Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Blaðsíða 2
16 Qtoikmyndir FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 JjV Tomorrow Nover Dies ★★★★ Bond þarf hér að fást við athyglis- sjúkan fjölmiðlamógúl með hjálp kín- verskrar súperpíu. Brosnan er snill- ingur I því að halda hárfínu jafnvægi milli sjálfsháðs og alvöru og það er að stórum hluta honum að þakka hve Tomorrow gengur vel upp, bæði sem grín og hágæðahasar. Myndin er ómissandi skemmtun (skammdeginu og Brosnan hér með yfirlýstur besti Bondinn. -úd L.A. Confidental ★★★★ Skuggahliðar Los Angeles sjötta ára- tugarins eru sögusviðið ( óvenju inni- haldsríkri og spennandi sakamála- mynd sem enginn ætti að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æsifrétta- menn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Titanic ★★★i Stórbrotin og ákaflega gefandi kvik- mynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fulikomnunarárátta Camerons skilar sér í eðlilegri sviðsetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le- onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftirminnileg i hlutverkum elskend- anna. -HK Alien: Resurrection ★★★■<. Myndin er langt í frá gallalaus, en að mínu mati nær myndin að hefja sig upp yfir gailana. Handritshöfundurinn Joss Whedon gerir góða hluti, en það er fyrst og fremst hinn mynd- ræni samruni Borgartýndu barnanna og Alien sem gerir þessa mynd að sannri ánægju. Eins og alltaf er það Sigourney Weaver sjálf, drottning geimveranna, sem stendur upp úr.-úd Barbara ★★★* Vel upp byggð og vel leikin mynd í alla staði, sérstaklega vakti það ánægju hversu allar aukapersónur og smáatvik voru vel og fimlega útfærð. Myndatakan er áferðarfalleg og aldrei of uppskrúfuð í landslagsyfirliti og dramatískum veðurlýsingum en nýtti jafnframt vel náttúrufegurð eyjanna. -úd Taxi ★★★ Nokkur ár eru frá þvl kvikmynd eftir Carlos Saura hefur rekið á fjörur okk- ar og Taxi veldur fjölmörgum aðdá- endum hans engum vonbrigðum. Til- finningaþrungin kvikmynd þar sem fram fer eins konar uppgjör við fasis- mann og þjóðerniskenndin sýnd í sinni verstu mynd. Aðalpersónurnar eru tvö ungmenni sem sjá lífið í öðru Ijósi en foreldrarnir. -HK Lína langsokkur ★★★ Lína langsokkur er löngu orðin klass- ísk og það vill stundum gleymast að hún er ekki erfð með genunum held- ur lesin á bókum. Lína er hinn stjórn- lausi óskadraumur allra barna, frjáls, óháð og gersamlega sjálfstæð, því hún bæði getur alit og leyfir sér allt. Þarna tókst vel til hvað varðaði teikn- ingar og útfærslur og það er óhætt að mæla með þessum Línu-pakka fyr- ir börn á öllum aldri. -úd The Jackal ★★★ Endurgerðir á klassískum myndum hljóta oft litla náö i augum kvik- myndagagnrýnenda og er Sjakalinn þar engin undantekning. En þótt myndina skorti þá yfirveguðu bygg- ingu og persónusköpun sem ein- kenndi fyrirrennarann er hún af- bragðs skemmtun. Sjakalinn kemur ekki alltaf á óvart, en sem spennu- mynd gengur hún upp. Bygging hennar er góð og leikurinn til fyrir- myndar. Ég mæli með henni. -GE Þú veist hvað þú gerðir ... A 1 A A A A Handritshöfundurinn Kevin William- son er hér aftur búinn að hrista þessa fínu unglingahrollvekju út úr erminni og er hér með mynd sem er bæði sjálfsmeðvituð og alvöru spennandi hrollvekja, smart og vel gerð. Og það flaug popp. Það hlýtur aö vera þriggja stjörnu virði. -úd Eyjan í Þrastarstræti ★★★ Eyjan i Þrastarstræti er um ungan dreng sem verður innlyksa ( gyðinga- gettóinu í Varsjá í Póllandi. Það lætur kvikmyndavélinni einkar vel að skapa andrúmsloft einangrunar og fælni, þar sem einu tengsl Alex við um- heiminn