Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1998 HLJÓMPLjÍni Innvortis - Kemur og Þar kom að því að pönkið næði til íslands á ný, nokkrum árum á eftir tíman- um, eins og í fyrra skiptið. Loksins fáum við íslenska út- gáfu af Green Day, Bad Religion og öllum kaliforn- íupönkböndunum sem skriðu hátt á vinsældalista fyrir sirka fjórum árum. Nýpönkið er i boði Innvortis frá Húsa- vík, fjögurra æskuvina sem hafa hangið næpuhvítir (sjá umslag) inni í skúr frá ferm- ingu á meðan jafnaldramir urðu rjóðir á vélsleðum og skilar harkið sér i velsmurðu og dúnd- urþéttu samspili. Lögin eru 17 (+ sýnishorn úr partíi og tilraun til jólalags í bláendann) og ná sjaldnast þrem mínútum að lengd. Þau eru einfold - sjaldan er farið af gítar/gítar/bassi/trommur formúl- unni og allt í lagi með það - og mörg soðin upp úr mjög kunnug- legum riffum. „Bibbi“ hefur ágætlega popptæka rödd í popppönkið, getur sungið svo hratt að aðdáun vekur og „Böbbi“ styður hann skemmtilega með hráum öskurbarka. Lagasmíðarnar skiptast á Bibba og trommarann „Agga“. Bibbi er glúrinn og þegar honum tekst best til, eins og í „Maðurinn með vasaljósið" og „Bjó þetta ekki til“, eru lögin það grípandi að maður gæti kært hann fyrir að rjúfa friðhelgi einkalífsins, maður fær þau svo illþyrmilega á heil- ann. Aggi er þyngri í sínum lögum, býður upp á rúgbrauð með kæfu miðað við nammið úr Bibba og þarf þess vegna lengri melt- ingartíma. Best tekst honum hetjupönkið í „50 mínútur" sem Ólaf- ur Egilsson syngur traustvekjandi. Textagerðin er upp á heilmarga fiska, ýmsum heimspekilegum pælingum er velt upp eða bara far- ið í gott gálgagrín. Innvortis reyna fátt nýtt á þessari plötu og eru líklega algerlega meðvitaðir um það. Þeir spila skemmtilegt, kraft- mikið og melódískt pönk, gera það vel og ekkert kjaftæði. Gunnar Hjálmarsson fer ★★★ Akasha — Cinematique ★★★ Enska útgáfan Wall of So- unds er traust þegar kemur að góðu grúfl, þaðan koma t.d. Propellerheads. Dúettinn Akasha er nýjasta flaggskipið og er óhætt að binda vonir við þá Charles (alltmúlig spilari) og Damian (blásari) sem skipa bandið; þessi plata hefur alla burði til að verða geysivinsæl. Góðleg blanda djass og dans- tónlistar er súpa hússins í þrem fyrstu lögunum en þá mætir söngkonan Nenah Cherry og hið þreytulega Guns’N’Roses-lag „Sweet Child of Mine“ fær uppreisn æru og verður að glimrandi töffheitum á ný - hér er vinsælt sumarlag i uppsiglingu. Rapparinn Maxi Jazz úr Faithless gefur lögunum „Maximum Karrna" og „The Blues" sjarma og vídd og ýmist annað aðstoðarfólk dembir sínum kryddum í mallið. Þegar á líður opnast platan upp á gátt eins og töfrahellir en kemur þó sífellt á óvart. Myndrænn og fljótandi geimaldardjass er í fyrirrúmi, sexí og slóttugir lúðrar tæla og kúldrast um i faðmlögum við svala tölvu- takta, brakandi hljóðgerflatóna og ilvolg sömpl. Spuninn er mátulega villtur; dansfiðringur sækir ekki á mann, frekar kallar platan á að maður setji lappirnar upp á skemil og hafi það huggulegt með spik- feitum vindli. Sem sagt; töff afslappelsis- grúfþlata fyrir djassnörda jafnt sem trip-hopp filara, hentug undir innslögum í dægurmálasjón- varpsþáttum og ómissandi í ferðalög út fyrir gufuhvolfið. Gunnar Hjálmarsson Our Lady Peace - Clumsy ★★★★ Kanadíska hljómsveitin Our Lady Peace er ekkert sér- staklega þekkt hér á landi, hefur gefið út eina plötu áður, Naveed árið 1994. Sú plata vakti mikla athygli í