Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1998, Blaðsíða 4
24 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1998 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1998 25 íþróttir íþróttir /s (22) 54 Keflavík (39) 70 2-0, 4-2, 4-6, 11-11,11-21, 15-21,19-28, 20-35, (22-39), 27^6, 31-50, 35-55, 38-59, 45-63, 47-70, 54-70. Stig ÍS: Signý Hermannsdóttir 11, Kristjana Magnúsdóttir 10, Alda Leif Jónsdóttir 8, María Leifsdóttir 7, Haf- dis Helgadóttir 6, Kristin Siguröar- dóttir 6, Guðríöur Svana Bjamadóttir 4, Lovísa Guömundsdóttir 2. Stig Keflavíkur: Jenny Boucek 27, Erla Reynsdóttir 15, Anna María Sveinsdóttir 9, Erla Þorsteinsdóttir 8, Kristín Blöndal 6, Marín Rós Karls- dóttir 2, Harpa Magnúsdóttir 2, Birna Guðmundsdóttir 1. Fráköst: ÍS 24, Keflavík 15. Vítanýting: IS: 25/13, Keflavík 33/25. Þriggja stiga skot: ÍS 10/3, Keflavík 6/4. Dómarar: Kristinn Albertsson og Sigurður Már Herbertsson, góðir. Áhorfendur: Um 300 þegar leikurinn hófst en flölgaði ört eftir því sem leið á leikinn. Maður leiksins: Jenny Boucek, Keflavik. Sagt eftir leikinn: »Þær voru bara betri" „Keflavíkurstúlkur unnu leik- inn í fyrri hálfleik. Þær eru hreinlega meö betra lið en við,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari stúdenta. „Þær voru alveg til- búnar í leikinn. Þær gáfu allt sitt í leikinn og við gáfum allt okkar. Það mættust stálin stinn og þær voru bara betri. Ég er hins vegar mjög stoltur af mínum stelpum. Þær stóðu sig eins og hetjur allan leikinn og gáfust aldrei upp,“ sagöi Pétur Ingvarsson. „Þetta var í raun búiö í hálfleik" „Fyrstu mínúturnar voru nokkuð erfiðar. Við vorum stressaðar í byrjun eins og oft til- heyrir bikarúrslitcdeik. Um leið og við komumst yfir það þá var þetta engin spuming, þetta var í raun búið I hálfleik," sagði Anna María Sveinsdóttir, þjálfari og leikmaður Keflavíkur. „Jenny feUur vel inn í leik okkar og er að spila hörkuvörn. Viö vinnum leikinn í raun á vöminni." „Viö eigum alveg að geta unniö þær“ „Ég er ekki sátt við að tapa. Við eigum alveg að geta unnið þær. Það er ekkert sem segir að þær séu ósigrandi," sagði Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS. „Við vorum að berjast en það var ekki nóg. Viö byrjuðum vel en duttum síðan niöur í smá- stund og þá hættum við bara. Viö reyndum aUavega að berjast aUan timann,“ sagði Alda Leif viö DV. -HI Úrslitaleikur í bikarkeppni kvenna og efnUegum stúlkum. Jenny Boucek átti stórleik, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hún gerði 23 stig. Erlurnar báðar léku einnig vel. Það er ástæða tU að hrósa stúdínum fyrir mikla baráttu. Þær gáfust aldrei upp þrátt fyrir mótlæti en þær hittu hreinlega ofjarla sína í þessum leik. Alda og Signý vom bestar í liði þeirra. -HI Keflavíkurstúlkur unnu sinn sjötta bikarúrslitaleik í röð þegar þær unnu stúdínur nokkuð örugglega, 70-54. Þær innbyrtu sigurinn undir lok fyrri hálfleiks og var sigurinn aldrei í hættu eftir það. stig í röð og þegar staðan Vcir 19-23 kom annar góður kafli hjá þeim þar sem þær skomðu 16 stig gegn þremur fram að hálfleik. Þessi munur hélst mest allan