Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 31
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
39
Fréttir
Umferö í veggöngum:
Kyrrstæðir
bílar vandi
Dy Akranesi:
Norðmenn eru allra þjóða ötulast-
ir við að bora göng í gegnum fjöll og
undir sjó til að bæta samgöngur.
Veggöng í þjóðveganeti Noregs eru
alls 575 kílómetrar og veggöng neð-
ansjávar í Noregi eru orðin 17 tals-
ins.
Vegagerðin í Noregi lét kanna
1996 hvort brunar hefðu orðiö í veg-
göngum og lét afla allra hugsanlegra
upplýsinga árin 1990 til 1995. Fram
komu upplýsingar um 31 bruna í
veggöngum á 6 ára tímabili. Aðeins
í einu tilviki var tilkynnt um slys á
fólki vegna reykeitrunar. í tveimur
brunum urðu slys á fólki en það
gerðist í árekstri bíla, áður en eldur
kviknaði. Sex brunar urðu vegna
umferðaróhappa - árekstra - sem er
hátt hlutfall miðað við það sem al-
mennt gerist. í grein segir að þetta
kunni að stafa af því að eldsvoðar í
göngum séu alvarlegri og að yfírleitt
sé lögreglu tilkynnt um slys á fólki.
Talsvert er um það í norskum
veggöngum að bílar stöðvist vegna
vélarbilunar eða eldsneytisskorts.
Slys vegna eldsvoða í göngum eru
hins vegar fátíð. Engin tölfræði er
til sem sýnir að meiri líkur séu á að
kvikni í bíl í veggöngum en á hvaða
öðrum vegarkafla sem er. Þessi at-
vik hafa hingað til ekki haft stór-
vægilegar afleiðingar. Það þýðir þó
ekki að þeir sem byggja veggöng séu
lausir undan allri ábyrgð á bruna-
vömum en halda þarf fjárfestingum
innan skynsamlegra marka. Megin-
vandamálið hvað fjölda snertir eru
ökutæki sem stöðvast vegna vélar-
bilunar eða eldsneytisskorts. Þau
geta stöðvast hvar sem er og oft er
ekki hægt að færa þau í útskot. Hér
er vandamálið ekki það að fleiri
ökutæki stöðvist í veggöngum en á
opnum vegum, heldur að ökutæki
sem stöðvast þar lokar akrein og
veldur slysahættu. -DVÓ
Nýr félags-
málastjóri
Sveitarstjórnirnar á Eskifirði og
Reyðarfirði hafa ráðið Rögnu
Hreinsdóttur sem nýjan félagsmála-
stjóra á svæðinu. Ragna tók form-
lega við starfmu 1. janúar en byrj-
aði þó að hluta til í byrjun nóvem-
ber.
Kári Eiríksson, sem verið hefur
félagsmálastjóri frá haustdögum
1995, sagði upp og er fluttur til
Reykjavíkur.
Ragna Hreinsdóttir er 35 ára og
hefur BA-próf í ensku og sagnfræði
ásamt prófi í uppeldis- og kennslu-
fræði. Hún hefur kennt við Grunn-
skólann hér á Eskifirði síðan 1988
ásamt manni sínum, Friðriki Á.
Þorvaldssyni, og eiga þau 2 dætur.
Ragna ólst upp að Laugarvatni og
er dóttir heiðurshjónanna Hreins
Ragnarssonar, kennara við Mennta-
Stuðmannaveisla
í Egilsbúð
Alls komu 30 manns fram í sýn-
ingunum og var fagmennskan alls-
ráðandi. Sérstakur gestur var stuð-
maðurinn Valgeir Guðjónsson, sem
á ætt að rekja til Seyðisfjarðar.
Söngur, hljóðfæraleikur og dansat-
riðin voru í háum gæðaflokki.
Hljómurinn skilaði sér vel til áheyr-
enda sem voru vel með á nótunum,
iðuðu í sætunum, sungu með og
klöppuðu. Það má með sanni segja
að þarna hafi verið tætt og tryllt
undir dynjandi tónlist Stuðmanna.
Fingrum smellt í takt við popplög í
g-dúr og drynjandi Búkalú. -pjesta
DV, Neskaupstað:
Blús-, rokk- og jassklúbburinn á
Nesi stóð fyrir tónlistarhátíð í Hótel
Egilsbúð í Neskaupstað sem var til-
einkuð hinni þekktu hljómsveit
Stuðmönnum.
Aðsóknin var mjög góð, biðraðir
langt út á götu og fimm sýningar
fyrir fullu húsi - um 900 manns.
Þetta er í níunda sinn sem klúbbur-
inn stendur fyrir svona uppákom-
um. Sú fyrsta var haustið 1989.
Þetta er lyftistöng fyrir menningar-
lífið á vetrardögum.
Ragna Hreinsdóttir.
DV-mynd Emil
skólann á Laugarvatni, og konu
hans, Guðrúnar Einarsdóttur, bóka-
varðar við Menntaskólann. Regfna
Stafræn gagnaform í margmiðlun
Farið er í gegnum þau gagnaform sem notuð eru í
margmiðlun, bæði hljóð og mynd. Kostir þeirra og gallar
skoðaðir auk þess hvað þarf að hafa í huga þegar ákveðið
er hvaða gagnaform á að nota.
Tvívíddargrafík
Nemendur læra notkun tvívíðra teikniforrita, bæði bitmap
og vektorforrita. Þessi forrit eru gjarnan notuð við
margmiðlun, umbrot og vefsíðugerð, en eru einnig
nauðsynleg stoðforrit við þrívíddargrafíkvinnslu.
Hér verða notuð forritin Photoshop, Corel Draw,
lllustrator og FreeHand.
Þrívíddargrafík
Þrívíddargrafík verður æ meira áberandi í margmiðlun
Nemendur kynnast þrívíðri framsetningu hluta í tölvu,
hvernig á að teikna hluti í þrívídd, setja á þá áferð og
hreyfingar. Notast verður við 3D Studio MAX forritið.
Framsetning margmiðlunar
Eftir að búið er að útbúa efni í margmiðlunarverk þá þarf
að ganga frá því þannig að notandinn geti skoðað það á
einfaldan hátt. Kennt verður hvernig á að nota forrit eins
og Authorware og Directortil þess að ganga frá
margmiðlunarefni. Einnig verður skoðað hvernig ganga á
frá efni til dreifingar á Internetinu, t.d. Shockwave.
Lokaverkefni
Námskeiðinu lýkur með því að nemendur nota það sem
þeir hafa lært til þess að búa til margmiðlunarverk,
t.d. CD-ROM disk.
160 kennslustundir
Kennt er tvö kvöld í viku
frá kl. 18:00-21:30
RAFIÐNAÐARSKOLINN
Skeifan 11 b - Sími 568 5010
15% staðgreiöslu- og greiðslu
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
■w+jrjrÆÆÆjrÆÆjr*jr*jrjrÆjrjrjrjrÆj>\
dtt mll» hlrni^
Smáauglýsingar
S50 5000