Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Side 10
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 JLlV
ísland
- pltítur og diskar
1. (1 ) Titanic
Úr kvikmynd
Z ( 3 ) All Saints
All Saints
3. ( 2 ) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
4. ( 4 ) Let's Talk About Love
Celino Dion
5. ( 7 ) Urban Hymns
The Verve
6. (11) Madonna
Ray of Light
7. ( 6 ) Drums and Docks
Propellerheads
8. ( 5 ) Yield
Pearl Jam
9. (12) Moon Safari
Air
H 10. ( 8 ) OK Computer
Radiohead
| 11. ( 9 ) Aquarium
Aqua
t 1Z (20) Bugsy Malone
Úr leikriti
$ 13.(13) Bestof
Eros Ramazotti
t 14. (Al) Spiceworld
Spice Girls
t 15. (Al) Greatest Hits 2
Queen
t 16. (- ) Together Alone
Anouk
4 17. (14) John Lennon
Legend
t 18. ( - ) Heavy Mental
Killah Priest
| 19. (19) Simply the Best
Tina Turner
t 20. ( - ) Saturn Returnz
Goldie
I
*
London
-lög-
t 1. ( 2 ) My Heart will go on
Ccline Dion
t Z ( - ) Big Mistake
Natalie Imbruglia
4 3. (1 ) Frozen
Madonna
t 4. ( - ) When the Lights Go Out
Everlasting Love
t 5. ( - ) The Cast from Casuality
| 6. ( 3 ) Brimful of Asha
Cornershop
| 7. ( 4 ) The Ballad of Tom Jones
Space
I 8. ( 5 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
4 9. ( 7 ) How Do I Live
LoAnn Rimos
4 10. ( 6 ) Doctor Jones
Aqua
ðe hás!
- á Subterranean- og Gravediggaz-tónleikum
Fylkishöllin í Árbæ er eflaust
ágætur tónleikasalur. Helstu ókost-
imir em þó að staðurinn er fjarri
alfaraleið og ekki gerður fyrir tón-
list. Hljómurinn á rapptónleikun-
um á laugardaginn fyrir viku var
frekar vondur, það bergmálaði í
kofanum. Hljómurinn hefði
kannski verið betri ef fleiri hefðu
mætt. Mætingin var eins og á með-
al skólababi og þess vegna var
tómahljóð í íslenskri hipphopp-
menningu þetta kvöld. Hvað með
það, Subterranean hitaði húsið fyr-
ir Gravediggaz og var svöl þó leið-
indavesen væri á græjunum. Þau
em nokkuð flott á sviði, Ragna
skoppandi stuðbolti og Maggi algjör
andstæða, spýtukarl með öfuga
hafnaboltahúfu. Kalli vakti svo yfir
sviðinu fyrir aftan plötuspilarana.
Bandið náöi ágætu flugi á milli þess
sem græjumar fríkuöu út. Hópur-
inn framan við sviðið var vel með á
nótunum og tók undir og fram-
kvæmdi ýmsar stuðskipanir sem
komu af sviðinu. „Eraði frjáls?“
spurði Subterranean og áhorfendur
héldu það nú.
Eftir Subterranean tók við lög-
bundin bið. Ekki þurfti þó aö róta
mikið á sviðinu því á þessum tón-
leikum var bara notast við tvo
plötuspilara og segulbönd. Loksins
lauk biðinni og útsendarar Gra-
vediggaz, Too Poetic og Frakwan,
birtust ásamt þremur vinum sinum
sem þeir tóku með sér úr hverfinu.
Einn þeirra tók sér stöðu við plötu-
spilarana og sýndi ótrúlega snilld í
Útsendarar Gravediggaz, Too Poetic og Frukwan, birtust ásamt þremur vinum
sínum sem þeir tóku með sér úr hverfinu. DV-mynd Harí
skratsinu út kvöldið og var al-
gjört galdragrip á þessum tón-
leikum. Félagarnir fjórir í
framlínunni vögguðu nú í
hægðum sínum fram og til baka
um sviðið og möluðu hver í
kapp við annan. Too Poetic var
vigalegastur og malaði mest.
Þeir fíluðu ísland greinilega
vel, tilkynntu að svona tónleik-
ar gætu ekki lengur farið fram
á þeirra heimaslóðum því það
yrðu alltaf læti og blóðsúthell-
ingar. Svo spurðu þeir ítrekað
hvort „Æsland" væri „in ðe
hás“ og áhorfendur svöruðu sig
hása. Þeir supu af rauðvíni og
vatni úr 2 lítra plastflöskum og
Frukwan skírði áhorfendur til
rappískrar trúar í heilögu vatni
Egils-appelsínflöskunnar. Svo
henti hann myndum og ýmsu
góðgæti öðru í sanntrúaða
hjörðina.
