Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Síða 4
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1998 1 ^~\7'
» um helgina
Ingvar E. Sigurðsson og Hilmir Snær Guönason í hlutverkum sínum í Lista-
verkinu.
Sinfóníuhljómsveit Islands flytur m.a. verkið Dettifoss eftir Jón Leifs á há-
tíðarsamkomunni.
Hátíðarsamkoma í Þjóðleikhúsinu:
STEF í hálfa öld
A morgun veröa liðin fimmtíu ár
frá stofnun STEFS, Sambands tón-
skálda og eigenda flutningsréttar. í
tilefni þess verður efnt til hátíðar-
samkomu í Þjóðleikhúsinu.
Á Hátíðarsamkomunni í Þjóðleik-
húsinu verður m.a. flutt verkið
Dettifoss op. 57 eftir Jón Leifs, stofn-
anda og fyrsta formann samtak-
anna. Sinfóníuhljómsveit islands,
Keith Reed barítonsöngvari og
Mótettukór Hallgrímskirkju flytja
verkið undir stjórn Petri Sakari.
Einnig flytur Sinfóníuhljóm-
sveitin Hátíðarmars eftir Pál ís-
ólfsson, Rímnadans eftir Jón Leifs
og nýtt verk eftir Hauk Tómasson
tónskáld sem nefnist Þjóðlag.
Þá verður einnig nýstárleg þrí-
við sending af Netinu frá OZ þar
sem verkið Tenderly eftir Móeiði
Júníusdóttur verður frumflutt.
Allir mæta með nýburst-
aðar tennur og skó
„Við ætlum að halda upp á
fimmtiu ára afmælið með
glæsilegri samkomu i Þjóð-
leikhúsinu, kl. 14.
Þar verður m.a
frumflutt verk eftir
Jón Leifs sem
fannst fyrir nokkr-
um árum. Við
höfum látið
skrifa það út og
það verður flutt
af stækkaðri
sinfóníuhljóm-
sveit og sextíu
manna kór,‘
segir Magnús
Kjartansson,
formaður
STEFS.
„Einnig má
nefna að Ey-
þór Arnalds og
Móeiður Júní-
usdóttir ætla að
koma fram í
Þjóðleikhúsinu í
gegnum Internet-
ið frá Oz.
Hún ætlar að
birtast okkur
sem einhvers
konar tölvuflgúra
og flytja okkur
verk sem verður
varpað á skjá.
Þeir sem hafa
áhuga geta fylgst
með gjörningnum
á Netinu.
Við ætlum að
eiga notalega stund
og ég hef gaman af
að segja frá því að
forseti íslands,
'T> ■
menntamálaráðherrá og
forsætisráðherra, sem
er sjálfur rétthafi,
munu heiðra sam-
komuna. Um
kvöldið bjóð-
um við félags-
mönnum og
tuttugu og
tveimur er-
lendum
gestum til
samsætis
á Hótel
Sögu þar
sem allir
i verða
með ný-
burstað-
ar tenn-
ur og í
nýburst-
uðum
skóm,“
segir
Magnús
að lokum.
Magnús
Kjartansson
er formaður
Sambands
tónskálda og
eigenda
flutningsrétt-
ar.
Listaverkið
sívinsælt
í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið leik-
ritið Listaverkið eftir Yasminu
Reza i fimmtugasta sinn í Loft-
kastalanum.
Listaverkið er franskur gaman-
leikur sem frumsýndur var síð-
astliðið vor. Þar segir frá þremur
karlmönnum sem hafa verið vinir
árum saman. Þeir lenda hins veg-
ar í grátbroslegri tilvistarkreppu
þegar einn þeirra fjárfestir í rán-
dýru málverki.
Leikendur í verkinu eru Ingvar
E. Sigurðsson, Hilmir Snær
Guðnason og Baltasar Kormákur.
Túlkun þeirra á vinunum
þremur hefur þótt einstök og sýn-
ingin notið mikill vinsælda eins
og sýningafjöldinn gefur til
kynna.
Guðjón Ketilsson myndlistar-
maður er höfundur leikmyndar
og búninga, Guðbrandur Ægir
hannaði lýsingu og Pétur Gunn-
arsson rithöfundur þýddi verkið.
Leikstjóri er Guðjón Pedersen.
Kammersveitin helgar síðustu tónleika vetrarins eistneska tónskáldinu Arvo Párts.
Kammersveitin í Langholtskirkju
Síðustu tónleikar vetrarins hjá
Kammersveitinni eru helgaðir verk-
um eistneska tónskáldsins Arvo
Párts. Hann býr nú í Berlín og er
eitt þekkasta tónskáld samtímans.
Verkin á tónleikum Kammer-
sveitarinnar eru öll samin eftir
1976. Þau byggjast á þríhljómum og
tónstigum sem eru mjög einkenn-
andi fyrir tónlist Párts. Þennan stíl
kaliar hann sjálfur bjöllustílinn.
Verk Párts eru hæglát og hljómfög-
ur leit kyrrðar og kærleika. Verkin
á tónleikunum eru flest fyrir
strengjasveit. Auk þess fær Kamm-
ersveitin Hamrahlíðarkórana til
liðs við sig. Einsöngvari á tónleik-
unum verður Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir. Stjómandi verður Andreas
Peer Káhler. Hann er aðalstjórnandi
kammersveitarinnar Unter den
Linden í Berlín.
Arvo Párt verður viðstaddur tón-
leikana.