Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Side 10
"5- 32 tónlist FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 ísland — plötur og diskar — i 1(4) Left of the Middlc Natalie Imbruglia t 2(1) Pottþétt 11 Ýmsir flytjondur | 3(3) This is Hardcore Pulp 4 4(2) All Saints All Saints f 5(11) Madonna Ray of Light 4 6(5) Pilgrim Eric Clapton | 7(6) Titanic Úr kvikmynd | 8(7) The Pillage Cappadonna 4 9(8) Drumsanddecksandrockandroll Propellerheads * 10 (17) Moon Safari Air t 11 (13) Let'sTalk AboutLove Celine Dion t 12 ( - ) Moment of Truth Gang Starr t 13 (Al) OK Computer Radiohead t 14 (Al) Together Alono Anouk 4 15 ( 9 ) Urban Hymns The Verve * 16 (12) Fat Of The Land The Prodigy 4 17(16) Yield Pearl Jam t 18 (Al) Very BestOf Sting & Police | 19 (19) King of the Beats Ýmsir flytjendur t 20 (Al) Með allt á hreinu Stuðmenn London -lög- I 1. (1 ) It's Like that Run DMC Vs Jason Nevins | 2. ( 2 ) Turn it up / Fire it up Busta Rhymes f 3. ( - ) Feel It The Temperer featuring Maya P... t 4. ( 3 ) My Heart will go on Celine Dion ) 5. ( 5 ) Truely Madly Deeply Savage Garden | 6. ( 6 ) Found a Cure Ultra Nate | 7. ( 9 ) How Do I Live LoAnn Rimes 4 8. ( 7 ) La Primavera Sash! t 9. (- ) Kung Fu 187 Lockdown | 10. ( 4 ) Kiss the Rain Billie Myers NewYork 1 1 t | | I t I I 4 1.(3) Too Close Next 2(1) All My Life K-Ci & Jojo 3. ( 2 ) Lot's Ride Montell Jordan 4. ( 4 ) Frozen Madonna 5. (14) You're Still the One Shania Twain 6. ( 6 ) Romeo & Juliet Sylk-E. Fyne 7. (11) Body Bumpin' Yippie-Yi-Yo Public Announcement 8. ( 5 ) Truely Madly Deeply Savage Garden 9. ( 7 ) Nice and Slow Usher 10. ( 8 ) Sex & Candy Marcy Underground Bretland -plöturog diskar — | 1. ( 1 ) Life Thru a Lens Robbic Williams | 2(2) Let's Talk About Love Celine Dio t 3. ( 4 ) Titanic Úr kvikmynd | 4. ( 3 ) The Best Of James t 5. ( -) In My Life George Martin / Ýmsir | 6. ( 6 ) Urban Hymns The Verve 4 7. ( 5 ) Ray of Light Madonna t 8. ( -) Essentials ■4. George Benson ) 9. ( 9 ) All Saints All Saints t 10. ( 8 ) Left of the Middle Natalie Imbruglia Bandaríkin — plötur og diskar — ) 1. ( 1 ) Titanic Úr kvikmynd ) 2. ( 2 ) Let's Talk About Love Celine Dion t 3. ( - ) Got the Hook-Up! Úr kvikmynd ) 4. ( 5 ) Backstreet Boys Jjtr Backstreet Boys t 5. ( 3 ) Savage Garden Savage Garden t 6. ( - ) Still standing Goodie Mob t 7. ( -) City of Angels Úr kvikmynd t 8. ( 9 ) Love Always K-ci & Jojo ) 9. ( 4 ) Ray of Light Madonna t10. (11) Left of the Middle Natalie Imbruglia Hróarskelduumfjöllun DV: ÓteljandiBhápanktar BolýsanlegBstemning Roskilde Festivall Lilde Þá er að tékka á böndunum sem boðið er upp á á Hróarskelduhátíð- inni í sumar eða broti af þeim. Há- tíðin fer fram síðustu helgina í júní og árlega eru ein 150 atriði sem koma fram á sjö sviðum. Útlínurnar Supergrass spiluöu á hátíöinni í fyrra. eru farnar að skýrast með böndin í ár. Stórglæsileg og vegleg blanda af rokk- og dansatriðum er í boði, þó með sterkari áherslu á rokkið, og að vanda slæðast með gömul brýni