Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Side 10
>44 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 i&nlist ísland — plötur og diskar — Rykið dustað af gleymdri kvikmyndatónlist: ) 1(1) Left of the Middle Natalie Imbruglia t 2 ( - ) Mezzanine Massive Attack t 3(4) All Saints All Saints 4 4(2) Pottþótt 11 Ymsir flytjendur i 5(3) This is Hardcore Pulp | 6(6) Pilgrim Eric Clapton t 7(8) Tho Pillage Cappadonna 4 8(5) Madonna Ray of Light t 9 ( - ) A Thousand Leaves Sonic Youth t 10 (11) Let's Talk About Love Ccline Dion 4 11 ( 7 ) Titanic Ur kvikmynd 4 12 ( 9 ) Drumsanddecksandrockandroll Propellcrheads 4 13(10) Moon Safari Air t 14 (- ) Jackie Brown Úr kvikmynd | 15 (15) Urban Hymns The Verve | 16 (16) Fat Of The Land The Prodigy 4 17 (12) Moment of Truth Gang Starr 4 18 (13) OK Computer Radiohead t 19 ( - ) Walking Into Clarksdale Page & Plant t 20 (Al) Glinggló Björk & Tríó Guðmundar Ingólfs. London -lög- t 1. (-) AIIThatlNeed Boyzone | 2. ( 1 ) It's Like that Run DMC Vs Jason Nevins t 3. (- ) Sound Of Drums Kula Shaker | 4. ( 3 ) Feel It The Temperer featuring Maya P... f 5. ( - ) Road Rage Catatonia t 6. (- ) Last Thing On My Mind Steps 4 7. ( 5 ) Truely Madly Deeply Savage Gardon 4 8. ( 2 ) Turn it up / Fire it up Busta Rhymes t 9. ( - ) Dance Tho Night Away Tho Mavericks 4 10. ( 4 ) My Heart will go on Celine Dion > NewYork -lög- t 1. (1 ) Too Close Next t 2. ( 5 ) You're Still the One Shania Twain | 3. ( 3 ) Let's Ride Montell Jordan t 4. ( 2 ) All My Life K-Ci & Jojo 4 5. ( 4 ) Frozen Madonna t 6. ( 7 ) Body Bumpin' Yippie-Yi-Yo Public Announcement t 7. ( 8 ) Truely Madly Deeply Savage Garden t 8.(11) Everybody Backstrect Boys 4 9. ( 6 ) Romeo & Juliet Sylk-E. Fyne | 10. (10) Sex&Candy Marcy Undorground Bretland — plötur og diskar— t 1. ( -) Mezzanine Massive Attack 4 Z ( 1 ) Life Thru a Lens Robbie Williams t 3. ( -) Walking Into Clarksdale Page & Plant | 4. ( 4 ) The Best Of James t 5. (13) International Velvet Catatonia 4 6. ( 2 ) Let's Talk About Love Coline Dio | 7. ( 3 ) Titanic Úr kvikmynd 4 8. ( 6 ) Urban Hymns The Verve 4 9. ( 7 ) Ray of Light Madonna 4 10. ( 8 ) Essentials George Benson Bandaríkin — plötur og diskar — t 1. (1 ) Titanic Úr kvikmynd t 2. ( 2 ) Let's Talk About Love Celine Dion | 3. ( 7 ) City of Angels Úr kvikmynd t 4. ( 5 ) Savage Garden Savage Garden ^ | 5. ( 4 ) Backstreet Boys * Backstroot Boys 4 6. ( 3 ) Qotthe Hook-Úpl Ur kvikmynd t 7. ( 8 ) Love Always K-ci & Jojo t 8. ( 9 ) Ray of Light Madonna t 9. ( - ) Come On Over Shania Twain |10. (10) Left of the Middle L*, Natalie Imbruglia i Fornleií'aírædi semBsegirBsex! Við búum við endurunninn tón- listarveruleika í dag. Hjólið er fund- ið upp á nýtt á hverjum degi. Það sem var hallærislegt í gær er ógeös- lega kúl á morgun. Allt er að fá upp- reisn æru; engin tónlist síðustu þrjátíu ára er svo frámunalega hall- ærisleg að hún sé ekki gengin í hring og komin aftur sem nýupp- blásinn og ferskur draugur úr for- tíðinni. Fornleifafræðingar hjá þýska plötufyrirtækinu