og annað fólk eru þau sem hann horfir á yfir vegginn út um loft- ræstirist, og það er sú sterka mynd sem eftir situr í huganum. -úd Starship Troopers ★★★ Starship Troopers fer hægt af stað en í seinni hluta myndarinnar er ekkert hlé á spennunni. Þrátt fyrir að upp- skeran sé innihaldslitil og óvenju- blóðug mynd sem á flestallt undir glæsilegum tæknibrellum mæli ég með henni. Brellurnar eru það góðar að flestir hnökrar gleymast eða skipta ekki máli. -ge regluforingjann Alex Cross sem jafnframt er réttarsálfræð- ingur og rithöf- undur. Þegar hann fréttir að frænka hans sem stundaði nám í háskóla í Norður- Kar- ólínu sé horfin telur hann það skyldu sína að gera sér ferð til há- skólabæjarins Dur- ham og rannsaka málið. Þegar hann kemur á staðinn kemst hann aö því að mikil rannsókn er í gangi hjá lög- reglunni og frænka hans er ekki eina stúlkan sem er horfin. Bendir allt til þess að raðmorðingi gangi laus, sjö stúlk- ur hafa Morg- an Freem- an leik- ur lög- reglumanninn og réttarsál- fræðing- inn Háskólabíó frum- sýnir í dag Safnar- ann (Kiss the Girls), spennu- mynd sem margir hafa líkt við Si- lence of the Lambs. Fékk myndin góðar við- tökur í Bandaríkj- uíium, bæði hjá gagnrýnendum og áhorfendum. í myndinni leikur Morgan Freeman lög- gengur laus horfið og tvö lík fundist. Á báðum líkunum hefur fundist blað með að- eins einu orði: Casanova. Cross fær ekki mikla aðstoð frá heimalögreglunni sem telur að hann geti lítið hjálpað. Hann hefur því rannsókn á eigin vegum og þeg- ar hann hittir fyrir Kate McTiern- an, lækni, sem er eina manneskjan Auk Morgans Freemans leika í myndinni Ashley Judd, Cary Elwes, Tony Goldwin, Jay 0. Sanders og Bri- an Cox. Leikstjóri er Gary Fleder, sem leikstýrði hinni ágætu sakamála- mynd Things to Do in Denver When You’re Dead. Kiss the Girls er gerð eftir skáld- sögu James Pattersons og er hún önn- Alex Cross. Á myndinni er hann við rannsókn á morði ásamt lækninum Kate Mactiernan (Ashley Judd). sem hefur sloppið frá raðmorðingj- anum, þekkir rödd hans og hvernig hann hagar sér, sameina þau krafta sína i leit að morðingjanum. ur bók hans um lögregluna og sál- fræðinginn Alex Cox. Hafa þær báðar fengið góða dóma, þykja einstaklega vel skrifaðar sakamálasögur. -HK Ég veit hvað þú gerðir í Og það gerðirðu sjálfsagt líka nokkur sumur fyrir tveimur áratug- um en þá reið yfir fyrsta bylgja ung- lingahrollvekja þeirra sem Scream og I Know What You Did Last Sum- mer skemmta sér svo vel við að end- urvekja. Þrátt fyrir harða mót- spyrnu gagnrýnenda og foreldra flykktust áhorfendur til að sjá þess- ar myndir sem í dag hafa verið end- urreistar, ekki bara í handritum Kevin Williamsons, heldur líka í auknum áhuga fræðimanna og gagnrýnenda. Ástæður og orsakir eru eilíf uppspretta vangaveltna, þó ekki væri nema í markaðslegum til- gangi. Meðan sumir vilja tengja vin- sældir hrollvekjunnar við spennulos- un, eru aðrir sem sjá allt í kynferðis- legu Ijósi. Hrollvekjum af þessu tagi er jú fýrst og fremst beint til ung- linga á kynþroskaaldrinum og er því ekki úr vegi að velta fyrir sér kyn- legu eðli hryllingsins. Skemmtileg- asta kenningin er líklegast sú að hrollvekjan sé eins konar leiðarljós í gegnum myrkviði kynþroskans og kemur þá i stað handbókar sem kort- lagning á kynhegðun. En því miður er helsta niðurstaðan af þessum út- leiðingum ævinlega sú að kynlíf sé banvænt og hlýtur hrollvekjan þvi að koma að fremur takmörk- uðu gagni sem leiðarvísir um líflegt kynlíf (en góðu gagni sem getnaðarvöm). Aðrir kyn- legir kvistir hafa bent á hvern- ig hrollvekjan býður upp á hiö fullkomna