inn- an um ferskasta rokkkjarna dagsins í dag. Aldur er hugarástand Sérstaka athygli á hátíðinni í ár vekur „kombakk" tveggja hljóm- sveita, Kraftwerks og Black Sabbath. Þær verða að teljast frumkvöðlar hvor á sínu sviði: tölvupopps og dauðarokks. Kraftwerk er frá Dtisseldorf í Þýskalandi og ber öðrum fremur ábyrgð á flestri tölvu- og danstón- list dagsins í dag. Kraftwerksmenn eru orðnir miðaldra og hafa ekki komið fram á tónleikum eða plötu í áratug eða svo, ef undan er skil- in þátttaka á ensku Tribal Gather- ing í fyrra. Það ríkir mikil spenna með tónleika þeirra því bandið er dularfullt og ætti það eins til að senda vélmenni í staðinn fyrir sig ef þeir eru uppteknir við hjólreið- ar í Ölpunum. Black Sabbath með Ozzie Özbourne fremstan í flokki kemur nú saman í fyrsta skipti síðan þeir félagar tóku tvö lög á Live Aid ’85. Þetta eru forfeður flestra þungarokkbanda í dag, stofnuðu sveitina í Manchester í kringum 1970 og eru þekktir fyrir ofsafengna sviðsframkomu og gegndarlaust sukk. Þeir eru flestir komnir á snúruna í dag en ættu að geta kreist fram þunga og árásar- kennda rokktóna fyrir því. Iggy Pop, afi pönksins, eins og hann er stundum kallaður, mætir líka í Hróarskeldu í sumar í hárri rokkelli. Síðast var hann á hátíð- inni ’91 og hélt þá þvögunni í miklu stuði í tvo tíma, gargaði sitt klassíska rokk í spenntu flogi og sannaði að aldur er bara hugará- stand. Spennandi verður að sjá hvort enn séu töggur í þessum tálgaða meistara. Tjaldbúöir íslendinga í Hróarskeldu; ekkert slen, takk! Aldrað gítargoð þefað uppi Birgir Öm Thoroddsen, kenndur viö Curver, fór á Hróarskelduhátíð- ina 1995 og er enn með aðgöngu- miðaarmbandið um úlnliðinn. Stærstu böndin það sumarið voru R.E.M., Blur, Suede og Bob Dylan. „Dylan var flnn,“ segir Birgir, „en ég var aðallega að fylgjast með fimmtugum endurskoðendum sem vom að reykja hass.“ Uppáhaldsat- riði Birgis vora japanska hljóm- sveitin Boredoms; „Söngvarinn stökk fram í áhorfendaskarann og fótbraut sig.“ Og svo auðvitað brim- brettarokkarinn Dick Dale en sjálf- ur hefur Birgir reynt sig í „sörfinu” með hljómsveitinni Brim. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá hann. Ég bjóst ekki við að svona væri til: 58 ára karl í leðurjakka og í ótrúleg- um rokkham. Hann spændi upp gít- ameglur og henti út í sal. Ég var staðráðinn í að hitta hann eftir gigg- ið og fékk aðstoð við að stökkva yfir girðingu. Sem betur fer var hann í miðju viðtali baksviðs og ég gat blandað mér í blaðamannaskarann og tekið af honum nokkrar myndir með einnota myndavélinni minni. Svo fékk ég eiginhandaráritun og tók í höndina á honum en var of uppveðraður til að láta einhvern taka „buddy“-myndir af okkur. Síð- ar á hátíðinni missti ég af Chemical Brothers því ég fór til að fá mér pylsu. Lélegustu skipti ævinnar!" Sörfkóngurinn Dick Dale svarar fyrir sig. Beint af hátindinum Mörg böndin á Hróarskelduhá- tíðinni eru á hátindi frægðarinnar um þessar mundir. T.d. eru fáar sveitir vinsælli en The Verve og er