Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 36
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 Ekki óvön að söðla um „Þaö var ekki að sjá að Ástu Ragn- heiði, mínum ágæta sessunaut úr þinginu, yrði nokk- uð bumbult, eða skömmustuleg, þegar hún tilkynnti að hún hefði gengið til liðs við Alþýðuflokkinn, enda vön að söðla um.“ ísólfur Gylfi Pálmason alþingis- maður, í DV. Hefur meira vit á veðrinu „Þó ég hafi aldrei orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að spjalla við Friðrik Sophusson um veðr- ið, þá er ég reyndar viss um að það er ósköp svipað þvi og hlýða Ummæli á hann tala um þá sem minnst mega sín. Ástríðan eitthvað ámóta. Nema líklega hefur hann meira vit á veðrinu." Illugi Jökulsson, á Rás 2. íslendingar að spila af sér „Fljótt á litið eru íslendingar að spila af sér á tveim borðum að minnsta kosti. Finnar eru búnir að stela jólasveininum og þúsund ára afmæli Vínlandsferða er um það bil að ganga íslendingum úr greipum." Ásgeir hannes Eiríksson, í Degi. Frumstæðir framleiðendur „Við erum ekki einungis frum- stæðir hráefnisframleiðendur í fiskvinnslunni, i uppeldismálum er gúanóið okkur nærtækt líka.“ Pétur Gunnarsson rithöfundur, ÍDV. Kraumar vel undir Allar stéttir sem samið hafa á eftir okkur hafa fengið mun meiri hækk- anir en við og það er ekki sterkt til orða tekið að segja að það sé komin upp bullandi óá- nægja hjá verkafólki. það kraum- ar svo sannarlega undir.“ Sigurður T. Sigurðsson, form. Verkamannafélagsins Hlífar, í Degi. Gera það sem þeim kem- ur ekki við „Fyrrum samstarfsmenn mín- ir, þeir sem kaUaðir eru aðUar vinnumarkaðarins, skipta sér af mörgu, meðal annars af ýmsu sem er álitamál hvort þeim kem- ur við.“ Árni Benediktsson, fyrrv. form. Vinnumálasambandsins, í Degi. Söngvaka eldri borgara Félag eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni gengst fyrir söngvöku í Risinu I kvöld kl. 20.30. Stjórnandi er Gróa Salvars- dóttir og undirleik annast Sigur- björg Hólmgrímsdóttir. Allir eru velkomnir. Samkomur ITC-deildin íris ITC-deildin íris í Hafnarfirði heldur fund mánudaginn 12. jan- úar í safnaðarheimili Hafnar- fjarðarkirkju við Strandgötu. Samkoman hefst kl. 20 og eru all- ir velkomnir. Félag eldri borgara í Kópavogi Félag eldri borgara í Kópavogi verður með félagsvist í félagsað- stöðunni Gullsmára, Gullsmára, 13 í kvöld kl. 20.30. Allir eru vel- komnir. Pólstjarnan og nágrannar Pólstjarnan (Stella Polaris), sem einnig er kölluð norður- stjarnan eða leiðar- stjaman, er bjartasta stjarnan í stjörnu- merkinu Litlabirni. Nafnið er dregið af Umhverfi því að stjarnan er ná- lægt norðurpól him- ins, um 1° frá póln- um. Pólstjarnan er meðlimur í þrístirni og eru báðar fylgi- stjörnurnar daufar, önnur þó sýnileg í sjónauka. Pólstjarn- an er örlítið breytileg að birtu. Hún er risa- stjarna í 700 ljósára fjarlægö frá jörðu og hefur 7000 sinnum meira ljósafl heldur en sólin. Á kortinu er sýnd afstaða Pól- stjömunnar í himin- geimnum. Albert Óskarsson, körfuboltamaður og nemi í flugvirkjun: Verð vonandi fyrsti útlendingur- inn til að spila með skólaliðinu DV, Suðurnesjum: „Það er virkilega gaman að koma heim og spila með Keflavík. Þá er einnig mjög gaman að spila í þessari deild," sagði Albert Óskarsson, sem stundar flugvirkjanám í Daytona Beach í Flórída í Bandaríkjunum. Hann kom hingað heim í jólafrí og spilaði körfuknattleik með félögum sínum en í fyrra átti Albert frábært tímabil og var einn hlekkurinn í góðu liði Keflvikinga sem unnu alla titla í meistaraflokki karla sem í boði vom. Albert náði að spila fióra leiki með Keflavík í jólafríinu og hans síðasti leikur var gegn nágrönnum sínum í Njarðvík 8. janúar sl. Albert seinkaði fór sinni til að ná umræddum leik. Þar kvaddi hann félaga sína og stuðnings- menn liðsins með miklum stæl og eft- irminnilegum hætti þegar hann skor- aði sigurkörfuna þegar 3 sekúndur voru eftir af leiknum. Á gamlársdag varð Albert annar í kjöri íþróttamanns ársins í Reykjanes- bæ en Eydís Konráðsdóttir