Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 tónlist* Mezzanine: Massive Attack - setur í fimmta gírinn lagarnir, þeir Grant Marshall (Daddy G), Ro- bert del Naja (3D) og Andrew Wowles (Mus- hroom), draga fram úr pússi sínu. Bandið hef- ur spilað um víðan vöÚ á síðustu árum (m.a. hérlendis seint í fyrra á iila sóttum tónleik- um) og því ber nú meira á „lifandi filingi" í tónlistinni. Líkt og áður minnir tónlistin oft á hljóðrás í dularfullri biómynd og áheyrand- inn er tekinn með um ýmsa geðheima og sveiflur. „Það er meiri hreyfing í þessari plötu, hún minnir mig á ferðalag," segir 3D úr reykjarkófinu. „Það er hægt að hlusta á hana á margan hátt. Við vildum ná fram miklu rými og dýpt.“ Að vanda syngur reggae-goðsögnin Horace Andy með þeim á plötunni en þeir heppnu sem sáu hann á tónleikum Massive Attack á íslandi vita hvaða fjörefni hann er í tónlist sveitarinnar. Sveitin nýtur líka aðstoðar söngkonunnar Elizabeth Fraser úr Cocteau Twins í þrem lögum, þ. á m. á næsta smá- skífulagi, Teardrop, og ung söngkona, Sara Jay, syngur eitt lag. Samstarf við Radiohead Samvinna Massive Attack og Radiohead hefur staðið til síðan meðlimir sveitanna hittust á músíkhátíð í Dublin i fyrra. Fyrst stóð til að Massive endurhljóðblandaði Þriðja plata Massive Attack, Mezzanine, er komin út og miklar væntingar eru gerðar til hennar. Hún hefur þegar verið kölluð „OK Computer" þessa árs og er þá verið að bera hana saman við hina geysigóðu plötu Radiohead frá því í fyrra. Meðlimir Massive Attack eru frá Bristol í Englandi og eru eiginlegir guðfeður Bristolbylgjunnar svonefndu sem gat af sér tripp- hoppið, Tricky, Portishead og Roni Size. Bristol hafði þó löngu áður en Massive Attack kom fram verið deigla rokks og döbb-tónlistar með sveitum eins og The Pop Group og Mark and the Mafia. Þessi tónlist væri ekki til ef hassreykingar væru ekki til: grúfið er afslappað og hægt en hlaðið skynvillum og þungum bassalínum. Tvær fyrri plötur Massive Attack fengu almenning til að snúa höfði og píra augun í átt til Bristol og þeirra seiðandi tóna sem kokkaðir voru í hljóðverum borgarinnar. Nú er sá hljómur sem sveitin þróaði á fyrstu plötum sínum orðinn viðurkenndur og minni spámönnum, eins og Madonnu og Natalie Imbruglia, finnst ekki tiltökumál að læðast í að hirða afrakstur tilraunanna og útjaska í eigin poppi. Hvað gera hassbændur í Massive Attack þá? Nú, þeir koma auðvitað með enn þróaðri og þyngri plötu, áðumefnda Mezzanine. Dýpt og rými Platan er flókið safn áhrifa og strauma sem fé- Massive Attack: Tónlist sem minnir á hljóórás úr dularfullri bíómynd. Kylie Minogue: Tilraunir með stíla Ástralska leik- og söngkonan Kylie Minogue hefur aldrei slegið í gegn svo um muni á íslandi en á flestum öðrum Vesturlöndum er hún fræg og vinsæl og algengt and- lit í „Fólki i fréttum" heimsins, að koma út af matsölustað með ein- hvem glaumgosa upp á arminn eða snöktandi í jarðarfor Michaels Hut- chence (þau voru einu sinni kær- ustupar). Kylie kom fram á sjónar- sviðiö sem leikkona í áströlsku sáp- unni Nágrönnum fyrir tíu árum og sló samhliða í gegn í poppinu með nýrri útgáfu af eldgömlum smelli, Locomotion. Síðan fylgdi samning- ur við lagahöfundaþríeykiö Stock, Aitken og Waterman og smellimir rúlluðu stjórnlaust fram á tímabili: sautján lög rötuðu á topp 10 í Eng- landi og samtals seldust plöturnar í 14 milljón eintökum. Síðustu árin hefur Kylie verið fræg fyrir að vera fræg en átti skemmtilegan og óvæntan sprett með Nick Cave í lag- inu frábæra, „Where the Wild Roses Grow“. Kella er löngu hætt að vinna með Stock, Aitken og Waterman en nýtur þess í stað aðstoðar úr ýms- um áttum á nýrri plötu sem kom út fyrir nokkrum vikum. Vaxið frá vinsælda- poppinu Fyrst átti platan að heita „The Impossible Princess" og koma út í september i fyrra. Dauði