Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 - "fc tónlist r K * 45 Hljómsveitin Croisztans: Drukkið in Evrópu Hljómsveitin Croisztans var formlega stofnuö 19. febrúar 1997 eftir að meðlimirnir hittust á bar- áttufundi í Kaupmannahöfn. Fundurinn var um eflingu menn- ingar Croisztan, sem hljómsveitin segir að sé riki í norðausturhluta Úkraníu. „Þar er mjög sérstakur kúltúr." Sextettinn skipa Siggi (sem syngur og „dúllast á drasli úr tösku" og söng áður með Texas Jesús), gítarhaldarinn Finnbogi, Obba bassaleikari og Palli áslátt- arleikari. Hin franska Gwenn leik- ur á harmóníku ættaða frá Brit- anníuskaganum og trommuleikar- inn er danskur og heitir Christian. Fljótlega eftir stofnfúndinn fór sveitin á tónleikaferðalag um Evr- ópu. Siggi og Finnbogi segja mér nánar frá því: „Við spiluöum víða. Eitt giggið var á hálfgerðu elli- heimili í Þýskalandi. Okkur var hent af sviðinu eftir fjögur lög. Stærstu tónleikarnir voru á Peps- isziget-hátíðinni í Búdapest, þar var um hálf milljón þegar best lét. Loks enduöum við á heilsuhæli í Frakklandi þar sem eðalhjón sáu um að Fita okkur eftir magurt sumar. Þegar við höfðum náð fyrri heilsu komum við til íslands." Hamingjusamt þjóðlagapönk Hér hefur sveitin starfað frá því síðasta haust. Spilað og tekið upp plötu. „Það er svo kúl að koma til íslands og taka upp, sbr. Blur,“ segja þeir. Platan heitir „Karta" („Viðbjóður" á cróíszku) geymir 7 lög, en er undir 14 mínútur að lengd. Hún er að koma út núna en er ekki hugsuð til sölu hér. „Við Fágæt heimild um hljómsveitina Croisztans að drekka kaffi. hendum kannski nokkrum eintök- um í Kidda í Hljómalind, en ætlum aðallega að nota hana til kynning- ar í næstu Evrópuferð.“ Sá hefst nú í maí, byrjar i Frakklandi og kemur til með að standa yfir í 3 mánuði, að meðaltali 2-3 uppá- komur í viku. „Við græddum fullt af kontöktum í fyrra. Síðast vor- um við úti í einn og hálfan mánuð en núna verða þetta þrír. Vonandi sex mánuðir að ári og svo endar þetta með því að við fáum ekkert jólafrí.“ Tónlistina vilja þeir kalla „ham- Kóngulóarbandið: Fíflagangur á Kóngulóarbandið kemur úr Menntaskólanum á Egilsstöðum. Fimm strákar af Austurlandi skipa bandið; Logi Helguson syngur og spil- ar á bassi, Ágúst Magnússon sér um gítarleik, Bjöm Ingi Vilhjálmsson öskrar og spilar líka á gítar, Sigurður M. Þorbergsson sér um trommuleik og nýjasti meðlimurinn er enn einn gítarleikari, Hallur Jónsson. Þeir segj- ast óhikað spila „allrahanda gleöi- rokk“ og það er ekki laust við að fyrsta plata sveitarinnar „Andlausir & barnalegir" beri nafn með rentu. Platan kom út rétt fyrir síðustu jól. Mér þótti við hæfi að slá á þráðinn, talaði við Loga en tvær aðrar Kóngulær gjömmuöu inn í á bakviö. Ég spurði þá fyrst út í rokk á Austur- landi. „Það er nú frekar dapurt," við- urkennir Logi. „Lebensraum er annaö band héma í Menntaskólanum, en það hefur verið dapurt yfir þeim. Svo er eitthvert dútl í gangi í barnaskólan- um og nokkrar gamlar kempur í hljómsveitinni Spesíunni. Ekki má svo gleyma Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar, það er eðalband og heitt hjá Gesti Einari." Eitthvað rámar mig í hljómsveit- irnar Niturbasarnir og Döðlurnar, sem báðar gáfu út diska, og spyr Loga út í þær sveitir. „Niturbasarnir vom hættir áöur en platan þeirra kom út, þeir gáfu hana bara út til minja, og Döðlumar voru aldrei annað en fyrir- bæri.“ Er Kóngulóarbandið hugsað sem fyrirbæri líka? „Ekki gefum við okkur nú út fyrir þaö lengur og emm að vinna að nýju efni núna sem verð- ur ekki eins andlaust og barnalegt. Við erum að þróast og stefnum á að verða alvöru hljómsveit." Logi segir að öll markaðssetning á plötunni haíi miðast við Austurland; „Það hafa allir tekiö plötunni vel, en hún er vinsælli meðai ungra krakka, yngra fólks en við.“ Bandið hefur spil- Kóngulóarbandið: belti eru fátfö á Austurlandi. að á grunnskólaböllum, „fyrir litlu krakkana sem kunna lögin og syngja með. Það er miklu skemmtilegra að spila fyrir krakka sem em „hæ on læf‘, en að spila fyrir blindfulla og freka unglinga." Stefnt á landsfrægð Strákamir segja að bandið hafi byijað sem fiflagangur, en „á meðan það er gaman að vera til og spila tón- list höldum við áfram“. Þeir segja að það hafi verið dýrt spaug að gefa plöt- una út og því er verið að æfa upp ball- prógramm til að reyna að fá upp í skuldimar í sumar. Með nýju efni sem nú er verið að semja vonast Kóngulæmar svo til að „taka stóm Reykjavík á komandi vetri“. Á ekkert að ota diskinum hérna fyrir sunnan? „Nei nei. Hann er hvergi til enda langar engan í hann. Hann er hugsaður sem vandfundinn safngripur eftir að næsta plata kemur út og við verðum landsfrægir." Er eitthvað verið að tala við útgef- endur? „Já, eitthvað smá. Sá síðasti sem við töluðum við var svo leiðinleg- ur að við nennum ekki að tala við hann aftur.