Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 2
16 FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 JjV IWvikmyndir Kvöldstjarnan Fimmtán ár eru frá því að James L. Brooks (As Good as It Gets) leikstýrði Terms of Endearment, mynd sem var tilnefnd til ellefu óskarsverðlauna og fékk fimm, tvö leikaraverðlaun, fyrir bestu kvikmynd, besta handrit og besta leikstjóra. Leikaramir sem fengu óskarinn voru Shirley MacLaine fyrir aðalhlutverk og Jack Nicholson fyrir aukahlutverk. í gegn- um tíðina hefur oft verið hugsað um framhald en ekki varð að því fyrr en i fyrra að The Evening Star var gerð og gerist fimmtán áram eftir að sögunni í Terms of Endearment lauk. Shirley MacLaine er sem fyrr þungamiðja myndarinnar og Jack Nichol son er aftur í hlutverki geimfarans, að vísu er hlutverkið nú lítið. í Terms of Endear- ment var skiliö við Aur- ora (Shirley MacLaine) við dánarbeð dóttur sinn- ar, Emmu. Það hefur því lent á Auroru að ala upp barnaböm sín og á hún í miklu striði við þau, sérstaklega Mel- anie, sem mjög líkist móður sinni. Þá þarf hún að berjast við bestu vinkonu Emmu, Patsy, um aðdáun barnanna og báðar eru þær í harðri bar- áttu um athygli sálfræð- ingsins Jerry Bruckners. Auk Nicholsons og $ MacLaines leika stór hlutverki í Even- ing Star, sem Sam-bíóin frumsýna í dag, Bill Pax- ton, Juliette Lewis og Miranda Richardsson. Að sögn framleið- andans David Kirk- patrick hefur hann fundið fyrir því að fólk vildi fá að vita meira um t Auroru og þar \ sem rithöf- undurinn Larry McMurtry hafði skrifað framhald af Terms of Endearment var ekkert til fyrir- stöðu að gera myndina. Þaö varð samt fyrst að fá samþykki Shirley MacLaines til að leika Aurora þar sem Kirkpatrick var viss um að almenn- ingur gæti ekki hugsað sér neina aðra leikkonu í hlutverkið Jack Nicholson kemur fram í litlu hlutverki. og ekki stóð á MacLaine að endurtaka leikinn. Shirley MacLaine sem er eldri systir Warren Beattys kom fram á sjónarsviðið á sjötta áratugnum og á farsælan feril að baki. Um tíma lifði hún villtu lífi og var eini kvenmaður- inn sem hin fræga klíka „Rat Pack“, með þá Frank Sinatra og Dean Martin í broddi fylkingar, tóku sem gild- an meðlim og lék hún í kvik- myndum með þeim um tíma. MacLaine hefur einu sinni fengið óskarsverðlaun og fimm sinnum verið tilnefnd til ósk- arsverðlauna. Var það fyrir leik í The Apartment, Turning Point, Some Came Running, Irma la Douce og Terms of Endearment. James L. Brooks er fjarri góðu gamni og er leikstjóri og handritshöfundur, Robert Harling og er The Evening Star frumraun hann. Hann er lögfræðingur að mennt, en í stað þess að stunda það starf leitaði hann fyrir sér sem leikari í New York. í frítímum sem vora margir skrifaði hann leikrit, Steel Magnolias, sem hann byggði á atvikum úr eigin ævi. Varð leikritið mjög vinsælt, sýnt um allan heim og kvikmynd gerð eftir því, sem Harling skrifaði handritið að. Önnur handrit sem hann hefur skrifað era Soapdish og The First Wive’s Club. -HK Shirley MacLaine leikur Auroru, fimmtán árum eftir að dóttir hennar lést. A hiálp Frank Connor (Andy Garcia) ásamt syni sínum sem aðeins getur læknast meö aðstoö morðingjans, McCape. Sam-bíóin og Stjömubíó frumsýna í dag bandarísku spennumyndina, Desperate Measure, en í henni má sjá Michael Keaton breyta nokkuð um stíl, svo ekki sé meira sagt. Keaton leikur brjálæðinginn Peter McCape, morðingja sem er stórhættulegur þjóðfélaginu og er í algjörri einangr- un. Þegar það kemur í ljós að hann er eini maðurinn sem getur gefið syni lögreglumannsins Franks Connors blóðmerg fær Connor leyfi til að fá McCape til að vera lífgjafi sonar síns. Það verður þó ekki gert nema með sérstakri öryggisgæslu. McCape samþykkir að vera lífgjaf- inn, ekki vegna þess að hann vorkenni drengn- um heldur sér hann tækifæri til að sleppa úr prísund sinni og það tekst