Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 8
28
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
íþróttir
Stjarnan (13)24
Haukar (10) 23
0-1, 1-2, 6-2, 7-5, 10-6, 11-8, 13-9,
(13-10), 17-10, 18-11, 20-12, 21-15,
22-17, 23-19, 23-23, 24-23.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
Stephensen 12/2, Anna Blöndal 6,
Hrund Grétarsdóttir 3, Inga S. Björg-
vinsdóttir 1, Herdís Sigurbergsdóttir
1, Nína K. Bjömsdóttir 1.
Varin skot: Lijana Sadzon 21.
Mörk Hauka: Harpa Melsteð 9/2,
Judith Esztergal 7, Hulda Bjarnadótt-
ir 5, Auður Hermannsdóttir 1, Tinna
Björk Halldórsdóttir 1.
Varin skot: Alma Hallgrímsdóttir 4.
Utan vallar: Stjaman 8 mín., Haukar
2 min.
Ahorfendur: Rúmlega 1000 og húsið
troðfullt.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvald Erlingsson. Dæmdu vel.
Maður leiksins: Ragnheiður Steph-
ensen, Stjörnunni.
Herdís Sigurbergsdóttir:
„Þetta er ólýsanleg tilfinning.
Viö trúðum því innst inni að við
myndum hafa þennan leik,“
sagði Herdís Sigurbergsdóttir,
fyrirliði Stjömunnar.
„Ég var búin að segja fyrir
þennan leik að það skipti engu
máli hvernig leikurinn væri í
tölum á meðan annað liðið væri
einu marki yfir og það stóðst. Ég
átti alveg von á þvi að það yrði
spenna fram á síðustu sekúndur.
Núna er mér hins vegar alveg
sama. Við unnum og það er
æði,“ sagði Herdís.
Ragnheiður Stephensen:
„Átti að
koma heim"
„Þetta er það sem við höfum
verið að rembast við mörg und-
anfarin ár og það var alveg ör-
uggt að þessi titill átti að koma
heim,“ sagði Ragnheiður Steph-
ensen, sem átti frábæran leik
fyrir Stjörnuna.
„Þegar ég tók vítið hugsaði ég
aðeins að maður gæti ekki sleppt
þessu tækifæri. Hún var búin að
verja tvö frá mér í fyrri leiknum
og það þýddi bara að ég var búin
að klikka," sagði Ragnheiður.
Thelma fékk
höfuðhögg
Thelma Björk Árnadóttir,
homamaður Hauka, fékk þungt
höfuðhögg þegar hún lenti í sam-
stuði við Herdísi Sigurbergsdótt-
ur þegar tæpar 13 mínútur vora
eftir. Hún vankaðist og lá lengi á
vellinum meðan margir stumr-
uðu yfir henni.
Hún var síðan studd af velli og
lék ekki meira. Hún náði þó að
jafna sig og óskaði Stjörnustúlk-
um til hamingju með titilinn
ásamt félögum sínum.
Herdís fékk
aukahring
Stjörnustúlkur hlupu sigur-
hring með bikarinn að verð-
launaafhendingu lokinni.
Einn liðsmann vantaði þó í
hringinn, Herdísi Sigurbergs-
dóttur, sem var í sjónvarpsvið-
tali. Hún var ekki sátt við það og
krafðist þess að hlaupinn yrði
annar hringur sem hún gæti tek-
ið þátt í. Það var gert.
íþróttaandi
Þrátt fyrir tapið bám Hauka-
stúlkurnar sig vel og samfogn-
uðu Stjörnustúlkum brosandi.
Þær mega líka vel viö una enda
bjuggust margir við því að
Haukar yrðu auðveld bráð fyrir
Stjömuna. Ánægjulegt var að sjá
sannan iþróttaanda ríkja milli
þessara liða að leik loknum.
Stjaman rauf oddaleikjaheföina og tryggði sér þriðja titilinn í vetur
Loksins tókst Stjömunni að
vinna þrefaldan sigur í kvenna-
flokki. Liðið hefur verið í fremstu
röð til margra ára en hefur þó
aldrei tekist að vinna alla titlana
þrjá sem í boði em þó að oft hafi lið-
ið haft burði til þess. En nú tókst
það loksins og það fór vel á því að
þær tryggðu sér þennan sigur í
hreinum úrslitaleik um íslands-
meistaratitilinn i Ásgarði í Garða-
bæ þar sem þær hafa tapaði rimm-
unni um titilinn síðustu tvö árin.
Haukar höfðu frumkvæðið fram-
an af en eftir fimm mínútur kom
slæmur kafli hjá þeim þar sem liðið
skoraði ekki mark í rúmar átta mín-
útur. Það var fyrst og fremst frá-
bærri 5-1 vöm Stjömunnar að
þakka, sem og markverðinum
Sadzon sem sýndi nú sitt rétta and-
lit. Haukamir komust lítið áleiðis
gegn þessari vöm og réðu auk þess
ekkert við Ragnheiði Stephensen
sem raðaði hreinlega inn mörkun-
um í fyrri hálfleik. Hún gerði þá 8 af
13 mörkum Stjömunnar. Eftir miðj-
an fyrri háifleik hélt Stjaman 3-5
marka forskoti og var munurinn
þrjú mörk í leikhléi, 13-10.
