Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 TIV
1« |im helgina
Gamansami harmleikurinn í Þjóðleikhúsinu:
Að varðveita
barnið í sjálf-
um sér
I gærkvöld veit leikritiö Gaman-
sami harmleikurinn frumsýndur á
litla sviði Þjóðleikhússins. Þar fer
hinn góðkunni leikari, Örn Árna-
son, með öll hlutverk sýningarinn-
ar í leikstjóm hins jafn góðkunna
leikara, Sigurðar Sigurjónssonar,
sem er að takast á við leikstjórnar-
hlutverkið í fyrsta skipti.
í viðtali við helgarblað DV sl.
laugardag segir Sigurður sjá nýjar
hliðar á leikritinu á hverri æfingu:
„Það er ekki létt að segja í einni
setningu hvað leikritið er. Það gæti
fjallað um ástina, að lifa lífinu lif-
andi, að varðveita bamið í sjálfum
sér, að láta drauma sína rætast og
svo framvegis og svo framvegis.
Það gæti líka fjallað um leikhús-
heiminn og er aö mörgu leyti skrif-
að sem slíkt.“
Leikritið er eftir Eve Bonifanti
og Yves Hunstad sem eru leikarar
sem hafa bæði fengist við að semja
leikrit og leikstýra. Gamansami
harmleikurinn er í raun um leik-
hús, þar sem hann lýsir á einkar
hnyttinn hátt glímu leikarans við
hlutverkin, áhorfendur og sjálfan
sig. Áhorfendum er boðið um stund
inn í heim leikhússins þar sem
galdur leiklistarinnar ræður ríkj-
um.
Örn Árnason fer á kostum er hann
leikur öll hlutverkin í Gamansama
harmleiknum sem frumsýndur var
í Þjóöleikhúsinu í gær.
DV-mynd Pjetur
Listvinafálag Hallgrímskirkju:
Oskastund heiðursmanns
Listvinafélag Hallgrímskirkju
gengst fyrir tónleikum á sunnudag-
inn kl. 17 undir yfirskriftinni Sópr-
an, selló og orgel. Þar munu koma
fram sópransöngkonan Arndís
Halla Ásgeirsdóttir, Inga Rós Ing-
ólfsdóttir sellóleikari og Hörður Ás-
Inga Rós Ingólfsdóttir,
Hörður Áskelsson og Arndís Halla
Ásgeirsdóttir ætla aö flytja
fjölbreytta dagskrá í Hallgríms-
kirkju á sunnudaginn.
DV-mynd E.ÓI
kelsson, organisti Hallgrímskirkju.
Tilefni tónleikanna er sérstætt en
verið er að heiðra þýska listunnand-
ann Peter-Paul Schautes, einn dygg-
asta stuðningsmann Listvinafélags-
ins, í tilefni af sjötugsafmæli hans.
DV sló á þráðinn til Harðar Áskels-
sonar og spurði nánar út í tilefnið.
„Já, þetta verður sannkölluð óska-
stund heiðursmanns en hann mætir
galvaskur til landsins til að hlýða á
tónleikana. Þegar hann kom í fyrsta
skipti til landsins árið 1991 varð
hann einn sá fyrsti til að festa kaup
á einni af stærstu pípu orgelsins. Þá
gekk hann í Listvinafélag Hall-
grímskirkju og hefur síðan komið
árlega hingað til lands til að fylgjast
með helstu viðburðum í tónlistarlífl
kirkjunnar. Það verður gaman að fá
að spila fyrir Schautes," sagði Hörð-
ur.
Á efnisskránni verða kirkjulög
sem samin eru af mörgum eftirlæt-
ishöfundum Schautes. Þar er að
finna verk eftir J.S. Bach, Jón Leifs,
Pál isólfsson og Áskel Jónsson, ein-
söngskantötu eftir G.B. Brevi og
verk fyrir selló og orgel eftir Saint-
Saens og Karl Höller.
Broadway:
ABBA-sýning
Á laugardagskvöldið verður
frumsýnd á skemmtistaðnum Broa-
dway ný söngdagskrá sem er byggð
á lögum hins feikivinsæla sænska
söngkvartetts, ABBA. Um þessar
mundir eru 15 ár síðan hljómsveitin
lagði upp laupana og þvi gráupplagt
að draga fram diskóbúninginn og
rifja upp gömlu smellina. Ekki
skemmir það heldur stemninguna
að frumsýningin
er haldin á
afmælis-
degi
Björns
Ulva-
eusar
sem
verður
53 ára
gamall á laugardaginn.
ABBA lifði góðu lifi á árunum
1973 til 1983 og var hátt á stjörnu-
himninum um tíu ára skeið. Allir
sem einhvem tímann hafa hlustað á
útvarp ættu að kannast við smelli
eins og Waterloo,
Voulez-Vous,
Thank
Music og Super Trouper.
Það eru sex ungir og efnilegir
söngvarar sem ætla að gera ABBA-
lögunum skil á sýningunni. Þetta
eru þau Birgitta Haukdal, Erna Þór-
arinsdóttir, Rúna G. Stefánsdóttir,
Hulda Gestsdóttir, Sigurður H. Ingi-
marsson og Kristján Gíslason. Stór-
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
mun sjá til þess að undir-
leikurinn verði alveg
eins og hann á að
vera.
Þaö eru sex ungir
og upprennandi
söngvarar sem munu
syngja öll gömlu góöu
■
ABBA-lögin á
Broadway
næstu
helgar.
DV-
mynd
Pjetur
Kvennakór Suöurnesja heldur sína árlegu vortónleika um þessar mundir.
Kvennakór Suðurnesja:
Vortónleikar
Kvennakór Suðurnesja er um
þessar mundir að fara af stað með
sína árlegu vortónleika. Þeir fyrstu
vom haldnir í Grindavíkurkirkju
20. apríl að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Kórinn verður síðan í Ytri-
Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn
22. apríl og mánudaginn 27. apríl.
Kvennakórinn verður síðan með
tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnar-
flrði miðvikudaginn 29. apríl. Tón-
leikarnir hefjast allir kl. 20.30.
Efniskrá Kvennakórsins verður
að vanda mjög fjölbreytt, úrval ís-
lenskra og erlendra tónverka, með
og án undirleiks. Söngstjóri er
Ágota Joó, einsöng og tvisöng
syngja Sigrún Ósk Ingadóttir og
Guðrún Egilsdóttir, á píanó leikur
Vilberg Viggósson, á bassa Þórólfur
Þórsson, á slagverk Baldur Jósefs-
son, og á harmóniku Ásgeir Gunn-
arsson. Kórinn mun síðan fara í
söngferðalag til Snæfellsness 8.-10.
maí og syngja í Stykkishólmi.
-ÆMK