honum eftir blóðug- an bardaga. Hefst nú mik- ill eltingarleikur við McCape þar sem Connor hugsar um það eitt að ná honum lifandi. Ekki eru allir jafn hrifnir af þeirri ákvörðun og einn lögreglumað urinn sem er að eltast við McCape segir: „Hvað á það að kosta mörg mannslíf að bjarga drengnum?" Með hlutverk Franks Connors fer Andy Garcia, sem virðist vera orðinn fastur í hlutverkum lögreglumanna. Aðrir leikarar eru Marcia Gay Hard- en og Brian Cox. Michael Keaton hefur sannað að hann er fjölhæfur leikari. vakti aðdáun margra fyrir góðan dramatískan leik sem áfengissjúklingur í Clean and Sober, þótti sýna farsaleik af bestu gerð í Beetlejuice, var sannfærandi hetja í The Batman og þótti takast vel upp í Shakespeare-myndinni Much Ado about Nothing. Nú bætir hann við persónu sem best á heima í fangaklefa með Hannibal Lecter, samviskulaus- um morðingja sem aðeins er hægt að hafa í einangrun. Leikstjóri Desperate Measure er Barbet Schroeder sem hefur verið að gera kvikmyndir í 25 ár. Desperate Measure er sjötta myndin sem hann leikstýrir í Bandaríkjunum. Þekktust mynda hans er Reversal of Fortune, en fyrir hana var hann tilnefndur tO óskarsverðlauna og Jeremy Irons hlaut óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í þeirri mynd. Aðrar bandarískar kvikmyndir hans eru Barfly, Single White Female, Kiss of Death og fore and after. Barbet Schroeder var 22 ára þegar hann stofnaði sitt eigið kvikmyndafyrirtæki, Les Films * du Losange í París. Framleiddi hann myndir eftir þekkta leik- tjóra á borð við Eric Rohmer og lék hann aðalhlutverkið í einni þeirra La Boulangere de Monceau. Fyrirtæki hans hefur auk mynda Rohmers fram- leitt kvikmyndir eftir Wim Wenders, Jean- Luc Godard, Claude Chabrol, Rainer Werner Fassbinder og Jacques Rivette. 1969 leikstýrði Schroeder sinni fyrstu kvikmynd, More. Ein frægasta kvikmynd hans á Evrópu-ár- unum er heimildarmyndin Idi Amin Dada sem hann gerði 1978. -HK Michael Keaton leikur morðingjann Peter McCape, sem tekst að losna úr ein- angrun sem hann hefur verið settur í. KVIKMYHDA I Háskólabíó — Amistad: Hlekkir ** Nýjasta mynd Spiel- bergs er byggð á sannsögu- legum atburðum. Árið 1839 fór einkennilegt dómsmál alla leiðina fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna. Þrælar á þrælaskipinu Amistad brutust úr hlekkjum og drápu kúgara sína. Banda- rísk freigáta færði skipið til hafnar stuttu síðar og þrælarnir voru færðir fyr- ir rétt ásakaðir um morð. Málið var allt hið ein- kennilegasta því þegar hér var komið sögu var búið að takmarka lög um þrælahald við einstaklinga sem fæddir voru í ánauð. Málið snérist því frek- ar um eignarrétt en siðlegar forsendur þrælahalds. Ef verjendum tækist að sanna að þrælarnir væru frá Afriku þar sem þeir hefðu verið fangaðir ólög- lega, vora þeir frjálsir menn sem risu upp gegn ræningjum sínum. Undir miklum þrýstingi frá spænsku stjóminni og valdamiklum stjómmála- mönnum frá Suðurríkjunum reyndi Martin Van Buren (Nigel Hawthorne), forseti Bandaríkjanna, að hafa áhrif á málsmeðferð með því að loka mál- inu og setja annan dómara sem hann skipaði sjálfur. Þegar Baldwin (Matt- hew McConaughey), lögfræðingur sakborninga, náði að fá þá sýknaða var málinu áfrýjað til hæstaréttar. Þegar þar var komið sögu tók John Quincy Adams (Anthony Hopkins) við vöminni, en Adams var sonur annars for- seta Bandaríkjanna og fyrrverandi forseti sjálfur. í raun má segja að myndin snúist um sigur bandarisks réttarkerfis því sakbomingar vora sýknaðir í hæstarétti þrátt fyrir að sjö af níu dómurum væra sjálfir þrælaeigendur frá Suðurrikjunum. Og þetta er líka helsti galli myndarinnar. Framan af er áhersla lögð á Afríkubúana og sérstaklega tals- mann þeirra Cinqué (Djimon Hounsou). í augum þeirra eru Nýja-Englands- búar hálfgerðir villimenn. Eftir því sem líður á myndina hverfa þeir í skuggann á þeim