Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Síða 12
26
lyndbönd
MYNDBAHDtI
mhm\
.4
187: ★★i ^
Með illu skal illt út reka
■--’mgy
fj,
jvjjpeS >
, *-
i > /
'j
Efnafræðikennarinn Trevor Garfield er að jafna sig eftir að hafa ver-
ið stunginn funmtán sinnum með hnífi af nemanda sem var ekki sáttur
við einkunnimar sínar. Hann flytur frá New York til Los Angeles og fær
starf við framhaldsskóla þar. Honum gengur ekki nógu vel að hafa
stjóm á sumum nemenda sinna, enda em þeir vandræðaunglingar af
verstu sort. Hann er afar ósáttur við framgang mála og grípur til örþrif-
aráða. Þessi mynd leikstjórans unga, Kevins Reynolds, er um margt
mjög athyglisverð. Hann gerir þama mikið af tilraunum með litaðar
linsur, lýsingu, fókus, sjónarhom og hreyfingu myndavélarinnar. Sum-
um þykir kannski nóg um, en honum tekst stundum með þessu að draga
fram þá stemningu sem hann vill koma áhorfandanum í. Innihaldið er
hins vegar í rýrara lagi og fátt nýtt sem þar kemur fram. Samuel L.
Jackson er afburðaleikari og leikur hinn yfirspennta kennara galla-
laust, með járngrímu á yfirborðinu en nær samt að gefa til kynna til-
finningamar sem krauma undir. Kevin Reynolds er leikstjóri sem vert
er að gefa gætur, en hann þarf að vanda efnisvalið betur.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Kevin Reynolds. Aðalhlutverk: Samuel L.
Jackson. Bandarísk, 1997. Lengd: 114 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Austin Powers: International Man of Mystery:
Fjöllyndur fomgripur
★★
Tískuljósmyndarinn Austin Powers er
einnig leynilegur útsendari hennar há-
i tignar. Hann var upp á sitt besta á sjöunda áratugn-
um og stundaði kvenfólk og skynvillulyf af miklum
móð. Árið 1967 lætur erkióvinur hans, Dr. Evil,
frysta sig og skjóta sér út í geim. Austin Powers er
þá einnig frystur, svo hægt sé að kalla hann aftur til
leiks þegar illmennið snýr aftur, sem gerist einmitt
þrjátíu ámm síðar. Tímamir hafa breyst en Austin
Powers ekki, og vopnaður blómasjarmanum tekur
hann höndum saman við dóttur fyrrum samstarfs-
konu sinnar og hefst handa við að klekkja á Dr. Evil. Húmorinn í þess-
ari mynd er aulahúmor af aulalegustu gerð, sem þýðir alls ekki að hann
sé ófyndinn. Það eru mörg atriði i myndinni sem má hlæja vel að og
mikið af skemmtilegum hugmyndum. Hins vegar dettur hún nokkuð
niður á milli fyndnu atriðanna og nær því ekki að mynda þétta kómed-
íu. Mike Myers er allt í öllu í tveimur stóram og hér um bil jafn aula-
legum hlutverkum, og meiripartin-inn af gríninu gengur út á stælana í
honum. Aukaleikarar era hins vegar litið spennandi.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Jay Roach. Aðalhlutverk: Mike Myers.
Bresk/bandarísk, 1997. Lengd: 88 mín. Öllum leyfð. -PJ
The Substance of Rre:
★★Á
Þessi fjölskyldusaga segir frá útgefandamnn Isaac
Geldhart og bömum hans þremur. Hún hefst á fjöl-
skyldukrísu sem kemur til vegna óbilgimi foðurins,
sem neitar að taka sönsum og gefa út sögu sem gæti
komist á metsölulista. í stað þess vill hann leggja allt
i útgáfu vísindalegs heimildarrits um helforina í fjórum bindum. Bömin
hans bera hann ofurliði og hann yfirgefúr fyrirtækið og stofnar eigið.
