Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
11
Fréttir
Mikil óánægja meðal starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss Isaíjarðar:
Reiknað með að margt
starfsfólk gangi út
- erum undirbúnir til að starfsemi lamist ekki, segir framkvæmdastjóri
Mikil óánægja er meðal margra
starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins
á ísafirði eftir að 12 starfsmenn i
ræstingu og 5 í eldhúsi fengu bréf þar
sem útskýrt er að vinnufyrirkomu-
lagi við spítalann sé breytt og spam-
aður fram undan vegna niðurskurðar
á framlögum til sjúkrahússins.
„Ég sé ekki annað en þetta séu
hópuppsagnir þó þeir segi að þetta
séu skipulagsbreytingar. Starfsfólk
mun lækka töluvert í launum og
það er óásættanlegt miðað við að
það er verið að semja um launa-
hækkanir. Ég á von á því að flestir
í ræstingunni gangi út 1. febrúar
þegar samningar verða lausir," seg-
ir starfsmaður sjúkrahússins sem
ekki vildi láta nafns síns getið.
Leiðinlegt en nauðsynlegt
„Það hefur engum verið sagt upp
heldur öllum boðin vinna hér
áfram. Um er að ræða breytt vinnu-
fyrirkomulag og spamað með því að
draga úr ræstingum um helgar og
hátíðar. Það þýðir minni eftirvinnu
fyrir starfsmenn og því lægri laun.
Ég skil vel gremju þeirra. Við eram
að bregðast við niðurskurði í fram-
lögum til sjúkrahússins. Á síðasta
ári var skorið niður um 5 milljónir
króna og á þessu ári verður skorið
niður um 3 og hálfa milljón til við-
bótar,“ segir Guðjón Brjánsson,
frcunkvæmdastjóri sjúkrahússins,
aðspurður um málið.
„Samningar era lausir, starfsfólk
í ræstingu getur gengið út 1. febrú-
ar og í eldhúsi í lok mars. Við get-
um í sjálfu sér ekkert gert til að
stöðva það. Helmingur starfsfólks í
ræstingu hefur þó ákveðið að starfa
áfram eftir sem ég best veit. Við bú-
umst samt við því versta og erum
undir það búnir að eitthvaö af
starfsfólki gangi út. Ég á ekki von á
því að starfsemi muni lamast því
við höfúm undirbúið aðgerðir, m.a.
grandvaUarbreytingu á ræstingar-
störfúm í húsinu með útboöi. Það er
mjög leiðinlegt að þurfa aö grípa til
þessara aðgerða en því miður nauð-
synlegt. Ég hef reynt að draga eins
lengi og hægt er þessar hagræðing-
ar,“ segir Guðjón. -RR
Eina innherjamáliö hjá ríkislögreglustjóra:
Ekki
Eina málið sem borist hefur rík-
islögreglustjóra vegna gruns um
innherjaviðskipti hefur verið látið
niður falla. Jón Snorrason, sér-
hæfður sáksóknari í efnahagsbrot-
ástæða til ákæru
- segir saksóknari
um, sagði í samtali við DV að at-
vik málsins væra þannig að ekki
hefði verið talið líklegt að þau
leiddu til sakfellis. Málið var sent
til RLR 1996 eftir skoðun hjá
Bankaeftirliti. Hins vegar sagði
Jón að ekki mætti álykta að málið
hefði verið sent „af tilefnislausu"
til embættisins. En samkvæmt
reglum væri málum ekki vísað
áfram til dómstóla nema nægjan-
legar eða líklegar ástæður væra til
að það leiddi til sakfellingar. Svo
hefði ekki verið í þessu tilfelli.
-phh
N
ój
S?
S5
6;
Hvenær skiptir
Í)ú um síur í
num þínum ?
FRAM ábyrgð
NYBARÐI ehf.
Goðatún 4-6, Garðabæ
Sími 565 6111
WWW. FRAMEUROPENL
Vertu vel hví u
ur a nyju an
• Rúmteppasett
* Rúmteppi
• Sjónvarpssófar
•Kommóður
• Vcerðarvoðir
• Hartdklceði
•Dýnuhlífar
*Lök - Pífulök o.fl.
Mörkinni 4 * 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510
Við styöjum við bakið á þér
AFSLATTUR
k______
HJÁ OKKUR ER HAFIN
l lv/LIar>{óIar - Stólar SveJ/isoJar - Sójar Anicrísh rúm I.aniyar - I uótir Ste/ni tujól I Iólóa,iaflar - natlf.