikmyndasögu í fjögur ár
til að skilja hana.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: David Lynch. Aðalhlutverk: Bill Pullnam,
Patricia Arquette og Balthazar Getty. Bandarísk, 1997. Lengd: 135 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Love and other Catastrophes
Ástarflækjur
Þessi ástralska mynd segir frá einum degi í lífi
nokkurra ástralskra háskólanema. Myndin reynir að
vera trú hinni áströlsku hefð og rembist ótæpilega
við að vera fersk, frumleg og skemmtileg, sem tekst
að nokkru leyti. Söguþráðurinn er með einfaldasta
móti - hver persóna fýrir sig er að rembast við ást-
ina og í lokin para þau sig rétt saman. Síðan er lítil
hliðarsaga í tilraunum einnar persónunnar til að
skipta um námsbraut og baráttu hennar við óvin-
gjarnlegt skrifræðið í skólanum. Persónumar eru í
flestum tilvikum fremur grunnar og einfaldar en um
leið skýrt afmarkaðar og oft ansi skemmtilegar. Leikararnir eru í skárri
kantinum og skemmtilegust er Alice Gamer i hlutverki flækjufótarins
Alice. Myndin er krydduð með tónlistarbrotum og öðm hverju velta ein-
hverjar misfáránlegar pælingar upp úr persónunum. Heimspekin er ekki
djúp en stundum forvitnileg. Love and other Catastrophes er ekki mjög
merkileg mynd en fremur ánægjuleg áhorfs og oft nokkuð fyndin.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Emma-Kate Croghan. Aðalhlutverk: Frances
O'Connor, Alice Garner, Matthew Dyktynski, Matt Day og Radha Mitchell.
Áströlsk, 1996. Lengd: 90 mín. Öllum leyfð. -PJ
The Lost World
Meira af því sama ★
■ The Lost World gerist fjómm ámm eftir atburði
Jurassic Park. Jeff Goldblum fær að vita að önnur
risaeðlueyja er til og hleypur þangað á eftir kærast-
unni sinni sem þar er að stunda vettvangsrannsókn-
ir. Fyrirtækið InGen ætlar að gera ný og verri mis-
tök með því að flytja eðlumar til meginlandsins og
þar fer lokakafli myndarinnar fram þar sem ein
grameðlan ráfar um stræti. Reynt er að toppa fyrri
myndina á hefðbrmdinn hátt (tvær grameðlur í stað
einnar o.s.frv.) en þessi grautur er heldur þunnur.
Tæknibrellurnar eru ekkert flottari en í fyrri mynd-
inni, bara fleiri, og persónumar eru síður áhugaverðar. Ein athyglis-
verðasta persóna fyrri myndarinnar stærðfræðingurinn Ian Malcolm
hefur þynnst út og er orðinn dæmigerður og óspennandi. Stórleikararn-
ir Jeff Goldblum og Pete Postlethwaite valda vonbrigðum og aðrir em
ekki til stórræðanna, einna helst að gaman megi hafa af fúlmennskunni
í Peter Stormare. Nokkra skemmtun mátti hafa af snareðlubardaganum
og fimleikaatriðið hennar Vanessa Lee Chester var óborganlegt og hálfr-
ar stjömu virði eitt og sér.
Utgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Steven Spielberg. Aðalhlutverk: Jeff
Goldblum, Julianne Moore, Pete Postlethwaite og Arliss Howard. Banda-
rísk, 1996. Lengd: 126 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
SÆTI « i j FYRRI VIKA ; VIKUR Á LISTAj : J J TITILL ÚTGEF. j J TEG. j j
1 i 1 ! 3 ! ! i ! J ) Con Air Sanwnyndbönd j Spenna
2 ; Ný Absolute power J j Sktfan j j Spenna nWBBB
3 1 2 1 3 1 j 3 ) Fierce Creatures ' ClC-myndbönd ! Gaman
i 4 J i 4 j J ) 4 ) j ) Dante's Peak ) , | ClC-myndbönd i j Spenna
5 i 3 J e J ) 6 J Liar Liar i ClC-myndbönd i Gaman
i 6 i 5 J J i 2 í , . | The 6th Man j j Sam-myndbönd J j Gaman 1
J 7 i ■ s i 8 i j 6 j 4 ) One Fine Day J Skífan J ) Gaman
7 j ) 1 7 1 i i The Fifth Element J Skífan j J ; , Spenna j .
