Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Blaðsíða 4
18
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 DV
um helgina
Kjarvalsstaðir um helgina:
Hughrif eru listavérk
- segir Ólafur Elíasson myndlistarmaður
í dag verða tvær sýningar opnaðar á Kjar-
valsstöðum. Annars vegar sýningin PARADÍS?
Hvenær? sem unnin er af listakonunni Rúrí og
hins vegar eru sýnd verk eftir listamanninn
Ólaf Elíasson. Sýning hans ber yfirskriftina
„Hinn samsíða garður og aðrar sögur“.
í samtali við DV sagði Ólafur að verk hans
væru aðallega innstiUingar. „I minum huga er
listaverkið ekki sjálfir munimir sem ég set upp
heldur það sem gerist í rýminu milh munanna
og áhorfandans. Hughrifin sem þar eiga sér
stað eru mitt listaverk."
Þetta er fyrsta einkasýning Ólafs á íslandi en
hann hefur aldrei búið hér á landi. -------
Hann fæddist í Danmörku en hefur
búið í Þýskalandi síðastliðin flmm
ár. Ólafur er orðinn talsvert þekktur
myndlistarmaður erlendis. Eftir að
hann lauk námi við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn
árið 1995 heíúr hann haldið á annan
tug einkasýninga beggja vegna Atl-
antshafsins og tekið þátt í flölda sam-
sýninga.
Hann sækir hins vegar mikið til ís-
lands enda er náttúran honum hug-
leikin í list hans. Oft tekur hann
ýmis náttúrufyrirbæri og setur þau í
annarlegt umhverfi í verkum sínum.
Þannig fær áhorfandinn nýja og
sterka upplifun af kunnuglegum hlut
sem slitinn er úr sínu eðlilega um-
hverfi.
PARADÍS? Hvenær?
Listakonan Rúrí sýnir umhverfis-
verk með yfirskriftinni PARADÍS?
Hvenær? og er verkið framlag henn-
ar til alþjóðlegrar friðarumræðu.
Rúrí sækir efhivið sýningarinnar til
striðshrjáðra svæða í heiminum.
Hún reynir með myndrænum að-
ferðum að tjá ótta sinn og hrylling og vekja
um leið sýningargesti til umhugsunar um ör-
lög manna víða um heim.
Hér er á ferðinni ein viðamesta sýning
Rúríar til þessa og nýtir hún sér marga og
ólíka miðla, m.a. ljósmyndir, kvikmyndir,
tölvur og Intemetið. Sýningu Rúríar á Netinu
má finna á vefslóðinni http://www.is-
holf.is/paradise.ruri. í tengslum við sýning-
una mun Mannréttindaskrifstofa íslands
gangast fyrir málþingi undir yfirskriftinni
„Mannréttindi og listir".
Listaverkiö „Regnskáli" er eitt verka Ólafs Elíassonar á sýningu hans á Kjarvalsstöðum.
Rjómaprógramm
- endurtekið vegna veðurs
Píanóleikarinn Þorsteinn Gauti Sigurðsson ætl-
ar að halda aðra tónleika í Listasafni íslands á
sunnudaginn kl 17. Hann hélt þar tónleika síðasta
sunnudag en hefur i liðinni viku fengið fiölda
áskorana um að endurtaka tónleika sína, bæði
vegna þess hve góðir þeir þóttu og vegna þess hve
margir urðu frá
Þorsteinn Gauti heldur aöra
sunnudagstónleika sína í
Listasafni islands í röö um helg-
ina og vonast eftir betra veöri en
síöast.
DV-mynd Hilmar Þór
að hverfa vegna
veðurs sl. sunnu-
dag.
Nú ætlar Þor-
steinn Gauti að
halda tónleika í
björtu og vonandi betra veðri, enda ekki að furða
þar sem næstum það eina sem Bergþóra Jónsdótt-
ir, tónlistargagnrýnandi DV, gat sett út á tónleik-
ana á sunnudaginn var veðrið og myrkrið. Meðal
annars hafði hún þetta að segja um tónleikana
sjálfa: „Og sannarlega ættu tónlistarunnendur að
fá fleiri tækifæri til að heyra í jafn góðum pianista
og Þorsteini Gauta ... Það þarf dirfsku til að leggja
í þvílíkt rjómaprógramm sem Þorsteinn Gauti
valdi sér nú. Þama var hver perlan af annarri."
