Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 16
le menning MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 U V Um listamanninn og verkfæri hans verkasjálfsali sem hann hefur útbúið og selur smámyndir eftir þá félaga. Það er eins hér að málverkin sjálf skipta ekki höfuðmáli heldur hinir nútímalegu við- skiptahættir. Gallinn við sýninguna er sá að það bætir litlu við hana að heimsækja hana. í rauninni er nóg að heyra sagt frá henni. Ég er ekki frá því að Snorri hefði átt að sýna fleira af sínum „eigin“ verk- um og gefa kettinum minna pláss. Ráðhildur og Merkúr Önnur sýning sem hefur staðið í nokkum tíma og vekur að vissu leyti svip- aðar spumingar og samsýning Akureyring- anna er sýning Ráðhildar Ingadóttur í Gall- erí Barmi. Margrét H. Blöndal hefur borið galleríið síöan um miðjan desembermánuð og dreift dreifibréfi eftir Ráðhildi með túrk- isbláum texta og teikningu sem lýsa lykkju- kenndum hreyfmgum plánetunnar Merk- úrs á síðasta ári. Verkið lætur lítið yfir sér en þegar betur er aö gáð minnir það okkur á allar ósýni- legu teikningamar sem gerast allt í kring- um okkur, að ógleymdri öryggistilfinning- unni sem það veitir manni að sjá þessa gíf- urlegu reglu- semi sem greinilega á sér stað um- hverfis okk- ur. Bréfa- formiö hæfir hugmynd- inni vel, listakonan sýnir hinum stórbrotnu alheimslög- málum mesta lotn- ingu með því að gera enga tilraun til aö líkja eftir þeim en segja bara frá. Einnig hér er ekki fullljóst hvort er listamaður- inn, Ráðhild- ur eða Merkúr? Er listakonan verkfæri i hönd- um háloftanna eða er það hún sem hefur himin- tunglin sér til aðstoðar? Og hvað er hún þá? Snorri og Loki Norðlendingamir Snorri Ásmundsson og Loki listaköttur eru á meðal frumherja þessa árs en þeir opnuðu sýn- ingu í Stöðlakoti laug- ardaginn 3. janúar. Snorri á sjálfur tvö mál- verk á sýningunni en þó að þau virðist nokk- uð merkingarþrungin eru þau svolítið eins og út úr kú þar sem verk Loka eru svo miklu fyr- irferöarmeiri. Einhverjir muna væntanlega eftir frétt- um frá síðasta sumri af kaupum Listasafiis Ak- ureyrar á verkum eftir köttinn en þau fóru fyrir brjóstið á mörgum, þar á meðal nokkrum listamönnum sem þótti Myndlist Áslaug Thoríacius þau beinlínis móðgandi. Á sýningunni í Stöðlakoti er hægt aö fletta í möppu með mörgum bráðskemmtilegum úrklippum, því sýning þeirra fyrir noröan hefur greinilega vakið athygli. Þaö er til dæmis athyglisvert aö forstöðumaður Listasafnsins hefur ekki aðrar skýringar á kaupunum en að verkin hafi verið svo ódýr. Mér finnst það ósmekk- Snorri Ásmundsson og listakotturinn Loki. DV-mynd Hari sem legt hjá honum. Það er ekki hand- bragð (loppubragð) kattarins sem skiptir máli heldur hugmynd lista- mannsins að láta köttinn búa til til- viljvmina í myndina. Spumingin er hvor sé höfundurinn, kötturinn eða Snorri, en auðvitað' nýtur köttur- inn dyggrar aðstoðar eiganda síns. Þetta er út af fyrir sig ágæt hug- mynd sem þó er auðvelt að þvæla út. Mér finnst hún ekki þola endur- tekninguna vel enda skemmti ég mér mun betur yfir möppunni en því að skoða sjálf málverkin í Stöðlakoti. Snorri er hins vegar meö aðra hugmynd til sýnis að þessu sinni; það er