seinni hálfleik en í lokin minnk- uðu stúdínur hann niður í 16 stig. Keflavíkurstúlkur sýndu og sönn- uðu að erfitt er að sigra þær í svona leik. Liðið er góð blanda af reynslumiklum konum og ungum Stúdínur byrjuðu leikinn samt betur og höföu framkvæðið framan af. í stöðunni 11-11 skomðu Keflavíkurstúlkur hins vegar 10 Fögnuöur Keflavíkurstúlkna var ósvikinn eftir sigurinn gegn ÍS og Suöur- nesjastúlkurnar réöu sér vart fyrir kæti. DV-mynd Brynjar Gauti „Dálítið óstyrkar í byrjuninni" „Við byrjuöum dálítið óstyrkar en síöan kom þetta,“ sagði Jenny Boucek sem gerði 27 stig fyrir Keflavík. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir stelpumar og mig persónulega því allir hafa verið svo góðir við mig. Mér fannst sigur í dag vera leið til að endurgjalda það. Ég reyndi bara að leika eins vel og ég gat fyrir liðið. Stundum þarf ég ekki aö skora til að liðiö vinni. Ég veit ekki hvort ég verð áfram á íslandi. Ef vilji er fyrir því skulum við ræða málin.“-HI Jenny Boucek, fyrir miöri mynd, átti mjög góðan leik fyrir Keflavík og skoraöi 27 stig. DV-mynd Brynjar Gauti Darryl Wilson átti hreint frábæran leik gegn KFÍ og lagöi grunninn aö sigri Grindvíkinga ásamt Helga Jónasi Guöfinnssyni. Þeir félagar sjást hér faömast eftir aö sigurinn var í höfn í Höllinni á laugardag. DV-mynd Brynjar Gauti Grindvíkingar bikarmeistarar í körfuknattleik í annaö sinn: - stuðningsmenn Grindvíkinga og ísfirðinga troðfylltu Höllina og skemmtu sér vel Grindavíkurliðið er illviöráðanlegt þennan veturinn og það fengu leik- menn KFÍ að reyna í bikarúrslita- leiknum á laugardag. Grindavík vann leikinn með 24 stiga mun, 95-71, og varð liðið þar með bikarmeistari i annað sinn á fjóram árum. KFÍ byrjaði leikinn þó alls ekki illa og það virtist sem leikaðferð þeirra í byrjun leiks ætlaði að hemja hið sterka lið Grindavíkur. Liðið hafði frumkvæðið og skyttumar tvær hjá Grindavík virtust liggja í dvala. En þegar hálfleikurinn var hálfnað- ur var sem kviknaði í Grindvíking- um, KFÍ fór að gefa eftir og leikmenn Grindavíkur fóru að fá opnari skot sem þeir höfðu ekki náð að skapa sér í upphafi þessa leiks. Það hafði eink- um verið David Bevis er hélt KFÍ-lið- inu uppi allan fyrri hálfleikinn en skyttur liðsins náðu ekki að ógna með og koma þannig Bevis til hjálpar. David Bevis fékk líka verðugan keppi- naut þegar Bergur Eðvarðsson kom með glæsilega innkomu í vörnina og smám saman misstu Isfirðingar þolin- mæðina og misstu leikinn frá sér. Annars vora það framlög Berganna í fyrri hálfleik sem skiluðu 12 stiga for- ustu í hálfleik fremur en það að þrí- eykið margumtalaða væri að spila eins og þeim er einum lagið. Bergur Hinriksson skoraði til dæm- is 13 stig i fyrri hálfleik. Það sýnir líka heildarstyrk Grindavíkurliðsins að margir voru að leggja til þess að ná bikarmeistaratitlinum í hús. Þegar vopnin eru svona mörg er erfitt að stöðva Grindavíkurliðið. Grikkinn varði 7 skot Það spilar líka grimman og öflugan varnarleik með Grikkjann ótrúlega, Konstantin Tzartsaris, inni í miðj- unni sem stöðvar alla óvelkomna gesti er voga sér inn í teiginn. Alls