Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 15. MAl 1998 24 ★ ■^r *' tónlist ísland - plötur og diskar- I * § . . » » 1(1) Mezzanine Massive Attack 2 ( - ) From The Choirgirl Hotel Tori Amos 3 ( - ) íslenskir karlmenn Stuðmenn & Karlakórinn Fóstbr. 4(3) Pottþótt 11 Ýmsir flytjendur 5(2) This is Hardcore Pulp 6(5) Left of the Middle Natalie Imbruglia 7(9) Moon Safari Air 8(4) Soulfly Soulfly 9(7) Madonna Ray of Light 10 ( 8 ) Titanic Úr kvikmynd 11 (10) All Saints All Saints 12(12) Glinggló Björk & Tríó Guðmundar Ingólfs. 13(11) Let's Talk About Love Celine Dion 14 (- ) Big Willie Style Will Smith 15 (- ) He Got Game Public Enemy 16 (Al) Jackie Brown Úr kvikmynd 17 (Al) Lífsins fljót Friðrik Karlsson 18 (Al) Með allt á hreinu Stuðmenn 19(15) The Pillage Cappadonna 20(17) Urban Hymns The Verve ^ London ----------- -lög- I | 1. (_ ) Turn BackTime Aqua | Z ( 1 ) Under The Bridge/Lady Marmalade All Saints | 3. ( - ) Gone Till November Wuclef Jean t 4. (- ) Life Ain't Easy Cleopatra | 5. ( 3 ) Feel It The Temperer featuring Maya P... t 6. (- ) Dreams The Corrs t 7. ( - ) Say You Love Me Simply Red | 8. ( 2 ) Ray Of Light Madonna | 9. ( 7 ) Last Thing On My Mind Steps | 10. ( 8 ) Dance The Night Away The Mavericks NewYork i i.(D | 2.(2) | 3.(3, t «.(») t 5.(6) » 6.(11) » 7.(5) » 8.(15) » 9.(8) » 10. ( 7 ) Too Close Next My All Mariah Carey You'ro Still the One Shania Twain Everybody (Backstreet's Back) Backstreet Boys Body Bumpin' Yippie-Yt-Yo Public Announcement It's All About Me Mya & Sisqo Truely Madly Deeply Savage Garden The Arms Of The One Who L. Y.. Xscape All My Life K-Ci & Jojo Lot's Ride Montell Jordan Bretland -plötur og diskar— Dave Matthews (í miöjunni) ásamt bandi sfnu. að hlaut að koma að því. Loksins er Titanic-diskurinn dottinn af efsta sætinu á bandaríska vinsældalistanum eftir að hafa staðið þar óhagganlegur í tutt- ugu vikur og selst í tíu milijón eintök- um, sem gerir tífalda platínu, takk fyrir. Sá sem sökkti Titanic af toppn- um er Dave Matthews nokkur ásamt bandi með sína fjórðu plötu, „Before These Crowded Streets" sem fór bein- ustu leið á toppinn. Amerískur suðupottur Dave Matthews vann sem bar- þjónn á djassbúllu í Carlottesville i Virginíu-fylki þegcu- hann ákvað að gera eitthvað úr tónlistinni sem hann hafði verið að dunda sér við að semja. Dave syngur og spilar á gítar og hafði verið alinn upp við allra handa heims- og þjóðlagatón- list heima hjá sér. Uppeldið skilaði sér í því að tónlistin hans er þjóð- lagaskotið heimstónlistarrokk með ýmsum óvæntum uppákomum og útúrdúrum - „amerískur suðupott- ur“ er lýsing sem oft er höfð um tón- listina. Dave smalaði í hand sér til halds og trausts og völdust í það góðkunningjar af djassbúllunni. Trommarinn Carter og blásarinn Leroi höfðu oft troðið þar upp í ýms- um böndum og Stefan bassaleikari var bara sextán ára þegar hann gekk í bandið en Dave skynjaði í honum mikinn tónlistarþroska þrátt fyrir ungan aldur. Fiðlarinn Boyd var svo síðasti maður um borð; hann hafði aðaUega fengist við klassíska tónlist en fannst hug- myndir Daves spennandi. Hópurinn lagðist í æfingar en spilaði fyrst opinberlega í partíi fyr- ir 40 manns í maí 1991 en síðan á sí- stækkandi stöðum í heimabænum. Hinum grípandi nýja hljóm óx ás- megin, sífellt stækkaði áhorfanda- skarinn og bandið lagðist i lengri ferðalög. Það varð aðkallandi að gera plötu en til að rugla ekki ferða- áætluninni var ákveðið að taka fyrstu plötuna upp á tónleikum. „Remember Two Things" var gefin út af bandinu sjálfu og dreift frá Charlottesville. Þrátt fyrir sjálfstæð- ið hefur platan nú selst í 500 þúsund eintökum. Bandið spilaði stíft út árið 1993, m.a. sem upphitunaratriði fyrir Phish og Blues Traveler, og að- dáendunum fjölgaði stöðugt. Andanum lyft Auðvitað endaði bandið á að gera stórsamning við risafyrirtæki, RCA og tók upp fyrstu hljóðversplötuna, „Under the Table and Dreaming" 1994. Viðtökumar voru frábærar, tvær Grammy-tilnefningar fyrir lag- ið „What Would You Say“ og þrjú milljón eintök seld. Plötunni var fylgt eftir með viðamiklum tónleik- um um Bandaríkin og