Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 21 Daða var boð- inn samningur Þýska handknattleiksliðið Dor- magen hefur boðið Daða Hafþórs- syni, Fram, þriggja ára samning. Daði er þessa dagana að hugsa sinn gang og mun svara Dormagen Qjót- lega. -JKS Lottó: 6 7 19 30 32 B: 16 Enski boltinn: 1x2 x21 221 22x1 „Viljum gjarnan koma aftur" - Grænlendingar voru með á Andrésar andar leikunum DV, Akureyri: „Við erum hér 12 manna hópur, þar af níu krakkar og allir hafa skemmt sér stór- kostlega," sagði Ole Jens Lundblad, farar- stjóri grænlenska hóps- ins frá Ammassalik á Grænlandi, en keppend- ur þaðan og frá Nuuk settu skemmtilegan svip á Andrésar andar leik- ana. „Þetta hafa verið afskaplega skemmtileg- ir dagar hér á Akureyri, og við viljum mjög gjarnan koma aftur á næsta ári,“ sagði Ole Jens Lundblad. -gk Umfjöllun um Ole Jens Lundblad frá leikana er á bls. 23-28 Grænlandi. DV-mynd gk EM í borðtennis Tap i ollum leikjunum íslenska landsliðið í borðtennis reið ekki feitum hesti frá riðlakeppni Evrópumótsins í borðtennis sem fram fór um helgina. íslenska liðið tapaði fyrir liði Búlgara, 0-4, með sama mun fyrir Dönum en naumlega fyrir liði Eistlendinga. -SK Evrópumótaröðin í golfi: Sá danski í miklu stuði Danski kylfingurinn Thomas Björn vann góðan sigur á opna spænska meistara- mótinu í golfi sem lauk um helgina. Þetta var annar sigur Danans í mótaröðinni á þessu ári í jafn- mörgum mótum. Björn lék loka- Thomas Bjorn. hringinn á aðeins 66 höggum og samtals lék hann holum- ar 72 á 267 höggum, 21 höggi undir pari vaiiarins á 72 holum. Á hæla Bjöms, aðeins einu höggi á eftir Dananum, komu þeir Jose Maria Olazabal, Spáni, og Greg Chalmers frá Ástralíu. -SK Londonmaraþon: Lítill munur á 42 kilómetrum írska stúlkan Catherina McKiern- an vann mjög nauman sigur í hinu sterka Londonmara- þonhlaupi sem fram fór í stór- borginni i gær. McKieman kom í mark á 2:26,26 klst. Catherina McKiernan. önnur varð Liz McColgan frá Bretlandi á 2:26,54 klst., aðeins 28 sekúndum á eftir sig- urvegaranum. Aðeins 28 sekúndum á eftir McColgan og í þriðja sæti kom Joyce Chepchumba frá Kenýa á 2:27,22 klst. í karlaQokki sigraði Abel Anton frá Spáni á frábæram tíma. Hann hljóp kQómetrana 42 á 2:07,57 klst. Annar varð Abdelkhader el Mouciziz frá Marokkó á 2:08,07 klst., aðeins 9 sekúndum á eftir sigurvegaranum. Þriðji varð Antonio Pinto frá Portú- gal á 2:08,13 klst., aðeins 15 sekúnd- um á eftir Abel Anton. Þetta er eitt jafhasta Londonmaraþonhlaupið sem fram hefur farið. -SK Evrópumótið í fimleikum: Rúnar komst ekki í úrslit Rúnar Alexanderson komst ekki í úrslit á Evrópumeistaramótinu í fim- leikum sem fram fór um helgina. Rúnar stóð sig þó vel og var í raun óhepp- inn að komast ekki i úrslit í fjölþraut og í æQngum á bogahesti. í íjölþrautinni fékk Rúnar 9,025 fyrir æfingar á tvíslá, 9,175 fyrir æfingar á bogahesti og var lengi vel í öðm sæti í báðum greinum. Rúnar fékk 8,35 fyr- ir stökk, 8,15 fyrir gólfæfingar og 8,0 fyrir æQngar í hringjum. Rúnar gerði síð- an afdrifarík mistök á svifrá og fékk aðeins 6,825 fyr- ir æQngamar. Þar með fór draumurinn um þátt- töku í úrslitum í fjölþrautinni. Rúnar hafnaði í 34. sæti af 129 keppendum. Hrein og klár dóm- aramistök komu í veg fyrir að Rúnar keppti i úr- slitum á bogahesti. Auk Rúnars keppti Jón Trausti Sæmundsson í karlaQokki. Hann fékk 7,45 fyrir gólfæfingar, 6,9 fyr- ir bogahest, 7,375 fyrir æfíngar í hringjum, 8,25 í stökki og var það hans hæsta einkunn. Samtals hlaut Jón Trausti 45,875 í einkunn og hafnaði í 40. sæti af 129 keppendum. Þriðji íslenski keppand- inn á mótinu, en þeir koma allir frá Gerplu, var Viktor Kristmannsson, en hann er 14 ára og keppti í unglingaQokki. Viktor stóð sig vel, hlaut samtals 37,5 í einkunn, en komst ekki í úrslit. Mótið fór fram í St. Pétursborg í Rúss- landi og fór í alla staði vel fram. -AIÞ/-SK - Stjarnan íslandsmeistari í handbolta kvenna og vann öll þrjú mótin. Bls. 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.