Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Síða 12
46 tyndbönd MYNDBAHJfí Ástin blómstrar ★-* Emily Hope er móðurlaus auðmannsdóttir sem á erfitt með að fá föður sinn til að veita sér athygli. Nýjasta ráðabruggið hennar er að setja á svið mann- rán og láta föður sinn borga milljón dollara fyrir sig, en þar sem hún er búin að handjárna sig og kefla og loka sig inni í skottinu á bílnum sínum er bílnum stolið. Kynni hennar og bílþjófsins verða eldfim í meira lagi, ástin blómstrar, og Emily vill ekki lengur fara heim til pabba. Hér er lagt af stað með heljarmikla mynd og meiningin er greini- lega að blanda saman drama, gríni, spennu og rómans. Gallinn er að það er í raun fremur lítið af hverju og myndin verður að fremur stefnulausu þunnildi. Alicia Silverstone reynir að búa til svipaða persónu og í Clu- eless sem virkar ágætlega í kómísku atriðunum en vandræðalega ann- ars. Christopher Walken veldur einnig vonbrigðum og virðist illa staðn- aður sem leikari. Benicio Del Toro er hins vegar að kljást við skemmti- lega persónu bílþjófsins og ræður vel við verkefnið. Það er þó varla að hann nái að hífa þessa mynd upp í meðalmennskuna. Excess Baggage. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Marco Brambilla. Aöalhlut- verk: Alicia Silverstone og Benicio Del Toro. Bandarísk, 1997. Lengd: 97 mín. Öllum leyfð. -PJ Grimmur heimur ★★★’Í 4 Karl Childers er lítillega þroskaheftur vistmaður á geðveikrahæli þar sem hann hefur verið síðan hann drap móður sína og elskhuga hennar. Yfírvöld telja að honum sé batnað og sleppa honum út. Hann fer aftur í heimabæ sinn og vingast þar við ungan dreng sem hefur átt erfitt síðan faðir hans framdi sjálfs- morð. Kærasti móður hans er viðskotaillur hrotti og drykkjumaður og Karl sér hann eitra líf drengsins og verður að taka ákvörðun um hvort hann á að taka málin í sínar hendur. Billy Bob Thornton skrifar handritið, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið og ferst allt saman vel úr hendi. Stór hluti af gæðum myndarinnar felst í stór- leik hans og greinilegt er að hann er einn af þeim leikurum sem geta leikið nánast hvernig hlutverk sem er sannfærandi. Aðrir leikarar eru yfirleitt einnig mjög trúverðugir og sérstaklega var gaman að fylgjast með Lucas Black sem leikur strákinn en hann virðist mjög þroskaður sem leikari. Sagan er mjög dramatísk og þvi er það lofsvert hversu vel hefur tekist að gera myndina trúverðuga en ég er þó ekki viss um að ég geti sætt mig við boðskapinn í lokin. Sling Blade. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri og aðalhlutverk: Billy Bob Thornton. Bandarísk, 1995. Lengd: 129 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ ★★★'Í Hjálp af himnum ofan Við fyrstu sýn virðist hér um nánast sömu mynd að ræða og Excess Baggage hér að ofan. Lágstéttar- maður rænir auðmannsdóttur og þau verða ástfang- in en vondur faðir hennar sendir misindismenn á eftir þeim. Þetta er miklu betri mynd sem setur sér ákveðin markmið og nær þeim. Áherslan er á grínið og þótt rómans og hasar séu þarna líka er alltaf ver- ið að reyna að skemmta áhorfandanum. Holly Hunt- er og Delroy Lindo leika tvo engla sem eiga að sjá til þess að tilvonandi elskendur nái saman og nota oft til þess heldur óvönduð meðul. Þessir englar eru ekki það sem fólk myndi kannski búast við og Holly Hunter virðist meira að segja túlka sinn engil á létt- pervertískan hátt. Vel skrifaðar og skemmtilegar