Meðan allt gengur gamla fjölskyldufyrirtækinu í haginn með nýju met-
sölubókinni fær gamli karlinn ekki einu sinni neinn til að taka bókina
sína í sölu. Þegar í ljós kemur að elliglöp eru farin að hrjá hann neyðast
börnin til að stíga skref til að hjálpa honum, þrátt fyrir missættið. Mynd-
in býður upp á mjög góða persónusköpun og frábæran leik. Ron Rifkin
fer á kostum í hlutverki hins óbilgjarna, ákveðna og tilfinningahefta fóð-
ur. Tony Goldwyn, Timothy Hutton og Sarah Jessica Parker þurfa að
halda meira aftur af sér, en sýna næman leik. Sérstaklega er gaman að
sjá þann stórgóða leikara, Timothy Hutton, í bitastæðu hlutverki. Hins
vegar er myndin fremur hæggeng og stærsti gallinn er sá að þegar allt
kemur til alls fæst lítil niðurstaða í hana. Hún eiginlega fuðrar bara upp
í lokin og skilur áhorfandann eftir ófullnægðan.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Daniel Sullivan. Aðalhlutverk: Ron Rifkin,
Tony Goldwin, TlmothY Hutton og Sarah Jessica Parker. Bandarísk,
1996. Lengd: 102 mín. Öllum leyfð. -PJ
Truth or Consequences:
Glæpabrautin
★★
Raymond Lembecke er smáglæpamaður með vott
af samvisku. Hann er ástfanginn af kærastunni
sinni og hyggst fremja með henni og tveimur félög-
um sínum rán sem hann telur að muni tryggja fram-
tíð þeirra. Ránið fer ekki alveg eins og til er ætlast
og þau leggja á flótta með ránsfenginn, sem er dóp,
sem þau hyggjast selja og flýja síðan til Mexíkó. Þau hafa bæði lögregl-
una og mafíuna á hælunum og til að tryggja sig taka þau par sem þau
hitta á fornum vegi sem gísla. Annar félaga Rays er kolgeggjaður og of-
beldishneigður hrotti, en hinn er fikniefnalögreglumaður á laun. Hver
höndin er upp á móti annarri og til að bæta gráu ofan á svart fer ann-
ar gíslanna að líta upp til glæpamannanna og dást að lífsstíl þeirra,
þannig að hann er á mörkum þess að vera einn af hópnum. Myndin er
ágæt sem slík, en það er lítið frumlegt í söguþræðinum. Nokkur
krassandi ofbeldisatriði krydda myndina, en mest púður er i nokkrum
góðum leikurum í smáhlutverkum. Martin Sheen er að vísu fremur lit-
laus, en meira varið i John C. McGinley og Rod Steiger. Vincent Gallo
er fremur ámátlegur í aðcdhlutverkinu, en leikstjórinn gefur sjálfum sér
lausan tauminn og veður i gegnum hlutverk siðblinda hrottans af miklu
afli. Ofbeldið og leikararnir gera annars litlausa mynd áhorfanlega.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Kiefer Sutherland. Aðalhlutverk: Vincent Gallo,
Mykelti Wiiliamson, Kiefer Sutherland, Kevin Pollak, Kim Dickens og Grace
Phillips. Bandarísk, 1997. Lengd: 101 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998 TIV
Myndbandalisti vikunnar
■Iss
mars
SÆTI J J FYRRI VIKA ; VIKUR ; A LISTAj J J TITILL J ÚTGEF. j j j j TEG.
1 í 1 i 2 i Conspiracy Theory j Warner-myndir j Spenna
2 i i Ný i 1 i J J Austin Powers J J j Háskólabíó j j j Gaman
3 J 3 i 6 j 2 1 i L i Romy And Micheles High... Sam-myndbönd Gaman
i 4 > i 2 j i j 3 ' j ) Bean j j J Háskólabíó 1 I ] Gaman
5 i 3 j , 1 j 3 j Speed 2 J J j Skífan j Spenna
6 i j 5 j J i 3 í nHHMHni Addicted To Love J i Wamer-myndir Gaman
7 j 4 J 4 j Breakdown j j J Sam-myndbönd ■ Spenna
8 i J Ný J: J i 1 i J J 187 J J J J j Skifan j j,- I Spenna
9 i 10 i 6 i Grosse Point Blank j Sam-myndbönd j Gaman
10 i j 8 i 7 i J ) Murder At 1600 i j j Warner-myndir i Spenna ) J
11 i 7 1 5 1 J 3 ) Double Team Skrfan ! Spenna
J 12 > j 9 J J J 6 | j J The Chamber i J j ClC-myndbönd j Spenna
13 i 13 j . 1 j 4 j Marvin's Room J J 1 Skífan j Drama
u; I 16 j J j 2 1 j L J . | Fever Pitch J J j Háskólabíó j J J Gaman
15 i , . | 11 J J j 4 J Night Falls On Manhattan J Sam-myndbönd 1 J J j Skrfan j j j Spenna
H i J 17 ! 2 1 j L J i j Truth or Consequences Spenna
17 i 12 i 7 í i 4 i j J Men In Black Skífan j Gaman
18 i i 15 Mchaley's Navy J J J ClC-myndbönd J j ) Gaman
19 i 14 i q J J 3 J Devil'sOwn j Sktfan j Spenna
20 | 20 J J í 2 i Swingers j j J Skífan 1 J J Gaman
Mel Gibson og Julia Roberts eru sterkt par sem erfitt er aö
keppa við og því situr Conspiracy Theory sem fastast í efsta
sæti listans. í annað sætið kemur hinn kostulegi njósnafarsi
Austin Powers með Mike Myers í aðalhlutverki. Myers, eins
og svo margir aðrir þekktir gamanleikarar, hóf feril sinn f
sjónvarpsmyndaflokknum Saturday Night Live. Hann hóf
kvikmyndaferil sinn meö stæl þegar hann lék í Wayne’s
World og hefur síðan verið f miklum metum, enda bráðsnið-
ugur leikari sem á auövelt með aö bregöa sér í alls konar
gervi. i áttunda sæti er einnig ný mynd, 187, sem leikstýrt er
af Kevin Reynolds en hann er fyrrum besti vinur Kevin
Costners. Sá vinskapur endaöi þegar Costner rak hann þeg-
ar verið var aö Ijúka viö Waterworld.
