Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998
4ón!ist
Þeir eru „heitasta" danshljómsveit Evrópu í dag:
Franskt|geimpopp
Ef meðlimir franska dú-
ettsins mættu ráða
myndu þeir helst af öllu
vilja sitja á eyðieyju með
píanó. Þeir eru „heitasta" dans-
hljómsveit Evrópu í dag ef hægt er
að kalla þá danshljómsveit. Þeir
líta fyrst og fremst á sig sem
tónsmiði af klassískum toga, þó
svo danskynslóðin hampi þeim
sem hetjum og vilji eiga í þeim
hvert bein. Það var strax greini-
legt að Air ætlaði sér að fara sínar
eigin slóðir þegar fyrsta lagið
hennar kom út. Það var lagið
Modular og er það að finna á
Mo’Wax safnskífunni Headz 2b.
Tónsmíðar Air eiga meira skylt
við kvikmyndatónlist sjöunda og
áttunda áratugarins en taktfasta
raftónlist dagsins í dag. Það eru
tveir ungir Frakkar sem skipa
dúettinn og þeir heita Nicolas
Godin og Jean Benoit Dunckel.
Þeir félagarnir er hlédrægnin upp-
máluð þegar kemur að því að tala
um nýju plötuna Moon Safari sem
margir gagnrýnendur vilja meina
að sé með því allra besta sem kom-
ið hefur út i Frakklandi um lang-
an thpa. Sumir gagnrýnendur
ganga jafnvel svo langt að segja
Moon Safari bestu plötu ársins
1998 þótt nú sé bara febrúar og
engin leið til að gera sér nokkra
mynd af því sem á eftir að koma út
á árinu. Þetta er í raun bestu með-
mæli sem hægt er að gefa nokk-
urri plötu. Að segja að það sem á
eftir fylgi í útgáfu eigi ekki eftir að
geta skákað henni í ár. Þeim félög-
unum í Air hefur tekist að gera
plötu sem ekki er hægt að brenni-
merkja sem enn eina dansplötuna
og hún er það melódísk og vel
samin að hún verður ekki afskrif-
uð sem Easy Listening eða
ambient. Hún er eitthvað allt ann-
að. Geimpopp er skilgreining sem
margir vilja nota um tónlist Air og
það er alls ekki svo fráleitt. Lögin
eru létt og svífandi og aldrei of-
hlaðin. Sjálfir segja meðlimir Air
að tónlist þeirra sé afrakstur sam-
starfs milli tveggja ólíkra einstak-
linga. „Þegar við erum að semja þá
fá allar hugmyndir pláss en þegar
í hljóðver er komið rifumst við
mikið um hvað skuli nota. Við höf-
um upptökumanninn sem nokkurs
konar miðpól í þessum rifrildum
og leyfum honum oftast að taka
lokaákvörðun varðandi eitthvað
sem við erum að deila um,“ segir
Jean Benoit. Nicolas segist vera
frekar óþolinmóður í hljóðveri og
vilji helst ná öllu rétt í fyrstu upp-
töku. „Ég er lítið fyrir það að eyða
tímanum í finpússningu og smáat-
riði. Ég vil frekar fá hráleikann
fram og fanga augnablikið," segir
hann. Sér til aðstoðar á plötunni
fengu þeir drengirnir Jean Jaques
Perrey, sem er fyrir löngu orðinn
goðsögn í tónlistarheiminum fyrir
framúrstefnulegan hljómborðsleik
sinn. Það er í sjálfu sér ekkert
skrítið að þeir skuli hafa leitað til
hans þar sem þeir félagamir nota
hljómborð eða píanó í flestum lög-
um á plötunni. Bandaríska söng-
konan Beth Hirsch syngur tvö lög
á plötunni og eru þau næstum í
þjóðlagastíl. Aðspurðir segjast þeir
reyna að gera hlýlega tónlist og
eru ekki hrifnir af Bristol-bylgj-
unni og þvi sem hljómsveitir á
borð við Portishead og Tricky eru
að gera. „Það er kannski ekki tón-
listin sem er eitthvað vond hjá
þessum listamönnum," segir Nic-
olas. „Það sem ég á við þegar ég
segi að mér líki ekki tónlistin er
að hún er svo köld og drungaleg.
Það vantar alla hlýjuna og þess
vegna held ég að fólk sé að taka
Moon Safari svona vel. Þetta er
plata sem við reyndum að fylla
hlýju.“
Franska bylgjan
Hljómsveitin Air tilheyrir
frönsku bylgjunni sem á síðustu 18
mánuðum hefur verið að heilla
alla heimsbyggðina. Hljómsveitir
á borð viö Daft Punk, Dimitri from
Paris og DJ Cam eru tónlistar-
menn sem hafa breytt París í al-
gjöran suðupott þegar kemur að
danstónlist. „París er frábær borg
til að semja tónlist og hér er mik-
ið og gott samstarf og samband á
milli þeirra sem eru að semja raf-
Hljómsveitin Air tilheyrir frönsku bylgjunni sem á síðustu 18 mánuðum hefur veriö að heilla alla heimsbyggöina.