per- sónur, hnyttin samtöl og oft sprenghlægilegar aðstæður gera myndina að fyrirtaksskemmtun þótt mér hafi reyndar þótt skotið yflr markið í lokin. Cameron Diaz er skemmtilega frökk en má þó lúffa fyrir enda- lausri góðmennsku Ewans McGregors sem er auðvitað einhver vonlaus- asti mannræningi sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Þetta er þriðja mynd þremenningaklíkunnar sem gerði Shallow Grave og Trainspotting og þeir hafa ekki enn klikkað. Ég bíð spenntur eftir næstu mynd. A Life Less Ordinary. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Danny Boyle. Aðalhlut- verk: Ewan McGregor og Cameron Diaz. Bandarísk, 1997. Lengd: 108 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Fyrstu kynni af ástinni ★★ Myndin gerist árið 1943 í Svíþjóð og segir fyrstu kynnum hins 15 ára gamla Stigs af ástinni og kynlíf- inu. Hann laðast að kennaranum sínum, hinni fal- legu Violu, sem er rúmlega tveimur áratugum eldri en hann. Hún á drykkfelldan aumingja fyrir eigin- mann og leitar huggunar í Stig. Þau hefja leynilegt ástarsamband en smám saman verður báðum ljóst að það getur ekki gengið endalaust. Stig vorkennir eig- inmanni Violu og vingast við hann. Til að flækja málin verður nágrannastúlka Stigs, skólafélagi hans og jafnaldri, ástfangin af honum. Myndin fer svolítið klunnalega af stað og nær ekki trúverðugleika fyrr en hún fer að ein- beita sér að tiiflnningalífi Stigs og samskiptum hans við áðurnefndar persónur og fjölskyldu sína. Þessi þáttur myndarinnar sýnir hvemig Stig þroskast hratt við þessar óvenjulegu aðstæður og býður upp á sterka og athyglisverða dramatík. Johan Widerberg sýnir mjög næman leik í aðalhlutverkinu og flestir leikaramir eru góðir. í lokin lendir myndin í tilgerðarlegu táknsæi fyrir bókmenntafræðinga og rýrir það gildi hennar mikið og skilur eftir áhorfanda eins og mig óánægðan með úrlausn söguþráðarins. Elskunnar logandi bál (Lust och fágring storl. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Bo Widerberg. Aðalhlutverk: Johan Widerberg og Marika Lag- ercrantz. Sænsk, 1995. Lengd: 128 mín. Öllum leyfð. -PJ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 Myndbandalisti vikunnar 7 jT" 21-27. apríl 1 - : 1 J í ) 3 J J Face/Off • Sam-myndbönd ; Spenna 2 i i 2 I ) 3 J J J My Best Friends Wedding i Sktfan J J j Gaman j 3 J a ) 4 J J 2 j ) Peacemaker, The | ClC-myndbönd ; Spenna j 4 ) j 3 ) J )..' 2 i j i G.l. Jane ) J Myndform J I Spenna i 5 i 5 ) ) 4 J J Nothing To Lose í Sam-myndbönd i Gaman 6 i 6 ) ) J 7 i . J J Full Monty, The ) Skífan J ; Gaman 7 ) 8 J J 3 ) Shooting Fish ) Stjömubíó ) Gaman ) j Spenna ) 8 .i Ný J ) 1 J J ' J’ Fire Down Below \ Wamer-myndir J 9 i 7 J J J J 4 J J Money Talks 1 Myndform ; Gaman 10 í 9 6 ) J J Air Force One ) ) i Sam-myndbönd . Spenna ) ) 11 i Ný J J 1 ) J Excess Baggage Skrfan J Gaman j 12 J j 10 ) J J 5 ) ) i Contact J J Wamer-myndir J , ■ | Spenna 13 i 11 J ) 5 J J Volcano j Skrfan i j Spenna »i 12 ) ) ) 6 ) ) ) Berverly Hills Ninja J Skffan J Gaman i ) ■'-A? 15 i 14 J J 8 J Austin Powers J Háskólabíó ) Gaman ) j Spenna j 16 I 13 J J J J 9 ) ) ) Conspiracy Theory i Wamer-myndir 17 i 18 ) 4 J 1 Eddie J Háskólabíó J Gaman 18 i ) 16 J ) iös 6 ). ) J Most Wanted j ) Myndform ) J J Spenna J 19 i Ný J J 1 ) ) Sling Blade J Skrfan ; Spenna 20 ; 15 ) ) J 3 ) ) ■ J Breaking The Waves J j Háskélabíó r 1 Drama J Kvikmyndin Face/off meö John Travolta og Nicolas Cage í