Crippled Dick Hot Wax eiga nóbelsverðlaun í poppi skilið fyrir frábæra fundvísi á forna en fríska kvikmyndamúsik. Tónlistin sem þeir hafa verið að kynna hafði hírst rykfallin og nið- urlægð á háalofti poppsins áratug- um saman og ekki verið heyranleg öðrum en sérvitrum plötusöfhurum. Allar þessar plötur eiga sammerkt að þeim fylgir einhver forvitnilegur gustur úr fortíðinni og það jafnast á við að vafra um ævintýralegan flóa- markað að hlusta á þær. Tékkum... Tónlist fyrir lesbíska vampíru Það sem ruddi brautina var diskur- inn „Vampyros Lesbos", sem geymir tónlist úr þremur myndum Spánverj- ans Jess FYanco. Sá er þekktur fyrir ofurmannleg afköst, hefur gert allt upp í 13 myndir á ári. Mest eru þetta einnig ofurmannlega lélegar myndir, en þó alltaf með mjög fyndnum „list- rænum metnaði" sem gerir þær at- hyglisverðar. Ofbeldi og klám er Spánverjanum hugleikið yrkisefni og er tónlistin á Vampyros disknum fengin úr þrem myndum sem hann geröi árið 1970; „Vampyros Lesbos", „She Kills in.Ectasy" og „The Devil Came from Akasawa". Þar lendir les- bísk blóðsuga í dularfullum málum, lufsast fáklædd og stjörf um miðalda- kastala og drepur og sefur hjá á víxl. Hin eggjandi lesbía er leikin af Soledad Miranda, sem ýmsir kompunördar vilja koma í guðatölu. Hún var aufúsugestur í myndum Francos en lést í bílslysi árið 1971, að- eins 27 ára. Höfundar tónlistar eru tveir þýskir heiðursmenn, Manfred Hubler og Siegfried Schwab. Þeir sjá um útsetningar en tónlistin er flutt af Vampires’ Sound Incorporation; sessí- onmönnum í ankannalegu ástandi. Ekki veit ég um önnur afrek þeirra Hublers og Schwab, eða hvort þeir voru lokaðir beint inn eftir þetta. Á þessum diski fara þeir hins vegar á al- gjörum kostum og skapa fáránlega flottar stemningar. Sýrulagðir sítarar keppa hér um athyglina við hvellar bakraddasöngkonur, eitthvað sem hljómar eins og stór gormur að skrölta í stálbala og píanó að detta niður stiga - og hér er ég bara að tala um eitt lag! Takturinn er þó alltaf grúfí og kúl og minnir um margt á sýru-fönk og djass. Vampyros Lesbos diskurinn hefur selst í nokkur hund- ruð eintökum á íslandi. Hann er líka margnotaður á kafíihúsum bæjarins og þegar maður heyrir snilldina skimar maður ósjálfrátt í kringum sig og gáir hvort Soledad Miranda sé nokkuð farin að dansa uppi á næsta borði. Þýskt klámpopp Annar fimm stjömu diskur frá eð- almerkinu þýska er „Schulmadchen Report", sem hefur að geyma tónlist úr nokkrum léttbláum þýskum klám- myndum frá því um 1970. Myndirnar vom með „vísindalegu ívafi“ til að kynna ungum Þjóðveijum gmndvall- aratriðin í kynfræðslu en vom auðvit- að ekkert annað en illa dulbúnir kyn- lífsfarsar sem féllu i svo góðan jarð- veg að um 7 milljón Þjóðveijar mættu á fyrstu myndina sem var frumsýnd árið 1968. Þessar myndir hafa orðið vinsælar aftur meðal ruslmyndaspek- inga enda fullar af léttrugluðum hú- mor og töfíhallærislegri popphippat- isku, en tónlistin er líka stór þáttur í þessari endurvakningu. Sá sem samdi við þessar ræmur heitir Gert Wilden. Hann