frumstæður mál- Málverkasjálfsalinn skal? koma í kringum jólin eru fáar myndlistarsýning- ar í gangi þó að einmitt þá sé einhver mesti göngutúratimi ársins. Kannski er tímabært að endurskoða sýning- arplönin, það hefur þeg- ar veriö gert á öðrum sviöum, t.d. hefur veit- inga- og skemmtibrans- inn tekið upp nýja siði. Þó tókst mér aö finna tvær sýningar sem fyrir tilviljun tengjast báðar á einhvem hátt spum- ingunni um hver sé höf- undur og hvað verk- færi. Hvernig hló Á þriöjudaginn var hófst tíu þátta röö á rás 1 undir heitinu Hvernig hló marbendill? Umsjónarmaður þáttanna er Kristín Einarsdóttir, kennari við Smáraskóla í Kópavogi, og fjalla allir þættimir um þjóðsögur. En hvem- ig? „Þættimir eru unnir í samvinnu við gmnnskóla hér og þar á landinu," segir Kristín. „Ég hef samband við kennara eða kennarar við mig og þeir velja sér þjóösögur eða annað þjóðlegt efni sem þeir vinna úr með nemendum sínum. Bekkur- inn getur skrifað leikrit upp úr sögunni, samið framhald af henni, umskrifað hana og látið hana gerast í nútímanum eða hvað sem krökkunum dettur í hug að gera. Svo senda kennar- amir mér handritið að þessu nýja verki og ég fæ leikara til aö lesa það í útvarpið. Ég fæ fullorðið fagfólk til að flytja efni sem börn- in hafa samið.“ í fyrsta þættinum var flutt leik- rit upp úr sögunni um Ketilríði bóndadóttur sem 4. bekkur Grunnskóla Djúpavogs samdi. í fyrramálið verður flutt leikrit eft- ir sjötta bekk í Hjallaskóla í Kópavogi sem var samið upp úr þjóðsögum úr Kópavogi og sögum frá öðrum Evrópulöndum. „Þau hafa í tvö ár verið að safna sögum, bæði úr heimabænum og frá öðrum löndum," segir Kristín, „alls konar sögum um fólk, skrímsli og furðudýr og nú hafa þau brætt þær saman í leikrit. Mjög sniðugt." marbendill? En yfirleitt vinna krakkamir með íslenskar þjóðsögur og í hverjum þætti verður flutt eitt verk. 9. bekkur í Fellaskóla tekur meðal annars fyr- ir útburðarsögur eins og „Móðir mín í kví-kví“ og veltir fyrir sér hvað stúlkur gera nú á dögum ef þær vilja ekki eiga bamið sitt. 7. bekkur úr Setbergsskóla tekur Gilitrutt en 6. bekkur í Vestmannaeyjum tekur fyrir sögu sem heitir Jón og tröllskessan. „Þar las kennarinn upphátt fyrir börnin byrjunina á sögunni og svo áttu þau að semja framhald," segir Kristín. „Sögurnar þeirra verða lesnar upp í þættinum og á eftir segjum við hvemig upprunalega sag- an endar. Það er talsverður munur á henni og útgáfum barnanna! í þáttunum fjalla ég svo sjálf um hverja tegund þjóðsagna fyrir sig, reyni að gera það fræðilega en samt á máli sem krakkar eiga að skilja. Þannig að kennarar geta notað þættina sem fræðsluefni þó að þeir ætli ekkert að fara að vinna sérstaklega með þjóðsögur." - En af hverju ættu kennarar að vinna með þjóðsögur? „Vegna þess að þær tengja okkur við fortíðina. Börn hafa gaman af að setja sig í spor annarra og gott af að sjá hvemig fólk bjó hér áður fyrr. Þær efla líka orðaforða, hugtakaskynjun og ímyndunarafl barn- anna - og ekki síst frásagnargleðina." Þetta er merkt framtak og upplagt fyrir kennara að hlusta með nemendum sinum á þættina. Þeir eru á þriðjudög- um kl. 10.15 (endurteknir kl. 19.40 á fóstudögum) og eins og áður sagði á rás 1. Á myndinni er 6. bekkur Smáraskóla I Kopavogi ásamt Kristlnu Einarsdóttur, umsjónarmanni nýstárlegra þátta um þjóösögur fyr- ir ungt fólk. Þessi bekkur er aö vinna efni fyrir þáttinn. DV-mynd E.