Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Side 2
22
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
íþróttir
Formúla 1 - San Marinó-kappaksturinn um helgina:
- Coulthard var 4
David Coulthard á McLaren vann
fyrsta sigur sinn á árinu á Imola-
kappakstursbrautinni í San Marinó
í gær.
Coulthard kom aðeins 4,5 sek. á
undan Ferrari-ökumanninum
Michael Schumacher í mark en
bilið milli þeirra hafði lengst af
verið um tuttugu sekúndur.
Annar kom svo Eddie Irvine
einnig á Ferrari en hann háði harða
fyrsti
,5 sek. á undan Schumacher í markið
haráttu við Jacques Villeneuve um
síðasta verðlaunasætið alla
keppnina.
Finninn Mika Hakkinen, sem
heldur forystu í stigakeppni
ökumanna með 26 stig, féll úr
keppni eftir vélarbilun og hefur
þriggja stiga forskot á félaga sinn
David Coulthard sem hefur 23 stig
og þriðji er Schumacher með 20.
Helstu úrslit í kappakstrinum í gær
urðu þessi:
1. Coulthard ....McLaren-Mercedes
2. M. Schumacher...........Ferrari
3. Irvine .................Ferrari
4. Villeneuve . . Williams-Mecachrome
5. Frentzen .... Williams-Mecachrome
6. Alesi Sauber ..........Petronas
7. R. Schumacher............Jordan
8. Tuero Minardi..............Ford
9. Alesi ...................Arrows
-ÓSG
Barcelona
meistari
Spænska liðið Barcelona varð
um helgina Evrópumeistari í
handknattleik þriðja árið i röð.
Barcelona sigraði Badel Zagreb í
síðari leik liðanna í Zagreb,
22-28, en liðið hafði einnig unnið
fyrri leikinn i Barcelona, 28-18.
Glæsilegt tímabil er að baki
hjá Barcelona því liðið vann allt
sem í boði var, alla titla heima
fyrir og svo Evrópukeppnina.
Spænska liðið Caja Santander
varð Evrópumeistari bikarhafa.
eftir sigur á Dutenhofen. Nettel-
stedt sigraöi í borgakeppninni,
sigraöi Skövde 25-23 heima og
22-24 í Skövde. -JKS
Tryggvi skoraði
Þriðja umferðin í norsku
knattspymunni fór fram í gær.
Rosenborg gefur ekkert eftir og
hefur fullt hús stiga.
Tryggvi Guðmundsson skor-
aði sigurmark Tromsö sem sigr-
aði Viking. Ríkharður Daðason
geröi skömmu áður jöfnunar-
mark fyrir Viking. úrslit uröu
sem hér segir.
Bodö/Gllmt-Moss ...........2-2
Brann-Molde ...............2-2
Haugasund-Rosenborg.......(1-3
Sogndal-Strömsgodset.......2-2
Valur Fannar Glslason kom inn á hjá
Strömsgodset.
Stabæk-Kongsvinger.........2-1
Viking-Tromsö .............1-2
Ríkharður skoraði á 71. mín-
útu en Tryggvi skoraði sigur-
mark Tromsö á 76. mínútu.
Rosenborg er með 9 stig,
Molde 7 stig og síðan koma
Bodö/Glimt, Stabæk og Moss öll
með 6 stig. -JKS
Pétur meiddist
Pétur Marteinsson hjá
Hammarby meiddist um miðjan
fyrri hálfleikinn gegn Öster í
sænsku knattspymunni í gær.
Vamarleikur liðsins riðlaðist
nokkuð við brotthvarf hans. Pét-
ur Bjöm Jónsson var í byrjunar-
liði Hammarby en var tekinn út
af í hálfleik.
Stefán Þórðarson lék með Öst-
er allan leikinn og átti góðan
leik. Úrslit í öðrum leikjum urðu
Hacken-AIK, 1-1, og Halm-
stad-Frölunda, 1-0.
-JKS/EH
Tap gegn Gríkkjum
íslenska unglingalandsliðið í
knattspymu, skipað leikmönn-
um 18 ára og yngri, tapaði í gær
fyrsta leik sínum í úrslitakeppni
Evrópumótsins í Skotlandi.
Grikkir sigraðu 2-0 og í sama
riðli gerði Danir og Svíar jafn-
tefli, 1-1. íslendingar mæta Sví-
um á morgun.
Enric Masip, fyrirliði Barcelona, hampar Evróputitlinum í Zagreb.
Símamynd Reuter
Helgi Jónas og Anna
María best í körfu
Helgi Jónas Guðfinnsson frá
Grindavík og Anna María Sveins-
dóttir frá Keflavik voru á fostudags-
kvöld útnefnd leikmenn ársins í
efstu deildum karla og kvenna í
körfuknattleik á lokahófi KKÍ. Bald-
ur Ólafsson úr KR var kjörinn efni-
legasti leikmaður úrvalsdeildar
karla og Guðrún Arna Sigurðar-
dóttir úr ÍR efnilegust í 1. deild
kvenna.
í liö ársins í úrvalsdeild karla voru
valdir eftirtaldir leikmenn. (Hve oft þeir
hafa verið valdir er innan sviga.): Falur
Harðarson, Keflavík (4), Helgi Jónas Guð-
finnsson, Grindavík (2), Teitur Örlygs-
son, Njarðvík (9), Sigfús Gizurarson,
Haukum (2), og Friðrik Stefánsson KFÍ
(1). Teitur var valinn í liðið í níunda
skiptiö og bætti því metið sem hann og
Guömundur Bragason deildu áður.