“ Hvaða tónlist hlustiði annars á? „Núna erum við að hlusta á Hall spila á xýlófón, en við hlustum t.d. á demó með sjálfum okkur og mikið á gruggrokk - sérstaklega Chili Pepp- ers.“ Hvað emð þið að dunda ykkur þama fyrir austan þegar þið emð ekki að spila? „Ja, það er nú spurning. Ég var spurður að þessu sama af stelp- um úr Reykjavík á dögunum. Þegar ég spurði þær á móti hvað fólk gæti gert í Reykjavík stömuðu þær út úr sér að þar gæti fólk farið í bíó og á bari. Ég held að félagslíf úti á landi, á minni stöðum - sérstaklega þar sem er heimavist - sé miklu skemmtilegra en í sollinum í Reykjavík." -glh ingjusamt þjóðlagapönk" og leggja mikla áherslu á það hversu drykkjuhvetjandi hún sé. „Besta hól sem við höfum fengið var að maður sem ætlaði ekkert að detta iða það kvöld sá okkur á sviði og fór heint á barinn." Áhrifin koma úr ýmsum áttum, m.a. frá Austur- Evrópu, úr kántrítónlist og úr keltneskum þjóðlögum. „Við spil- um allt sem okkur dettur í hug,“ segja þeir, „og það er alltaf mikið stuð og læti i okkur.“ Textarnir eru auðvitað sungnir á cróíszku og fjalla aðallega um drykkju og frels- isbaráttu. „Þau lög sem ekki fjalla um það hvað er gott að vera fullur, fjalla um það hvernig á að ná sér í meiri bjór.“ Burtfarartónleikar Þegar út er komið verður keypt- ur nógu stór bíll og „einhver edrú fenginn til að keyra“. Það þarf auðvitað ekki að spyrja að því hvernig hljómsveitin eyðir timan- um á tónleikaferðalögum. „Við höfum fengið á okkur dagdrykkju- mannastimpil, en við gerum auð- vitað margt annað. Dundum okkur t.d. í því á hverjum morgni að fara í Derrick-keppni (hver er með mestu baugana) eða parkinson- keppni (skýrir sig sjálft).“ Hljóm- sveitin þarf líka að föndra á ferða- laginu því hvert umslag af nýju' geislaplötunni er handlitað. Plöt- una gefur sveitin út sjálf en franskt útgáfufyrirtæki er að skoða málið; „Best að segja sem minnst um það,“ segja félagarnir. Síðasta tækifæri fyrir íslend- inga í bili að sjá þennan hressa hóp er á Rósenberg á morgun, 1. maí, klukkan 23 stundvíslega. Þar ætla þau að spila „allt heila gillið" og segja að franskir fjöllistamenn verði einnig á staðnum. „Þetta verða burtfarartónleikar og við leggjum allt undir. Við byrjum snemma svo við ættum öll að verða uppistandandi." „Það er frá- bært að vera tónlistarmaður,“ segja þeir Siggi og Finnbogi að lok- um. „Þetta er eina djobbið þar sem maður kemst upp með að vera full- ur í vinnunni!" - glh áS Jn. Sir Oliver í kvöld mun trúbadúrinn Ingvar Valgeirsson skemmta gestum veitinga- staðarins Sir Oliver. Á morgun fer blúshljóm- sveitin Barflugan harnfor- um á staðnum og á laug- ardag mætir svo dúettinn Trípóli og heldur gestum við efnið. í hvítum sokkum Dúettinn í hvitum sokk- um leikur á veitinga- staðnum Lundanum í Vestmannaeyjum fimmtu- dags-, fostudags- og laug- ardagskvöld. Dúettinn skipa fyrrverandi Eyja- menn. Skítamórall Annað kvöld heldur hljóm- sveitin Skítamórall uppi fjörinu í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn. Dag- inn eftir leggja þeir land undir fót og verða mættir í Höfðann á Vestmannaeyj- um kvöldið eftir. Djass í Múlanum Ómar Einarsson gítarleik- ari, Ami Scheving ví- brafónleikari, Tómas R. Einarsson bassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari munu djassa í Múlanum á 2. hæð á Sólon íslandusi á sunnudagskvöldið kl. 21. Viö Pollinn Hljómsveitin SÍN leikur á veitingahúsinu Við Poll- inn á Akureyri alla helg- ina. Höröur G. á flakki Hörður G. Ólafsson mun skemmta á Gistiheimilinu Ólafsvík í kvöld og á veit- ingahúsinu Búðarkletti, Borgamesi, annað kvöld. Kaffi Reykjavík Hljómsveitin góðkunna, Hálft í hvora, mun leika á Kaffi Reykjavík i kvöld og annað kvöld. Á laugar- dagskvöldið mætir hins vegar hljómsveitin Sangría og heldur uppi fjörinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.