Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Qupperneq 2
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 ie %vikmyndir KVIKMYHDAl ■ÍlfYI Bíohöllin - Fallen: Fallnir englar ★★★ Það hafa margir brandarar þegar verið sagðir um Denzel Washington og englamyndir svo ég ætla ekki að fara neitt út í það hér. Hins vegar er hann hinn góði engill þessarar ákaflega misjöfnu myndar þar sem leikur hans og sterkur persónuleiki hera Fallen uppi. John Hobbes (Washington) er kórrétt lögga sem hefur unnið sér heiðursverðlaun fyrir að finna krimma. Nýjasti fundurinn er sérlega hress fjöldamorðingi sem er á leiðinni í aftökuklefann en syngur samt „Time Is on My side“. Hressleiki morðingjans er ekki að ástæðulausu, því þrátt fyrir dauða hans halda morðin áfram og Hobbes er í klípu, sérstaklega þegar böndin taka að berast að honum sjálfum. í örvæntingarfullri leit aö lausn á málinu fylgir hann vísbendingum morðingjans og kemst að raun um að það er margt annað í heiminúm en heimspeki hans hafði gert ráð fyrir. S.s. fallnir englar sem sækjast eftir falli mannkyns. Þetta er ekta fyrirtíðaspennustöff en nú hriktir í stoðum kristinnar heims- byggöar þegar árþúsundamótin nálgast, Leikstjórinn Gregory Hoblit ætlar sér greinilega stóra hluti með þess- ari mynd og leggur mikla áherslu á frumlega myndatöku og önnur myndræn brögð til þess að undirstrika þá trufluðu heimsmynd sem hann dregur upp. Þar hefur hann David Fincher greinilega að fyrir- mynd en einnig minnti margt mig á myndavélaleiki Lars von Triers. Með þessu og frábærum Washington tekst honum vissulega að skapa ansi magnaða stemningu á köflum en vegna óþcirfa lengdar verður myndin nokkuð ójöfn og kemur þar einnig til óþarflega ójafnt handrit. Það sem ljær myndinni mestan styrk er vel uppbyggð togstreita milli hins ferkantaða og kunnuglega kvikmyndaheims rannsóknarlögreglu- manna og hins grófkomaða teygjanlega og yfímáttúrulega demónarým- is sem ferðast úr manneskju yfir í manneskju með snertingu. Leikstjóri: Gregory Hoblit. Handrit: Nicholas Kazan. Kvikmyndataka: Newton Thomas Sigel. Tónlist: Tan Dun. Aðalhlutverk: Denzel Washing- ton, John Goodman, Donald Sutherland, Embeth Davidtz. Úlfhildur Dagsdóttir Oft er reynt án árangurs að gera skemmtimynd sem um leið á að koma boðskap á ffamfæri og er Red Corner dæmi um mynd sem klofn- ar vegna þessa. Tilgangurinn hefur sjálfsagt verið að gera velþjappaða skemmtimynd en um leið að koma inn hjá fólki hve Kínverjar geta ver- ið varasamir og kínverskt réttarfar óréttlátt. Með minni áherslu á þá neikvæðu mynd sem áhorfandinn fær af Kína og í staðinn að láta Kín- verjana bara vera venjulega vonda kalla eins og svo oft áður hefði Red Comer getað orðið beinskeyttur og góður spennutryllir, margt i mynd- inni gefur til kynna að svo hefði getað orðið. Greinilegt er þó að Richard Gere, sem er mikill andstæðingur þess óréttlætis sem tíbeska þjóðin hef- ur orðið fyrir af völdum Kínverja, hefur haft hönd í bagga með gerð myndarinnar og sjálfsagt verið í heilagri krossferð gegn Kínverjum sem eins og áður segir kemur niður á gæðum myndarinnar sem skemmtun og um leið verður áróðurinn yfirborðskenndur. Richard Gere leikur slægan lögfræðing, Jack Moore, sem er að semja um kapalsjónvarpsefni við Kínverja. Þegar allt virðist klappað og klárt er lítið annað að gera en að fara út á lífið. Á líæturklúbb hittir hann fagra sýningarstúlku og saman fara þau upp á hótelherbergi hans þar sem nóttinni er eytt. Það er ekki nóg með að Moore vakni með mikla timburmenn heldur nánast dregur lögreglan hann út úr rúminu, sýnir honum illa farið lík hjásvæfu hans og ákærir hann fyrir nauðgun og morð. Þegar hann loks fær lögfræðing, unga og fallega stúlku, segir hún honum að það sé best fyrir hann að játa, annars verði hann dæmdur til dauða og í Kína er dauðarefsingu yfirleitt framfylgt innan