í lið ársins í 1. deild kvenna voru vald-
ir eftirtaldir leikmenn. (Hve oft þær hafa
verið valdar er innan sviga): Erla Reyn-
isdóttir, Keflavík (2), Alda Leif Jónsdótt-
ir, ÍS (2), Guðbjörg Norðfjörð, KR (5),
Anna María Sveinsdóttir, Keílavik (9), og
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík (1).
Anna María var valin í niunda skipti
og bætti eigiö met. Hún setti einnig met
með þvi að vera valin besti leikmaður 1.
deildar kvenna í fjórða skiptið á ferlinum
en áöur var hún valin 1989, 1995 og 1996.
Jón Sigurðsson, KR, var valinn þjálfari
ársins i úrvalsdeild karla og Karl Jóns-
son, ÍR, 11. deild kvenna. Þau David Bev-
is úr KFÍ og Jennifer Boucek, Keflavik,
voru valin bestu erlendu leikmennimir.
í 1. deild karla var Birgir Mikaelsson,
Snæfelli, valinn bæði besti leikmaður og
besti þjálfari. Kristinn Óskarsson, Kefla-
vik, var valinn besti dómarinn og Jón H.
Eðvaldsson, Keflavík, sá efnilegasti.
-ÓÓJ
Helgi Jónas og Anna María, bestu leikmenn vetrarins, brostu sínu breiöasta.
Fram sigraði Fýlki örugglega
Fram sigraði Fylki á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöld,
3-1. Ámi Pétursson (2) og Baldur Bjarnason gerðu mörk Fram en Garðar
Kjartansson skoraöi mark Fylkis. Víkingur og Valur gerðu jafntefli, 1-1.
Marteinn Guðgeirsson skoraöi fyrir Víking en Sigurbjöm Hreiðarsson
skoraði mark Vals. í deildabikamum vann Leiftur lið Þórs, 1-0. -SK
David Couthard ók vel í San Marínó og uppskeran var eftir því. Hann vann
fyrsta sigur sinn á árinu og ekki kæmi á óvart þótt þeir yrðu fleiri á næstunni.
Símamynd Reuter
Jordan bjargvættur
Chicago gegn Nets
Chicago Bulls lenti í
vandræðum í fyrsta leiknum gegn
New Jersey í úrslitakeppninni í
NBA. Aö lokum hafði Chicago sig-
urinn í framlengingu og getur
þakkað Michael Jordan enn einn
sigurinn. Hann lék geysilega vel
og tryggði meisturunum sigurinn í
framlengingu. Eitt er vist að liðið
verður að leika betur en þetta ætli
það sér aö verja titilinn. Úrslit í
leikjum helgarinnar urðu þessi:
Austurdeild:
Miami-New York .... 94-79 (1-0)
Hardaway 34, Murdock 16 - Johnson 21,
Houston 17.
Chicago-New Jersey . . 96-93 (1-0)
Jordan 39, Pippen 24 - Gatling 24, Dou-
glas 16.
Indiana-Cleveland ... 92-86 (2-0)
Miller 18, Davis 17 - Kemp 27, Ilgauskas
25.
Charlotte-Atlanta .... 92-85 (2-0)
Mason 25, Rice 24 - Henderspn 22,
Smith 22.
Vesturdeild:
Seattle-Minnesota . . 108-83 (1-0)
Baker 25, Payton 19 - Garmett 18, Peel-
er 13.
LA Lakers-Portland 104-102 (1-0)
O’Neal 30, Bryant 15 - Rider 25, Wallace
18.
Phoenix-San Antonio 108-101 (1-1)
Mccloud 22, Mcdyess 21 - Robinson 23,
Johnson 20.
Utah-Houston........ 105-90 (1-1)
Malone 29, Stockton 17 - Olajuwon 16,
Drexler 14.-
-JKS
Norræna meistarakeppnin:
Redbergslid sigraði
en KA-menn í 5. sæti
Sænska liðið Redbergslid fagnaði
sigri á fyrstu norrænu meistara-
keppninni í handknattleik sem lauk
í Gautaborg í gær. Redbergslid lék
gegn norska liðinu Runar í úrslita-
leik keppninnar og fóru leikar
þannig að Redbergslid sigraði með
22 mörkum gegn 21. í hálfleik var
staðan 9-7 fyrir Svíana.
Það vora Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson sem dæmdu úr-
slitaleikinn og fórst það vel úr
hendi.
í leik um þriðja sætið sigraði
GOG landa sína í Virum með 30
mörkum gegn 23. KA lenti i fimmta
sæti eftir sigur á norska liðinu Vik-
ing, 27-25. KA-menn fengu að laun-
um 300 þúsund krónur. Valsmenn
biðu hins vegar lægri hlut fyrir
Drott um sjöunda sætið og varð því
hlutskipti þeirra að hafha í neðsta
sætinu. Valur fékk 150 þúsund
krónur fyrir það sæti. -JKS
Duranona skoraði sex mörk
Niederswursbach sigraði Flensburg i þýska handboltanum um
helgina, 25-27. Konráð Olavsson skoraði 2 mörk fyrir Niederswursbach.
Róbert Duranona átti góöan leik með liði sínu, Eisenach, sem tapaði á
heimavelli fyrir Kiel, 25-27. Duranona skoraði 6 mörk í leiknum. -SK