Vilji menn á annað borð hlýða á tónlist á
sunnudaginn ætti varla að þurfa frekari hvatning-
ar við.
NFFA sýnir Gísl
fæddur Skagamaður, sem áður hefur
gert góða hluti með nemendum Fjöl-
brautaskólans. Leikarar í leiksýning-
unni eru 15 auk hljómsveitarinnar. Með
helstu hlutverk fara Óli Örn Atlason,
Jónína Margrét Sigmundsdóttir, Viggó
Ingimar Jónsson, Andrea Katrín Guð-
mundsdóttir og Siguröur Tómas Helga-
son. Uppsetning leikrits hjá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands er orðin
merkur viðburður í menningarlífi
Vesturlands og fer hann vaxandi
með hverju árinu sem líður.
Sögusviðið er gistiheimili Monsjúrs í
Dublin á írlandi þegar barátta íra er í
fullum gangi. Bretar taka írskan pilt til
fanga og halda honum í varðhaldi í
Belfast. Til að svara fyrir sig tekur her
IRA breskan dreng til fanga og telja
þeir að fullkominn felustaður til að fela
fangann sé einmitt gistiheimili Mon-
sjúrs, því Bretum detti aldrei í hug að
IRA myndi flekka nafn sitt með því að
stígatfæti þar inn. -DVÓ
Frá sýningu nemenda Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á leikritinu Gísi.
Skemmtihúsið við Laufásveg:
Ferðir
-Róm
Guðríðar
- Skagafjörður
Tristan Gribbin leikur
hlutverk Guöríöar Þor-
bjarnardóttur í leikverk-
inu Ferðir Guðríöar í
Skemmtihúsinu viö
Laufásveg 22 á sunnu-
daginn. DV-mynd Hilmar
Þór
DV Akranesi:
Nú er Fjölbrautaskóli Vesturlands að
vinna að uppsetningu á leikritinu Gísl
eftir Brendan Behan í þýðingu Jónasar
Árnasonar. Hátt í 90 nemendur koma
að sýningunni og mun afrakstur vinn-
unnar verða frumsýndur laugardaginn
14. márs nk.
Leikstjóri að
þessu sinni er Jak-
ob Einarsson,
Á sunnudaginn verða tvær sýningar á verk-
inu Ferðir Guðríðar kl. 17 og 20 í Skemmti-
húsinu að Laufásvegi 22 og verða þær jafn-
framt síðustu sýningar í mars. Þama er geysi-
lega spennandi sýning á ferðinni þar sem ein
leikkona, Tristan Gribbin, fer með öll hlut-
verk leikritsins á ensku. Hún hefur fengið
mjög góða dóma fyrir leik sinn í verkinu.
Ferðir Guðríðar fiallar um Guðríði Þorbjam-
ardóttur sem
var fyrsta
vestræna kon-
an til að setj-
ast að í Amer-
íku og fæða
þar bam. Síðar
lagði hún leið
sína til Rómar ;
til að hitta páfann að máli.
Að því loknu sneri hún heim
til íslands, reisti þar kirkju i
Glaumbæ í Skagafiröi og tók
nunnuvígslu.
Brynja Benediktsdóttir er
höfundur verksins og leik-
stjóri þess. Söguna byggir hún
á Eiríks sögu rauöa og Græn-
lendingasögu en notar töfrabrögð leikhússins
til að koma sögu Guðríðar til skila. Ætlunin
er að sýna verkið með þremur leikkonum á
þremur hmgumálum. Tristan hefur þegar haf-
ið leikinn á ensku en síðar verður verkið sýnt
á íslensku, þar sem Ragnhildur Rúriksdóttir
leikur öll hlutverk, og á sænsku, þar sem Bára
Lyngdal Magnúsdóttir mun leika.