9 i 8 i 4 i First Strike j Myndform j Spenna
10 i J 9 i 6 i i . ) Trial and Error J j Myndform ) J j Gaman J
11 1 10 ) 3 1 j 3 ) Ghosts From the Past Skífan j Spenna
12 i j Ný j ) j 1 » j ) Lost Highway J j Myndform j j Spenna
13 i 11 ) c 1 J 5 J Jungle 2 Jungle i Sam-myndbönd i Gaman
h ; : HHn 13 J J i 8 i Bulletproof ) ClC-myndbönd J j Spenna 1
15 1 14 i 10 J Scream ) Skffan / I J Spenna 1
i. I J 15 J J J 7 1 j ' J j J Private Parts J ' j Sam-myndbönd j. .1 ..... , Gaman J
17 i 12 i U i The Saint j ClC-myndbönd j Spenna
18 i 16 i 9 i j ) Shadow Conspiracy J J Myndform J j J Spenna J
19 i 18 ) 9 1 j 3 J Donnie Brasco J Sam-myndbönd J Spenna
20 i J 19 j ) ) 4 J i ' Gotti J J j Sam-myndbönd Spenna
Ekki eru miklar breytingar á listanum þessa vikuna. Con
Air hélt efsta sætinu þrátt fyrir aö sjálfur Clint Eastwood
kæmi stormandi inn á listann í sakamálamyndinni Absolute
Powers. Fyrir þá sem vilja ööruvísi kvikmynd er vert aö
benda á mynd sem vermir eliefta sæti iistans, Lost Highwa-
ys. Um er aö ræða nýjustu kvikmynd leikstjorans Davids
Lynchs sem meöal annars færöi okkur Blue Velvet og Twin
Peaks sjónvarpsseríuna. Oft hafa myndir Lynch veriö tor-
ráönar en í samanburði við Lost Higway eru fyrri myndir
hans eins auöskildar og teiknimyndir frá Disney.
Con Air
Dante s Peak Liar Liar
Nicolas Cage og
John Malcovich
Cameron Poe er á leiö
heim til konu sinnar og
dóttur eftir fangavist.
Ásamt Poe eru í flugvél-
inni nokkrir af illræmd-
ustu og hættulegustu
glæpamönnum Banda-
ríkjanna og það líður
ekki á löngu þar til kom-
ið er upp algjört neyðar-
ástand í vélinni. Sá sem
stendur fyrir uppþotinu,
Cyrus Grissom, hefur
brátt aila vélina á sínu
valdi. Það kemur í hlut
Poes að koma í veg fyrir
áætlanir Grissoms. Á
meðan berst leyniþjón-
ustumaðurinn Larkin af
öllum mætti gegn þvi á
jörðu niðri að heryfir-
völd skjóti flugvélina
niður.
Absolute
Power
Clint Eastwood og
Gene Hackman
Luther Whitney er
meistaraþjófur sem telur
sig kunna ráð við öUum
vanda. Hann gat samt ekki
séð fyrir að eiginkona auð-
ugs kaupsýslumanns yrði
heima einmitt það kvöld
þegar hann ákveður að
ræna híbýU hans og hann
gat heldur ekki séð fyrir að
elskhugi hermar kæmi í
heimsókn og því síður að
þau myndu lenda í átökum
sem enduðu á þann veg að
hún Uggur dauð uppi í
rúmi. Hápunkturinn á
óheppninni er þó að els-
huginn er sjálfur forseti
Bandaríkjanna. SkyndUega
þarf Luther að glíma við
valdamesta mann í heimi
sem vffl hann dauðan.
Fierce Creat-
ures
John Cleese og
Kevin Kline
HrokagUtkurinn Rod
McCain eignast Marwood-
dýragarðinn í Englandi fyr-
ir Utið fe. Hann þekkir ekk-
ert annað en að græða og í
þvi skyni sendir hann hina
kynþokkafuUu WUlu og
son sinn, nautnasegginn
Vince, tU Englands. Þegar
þau mæta á staðinn kom-
ast þau að þvi aö fram-
kvæmdastjórinn hefur þeg-
ar tekið tU sinna ráða. Héð-
an í frá skulu eingöngu
grimm og hættuleg dýr
vera tU sýnis. Þessi ákvörð-
un mætir harðri andstöðu
hjá starfsmönnum dýra-
garðsins sem eru undir for-
ystu skordýrafræðings sem
gengur undir nafninu
,J>adda“.
Pierce Brosnan og
Linda Hamilton
Síðasta uppgötvun
jarðfræðingsins Harrys
Daltons hefur Jeitt hann
tU ferðamannabæjarins
Dante’s Peak en þar hafa
sérkennUegar jarðhrær-
ingar vakið athygli. Um
leið og Harry kynnist bæj-
arstjóranum, Rachel, sem
er einstæð móðir og rekur
kaffihús i bænum, grunar
hann hvað í vændum er,
enda bendir röð óútskýr-
anlegra atvika tU þess að
náttúran sjálf sé um það
bU að fara að láta á sér
kræla. Aðvörunarorðum
hans er þó ekki sinnt og
er aðalástæðan sú að þá
væri ferðamannaþjónust-
an i hættu.
Jim Carrey og
Jennifer Tilly
Fletcher er
hraðmæltur lögfræðing-
ur og óforbetranlegur
lygari. Ungur sonur
hans, Max, sem býr hjá
mömmu sinni, hefur
margsinnis orðið að
sitja heima þegar faðir
hans hefur svikið loforö
sín. Þegar Max blæs á
kertin á funm ára af-
mæli sinu á hann sér
aðeins eina ósk: Að
pabbi hans hætti að
ljúga þó ekki væri nema
í einn sólarhring. Og
viti menn. Óskin rætist
og Fletcher kemst aö
þvi sér tU hreUingar að
skyndUega getur hann
ekki sagt ósatt orð og
það líður ekki á löngu
þar tU lögfræðiferiUinn
er i hættu.