einnar viku. Þegar Red Comer er skoðuð út frá því að vera sakamálamynd er sag- an ekki frumleg, maður í leit að næturgamni vaknar upp við hliðina á líki og er saklaus ákærður um morð er margnotað efni. Það er umhverf- ið sem aftur á móti sker sig úr og umhverfmu fylgir mikill fróðleikur sem oft tefur fyrir atburðarásinni. Richard Gere og Bai Ling fara vel meö hlutverk sín, sérstaklega er leikur Bai Ling eftirminnilegur. Leikstjóri: Jon Avnet. Handrit: Robert King. Kvikmyndataka: Karl Walter Lindenlaub. Tónlist: Thomas Newman. Aðalhlutverk: Richard Gere, Bai Ling og Bradley Whitford. Hilmar Karlsson Kringlubíó - Red Corner: í klónum á kínversku réttarkei.. Lustig (Robert De Niro) er ánægður að hitta Finn Bell (Ethan Hawke) aftur. Hlutverk Finns Bells á fúllorðins- aldri er í höndum Ethan Hawke, Gwy- neth Paltrow leikur Estelle, Robert De stjömudýrkun heldur farið eigin leiðir og hefúr auk þess gefið út eina skáld- sögu, The Hottest State, sem fékk góð- ar viðtökur. Hawke kom fyrst fram í kvikmynd fjórtán ára og stuttu síðar var honum boðið eitt aðalhlutverkið í Dead Poets Society. Næstu myndir hans voru Dad, þar sem hann lék á móti Jack Lemmon og Ted Danson, og Rich in Love á móti Albert Finney. Þá lék hann aðalhlutvekrið í White Fang sem gerð var eftir klass- ískri sögu Jack London. Hann hefur síðan leikið X; \ í nokkrum athyglis- verðum kvikmynd- um. Má þar nefna Alive og Reality Bites. Nýjasta kvikmynd hans er The Newton Boys og á þessu ári verður Snow Falls on Cedars fiumsýnd en þar leikur hann eitt aðal- hlut- verkið. The Great Expectations er lauslega byggð á klassískri skáldsögu eftir Charles Dickens. í fyrstu vildi leik- stjóri myndarinnar, Alfonso Cuarón, ekkert koma nálægt myndinni, sagði sem rétt var að David Lean hefði gert stórkostlega mynd eftir sögunni og hann sæi enga ástæðu til að keppa við hann. Þegar Cuarón hafði lesið hand- ritið breytti hann þó um skoðun enda er sögusviðið fært inn í nútímann og breytingar hafa verið gerðar á sög- unni. Myndin hefst í smáborg við strönd Flórída þar sem hinn átta ára gamli Finn Bell býr með systur sinni, Maggie, og Joe „frænda“. Snemma kemur upp listamannseðlið í Finn og hann unir sér best við að teikna mynd- ir á ströndinni. Breytingar verða á lífi hans þegar fangi, sem er á flótta, neyð- ir Finn til að hjálpa sér. Þessi atburð- ur hefúr mikil áhrif á hann og á eftir að fylgja honum í gegnum lífið. Hann kynnist einnig ellefu ára gamalli stúlku, Estelle, sem hefur mikinn þroska og innsæi. Finn verður strax ástfanginn af Estelle og sú ást verður aðeins sterkari með aldrinum. Þegar Estelle lætur sig hverfa án þess að kveðja einn eða neinn brotnar Finn andlega og hættir að mála. Óvænt fær hann boð frá óþekktum velgjörðar- manni um að koma til New York, þar finnur Finn Bell fyrir veröld lista og skemmtana sem á vel við hann og þar hittir hann einnig Estelle aftur. Niro leik- ur vel- gjörð- ar- mann Finns og Anne Bancroft leikur hálfbijál- aða for- ríka konu og frænku Estelle. Ethan Hawke hefur í nokkur ár verið einn athyglisverðasti ungi leikarinn. Hann hefur aldrei látið glepj- ast af Gúálfarnir í The Borrowers fylgjumst við með Clock-fjölskyld- merkingu. Foreldrarnir eru Pod og Homily og böm unni sem er agnarsmá Qölskylda í orðsins fyllstu þeirra, Arrietty og Peagreen. Þau verða að halda til- veru sinni leyndri því þau lifa á því að fá „lánað“ þar sem þau búa. Þjóð- flokkur þeirra gengur undir heit- inu Borrowers (Búálfarnir) og lögmálin eru að aldrei megi þau sjást og aldrei megi þau fá meira að láni en nauðsyn er. Fjörutíu og fimm ár eru síðan rithöfundurinn Mary Norton skrif- aði fyrstu bókina um The Borrowers og hafa bækur hennar um smá- fólkið notið gífur- Vinur smáfólksins, Pete, ræöir viö einn úr Clock-fjölskytdunni. legra vinsælda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.