Evrópu. Ekki voru viðtökurnar síðri þegar þriðja platan „Crash" kom út 1996. Góðir dómar hlóöust upp, platan seldist í tonnavís og bandið lagði upp í enn eitt tónleikaferðalagið. Nú hafði Dave Matthews Band verið á stanslausum þeytingi í nær fimm ár og tók því langa pásu árið 1997. Afslappað og fmt fór bandið í hljóðver í San Francisco með hljóð- stjómandanum Steve Lillywhite á haustmánuðum. Á nýju plötunni fá þeir aðstoð frá ýmsu þekktu tónlist- arfólki; m.a. Kronos-kvartettinum, banjóleikaranum fræga, Bela Fleck, og Alanis Morissette kíkir inn í tveim lögum. Platan hefur fengið rifandi góða dóma, t.d. þrjár og hálfa stjömu hjá Rolling Stone sem segir hana „fara í ævintýralegar átt- ir og blanda nýjum tónum í hið auð- þekkjanlega og sérstaka litróf bandsins". Fyrir Dave Matthews er tónlistarsköpunin eingöngu ætluð til að „lyfta andanum" og hann er glaður á meðan „tónlist okkar sam- einar fólk ffernur en sundrar því.“ t 1.(2) International Velvet Catatonia | 2. ( 1 ) Mezzanine Massive Attack | 3. ( 3 ) Life Thru a Lens Robbio Williams | 4. ( 4 ) Ray of Light Madonna t 5. (10) AllSaints All Saints t 6. ( -) From The Choirgirl Hotel Tori Amos | 7. ( 6 ) Urban Hymns The Verve t 8. ( 5) The Best Of James t 9. ( 7 ) Let's Talk About Love Celino Dio t 10. ( 9) Titanic Úr kvikmynd » » * » * » * [ Bandaríkin — plötur og diskar — 1. (- ) Before These Crowded Streets Dave Matthews Band 2. ( 3 ) City of Angels Úr kvikmynd 3. (1 ) Titanic Úr kvikmynd 4. ( 2 ) One Step At A Time Goorge Strait 5. ( - ) Capital Punishment Big Punisher 6. ( 4 ) Let's Talk About Lovo Celine Dion 7. ( 6 ) Backstreet Boys Backstreet Boys 8. ( 5 ) Savage Garden Savage Garden 9. ( 7 ) Faith Faith Hiil 0. (10) Come On Ovar ^^^Shania Twain Gang Starr: Haldid í uppruna- legu gildin Framtíöin er ekki mjög björt en það er þó alla vega framtíð! Síðan Gang Starr byrjaði 1986 hef- ur rappdúettinn verið meðal virt- ustu stjamanna í rappbransanum og fimmta platan, „Moment of Truth", sem nýlega kom út, tryggir enn stöðu þeirra. „Þetta er allt spuming um þróun og uppreisn," segir rapparinn Gum. „Rappið ger- ir mig frjálsan. Ég tek það alvar- lega, að rappa er eins og að fara í stríð.“ Premier (eða Primo eins og hann er kallaður innan hverfisins) er félagi Gums og sér um hljóð- stjórn. Hann hefur einnig hjálpað til í lögum með Jeru, KRS-ONE, Nas, Rakim, Notorious B.I.G o.fL „Fólk bindur miklar vonir við okkur,“ segir hann. „Þess vegna reyni ég alltaf að gera hlutina rétt. Sem list- form er hipp-hoppið í mikilli upp- lausn þessa dagana og okkur Guru flnnst sú skylda hvila á okkur að það verði ekki algerlega eyðilagt. Hipp-hoppið byrjaði sem valmögu- leiki í stað þess aö fara í gengi. Það veitti frelsi. Nú er það milljón dala iðnaður, það hefur verið framið arð- rán og nú er fyrirbærinu stjórnað af peningamönnum. Við höfum haldið í upprunalegu gildin og það mun aldrei breytast." Merkimiðanum „djass rapp“ var klínt á Gang Starr eftir lögin „Jazz Music" og „Jazz Thing", úr mynd Spike Lee, „Mo’ Better Blues", en sveitin tjáir sig þó í fleiri tilbrigð- um. Þeir félagar eru jákvæðir: „Gang Starr er um það bU að vera fókusaður og eyða öllum hindran- um að því að ná markmiðum sín- um,“ segir Gum. „Fullt af fólki reynir ekki að sjá framtíðina eins og ég og Primo. Markmið okkar er að láta það vita að þó að framtíðin sé kannski ekki mjög björt sé þó alla vega einhver framtíð.” Premier tekur undir með Guru, afneitar sölumennskunni og segir hana halda aftur af sköpunarþroskanum; „Mér er alveg sama um vinsælda- listana. Ég hugsa bara til „moðer- fokkeranna" á götunni og vona að þeir „fíli“ það sem við emm að gera.“ Gestkvæmt er á nýju plötunni. In- spectah Deck úr Wu Tang kikir inn, eins K-Ci & Jo Jo, Scarface og Hannibal og Krumbsnatcha, tveir upprennandi rapparar. Gura kallar plötuna „skyndihjálparkassa fyrir frumskóg stórborgarinnar". „Platan heldur í þá hefð okkar að vera full- trúar þess sem er sterkt, friðsælt, elskandi og skilningsríkt - en þó með hugarfar stríðsmannsins," út- skýrir hann og hlær stórkarlalega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.