tækifæri fyrir ung- linga að ,para‘ sig, þar sem unglingar bókstaflega ,draga sig saman' í skjóli myrkurs og skelfingar og handahófskennt fálm eftir stuðningi og styrk get- ur auðveldlega endað hér og þar. Titillinn ,Ég veit hvað þú gerðir í fyrrasumar' hefur greinilega kynferðislega vísun (allavega í bandarískan kvikmyndaveru- leika), sérstaklega þegar um er að ræða þetta sumar, þ.e. smnar- ið eftir menntaskólaútskrift, en þá er einmitt tími horfinna mey- og sveindóma. Formúla unglingahroll- fyrrasumar, þú öskiaðir Stranger Calls (Fred Walton, 1979). Bamapíuhremmingar. Ekki svara í símann, nei betra: Aldrei passa börn. The Boogeyman (Ulli Lommel, 1980) . Halloween tvífari, um drauga- gang út frá spegilbrotum og bernska morðingja. Prom Night (Paul Lynch, 1980). Jamie Lee Curtis aftur og nú er skólinn miðstöð morða. Þrjú fram- höld, en engin Jamie. Terror Train (Roger Spott- iswoode, 1980). Og enn er Jamie Lee á ferð, nú í lest með hefnigjömum samnemanda, líklega þeim sem ekki fékk að vera með i Prom Night. Friday the Thirteenth (Sean Cunningham, 1980). Með hala af næstum 13 framhöldum (auk fiölda eftirherma) er þetta sumarbúða- splatter óþrjótandi uppspretta kyn- lífs-kenninga. í þeirri fyrstu fær Kevin Bacon ör upp í gegnum brjóstið þar sem hann liggur á bak- inu uppí rúmi í eftirfullnægingar- sæluvímu. Annar grímumaður verður ódauðlegur, en það er hann Jason með hafhaboltagrímmia. The Burning (Tony Maylam, 1981) . Friday the 13th eftirherma, en enginn Kevin Bacon og grímu var ekki þörf, því morðinginn er allur brunninn. Happy Birthday to Me (J. Lee Thompson, 1981). Afmæli. En ekki sérlega líflegt. A Nightmare on Elm Street (Wes Craven, 1984). Hrein snilld. Með runu af framhöldum hélt Freddy Kruger lífinu í formúlunni fram að meistaraverkinu New Nightmare, sem síðan brúaði bilið yfir í Scream. Ekki illa að verki staðið, þama sést Johnny Depp sem gelgja (og deyr þegar hann sofn- ar yfir fegurð- arsamkeppni í sjónvarpinu), og hasarmeist- arinn Renny Harlin pumpaði blóð og péníng í nr. 4. -úd vekjunnar helgar sig hins vegar horfnum eða myrtum sveinum og meyjum og er í stuttu máli sú að á afmörkuðu svæði, s.s. sumarbúðum, smáþorpum eða í skóla, gengur morðingi laus og sýnir fádæma frumleik við það að fækka ung- mennum og fela sig fyrir yfirvöld- um. Þessi formúla verður til seint á áttunda áratugnum og heldur velli í hryllingsmyndum fram á þann ní- unda, en þá dala vinsældirnar nokk- uð þar til uppvakningarnir Wes og Williamsson dæla í hana nýju (pÓSt- jg módernísku) blóði. Þó I Know What You Did Last Summer fialli ekki um áhrifavalda sína á eins opinskáan hátt og Scr- eam, má vel pikka út allavega þrjár myndir sem eiga sér þama fulltrúa, en þær eru: Christine (John Carpenter, 1983), gerð eftir samnefndri skáldsögu Stephen King um bíl sem er haldinn illum og morðóðum anda, The Fog (líka Carpenter, 1980), lauslega byggð á samnefndri sögu James Herbert, um draugaþoku í sjávar- plássi, og The Texas Chainsaw Massacre (Tobe Hooper, 1974), lauslega byggð á raunveru- legum fiöldamorðingja, Ed Gein, um nokkur ung- menni í sveitaferð sem villast inn í hús hjá slátr- arafiölskyldu og er slátr- að. Af öðrum ómissandi myndum frá þessari flóðbylgju má nefha: Halloween (John Carpenter, 1978). Aðaldaman í þess- ari stefiiumarkandi hrollvekju var Jamie Lee Curtis, mínus silíkon. Fæddi af sér ein 5 fram- höld og er fræg- ust fyrir að ná að summa plottið upp í einu orði: Halloween. Vondi hvítgrímu-maður- inn Michael Myers varð þarna gerður ódauðleg- ur. When

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.