er Tékki og lærði í Prag og hafði gert tónlist viö um 50 kvikmynd- ir af öllum gerðum áður en hann tók að sér klámverkefnið. Aðspurður hvort hann færi í ákveðnar stellingar þegar hann semdi fyrir myndimar svaraði hann því til að fyrst leikar- amir gætu þóst fyrir framan kvik- myndavélina ætti hann eins að geta samið þessa tónhst í öllum fötum. Tónlistin er vægast sagt glatt og geggj- að klámpopp og hefði ekki getað orðið til á öðrum tíma en í lok bitlaáranna. Gert segir að sig dreymi alltaf það sama áður en hann fer að taka upp - „að milljón grænir karlar séu að spila milljón vitlausar nótur í hljómsveitar- gryt]u“ - og tónlistarmaður sem á sér svona drauma getur ekki annað en gert frábæra tónlist! Og ítalskt pastapopp Viðtökumar við þessum tveim út- gáfum hleyptu miklu kappi í fornleifa- fræðingana hjá Crippled Dick Hot Wax. Þeir fóru nú að leita í skúma- skotum evrópskrar kvikmyndagerðar og fundu loks verðugt viðfangsefni í ítölskum B-myndum frá síöbítlaskeið- inu þar sem grín, spenna, hryllingur og erótík sullast saman í kekKjótta heild. Ekki dugði minna til en tveir di- skar til að koma þessari tónlist til skila, „Beat at Cinecitta volume 1 og 2“. Hér gutlar og sýður á pastapopp- inu og ljóst að áhrif meistara Ennio Morricone eru ekki langt undan. Merkilegir spámenn eiga hér fína spretti, Piero Piccioni og Nora Orl- andi þar afkastamestir. Tónlistin er gustmikil og sólrík, mikið um háal- varleg tilþrif en þó alltaf fjömgur taktur í fyrirrúmi og ljóst að ítalskar skvisur hafa dansað við þessa tónlist uppi á Fíatbílum fyrr á öldinni á með- an tyggjójórtrandi Rómverjar héngu svalir á götuhornum og stældu gangstera B-myndanna eða snemst í hringi á Vespum. Jerry Cotton bjargar heiminum Á meðan Dýrlingurinn bjargaði heiminum á íslandi sá FBI-njósnarinn Jerry Cotton um þá deild í Þýskalandi. Sá var hökustæltur og jakkafata- klæddur byssutöffari og leikinn af Ge- orge Nader. Ótal sjónvarps- og kvik- myndir vom gerðar um kappann á sjö- unda áratugnum og alltaf fylgdi sér- stök tónlist, samin af Þjóðverjanum Peter Thomas. Hann er algjör vinnu- hestur í bransanum, hefur samið mús- ík fyrir óteljandi kvikmyndir í öllum stílbrigðum og er enn að. Á tvöfóldum geisladiski, „100% Cotton", sem hverj- ir aðrir en Crippled Dick Hot Wax gáfu út nýlega, er tónlist hans úr Cotton-myndunum kynnt til sögunnar, en upprunalegu plötumar höfðu lengi verið ófáanlegar. Tónlistin var eftir- sótt af nostalgíuþjáðum Þjóðverjum og hér komast því margir í spikfeitan kvikmyndatónlistarpakka. Tónlistin er léttdjössuð og svingið heitt, þó alltaf einhver tilraunamennska og sniðugt stuð í gangi, enda Peter Thomas vin- sæll hjá þeim fjölmörgu sem aðhyllast slæpingspopp („easy listening") og kokkteildjass, t.d. vann hann nýlega músík með hljómsveitinni Combusti- ble Edison. Og segjum það þá gott í bili af þýskri rykdustun. Hvar spekingar út- gáfunnar bera niður næst er erfitt að spá um, en miðað við fyrri uppgröft megum við eiga von á góðu. -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.