varði hann 7 skot ísfirðinga í leikn- um. En hvað um hina tvo er fylla upp í hið ógnvænlega þríeyki? Það var einmitt í seinni hálfleik sem bakvarð- arparið fór fyrst í gang en þeir félag- ar voru þá óstöðvandi og skoruðu samtals 41 af 46 stigum liðsins. Helgi Jónas sem skoraði aðeins 3 stig i fyrri hálfleik geymdi sína sýningu þar til í seinni hálfleik er hann gerði 18 stig, þar af 4 þrigga stiga körfur. Helgi var einnig að spila vel fyrir liðið allan tímann en hann sendi 8 stoðsending- ar í leiknum. Darryl Wilson var best- ur Grindvíkinga en hann fékk verð- uga samkeppni um það hnoss frá fé- lögum sínum í þetta skiptið. Turnarnir tveir í KFÍ, þeir David Bevis og Friðrik Stefánsson, stóðu fyrir sínu í leiknum og voru bestir hjá KFÍ. Samtals tóku þeir félagar 26 fráköst en sem dæmi tók allt Grinda- víkurliðið 29 fráköst. Þá skoraði Bev- is 32 stig auk 4 stoðsendinga og 16 frá- kasta. Leikgleði og barátta Leikgleðin og baráttan geislaði af Grindavíkurliðinu og dyggilega studdir af fjölmörgum „Grindjánum" sýndu þeir að Grindavík er besta lið- ið í körfuboltanum í dag. KFÍ snýr vonandi aftur með reynsluna frá þess- um leik i farteskinu. Þeir hafa verið að setja meiri og meiri svip á bikar- inn undanfarin tvö ár (undanúrslit 1997 og úrslit 1998) og hver veit nema að hann vinnist næst. -ÓÓJ Stuöningsmenn Grindvíkinga voru áberandi ekki síöur en stuöningsmenn KFÍ. Grindvíkingar höföu betur aö þessu sinni en víst er aö ísfiröingar eiga einhvern tímann eftir aö fagna sigri í Höllinni. DV-mynd Brynjar Gauti „Grindavík ekki eingöngu hið svokallaða þríeyki" „Þessi leikur vannst fyrst og fremst á góðri vöm. Strákarnir stóðu sig frá- bærlega í þessum leik og það voru all- ir sem voru að skila sínu. Það hefur verið mikið talað að undanförnu um hið svokallaða þríeyki okkar en það voru aðrir í liðinu sem sönnuðu sig i dag og sýndu enn fremur breiddina í liðinu. Bergamir báðir komu, sem dæmi, geysilega sterkir inn. Við erum á góðu róli, búnir að landa bæði Reykjanes- bikamum, bikarkeppninni, við stönd- um vel að vígi í baráttunni um deild- arbikarinn og nú er bara að fara að einbeita sér að aðalbikamum. Við fögnum þessum vel en setjum stefn- una strax á hinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, við DV eftir leik. „Við misstum þetta algjörlega frá okkur eftir að hafa gert góða hluti fyrstu 10 mínútm- leiksins. Við náðum að gera það. Guðni haföi lagt upp til að byrja með en síðan var það sem við hreinlega drulluðum á okkur, örvænt- ing greip um sig hjá liðinu og við spil- uðum hörmulega seinni hluta leiks- ins,“ sagði Baldur Jónasson, fyrirliði KFÍ. „Það voru allir að skila sínu í dag og það var gífurlega góð stemning í hópnum sem ég tel að hafi gert útslag- ið. Þeirra leikkerfi gekk í byrjun en síðan tók okkar við og nú er bara að fagna um stund, ná sér síðan niður á jörðina og einbeita sér að framhald- inu,“ sagði bakvörðurinn skemmtilegi í liði Grindavíkur, Helgi Jónas Guð- finnsson. „Við vissum að við þurftum að ná toppleik til að leggja Grindavík. Strák- arnir voru að gera hlutina rétt í fyrri hálfleik, sem var að