Kanada og Bandaríkjunum og lagið Starseed komst í fyrsta sæti Modern Rock listans. Söngvari Our Lady Peace er óneitanlega með frábæra rödd, ekki ólíka Billy Corgan úr Smashing Pumpkins og tónlistin er í einu orði sagt geggjuð. í eyrum manns hljómar rödd sem virðist geta túlkað all- an tilfinningaskalann og kraftmikil tónlist leikur undir sem hefur safnað áhrifum víðsvegar frá en skilar þó einstæðum heildarsvip. Melódískt en jafnframt þungt rokk ræður ríkjum á Clumsy og verður að segjast að undirritaður verður æ hrifnari við hverja hlustun plötunnar því hér er ekkert hægt að finna að, allir hlutir ganga upp. Ég ætla ekki að telja hér upp nein lög því þau eru öll stórgóð og besta lagið í huga manns er sífellt að skipta um stað á plötunni. Það er alltaf hægt að skynja ákveðin einkenni á frábærum plöt- um og hér finnast þau öll. Clumsy er ein af bestu plötum ársins, það leikur enginn vafi á því. Páll Svansson \ tónlist i 1 I pásu frá geimskrímslaveiðum: Leikarann WiO Smith þekkjum við vel sem bjargvætt heimsins úr mynd- unum Independent Day og Men in Black. Áður en hann fór að lemja nið- ur geimskrímsli í ofurvinsælum HoUywood- myndum hafði hann gert garðinn frægan í rappinu og kaUað sig Fresh Prince. Nýlega tók hann sér pásu frá leiklistinni, sneri sér tíma- bundið að tónlistinni á ný og gerði gríðarvinsæla plötu: „Big WiUie Style“. Úr rappi í bíó Hinn ungi WiU Smith er sonur raf- virkja og kennslukonu og fæddur í FUadelfíu 1968. Ungur fór hann að leggja eyru við nýjum músíkstraum- um sem komu úr Bronx- hverfi New York-borgar. „Ég keypti fyrstu rappplötuna mína þegar ég var tóff ára, 1980,“ ryfjar WiU upp. „Þá var tónlistin sem var þess virði að kaupa annað hvort útgefin af SugarhiU Records eða Enjoy Records." WiU fór sjálfur að rappa og tók upp samstarf við DJ Jazzy Jeff, fjölhæfan plötuþeyti og músikant. Dúettinn DJ Jazzy Jeff & The Fresh Prince sló snarlega í gegn með léttu og sakleysislegu rappi sem var ekki síður vinsælt hjá foreldrum og krökkum enda í hrópandi andstöðu við hart og gróft gangsta-rappið, sem var að brjótast til vinsælda um sömu mundir. Dúettinn gerði fimm plötur á tímabUinu 1987 tU 1993 sem seldust í Will Smith breytir öllu í gull sem hann snertir á. tonnum og fengu nokkur Grammy- verðlaun, þ.á m. fyrstu Grammy verð- launin sem voru veitt sérstaklega til rapp-listamanna, 1988. Skemmtanagildi Wills á sviði fór ekki fram hjá neinum. Skemmti- kraftaveiðarinn Quincy Jones fékk WiU tU að leggja rappið á hiUuna um tíma og snúa sér alfarið að leiklist- inni. Fyrst komu vinsælir sjónvarps- grínþættir: „Fresh Prince of Bel- Air“, þá myndirnar „Where the Day Takes You“ og „Six Degrees of Seperation" en heimsbyggðin tók fyrst verulega eftir WiU i grín- og spennumyndinni „Bad Boys“. Aðalhlutverk í Independent Day og MIB, tveim vinsælustu myndum síð- ustu ára, hafa svo gert WiU Smith að einni stærstu kvikmyndastjörnunni í dag. Næsta mynd hans er spennu- og hasarmyndin „Enemy of the State“ sem verður frumsýnd í sumar. Hreinlegur rappari WUl söng titiUagið í Men in Black sem varð mjög vinsælt í kjölfar myndarinnar. Hann komst í svo mik- ið stuð við að gera lagið að ekki þýddi annað en að demba sér í heUa plötu. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef getað gert plötu án þess að þurfa að halda aftur af mér fjárhagslega," seg- ir hann. „Ég gat fengið hvaða hljóð- stjórnanda sem ég vildi og gert hvaða hugmynd sem ég heyrði eða sá í höfð- inu að veruleika. Það var ekki hægt annað en að nota tækifærið." Larry Blackmon úr Cameo var fenginn tU að endurgera lagið „Candy“ fyrir WUl, Poke og Tone - öðru nafni Trackmasters - gerðu „Miami“ og smellinn „Gettin’ Jiggy with It“ og æskufélaginn DJ Jazzy Jeff lagði hönd á plóginn i tveim lögum. Grínið er oftast í fyrirrúmi, Will gerir sig breiðan að rapparasið en sums staðar er farið inn á persónulegri slóðir eins og í „Just the Two of Us“ sem WiU samdi tU sonar síns. „Ég vona að lag- ið geymi brot af þvi hver ég er í dag. Eftir tíu ár vU ég að sonur minn geti hlustað á lagið og heyrt hvað pabbi hans var að pæla.“ í „Forever" syng- ur WUl tU konunnar í lífi sínu, Jade Pinkett; „She makes me feel good, makes me feel that forever is a possi- bUity." Sætt hjá honum. Will er hreinlegur rappari, kannski má segja að hann sé Cliff Richards rappsins. Honum finnst aukið ofbeldi í rappheiminum mikið áhyggjuefni og dauði rapparanna Tupacs og Notorious B.I.G. fékk mikið á hann. Á tímabili efaðist hann um að hann ætti erindi í þá ormagryfju sem rappið var að verða, að hans mati, en svo birti tU. „Tón- listin er langerfiðasta sköpunar- formið,“ segir WiU Smith að lokum. „Tónlistin er eins og lítið barn. Þú þarft að gefa henni alla þína athygli, aUt þitt líf.“ Unbelievable Truth: Fjölskyldutengsl til framdráttar Ekki hangandi í frakkaiafinu á Radiohead: Unbelievable Truth Litli bróðir Thom Yorke, söngv- arans í Radiohead, heitir Andy og er söngvari og gítarleikari í rokktríóinu Unbelievable Truth. Sveitin gaf nýlega út fyrstu plötima, „Almost Here“, og hefur verið að fá afbragðs dóma fyrir. Hljómsveitin var stofnuð í Oxford árið 1994 af þrem skólafélögum. Andy er lærður í rússnesku og hafði byrjað að setja saman tónlist þegar hann dvaldi í Moskvu á síðasta námsári sínu, ’93. Hann kom tU baka með pokann full- an af lögum. Bandið líkti sér við karlkyns Throwing Muses eða Talk Talk og átti litla samleið með brit- poppinu, sem vinsælast var á þess- um tíma. Félagarnir tóku sér nafn eftir kvikmynd Hal Hartleys en svartur húmorinn í myndinni höfð- aði til þeirra. Andy fór aftur tU Rússlands - „af því ég var með landið á heUanum", segir hann - og bandið lá í dvala í ár á meðan Andy rasaði út í austrinu. Þegar hann kom tU baka í september 1996 small sveitin fyrst almennilega saman. Virgin skrifaði upp á samning við hana í mars í fyrra, smáskifan „Sto- ne“ vakti þokkalega athygli sl. sum- ar og eins var tekið eftir þeim þeg- ar þeir hituðu upp fyrir Sundays, Sparklehouse og Beth Orton. Fjöl- skyldutengslin vekja athygli hvar sem bandið fer. „Það hefur sína kosti og galla,“ segir Andy. „Einn af göllunum er að fólk afskrifar okkur áður en það heyrir í okkur. Það að ég sé bróðir Thoms hjálpar svo auð- vitað líka til að við fáum athygli fyrir það fyrsta.“ Bræðurnir eru líkir í anda, báðir djúptþenkjandi og Andy semur líkt og Thom texta fúUa af kvíða, angist og neikvæðni - það hefur verið gaman við morg- unverðarborðið hjá þeim. Tónlistin er einnig svipuð - þó enn eigi Un- believable Truth eftir að ná sama þroska og Radiohead - en alls engin stæling. „Fólk mun eflaust segja að við séum að hanga í frakkalafinu á Radiohead en svo er alls ekki,“ full- yrðir Andy og hefur engar sérstak- ar áhyggjur enda stendur „Almost Here“ fyllilega fyrir sínu án allra fjölskyldutengsla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.