Hljómsveitir á borö viö Daft Punk, Dimitri from Paris og DJ Cam eru tónlistarmenn sem hafa breytt París í algjöran
suöupott þegar kemur aö danstónlist.
tónlist," segir Jean Benoit. „Við
tilheyrum þessari klíku þó svo
tónlist okkar sé kannski hefð-
bundnari og ekki svona rafmögn-
uð.“ Air finnst þeir líka hafa him-
in höndum tekið þegar kemur að
kynningu á nýju plötunni. Flest-
um rafsveitunum, til dæmis Daft
Punk, er meinilla við að spila á
tónleikum og hryllir hálfpartinn
við tilhugsuninni. Air ætla hins
vegar að fara í tónleikaferðalag og
leggja allt í sölurnar til að verða
gott tónleikaband. Þeir eru jafnvel
að hugsa um að stofna hljómsveit
sem þeir ætla ekki að spila sjálfir
með.
„Þetta er hugmynd sem vaknaði
hjá okkur þegar viö fórum að sjá
hve mikill tími fer í tónleikaferða-
lög, viðtöl og þess háttar kynning-
arstarf," segir Nicolas. „Þessi
hljómsveit gæti jafnvel farið í við-
töl fyrir okkur þannig að við hefð-
um bara nógan tíma til að semja
og taka upp okkar tónlist."
Ekki líkt Smashing Pumpkins
James Iha, gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Smashing Pumpkins,
gaf á dögunum út fyrstu sólóplötu
sína. Hann vill þó ekki meina að
tónlistin á henni sé neitt lík þeirri
sem Smashing Pumpkins hefur ver-
ið að fást við. „Ég reyndi að forðast
það i lengstu lög að gera þessa sóló-
plötu mina að einhvers konar út-
þynntri Smashing Pumpkins plötu,“
segir James. En það hljómar samt
einkennilega aö gítarleikari einnar
mestu rokksveitar heims, sem er
þekkt fyrir aggressíft rokk, skuli
vilja eyða frítíma sínum í að taka
upp plötu með ástarsöngvum.
James vill meina að í Smashing
Pumpkins fái hann tækifæri til að
túlka næstum allar aðrar tilfinning-
ar en ástina. „Þegar ég settist niður
þá komst ég að því að ég þarf
kannski mest að túlka hana núna.
Að semja ástarsöngva er eitthvað
sem ég hef verið að dútla við lengi
en einhvem veginn aldrei fundist
þau eiga heima á plötum með Smas-
hing Pumpkins. Þar erum við að
pæla í allt öðrum hlutum og ástin
fær ekki mikið pláss." Af Smashing
Pumpkins er það annars að frétta að
ný plata er væntanleg frá hljóm-
sveitinni í vor og verður hún á raf-
rænni nótum en oft áður. „Við not-
um næstum engan lifandi trommu-
leik á nýju plötunni,” segir James.
„Þetta er dálítið eins og hverfa aftur
til upphafsins fyrir okkur. Á fyrstu
tónleikunum okkar spilaði enginn á
trommur. Það var bara trommuheili
sem lamdi taktinn á sviðinu."
Á
James Iha, gítarleikari hljómsveitarinnar Smashing Pumpkins, gaf á dögun-
um út fyrstu sólóplötu sína. Hann vill þó ekki meina aö tónlistin á henni sé
neitt lík þeirri sem Smashing Pumpkins hefur veriö að fást viö.
Frístæl í Tóna-
bæ
Undankeppni íslands-
meistarakeppni 13 - 17
ára unglinga í frjálsum
dönsum (Freestyle) fyrir
Stór-Reykjavíkursvæðið
fer fram i Tónabæ i kvöld
kl. 20. Kynnir er Magnús
Scheving.
Naustkjallar-
inn
Opið verður föstudags- og
laugardagskvöld og mun
dúettinn Gammeldansk
úr Borgarfirði sjá um
fjörið þessa helgi.
Buttercup
Stuðhljómsveitin Butt-
ercup mun skemmta unn-
endum Rósenberg kjallar-
ans í kvöld. Liðsmenn
hljómsveitarinnar lofa
stuði fram eftir nóttu og
hvergi slegið af. Rokk og
ról er þema kvöldsins.
Tunglstígvél
Hljómsveitin Moonboots
verður á Gauknum föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Hún spilar öll helstu stuð-
lög níunda áratugarins.
Sóldögg í Ing-
hól
Sóldögg hin sívinsæla
heldur austur um helgina
og leikur á dansleik á
Inghóli, Selfossi laugar-
dagskvöldið 14. febrúar.
Víkingar í
Fjörukrá
í Fjörukránni leikur og
syngur Vikingasveitin
fyrir dansi fram eftir
nóttu.
Soma noröur
og vestur
Hljómsveitin Soma spilar
á Hlöðufelli, Húsavík
föstudagskvöld og á ungl-
ingaballi á Stykkishólmi
á laugardagskvöld.