Segja má að Stjaman hafi tryggt
sér sigurinn á fýrstu sjö mínútum
síðari hálfleiks en þá skoruðu þær
fjögur mörk í röð og náðu síðan átta
marka forskoti, 20-12. Þá gerðu
Stjörnustúlkur það sem íslenskt lið
gera cilltof oft þegar þau ná góðu for-
skoti. Þær slökuðu á og Haukum
tókst að brúa bilið smátt og smátt
með mikilli baráttu og undir lok
leiksins var spennan orðin gríðar-
leg. í raun getur Stjaman þakkað
markverði sínum að Haukarnir
komust hreinlega ekki yfir á þess-
um kafla. Hún varði hvað eftir ann-
að úr dauðafærum en félagar henn-
ar gátu ekki nýtt sér það sem
skyldi. Þær skomðu t.d. aðeins þrjú
mörk síðustu fimmtán mínútur
leiksins. Hulda Bjamadóttir jafnaði
leikinn, 23-23, úr hominu þegar 1:10
mínútur vom eftir en Stjaman hélt
haus og þegar 11 sekúndur vom til
leiksloka fiskaði Hmnd Grétarsdótt-
ir vítakast sem Ragnheiður Steph-
ensen skoraði úr af öryggi. Sá tími
sem eftir var var of naumur fyrir
Hauka að knýja fram framlengingu.
Stjömustúlkur eiga þennan titil
skilinn enda em þær búnar að vera
bestar í allan vetur. Uppskeran er
einnig eftir því, þrír titlar. Ragn-
heiður Stephensen fór hamförum í
leiknum og Haukastúlkumar réðu
ekkert við hana. Anna Blöndal átti
einnig frábæran leik og er að kom-
ast í hóp fremstu hornamanna
landsins í kvennahandboltanum. Þá
má ekki gleyma þætti Lijönu
Sadzon markvarðar sem bjargaði
málunum fyrir Stjömuna þegar þær
slökuðu fullmikið á klónni undir
lok leiksins. Haukastúlkur töpuðu
þessum leik í byrjun seinni hálf-
leiks með hræðilegum kafla. Þær
sýndu þó gríðarlega seiglu undir
lokin með því að vinna upp átta
marka forskot og hefðu kannski
með smáheppni getað knúið fram
framlengingu.
Harpa Melsteð, Hulda Bjamadótt-
ir og Judith Ezstergal vom bestar
hjá Haukum en það munaði miklu
að markverðir þeirra náðu sér eng-
an veginn á strik, vörðu aðeins
4 skot í leiknum. í leik sem þessum
getur slíkt gert gæfumuninn. -HI
„Geðveiki í 60 mínútur"
- sagöi Aðalsteinn Jónsson, þjálfari Stjörnunnar
„Það var mikil taugaspenna í lokin og svo munaði mikið um að missa
Dísu (Herdísi Sigurbergsdóttur) út af. Það var hungriö sem skóp
sigurinn hjá okkur, að vilja, ætla og geta. Þetta er geöveiki í 60 mínútur
og ef maður trúir á þetta þá gengur það. Haukar voru verðugir
andstæðingar og voru jafht og þétt að komast inn í þetta. Við ætluðum
okkur að fara alla leið og við gerðum það,“ sagði Aðalsteinn Jónsson,
þjálfari Stjömunnar, eftir leikinn. Uppskeran hjá hans stúlkum er góð,
þrír titlar, og er þetta í fyrsta sinn sem lið í kvennahandboltanum hirðir
alia þrjá titlana frá því þetta nýja keppnisform var tekið upp.
„Þær voru miklu betri“
- sagði Magnús Teitsson, þjálfari Hauka
„Þær voru bara miklu betri í dag og áttu sigurinn fyllilega skilinn," sagði
Magnús Teitsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. „Markvarslan hjá okkur var lítil
sem engin á meðan markvörður Stjörnunnar var að verja mjög vel. í þessum leik
skiptir ekki máli þó að við höfum unnið þær í oddaleik tvö síðustu ár. Það er árið
núna sem skiptir máli og í dag voru þær hreinlega betri.“
„Við byrjuðum mjög illa, spiluðum ekki eins vel og við getum, og þær voru
hreinlega betra liðið í dag. Við sýndum rosalegan karakter að ná þessu þó upp í
þetta og ég er mjög ánægður að við gátum það og að við gerðum þeim þetta ekki of
létt fyrir. Þær höfðu viijann og þurftu að hafa fyrir þessu og eigum við ekki bara
að segja að þær hafi átt þetta skilið í dag,“ sagði Harpa Melsteð, fyrirliöi Hauka.