Hipp-hopp Gravediggaz er
enn hrárra á tónleikum en á
plötum. Það var erfitt að greina
annað en sterkan bassa og því
vora hápunktar kvöldsins fyrir
mitt leyti lögin Bang Your Head
og Da Bomb, en annað uppá-
haldslag, 1-800 Suicide, heppn-
aðist ekkert sérstaklega vel.
Þegar á leið breyttust tónleik-
amir smám saman í eitt alls-
herjar samkvæmi. Heimamönnum
var hleypt upp á svið og fengu að-
gang að hljóðnemunum. Nokkrir
sýndu góð tilþrif við þéttan takt
frá plötusnúðnum. Alltaf fjölgaði á
sviðinu og þegar Gravediggaz
renndi í síðasta lagið var kominn
þéttur veggur af iðandi rappgelgju
fyrir aftan sveitina. Það var auð-
velt að ímynda sér að maður væri
staddur í endanum á nýrri Spike
Lee-mynd. Þá voru ljósin kveikt og
Brooklyn breyttist aftur í Árbæ og
það var kalt úti.
-glh
NewYork
— lög —
1.(2) Gettin' Jiggy Wit it
Will Smith
Z (1 ) My Hoart Will Go On
Celine Dion
3. ( 3 ) Nice and Slow
Usher
4. ( 6 ) No, No, No
Destiny's Child
5. ( 5 ) Truely Madly Deeply
Savage Gardon
6. ( 7 ) Swing My Way
K.P. & Envyi
7. ( 4 ) Together Again
Janet
8. ( 9 ) What You Want
Maso (Featuring Total)
9. (-) Gone Till November
Wyclef Joan
10. (10) How Do I live
Leann Rimos
Bretland
— pltitur og diskar —
t 1. ( -) Ray of Light
Madonna
| Z ( 1 ) Titanic
Ur kvikmynd
| 3. ( 3 ) Let's Talk About Love
Coline Dion
4 4. ( 2 ) Urban Hymns
The Vervo
t 5. ( 6 ) Life Thru a Lens
Robbie Williams
t 6. ( 7 ) Maverick a Strike
Finloy Quaye
4 7. ( 4 ) The Melting Pot
The Charlatans
4 8. ( 5 ) All Saints
All Saints
t 9. ( -) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
4 10. ( 8) Aquarium
..Aqua 1
t
*
t
»
i
'
»
»
»
|
Bandaríkin
— plötur og diskar—
f 1. (1 ) Titanic
Úr kvikmynd
| Z ( 2 ) Lot's Talk About Love
Celine Dion
| 3. ( 3 ) Charge it 2 da Game
Silkk The Shocker
| 4. ( 4 ) Savage Garden
Savage Garden
t 5. (9) The Wedding Singer
Úr kvikmynd
| 6. ( 6 ) Backstreet Boys
Backstroot Boys
| 7. ( 7 ) My Way
Usher
t 8. (-) LoveAlways
K-ci & Jojo
4 9. (10) Yoursolf or Somoone Like You
Matchbox 20
410. ( 5 ) Yield
Poarl Jam
Glaða kúrekastelpan:
Imani Coppola
fmani Coppola heitir 19 ára stelpa frá New York sem hefur verið að
vekja athygli síðustu vikur með sinni fyrstu breiðskífu, Chupacabra, og
laginu Legend of a Cowgirl. Imani semur tónlistina sjálf, syngur, rappar
og spilar á hljómborð, gitar og fiðlur. Það er bjart yfir tónlistinni, þetta er
dansvætt sólskinspopp með frískandi fónk- og hipphopp-ívafi og minnir á
ýmislegt. De La Soul, Pizzicato 5 og Garbage koma t.d. upp í hugann, en
Imani er þó engin hermikráka.
„Þegar ég er spurð
hvemig tónlist ég
spila,“ segir Imani,
„svara ég því til að
þetta sé mín eigin tón-
list, það er ekki hægt
að flokka mig, tónlist-
in er ný og ég bjó hana
til sjálf. Ef ég þarf að
vera nákvæmari segi
ég að tónlistin sé glöð,
andrik og gerð til að
láta fólki hða vel.“
Imani býr tónlist
sína til úr „sömplum"
og lifandi hljóðfæra-
leik. Hún var alin upp
á listamannaheimili.
Allir fjölskyldumeð-
limirnir sinna tónlist
og Imani fæddist með
tónlistina í blóðinu.
Helsti aðstoðarmaður
hennar á plötimni er
Michael Mangini sem
er þekktur að sam-
starfi sínu við Digable
Planets, gleði-
hipphoppsveit sem var
vinsæl fyrir nokkrum
árum.