Bandaríkjamönnum sem börðust fyrir frelsi þrælanna. Og það er ekki laust við að það vakni hjá manni velgjutilfinning í lokin þegar réttlætið hefur sigrað. Sakbomingar eru lausir úr hlekkjunum og halda aftur heim til Afríku. Myndinni lýkur þar sem breskur liðsforingi sprengir þrælavirkið í Sierra Leone í tætlur. Afríkubúar eru að lokum frjálsir og timar þrælahalds fljótlega á enda. Þessi niðurstaða er ekki í sam- ræmi við sögulegar staðreyndir því þótt þrælahald liði undir lok var nið- urlægingartími Afríku rétt að hefjast. Enn vora um 50 ár í Berlínarfund- inn og kapphlaupið um Afríku og yfir 120 ár í það að bandarískir blökku- menn fengju sömu lagaleg réttindi og hvítir. Kvikmyndalega séð er Amistad vel úr garði gerð en sú hugmyndafræði sem að baki liggur veikir áhrifamátt hennar verulega. Leikstjóri: Steven Spielberg. Aðalhlutverk: Morgan Freeman, Nigel Hawthorne, Anthony Hopkins, Djimon Hounsou, Matthew McConaug- hey, Pete Postlethwaite og Stellan Skarsgárd. Guðni Elísson Sam-bíóin - The Postman: Boðberi góðra tíðinda •k'i. Þegar Kevin Costner seinkaði frumsýningu á Dances with Wolves voru margir sem bentu á að slík- ar seinkanir boðuðu váleg tíðindi. Þetta rættist ekki og Dances with Wolves rak- aði að sér verðlaunum og Costner fékk óskarinn sem besti leikstjórinn. Hefðu einhverjir haft sömu orð um The Postman áður en hún var frumsýnd í kjölfar- ið á Titanic þá sætu þeir hinir sömu gleiðbrosandi nú því það verður að segjast eins og er að The Postman er mislukkuð kvikmynd, gerð af leikara og leikstjóra sem hefði haft gott af að horfa í eigin barm og stunda ein- hverja sjálfsgagnrýni áður en hann hóf vinnu við svo flókið epískt verk. Sögusviðið er 2013, styrjöld hefur gert það að verkum að öll uppsöfnuð tækni mannkynsins er horfin, aðeins era til minningar eftirlifandi um nauðsynjahluti sem fylgdu i kjölfarið á tæknibyltingunni. Mannkynið er horfið aftur til miðalda þar sem hesturinn er aðalfarartækið. Fólk býr í ein- angruðum þjóðfélögum og hræðist þá sem hafa tekið sér völd í krafti grimmdar. Inn í einangraðan heim fólksins kemur póstmaðurinn, einfari sem hafði náð að flýja úr höndum óaldarflokks. Það verður honum til lífs að hann finnur gamlan póstbíl í skógarjaðri þegar hann er nær dauða en lífi vegna sunds niður eftir straummiklu fljóti. Pósturinn í bílnum vekur forvitni hans og hann tekur að sér að bera út póstinn. Fyrir þetta framtak sitt og sögur hans um að nýr og góður forseti sé í Minneapolis verður hann, án þess í fyrstu að gera sér grein fyrir, nokkurs konar sameiningartákn um að það sé hægt að endurreisa sambandsríki Norður-Ameríku og búa fólki betri lífskjör. I stuttu máli er það þrennt sem gerir það að verkum að The Postman er stórgölluö. Fyrir það fyrsta er myndin alltof löng (tæpir þrír tímar), byrj- unin er langdregin og fráhindrandi og þá nær myndin ekki því flugi í lok- in sem ætlast hefði mátt til. Stundum nær þó The Postman þó að fanga hug- ann í dramatískum og flott kvikmynduðum atriðum en veikleiki handrits- ins ásamt melódramatískri útfærslu Kevins Costners á atriðum sem hefðu getað oröið sterkari með grófara yfirbragði, gera það að verkum að The Postman er mjög ójöfn kvikmynd og ber greinileg merki þess að Costner hafi færst of mikið í fang. Það sem er óskiljanlegast er af hverju hann stytti ekki myndina. Öfugt við Titanic, sem erfitt er að sjá hvar ætti að taka mín- útu af, þá er auðvelt að sjá hvar hefði mátt stytta The Postman, það hefði að vísu verið að mestu leyti á kostnað póstmannsins sem Costner sjálfur leikur. Leikstjóri: Kevin Costner. Handrit: Eric Roth og Brian Helgeland eftir skáldsögu Davids Brins. Kvikmyndataka: Stephen Windom. Tónlist: James Newton Howard. Aðalhlutverk: Kevin Costner, Will Patton, Larenz Tate, Olivia Williams, James Russo og Tom Petty. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.