aöalhlutverkum er enn í 1. sæti. Þaö sýnir aö áhorfend- ur kunna aö meta leikarann sem sló í gegn í Grease á sín- um tíma. Rómantíska gamanmyndin My Best Friends’s Wedding, þar sem Julia Roberts er í aðalhlutverki, er jafn- framt enn í 2. sæti. Myndirnar Peacemaker, sem nú er í 3. sæti, og G.l. Jane skipta hins vegar um stall. Demi Moore, sem leikur krúnurakaðan hermann, sýnir aö hún á upp á paliborðið hjá íslenskum áhorfendum. Myndin Nothing to loose er enn í 5. sæti. Face/Off John Travolta og Nicholas Cage. Sean Archer stjómar úrvalssveit manna sem berst við hættulegustu glæpamenn í heimi. Einn þeirra er morðing- inn Castir Troy. Þegar myndin hefst hefur Archer loks haft upp á Troy sem liggur óvípr í valnum eftir mikinn skotbardaga. í ljós kem- ur að Troy hafði komið fyrir öflugri sprengju sem var ætlað aö valda miklu manntjóni. Eina leiðin til að fá upplýs- ingar um hvar sprengj- an er niðurkomin er að fá bróður Troys til að leysa frá skjóðunni. Til að fá hann til að tala er andlit Troys grætt á Archer svo hann haldi að það sé bróðir hans. Allt fer þó til fjandans þegar Troy vaknar óvænt úr dásvefni. My Best Fri- ends Wedding Julia Roberts og Dermot Mulroney. Fyrir tiu árum gerðu Julianne og Michael með sér samn- ing. Þau ákváðu að hætta að vera elskend- ur og ef þau væru ekki gengin út þegar þau væru 28 ára mundu þau giftast. Þegar af- mælisdagurinn nálg- ast kemur upp sú staða að Michael hefur ákveðið að giftast annarri konu. Þegar Julianne sér fram á að missa af Michael áttar hún sig á því að hann er í raun maðurinn sem hún hefur alltaf ætlað sér að eignast. Hefur hún tjóra sólar- hringa til að ná hon- um til baka. Peacemaker George Clooney og Nicole Kidman. Þegar rússnesk lest, sem flytur kjarnaodda, ferst við grunsamlegar aöstæður er kjarneðl- isfræðingurinn dr. Jul- ia Kelly fyrst til að átta sig á því aö „slys- ið“ var sett á svið til aö hylma yflr ráða- gerðir hryðjuverka- manna. Um leið verð- ur öllum ljóst að til- gangur hryðjuverka- mannanna er að koma kjarnorkusprengju fyr- ir einhvers staðar í Bandaríkjunum. Sér- sveitarmaðurinn Thomas Devone er settur í málið og þótt hann og Juliu greini á um hvaða aðferðum eigi að beita verða þau að snúa bökum saman. G.l. Jane Demi Moore, Viggo Mortensen. Þegar þess er kraf- ist að sjóherinn opni fyrir þann möguleika að konur geti sótt um inngöngu í sérsveit hans er ákveðið að bjóða Jordan O’Neal að spreyta sig á verk- efninu. það felst i því að komast í gegnum erfiða þjálfun sem reynir ekki siður á andlegu hliðina en þá líkamlegu. En Jordan tekur áskoruninni og þrátt fyrir að enginn sem þekkir til í hern- um telji að hún hafi möguleika á að kom- ast í hóp hinna út- völdu er hún ákveðin i að gera sitt besta en mörg ljón verða á vegi hennar. Nothing to Loose Tim Robbins og Martin Lawrence. Auglýsingastjórinn Nick Beam verður fyrir áfalli lífs síns þegar hann kemur dag einn að eiginkonunni i rúm- inu með forstjóra fyrir- tækisins sem hann vinnur hjá. Það eina sem honum dettur í hug er að fara út í jeppann sinn og aka eins langt og hann kemst. Eftir að hafa verið næstum valdur að alvarlegu slysi á hraðbraut keyrir hann inn í vafasaman .borgarhluta og áður en hann veit af horfir hann í byssuhlaup smá- krimmans T. Pail. Rán- ið fer út um þúfur og T. Pail verður að fylgja Nick Beam út í eyði- mörkina með lögregl- una og aðra krimma á hælunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.