jafnvel talað um sveitina sem arf- taka Oasis sem vinsælasta band Englands í dag. Sveitin verðm- á hátíðinni og spilar væntanlega efni af síðustu plötu sinni, Urban Hymns, einni bestu plötu síðasta árs. Svipað er ástatt fyrir hljóm- sveitinni Spiritualized, hún hefur aldrei verið vinsælli og plata hennar, „Ladies and Gentlemen, We’re Floating in Space,“ er eitt af gullkornum liðins árs. Aðrar stórar sveitir eru með glænýtt efni á takteinum og ný- eða óútkomnar plötur til að kynna. Hið frábæra tónleikaband Pulp verður í Hróarskeldu og gam- an verður að heyra hvernig lögin af meistaraverkinu, „This Is Hardcore”, pluma sig á tónleikum. Ætli Jarvis sé búinn að hanna ný spor til að fylgja þeim eftir? Gar- bage verður í Keldunni með lög af nýju plötunni, „Version 2.0“, og hinir sígildu gítarglamrarar í Son- ic Youth ættu ekki að svíkja aðdá- endur sína. Fjórtánda plata þeirra, „A Thousand Leaves", er væntan- leg innan skamms. Ekki er svo neitt vafamál að margir munu ger- ast Hróarskeldufarar til þess eins að sjá Beastie Boys sem komnir eru á stjá á ný eftir nokkurt hlé. Þessi einstaka rokk/rapphljóm- sveit verður með nýja plötu í sum- ar sem ætti ekki að klikka, önnur eins rakin snilld og hefur runnið úr smiðju sveitarinnar til þessa. Meira um Hróarskeldu eftir viku og ég minni á Hróarskeldu- leikinn sem er i gangi hér annars staðar í blaðinu. -glh Stáltá i hökuna Kristján Kristjánsson, Kiddi rokk, er starfsmaður hjá Japis og mikill Hróarskeldufari. Honum telst til að sjö sinnum hafi hann verið meðal gesta, fyrst árið 1989. Hann segir að hátíðin hafl vaxið mikið síðan hann mætti fyrst. „Það hefur fjölgað rosalega á há- tíðinni og hópurinn er orðinn mjög breiður. Fj’rst þegar maður var að fara voru gamlir hippar og rokkarar langijölmennastir en nú hefur fjölgað diskóliði og hópur- inn er orðinn mjög alþjóðlegur. Mér fannst einum of fjölmennt þegar ég fór síðast, ’96, en nú heyri ég að eigi að takmarka miðafjölda við 80.000 manns svo þjónustan verði sem best. Það lýsir hugsun- arhætti aðstandendanna vel og sýnir hve litlir peningahyggju- menn þeir era.“ Kiddi segist muna vel eftir mikilli rigningarhátíð árið ’93. „Þá rigndi alla fjóra dag- ana og maður var aldrei þurr - samt var stemningin frábær.” Einnig elti óheppnin Kidda ’96, þegar Skunk Anansie kom fram: „Það flaug maður af sviðinu og stáltáin á honum small á hökuna á mér. Ég varð kolringlaður og var næstum því borinn út en þaö var samt ótrúlega gaman!“ Kiddi segir líka að það hafi verið fyndið og eft- irminnilegt þegar Sex Pistols var grýtt af sviði eftir eitt lag þegar hún var með „kombakk” árið 1996. „Þó að hápunktarnir í tónlistinni séu ofsalega margir er það þó aOtaf stemningin á svæðinu sem er minnisstæðust; hún er ótrúleg og ólýsanleg," segir hann. „Þaö getur verið frábært að ráfa um svæðið og detta inn á eitthvað óvænt á minni sviðunum eða þá að fatta aOt í einu að maöur er að pissa við hliðina á uppáhaldsrokk- aranum sínum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.