ÓI. Nýlistasafnið tvítugt Félag Nýlistasafnsins í Reykjavík var stofnað 5. janúar 1978 þannig að það átti tvítugsafmæli fyrir nákvæmlega viku. í nýju fréttabréfi safnsins kemur fram að aðal afmælissýningin veröur haldin í des- ember næstkomandi en áður en að henni kemur ætla menn að gera ýmislegt sér til hátíðabrigða. Meðal annars verður efnt til „vinnustofudaga“ í vor. Þá er meining- in að fé- lagsmenn opni vinnu- stofur sínar al- menningi yfir eina helgi og geri störf sín og list sýnilegri. Af öðr- um af- mælis- gjöfum má nefna að setustofa safhsins hefúr verið færð fram á Pall. Þar er gest- um nú boðið upp á aðstöðu til skoðana- skipta og hressingar, og til aö fletta bók- um og tímaritum sem safhið á. „Nýlistasafhið hefur átt ærslafulla æsku,“ segir í fréttabréfmu, „og stefnir aö því að viðhalda þeim þrótti sem einkennt hefur störf þess fyrstu tvo áratugina." Fimm sýningar í einu húsi Sölum hefur verið fjölgað í húsnæði Nýlistasafnsins við Vatnsstíg, og afmælis- árið byrjar myndarlega með fimm sýning- um. Pálína Guömundsdóttir frá Akureyri sýnir nýleg málverk í Forsal, Bretinn Chris Hales, sem hefur vakiö athygli víða um lönd undanfarið, sýnir sjö einsmanns margmiðlunarkvikmyndir í Svarta sal, í Gryfiu eru Alena Hudcovicova frá Tékk- landi og Mafjaz Stuk frá Slóveníu með innsetningu sem heitir Kortaherbergi Gúllivers og heldur áfram sögum Jon- athans Swifts af ævintýrum ferðalangs- ins, Hildur Bjamadóttir sýnir í Bjarta sal verk sem hún segir að séu „ofin úr því fina svæði er skilji á milli skreytingar og hugmyndalistar" og í Súmsal sýnir Einar Garibaldi Eiríksson nýleg landslagsmál- verk sem „eru að vissu leyti hylling til brautryðjenda íslenskrar myndlistar" því bæði fyrirmyndir og efniviður verkanna er sóttur á þeirra slóöir. Sýningamar em opnar til 25. janúar „Fjallakúnst" í Fréttabréfi Nýlistasafnsins er einnig sagt frá allt annars konar „myndlistar- sýningu" sem Pétur Guðmundsson „opn- aði“ um áramótin. Þetta er fyrsta sýning hans af tólf á þessu ári og stendur hver sýning einn mánuð, „frá miðnætti þess dags sem mánuðurinn byrjar á, til loka þess dags sem hann endar“, eins og segir þar. í janúar er það fjallið Emir við botn Skutulsfjaröar sem Pétur „sýnir" og allir sem líta það fjall í mánuðinum em „sýn- ingargestir" hans. Vonandi gleymir hann ekki Kambi. „Heimur út af fyrir sig" Ekki em allir uppnumdir yfir Nýlista- safhinu sem fyrirbæri. Aðalsteinn Ing- ólfsson listfræðingur fjallar meöal annars um það í yfirlitsgrein um myndlist á liðnu ári í nýjasta menningar- ritinu, Frjálsri verslun, og segir að það sé „heill heimur út af fyrir sig“, eins og segi í auglýsingunni! „Þangaö koma að staðaldri einung- is þær eitt hundrað sálir sem eru fé- lagsmenn í safninu og nánustu ættingjar þeirra." Þó fannst honum málverkasýning Sigtryggs B. Baldvinssonar í Nýlistasafninu mögn- uð og telur hana meðal þeirra sýninga sem glöddu hann mest á árinu. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.