J ui/
Conspiracy
Theory
Mel Gibson og
Julia Roberts.
Jerry Fletcher,
leigubílstjóri í New
York, er með samsæri
á heilanum. í hans
augum er allt fyrir-
fram skipulagt og
hvert sem hann lítur
sér hann ekkert nema
djöfullegar ráðageröir.
Alice Sutton er sak-
sóknari sem Jerry leit-
ar til með samsæris-
kenningar sínar. Hún
hefur ekki mikla trú á
þvi sem hann segir en
hefur samt sínar grun-
semdir um að ekki sé
allt vitleysa. Þegar
kemur í ljós að ein af
kenningum Jerrys
reynist sönn fær hún
áhuga á máli hans og
saman leggja þau upp i
ferðalag til að leita að
sannleikanum.
Austin Pow-
ers...
Mike Myers og
Elizabeth Hurley.
Austin Powers er
einn af bestu njósnur-
um hennar hátignar.
Um árabil hefur hann
gegnt erflðustu og
flóknustu verkefnum
sem njósnurum eru
falin en samt aldrei
tekist að hafa hendur í
hári erkióvinarins
herra Ills. Dag einn eft-
ir að banatilræði viö
Austin fer úrskeiðis,
leggur Illur á flótta,
djúpfrystur í eldflaug
eitthvað út í geiminn.
Þar sem Austin er sá
eini sem getur ráðið
við Illan er hann
einnig frystur til aö
vera viðbúinn þegar
Illur kemur aftur. Sá
tími kemur 30 árum
síðar.
Romy amd
Michelles...
Mira Sorvino og
Lisa Kudrow.
Þegar Romy og
Michele fá boð um að
taka þátt í tíu ára út-
skriftarafmæli bekkj-
arins síns fara þær að
lita yfir farinn veg og
komast að því að það
er nákvæmlega ekkert
sem gerst hefur í lífi
þeirra. Þetta flnnst
þeim ómögulegt. Þær
ákveða því að plata
bekkinn og látast vera
ríkar og vel metnar
viðskiptakonur sem
hafi hagnast gríðar-
lega á uppfinningum
sinum. Allt virðist
ætla að ganga upp þeg-
ar Heather mætir á
svæðið en hún veit allt
um þær.
Bean
Rowan Atkinson
og Burt Reynolds.
Hinn auðugi
Newton ákveður aö
gefa Grierson-lista-
safninu í Kalifomiu 50
milljónir doilara til að
festa kaup á einu fræg-
asta málverki banda-
rískrar listasögu, Móð-
ur flautarans, og flytja
það aftur „heim". Þeir
bjóða stjóm Þjóðlista-
safnsins í Englandi aö
senda sinn besta mann
með verkinu án þess
að vita að Þjóðlista-
safnið hefur um nokk-
urt skeið reynt allt
sem hægt er til að
losna við einn starfs-
mann sinn, Bean. Þeir
sjá sér leik á borði og
senda herra Bean með
verkið og aö sjálfsögðu
setur hann allt á ann-
an endann í Kalifom-
íu.
Speed 2
Sandra Bullock
og Jason Patrick.
Annie Porter og
kærasti hennar hafa
ákveðið að gera sér
dagamun og njóta lífs-
ins um borð í einu
glæsilegasta skemmti-
ferðaskipi heims sem
siglir um Karíbahafið.
Skemmtiferðin breyt-
ist í andhverfu sína
þegar snælduvitlaus
tölvusnillingur tekur
öll völd um borð og
hyggst tortíma skip-
inu. Áður en varir er
Annie Porter komin í
svipaða stöðu og í rút-
unni forðum. Það er
nefnilega undir henni
og kærasta hennar
komið hvort ferðin fær
þann ógnarendi sem
brjálæðingurinn stefn-
ir að.