Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 I lV * * %n helgina *★ *--------- Kántrí-þorrablót: Það verður mikið dansað í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á sunnudaginn. Á sunnudag stendur Dansráð íslands fyrir bikar- keppni í samkvæmisdöns- um með grunnaðferð. Keppt verður í öllum ald- ursflokkum i A-, B/C- og D-riðlum. Samhliða bik- arkeppninni verður einnig keppt I sam- kvæmisdönsum með frjálsri aðferð og í línudönsum. Dóm- arar á keppninni verða fimm og eru þeir að þessu sinni allir íslenskir. Keppnin verður haldin í íþrótta- húsinu á Seltjamarnesi. Húsið verð- ur opnað klukkan 13.00 og hefst keppnin klukkutíma síðar. Forsala aðgöngumiða verður frá klukkan 12.30. m Hallbjörn Hjartar- son fær góða hjálp um helgina til að endurreisa Kántrý- bæinn sinn sem brann á síðasta ári. Hallbjörn styrktur I kvöld verður haldið kántrí-þórrablót til að safna fé handa Hall- bimi Hjartarsyni. Eins og alþjóð veit brann Kántrýbær á síðasta ári en þar rak Hallbjörn bæði veitingahús og útvarpsstöð. Hann er nú að reyna að endurreisa Kántrýbæinn sinn á Skagaströnd en vantar til þess fé og því hafa vinir hans ákveðið að rétta honum hjálpar- hönd með því að halda skemmtunina. Hún verður haldin á Hótel Sögu og geysilega mikill fjöldi skemmtikrafta mun mæta á svæðið til að gera kvöldiö eftirminni- legt. Meðal margra góðra má nefna Rúnar Júlíusson, Ragga . Bjarna, Snörumar, Áma Johnsen, André Bachmann, Bjartmar i Guðlaugsson, Skara skripó, hljómsveitina Farmalls með Magnús m Kjartansson í fararbroddi, auk margra annarra. Varla þarf að ] taka fram að allir skemmtikraftarnir gefa vinnu sína. Hallbjöm mætir að sjálfsögðu einnig á svæðið. Þeim sem Æ vilja styrkja hann með öðrum hætti en að mæta á kántrí-þorra- blótið er bent á að hægt er að leggja frjáls framlög inn á reikn- 1 ing 160-26-9009 í Landsbanka íslands á Skagaströnd. Halldór Haraldsson í fríöu föruneyti, meö honum eru Margrét Bóasdóttir, markaösstjóri íslensku óperunnar, og Ólöf Kolbrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Óperunnar. íslenska óperan: Ný röð einleikstón- leika á döfinni Á sunnudaginn kemur hefst ný röð einleikstónleika sem era sam- starfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna og íslensku ópe- rannar. Þá mun Halldór Haralds- son, píanóleikari og skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, leika sónötur eftir Franz Schubert og Johannes Brahms. Halldór er landsþekktur fyrir píanóleik sinn og störf að tón- listarmálum. Auk einleikstón- leika bæði hér heima og erlend- is hefur hann margoft leikið ein- leik með Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Hann hefur einnig leikið með Gísla Magnússyni verk fyr- ir 2 píanó auk þess sem hann stofnaði Tríó Reykjavíkur ásamt Guðnýju Guðmunds- dóttur og Gunnari Kvaran. Félag íslenskra tónlistar- manna fær á árinu styrk til tónleikahalds frá Reykjavíkur- borg og hefur í kjölfar þess ráð- ist í samstarf við íslensku óper- una. Bikarkeppni í samkvæmis- dönsum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.