spila saman og keyra inn í teig. Síðan voram við alls ekki nægilega þolinmóðir og við fór- um að þjösna inn í teig og að taka allt of erfið skot. Það er ljóst að Grinda- víkurliðið hefur gífurlega mörg vopn, en við vissum að það er hægt að stoppa þau og því eru þessi úrslit mik- il vonbrigði," sagði Guðni Guðnason, þjálfari KFÍ, niðurlútur eftir leik. -ÓÓJ Bikarmeistarar Grindavíkur í körfuknattleik 1998. Liöiö vann öruggan og sanngjarnan sigur á KFÍ. DV-mynd BG Grindavík (49) 95 KFÍ (37) 71 2-0, 5-2, 9-7, 9-10, 15-14, 15-20, 22-24, 28-24, 30-30, 38-32, 42-36, (49-37), 52-37, 56-39, 59-41, 59-47, 61-47, 61-50, 66-56, 70-56, 76-60, 80-63, 82-63, 86-66, 90-71, 95-71. Stig Grindavík: Darryl Wilson 37, Helgi Jónas Guðfinnsson 21, Bergur Hinriksson 13, Konstantin Tzartsaris 10, Guðlaugur Eyjólfsson 6, Bergur Eðvarösson 6, Pétur Guðmundsson 2. Stig KFÍ: David Bevis 32, Friðrik Stefánsson 11, Marcos Salas 10, Ólaf- ur Ormsson 8, Magnús Gíslason 6, Baldur Jónasson 3, Guðni Guðnason 1. 3ja stiga körfur: Grindavík 11/29, KFÍ 4/16 Vítahittni: Grindavik 17/24, KFÍ 8/11 Sóknarfráköst: Grindavík 10, KFÍ 16 Vamarfráköst: Grindavík 19, KFÍ 21 Dómarar: Kristinn Óskarsson og Leifur Garðarsson í toppklassa. Áhorfendur: 3200. Maður leiksins: Darryl Wilson, Grindavik. Grindavík er enn taplaust í bik- arúrslitaleik, eina liðið ásamt Fram, en körfuknattleikur hefur ekki verið stundaður á þeim bæ í mörg ár. KFÍ varð þriðja Vesturlandsliðið til að spOa bikarúrslitaleik. Öll hafa liðin tapað og það sem meira er að þau töp era þau þrjú stærstu í sögu bikarúrslitaleiks- ins. Snœfell tapaði með 39 stiga mun fyrir Keflavík 1993, Akra- nes tapaði með 27 stigum fyrir Haukum 1996 og KFÍ tapaði í ár með 24 stigum fyrir Grindavík. Grindavikurliöiö, sem státar cif mjög miklum skyttum, hefur skorað 11 þriggja stiga körfur í báðum bikarúrslitasigurleikjum sínum. KFÍ sem spilaði sinn fyrsta bik- arúrslitaleik varð það níunda af þrettán liðum sem hafa tapað sínum fyrsta bikarúrslitaleik. Hitíni Grindavíkurliösins var mjög góð í leiknum eða 56%, 38 skot rötuðu rétta leið af 68, en alls skoraði liðið 11 þriggja stiga körfur í leiknum. ísfólkið og Grindjánar settu skemmtilegan svip á leikinn og sköpuðu frábæra stemningu, mestu stemningu sem verið hef- ur á körfuboltaleik hér á landi. Jenny Boucek gerði 23 stig í fyrri hálfleik fyrir Keflavík gegn ÍS, einu stigi meira en allt ÍS-lið- ið. Menn töluöu um að stigametið í bikarúrslitaleik kvenna, 33 stig, væri í hættu. Það met hélt því Boucek gerði aðeins 4 stig í síð- ari hálfleik. Keflavíkurstúlkur mættu allar vel fléttaðar í leikinn. Þetta var þeirra leið til að sýna samheldn- ina í liðinu. Fyrirliöi Keflavíkur: Jafnvel auðveld- ara en ég bjóst við „Ég er ánægð með leikinn. Þetta var auðvelt, jafnvel auð- veldara en ég bjóst við,“ sagði Erla Reynisdóttir, fyrirliði Kefla- víkur. „Ég hélt að byrjunin ætlaði að verða eitthvað svipuð og í fyrra þar sem við skoruðum ekki fyrstu tíu mínúturnar," sagði Erla Reynisdóttir, fyrirliöi Kefl- víkinga, eftir leikinn við DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.