sundkona hlaut titilinn. „Það kom mér á óvart að vera á þessum lista, og lenda í öðru sæti sem var ánægjulegt." Albert, sem verður 30 ára á þessu ári, hefur spilað í meistaraflokki í 10 ár og á að baki .401 leik. Albert byrj- aði í flugvirkja- náminu í septem- ber á síðasta ári sem tekur tvöxár. „Þetta er toppstað- ur til að vera á. Það kostar sitt að vera í þessu námi, skólagjöldin eru tæplega 1,5 millj- ónir, eða 20 þús- und dollarar. Lánasjóður lánar ekki fyrir skóla- gjöldum, bara uppihaldi og það er erflðara fyrir vikið. Þá er einnig inni í myndinni að ég vinni erlendis að loknu námi, það væri gaman að prófa slíkt. Þá er einnig vöntun á flugvirkjum hér heima.“ Albert hefur lítið spreytt sig í körfuknattleik með skólaliðinu í vetur. „Ég hef verið að gutla tvisvar i viku. Það er fyrirfram ákveðið að þeir út- lendingar sem koma þurfa að vera yfir meðaleinkunn, sem er 7,7, í náminu til Albert Óskarsson. DV-mynd Ægir Már Maður dagsins að fá að spila. Ég var töluvert yfir henni þannig að ég vona að ég geti spilað með skólaliðinu, Embry Riddle, í vetur og yrði þá fyrsti útlend- ingurinn til þess.“ Áðvn en Albert hélt til náms vann hann í Fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli. Marg- ir Keflvíkingar stunda flugvirkja- nám víðs vegar í Bandaríkjunum, um 30 talsins. „Ætli völl- urinn hafi ekki áhrif og menn smitast af fluginu, enda stutt að fara, allavega gerði ég það.“ Albert segist fylgjast með úrslitum í körf- unni hér heima i gegnum Intemetið. Af áhugamálum kemst lítið annað að hjá Alberti en fjölskyldan, námið og körfubolti. Eiginkona Alberts er Ragn- heiður Ragnarsdóttir og eiga þau tvo drengi, Ragnar Gerald, 5 ára og Aron Inga, 3 ára. -ÆMK Myndgátan 1 Zoot^ Gætir hófs. -EVþoR— Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði Myndin er tekin á alþjóðlega mót- inu í Tennishöllinni í fyrra. Opna íslenska tennismótið Nú stendur yfir alþjóðlegt tennis- mót kvenna í Tennishöllinni í Kópa- vogi. Er mót þetta hluti af atvinnu- mótaröð kvenna á vegum ITF/ETA og er verðlaunafé 10.000 dollarar. Þetta er í annað sinn sem alþjóðlegt tennismót er haldið á íslandi. Mótið er einnig tengt mótaröð á Norður- löndunum sem kallast Nordic Wint- íþróttir er Tour. Keppt er í einhða- og tvíliða- leik. í gær hófust undamásir og er þeim haldið áfram í dag. Aðalkeppn- in hefst síðan á morgun. Meðal þátt- takenda í ár er sigurvegari á mótinu í fyrra, Adrian Hegedus frá Ung- verjalandi, en hæst metni keppand- inn er Carolina Jagienak frá Frakk- landi. Yfirdómari á mótinu er Bar- bro Raabe frá Noregi en auk hennar mæta tveir aðrir alþjóðlegir dómar- ar erlendis frá. í handboltanum er ekkert um að vera i kvöld en annað kvöld er einnleikur í 1. deild kvenna, Stjam- an og Fram mætast í Ásgarði í Garðabæ kl. 20. Bridge Þetta skemmtilega spil kom fyrir í 1. umferð riðlakeppni Reykjavík- urmótsins í sveitakeppni. Jón Al- freðsson í sveit Granda varð sagn- hafi í 7 hjörtum á suðurhendina eft- ir þessar sagnir, austur gjafari og n- s á hættu: * 954 ♦ 4 2 Austur Suður Vestur Norður - Jón A. - Jón St. pass 1 44 24 dobl pass 4 44 pass 4 grönd pass 54 pass 5 grönd pass p/h 6 4 pass 7 v é Norðu 4FÁG42 ♦ 843 4 ÁKG2 4 A7 44 ■f KD109765 4 102 Jón Steinar Gunnlaugsson, sem sat I noröur, spuröi um ása og trompdrottn- ingu með fjórum gröndum (trompkóngur talinn sem ás) og 5 spaðar lofuðu tveim- ur „ásum“ og trompdrottningu. Fimm grönd var alslemmutilraun og 6 lauf lof- uðu laufkóngnum. Þá ákvað Jón Steinar að veðja á alslemmuna. Útspil vesturs var spaöakóngur sem Jón Alfreösson drap á ás. Hann sá strax þvingaða vinn- ingsleið í spilinu. Tromp tekið tvisvar, laufaás, lauf á kóng, lauf trompað, tígulásinn tekinn, spaði trompaður heim og trompum spilaö. Áður en síðasta trompinu var spilað, var staðan þessi: 4 G 4 K 44 - 4 95 4 - 44 - f KG 4 N V A S 4 - »5 ♦ 8 4 9 4 - 4» - ♦ D10 4 D Vestur varð að passa spaðann, austur laufið og þrettándi slagurinn kom á tígulgosann. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.