Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Qupperneq 5
+
33 "V FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998
#n helgina «
** *
Gúmrní, plast og
handgerður pappír
Listasafn ASI:
I dag kl. 17 verða opnaðar
tvær sýningar í Listasafni
ASÍ, Freyjugötu 41. í Ásmund-
arsal sýnir Guðrún Gunnars-
dóttir þrívíðar teikningar,
unnar úr vír, gúmmíi og
plasti. Þetta er fjórtánda
einkasýning Guðrúnar og auk
þess hefur hún tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum
hérlendis og erlendis.
í Gryfjunni sýnir Camilla
Vasudeva tví- og þrívið verk,
unnin úr handgerðum pappir.
Hún er íslensk/indversk, býr
á Englandi en hefur dvalist
hér á landi undanfarna fimm
Camilla Vasudeva sýnir tví- og þrívíð
verk unnin úr handgerðum pappír.
Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi, heldur tónleika í Hjallakirkju á sunnu-
daginn kl. 16. Söngskráin er afar fjölbreytt og samanstendur af einsöngs-,
tvísöngs- og kórlögum. Söngstjóri er Sigurður Bragason.
mánuði. Camilla
útskrifaðist úr
textíldeild há-
skólans í Dundee
í Skotlandi 1997.
Sýningarnar
standa til 10. maí
og eru opnar alla
daga nema
mánudaga frá kl.
14 til 18.
Eitt verka Guðrúnar Gunnarsdóttur.
Hringferð jarð-
ar, birta og litur
í safnaðarheimilinu Hruna hafa systurnar Jóhanna og
Þórdís Sveinsdætur opnað sýningu á verkum sínum. Þar
sýnir Jóhanna grafíkmyndir, stálætingu og dúkristur.
Verk hennar fjalla um hringferð jarðar, birtu og lit.
Dúkristurnar eru unnar sérstaklega með náttúru íslands
i huga.
Þórdís sýnir textílverk, handþrykkta dúka og silki-
slæður. Hún notar mynstur af gömlum tréútskurði í verk
sín. Sýningin stendur til 1. júni.
Handþrykktir dúkar eru meðal þess sem Þórdís
Sveinsdóttir sýnir ásamt systur sinni, Jóhönnu, í safn-
aðarheimilinu Hruna.
\blkswagen
Lestu blaðið og taktuþátt íleiknum!
Vissir þú að meðal aðalvinninga í fjölmiðlaleik Dags er splunkuný
3ja dyra Volkswagen Polo bifreið! Þessi fallega, framhjóladrifna gæðasmíð
. er höfðinglega búin þaegindum og öryggisbúnaði.
Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
von a
um