Díönu prinsessu setti aldeilis strik í reikn- inginn og því var plötunni frestað og heitir nú eftir söngkonunni, „Kylie Minogue". Á plötunni reynir Kylie að vaxa frá vinsældapoppinu og leitar aöstoðar bæði úr rokk- og dansgeiranum. Kylie er illa við að verið sé að flokka sig og blæs á að hún sé að eltast við tískustrauma í tónlistinni. „Popptónlist er alltaf að breytast," segir hún, „og það sem áður var talið „indie" er nú orðið popp. Platan er útkoma innri hugs- ana, tilfmninga og reynslu sem ég hef orðið fyrir á síðustu tveim árum. Þetta eru tilraunir með texta og ýmsar tegundir af tónlist." James Dean Bradfield úr Manic Street Pr- eachers samdi tvö lög með Kylie á plötunni. Þau hittust heima hjá hon- um. „Ég lét hann hafa nokkra texta og hann fékk hugmynd, fór að slá á gítarinn og sagði mér að skilja text- ana eftir hjá sér. Nokkru síðar sendi hann mér spólu með hrárri upptöku af „I Don’t Need Anyone" og ég varð yfir mig hrifin. Það var svo frisk- andi að heyra tónlist sem var algjör- lega öðruvísi en það sem ég hafði verið að vinna að sjálf.“ í dansdeild- inni nýtur hún aðstoðar Brothers in Rhythm, Robs Dougan úr Clubbed to Death-genginu og Dave Ball úr The Grid. Lærði af Nick Cave Kylie hrósar samverkamönnum sínum. „Fólki kann kannski að finn- ast þessi samvinna einkennileg," segir hún, „en eftir að ég vann með Nick Cave opnuðust fyrir mér dyr og ég fer ekki af stað með neina for- dóma þegar ég prófa mig áfram í samvinnu." Það sem Kylie lærði helst af Nick Cave voru heilindi og einlægni í tónlistinni. „Hann er svo gegnheill í því sem hann gerir að ég gat ekki annað en orðið fyrir áhrif- um af því. Ég fékk aðstoð og ráð hjá honum þegar ég gerði þessa plötu og hann benti mér fyrst og fremst á að fylgja mínu eigin nefi.“ Að lokum lýsir Kylie nýju plöt- unni í einni setningu: „Með þessari plötu vildi ég gera poppaða dans- plötu sem er aðgengileg en samt með óslípuðum brúnum." -glh Aðgengileg en með óslípuðum brúnum: Kylie Minogue. „OK Computer" en ekki vannst tími til þess: „Radi- ohead hafði mikil áhrif á okkur með þessari plötu. Þegar hún kom út sögðust þeir félagar gjarnan vilja að við endurmixuðum plöt- una en það hefði tekið marga mánuði þvi við hefðum viljað vinna að þessu verkefni með 100% virðingu." Daddy G segir að sveitirnir ætli að f reyna að hittast og hanga saman í lok sumars og sjá til hvað gerist. „Thom á hús í Devon og við ætlum bara að djamma saman þar. Von- andi kemur eitthvað út úr því.“ Þar til að þvi kemur verður Massive Attack að fullu að fylgja Mezzanine eftir með tón- leikahaldi, viðtölum og öllu þvi sem bransinn krefst af poppurunum. -glh Djasstónleikar Á sunnudagskvöld spil- ar Kvartett Eyþórs Gunn- arssonar þekkt djasslög í Múlanum og hefst djass- inn klukkan 21. Stæner í dag kl. 17 spilar hljómsveitin Stæner, ný- bökuð sigursveit mús- íktilrauna, á síðdegistón- leikum Hins hússins sem fram fara á Geysi kakób- ar. Skítamórall Hljómsveitin Skíta- mórall spilar á heima- velli í kvöld, á skólaballi Fjölbrautaskóla Suður- lands. Á morgun heldur sveitin svo til Keflavíkur þar sem haldinn verður dansleikur fyrir 18 ára og eldri í Skothúsinu. Álafossföt Bezt Tríóið Slikk er ný hljómsveit sem skipuð er þremur sjóuðum tónlist- armönnum. Þeir ætla að troða upp á skemmti- staðnum Álafossföt Bezt í Mosfellsbæ föstudags- og laugardagskvöld. Buttercup Gleðigjafarnir í Butt- ercup munu skemmta þeim sem mæta á Rósen- berg í kvöld. Þeir halda síðan norður á morgun og halda sveitaball á Hót- el Mælifelli á Sauðár- króki. Sóldögg i Sjallanum Sóldögg er komin í sumarhaminn og heldur norður á morgun til að leika á Sjallanum á Akur- eyri. Kaffi Amsterdam Trúbadúrinn Siggi Bjöms mun heiðra gesti á Kaffi Amsterdam með nærveru sinni og söng um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.