Alþýðublaðið - 05.11.1921, Síða 3
ALÞÝÐUBLAÐtÐ
3
Hvergi betur gert við skó, en á Tepótast, 9 B. Kr. Goðmundss.
Alþýðttsamband Islands.
Áukasambandsþjngið.
Fundur f G. T.-húsinu (uppi) œánudag 7. nóv 1921 kl 5 sfðdegis.
Ungverjamálin.
Khöfn, 5. nóv.
Frá Berlfn er símað, að ung-
verska stjórnin og flokksforingj-
arnir í ungverska þinginu hafi
samþykt lagafrumvarp, sem taki
réttinn tii ríkissetu frá Karli kon-
ungi og erfðaréttinn frá Habs-
borgarættinni í heiid sinni. Þjóðin
fær rétt til þess, að kjósa sér
konung, en lögin eru svo sniðug-
lega útbúin, að þau koma ekki f
veg fyrir, að Karl verði kosinn
konungur.
Reuters fréttastofa segir,aðsendi-
herraráðstefnan sé ánægð með lög-
in, og hefír skorað á »litiu Banda-
menn" að dreyfa hersöfnuði sinum.
Mælt er nú, að Bandamenn vilji
hafa Karl konung f haidi á eynni
Madeira í Atlantsh&íi.
€r iij á tnngiinn?
Stjörnufræðingar og aðrir nátt-
úrufræðingar hafa hingað til verið
nokkurnveginn á eitt sáttir um
að tunglið væri ,dauður“ hnöttur;
þar gæti ekki verið um neitt líí
að ræða.
Nú hefir amerískur stjörnufræð
ingur, eftir því sem „Times“ segir,
nýlega skrifað grein um það í
amerískt tfmarit, að hann þykist
eftir tveggja ára ramtsóknir vera
búinn að fá fuila sönnun fyrir
þvf að það sé lif á tunglinu,
Hann segist hafa séð þess fuil
merki að jurtagróður sé á þessum
nágrannahnetti vorum, og vaxi
mjög hratt, því hann vaxi upp
að nýju á hverjum degi, en fyrir-
ferst á hverri nóttu, þvf yfir 200
stiga frost er þar á nóttunni. En
svo eru nú itka dægrin lengri á
tunglinu, þó lítið sé, heldur en
hér á jörð, Dægrið er sem sé
jafnlangt og 14 dægur hér hjá
okkur.
Alþbl. vili ráða til þess að lesta
ekki mikinn trúnað á þetta. Það
er sem sé Ieiðinlegur galli á sög-
unni, að greinin, sem á að vera
nýútkomin, er sögð eftir stjörnu-
fræðing sem er dauður fyrir
tveimur árum.
Það er mælt, að ein yngismeyja
sem heyrði þessa frétt, að það
mundi vera lif á tunglinu, hafi
sett mjög hijóða yið, ea síðan
hafi hún spurt hvort lffið á tungl-
inu mundi vera nokkuð likt iifinu
hér á jörðinni, hvort tunglbúar
mundu til dæmis dansa „Fox
trot“, og hina nýju dansana, eins
og viðl
..v • /
Smávegis.
— Æðsti foringi Hjálpræðis
hersins, Booth „general* kom ný-
lega tii Genfar borgar í Sviss, og
var tekið þar með mestu virktum.
— íbúar í Sviss, er samkvæmt
manntali þvf er tekið var þar um
nýjár f fyrra 3.880.320.
— Franski rithöfundurinn, Pierre
Loti, sem ritað hefir meðal ann-
ars söguna „Isiands fiskarinn*,
er veikur. Hann er nú aldraður
maður.
— Sú fregn kemur frá borginni
Durban suanariega á austurströnd
Afríku, að þar hafi verið drepnir
í einu 30 hvaiir, en áður hafi
mest verið drepnir þar 27. Ekks
er þess getið hvaða tegundar hvai-
irnir hafi verið.
— Hveitiuppskera Svfþjóðar er
óvenjugóð í ár. Hún er 50%
meiri en vanalega, eða samtals
300.000 smálestir.
V@szlunin Gsund
Grundarstíg 12. S f m i 247.
selur í hokkra daga steinbeitsrikí-
ing afar ódýran, notið tækifærið
og byrgið ykkur upp til vetrar-
ins með harðæti.
Rafmagngleiðslni.
Straumnum hefir þegar verið
hleypt á götuæðarnar og menn
ættu ekki að draga lengur að
j láta okkur leggja rafleiðsiur um
hús sín. Víð skoðum húsin og
segjum um kostnað ókeypis. —
Komið f tfma, me𻫠hægt er
að afgreiða pantanir yðar. —
H.f. Hltl &
Laugaveg 20 B. Sími 830.
ELot. Yersl.
HTerflsg. <50 A
Riðbletta meðalið fræga komið
aftur, Tauklemmur, Filabeinshöf-
uðkambar, Hárgreiður, Fægilögur
og Smirsl, það bezts er hingað
kefir flust, Tréausur, Kolaausnr
og Bróderskæri. — Góð
vara, gott verð
Ailir segja að bezt sé að
verzla í Kirkjustræti 2, (kjallaran-
um í Hjálpræðishernum). Þar geta
menn fengið karlmannsstfgvél af
ýmsum stærðum og ýmsum gerð-
um. Gúmmfsjóstfgvéi og verka-
mannastígvéi á kr, 15,50. Spari-
stigvél og kvenmannsstfgvéi frá
kr. 10 og bar yfir og barnastfg-
vél telpustígvél og drengjastígvél.
Fítuáburður og brúnn og svartur
glansáburður. Skóreimar o. m. fl.
Skóviðgerðir með niðursettu verði.
Komið og reynið vlðskiftin!
Virðingárfylst
ö. TborstelmLSSon..
Ritstjóri og ábyrgðarmaSar:
ðlaínr Friðrikssos.
1 Frentsmiðjan Guteaberg,