Imani Coppola syng-
ur um geimverur, torkennilega atburði, ástina og frelsi nútímakonunnar
til að gera það sem henni sýnist. „í laginu Legend of a Cowgirl syng ég
um aö þjóta burt á hestbaki," segir hún, „og ég sé það sem táknmynd fyr-
ir það að gera það sem mann langar til. Að sofa hjá hverjum sem manni
sýnist og hafa ekki móral yfir því, að þjóta i næsta bæ til að byrja upp á
nýtt.“
Titill plötunnar, Chupacabra, þýðir „Sé sem sýgur geitur" á spænsku og
visar í dularfulla atburði sem hafa gerst í Mið-Ameriku. „Blóðlausar geitur
hafa fundist á víðavangi og heimamenn trúa að geimverur eða púkar hafi
verið að verki," útskýrir Imani, „en það var nýlega uppgötvað að það eru
líklega bara venjulegar blóðsugur frá jörðinni sem leggjast á geiturnar. En
hvað veit ég svo sem,“ segir Imani og brosir dularfullu brosi. -glh
Imani Coppola heitir 19 ára stelpa frá New York
sem hefur verið að vekja athygli síðustu vikur með
sinni fyrstu breiðskífu, Chupacabra, og laginu
Legend of a Cowgirl.
„Fjölbreytnin held-
ur
u:mI4
i 1
tt
- með KK á línunni
KK er með mörg jám í eldin-
um nú sem endranær. Hann hef-
ur hóað saman í nýtt band, KK-
Kvintett. Auk KK era þar fjórir
frjósamir tónvirkjar, Guðmundur
Pétursson, Haraldur Þorsteinsson,
Ólafur Hólm og Óskar Guðjónsson.
KK segir kvintettinn fylla upp í
ákveðið tómarúm sem sé hér eftir að
veitingastaðirnir Púlsinn og Tveir
vinir hættu. Kvintettinn sér um að
mynda gott ballstuð, enda gott kóver-
band á ferð með úrvalsliði. „Eina leið-
in til að lifa á tónlist á íslandi," segir
KK, „er að spila helst á mörgum svið-
um. Ég fæ frekar fljótt leið á sjálfum
mér og þarf því að endumýja mig oft.
Mér finnst örvandi og heiður að spila
með fólki eins og Bubba, Magnúsi Ei-
ríkssyni, Ellen systur, Gumma P, Kvin-
tettnum - þessi fjölbreytni heldur
manni lifandi og sæmilega ferskum.
Svo verð ég ofsalega ánægður ef eitt-
w f- # §#'
\
KK er með mörg járn í eldlnum nú sem endranær. Hann hefur hóað saman í nýtt band, KK-Kvintett.
hvað nýtt kemur upp á, eins og t.d. að gera tón- list við leOírit, bíó- myndir og þess hátt- ar.“ - Þig hefur
ekki lang-
að í
auglýsingabransann?
„Nei. Ég gét ómögulega farið að dá-
sama einhverja svarta, óhoOa sykur-
leðju, þó ég drekki hana sjálfur. Mér
voru boðnar 250 þús. fyrir 10 sekúndur
af Beinni leið af ónafngreindu fyrirtæki,
en ég hefði svikið fólkið sem keypti plöt-
una hefði ég selt lagið. Maður getur ekki
annað en tapað þegar til lengri tima er
litið með þvi að taka þátt í einhverju
sem maður hefur ekki trú á.“
Það er aOtaf margt fram undan hjá
KK. í kvöld og annað kvöld verður hann
ásamt Guðmundi Péturs á Hótel ísa-
firði. Þeir félagar fóra saman um landið
í fyrra tO að kynna síðustu plötu KK,
Heimaland. „Við verðum með „sjó“ á
eftir dinnemum. SpOum og segjum sög-
ur - þetta er hálfgert uppistand hjá okk-
ur.“
Þeir tveir að viðbættri EOen Kristj-
áns koma fram á Úlfaldanum þann 19.
og KK-Kvintett leikur í Gjánni, Selfossi,
laugardaginn 21. mars. Daginn eftir
fer KK einn síns liðs í túr um Dan-
mörku og. Svíþjóð. Spilað verður á
hveiju kvöídi út mánuðinn.
- Ér alltaf verið að semja?
„Jamm. Ég kom mér upp litlu
stúdíói héma heima og svo er ég að
læra á klassískan gítar líka."
- Hvað skyldi vera á fóninum hjá
KK?
„Ég hef verið að hlusta á nýju Rad-
iohead-plötuna og er rosalega ánægð-
ur. Mér fmnst attitjútið minna á
Pink Floyd þegar þeir voru upp á sitt
besta. Svo er ég lika mjög ánægður
með Beck. Það er frábært hvemig hann
mixar saman gömlum og nýjum áhrif-
um. Þetta era vinnubrögð sem virka.
Maður verður að viða að sér efni og
vera meðvitaður um fortiðina eins og
góður rithöfundur. Þetta er ekki spum-
ing um að stela. Ekkert verður tO af
engu.“ -glh