Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 rukka* 4iin mótorhjólalatnaöup Gore-tex latnaöun og lylgihlutir Irá Rukka og IXS, einnig leður- latnaður o.II. " Skútuvogi 12A, s. 568 1044 rTil leígu SomkomutjölcP Folleg og sierk. ISPÓ Gó&ur og ódýr kostur Yfir 650 hús klædd á síðastliSnum 16 árum. 5 ára ábyrgS. Gerum tilboð í efni og vinnu, þér að kostnaðarlausu. Múrklæbning hf. Smiðsbúð 3 • 210 Garðabær Sími 565 8826 QMI teflon bón. Góð ending ! Landsins mesta úrval af bón- og hreinsivörum! Sími 535 9000 Fréttir Friðland leigt: Einkaréttur til upp- göngu é Langjökul Þann 24. ágúst 1993 gerðu Reyk- holts- og Hálsahreppur leigu- samning við hlutafélagið Langjök- ul hf. um leigu á lýstu friðlandi við Langjökul. Landið er hluti svonefnds Geitlands þaðan sem hvað greiðfærast er á Langjökul á jeppum eða vélsleðum. Tilgangur samningsins er á hinn bóginn sá að veita fyrirtækinu Langjökli einkarétt á því að komast á jökul- inn. Þessi samningur kom til um- ræðu á alþingi í fyrradag og töldu þingmenn sem lagst hafa gegn há- lendisrenningafrumvarpi Páls Péturssonar félagsmálaráðherra að þessi samningur, þar sem ein- um aðila er veittur einkaréttur að tilteknu hálendissvæði eða jökli, væri í raun fyrirboði hins fyrir- sjáanlega þegar 42 sveitarfélög fá hvert um sig lögsögu og skipu- lagsvald hvert yfir sínum renn- ingi af hálendinu. Páll Pétursson Langjökull Geítlandsjökull vísaði því á bug á alþingi og sagði samning sem þennan markleysu. Landleigusamningur hrepp- anna tveggja við Langjökul hf., sem er fjölskyldufyrirtæki Krist- leifs Þorsteinssonar, ferðaþjón- ustubónda að Húsafelli, var gerð- ur 1993 sem fyrr segir og er til 10 ára. Honum skal segja upp með árs fyrirvara áður en hann renn- ur út en ef það er ekki gert fram- lengist hann sjálfkrafa til fimm ára. Það er þó fjórða grein samn- ingsins sem flestir hnjóta um en hún er þessi: „Samningur þessi veitir Langjökli hf. með lögheim- ili að Húsafelli rétt til reksturs ferðaþjónustu á leigulandinu. Leigusalar lofa að veita ekki öðrum aðilum heimild til rekst- urs skyldrar starfsemi á eða við hið leigða svæði sem leigusalar hafa umráð yfir.“ -SÁ Grundarfjörður: Runólfur seldur til Rússlands DV, Vesturlandi: Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grund- arfirði er að ganga frá sölu á togaran- um Runólfí SH 135 sem fyrirtækið hefúr átt síðan 1975 að sögn Svetns Pálmasonar, fjármálastjóra fyrirtæk- isins. „Togarinn er seldur til Rúss- lands á 103 milljónir og mun Hringur SH-535 veiða kvóta Runólfs. Ástæða sölunnar er sú að skipið er orðið gam- alt og einnig er um hagræðingu í rekstri að ræða,“ sagði Sveinn Pálma- son við DV. Á árunum 1975 til dags- ins i dag hefur Runólfúr farið í 800 veiðiferðir fyrir Guðmund Runólfs- son hf. og landað samtals 73.500 tonna afla á þessum tíma. Aflaverðmæti skipsins á þessu tímabili er á flmmta milljarð og útflutningsverðmæti af- urða á níunda milljarð króna. Þegar Runólfur fór af stað til Reykjavíkur var ekki laust við það að fólk klökkn- aði á þeirri stundu enda hefur togar- inn haft mjög mikil áhrif á lif margra í Grundarflrði. Runólfur SH-135 var síðan tekinn í slipp í Reykjavík þar sem framkvæmd var á honum hefð- bundin klassaskoðun auk söluskoð- unar. Skipið var síðan afhent nýjum eigendum þann 20. maí síðastliðinn. ________________________-DVÓ Fyrsta síldin til Raufar- hafnar DV, Raufarhöfn: Fyrsta síldin úr Síldarsmugunni barst SR á Raufarhöfn laugardaginn 23. maí en þá lagðist Oddeyrin EA að bryggju með fullfermi. Einnig bíður Anmarsat löndunar og Svan- ur og Háberg eru á leiðinni. Ahs mun SR á Raufarhöfn fá um 2.500 tonn af síld til bræðslu úr þessum bátum. Þórður Jónsson hjá SR á Siglufirði segir síldina veidda um 350 sjómílur frá landinu og nú séu fleiri bátar á landleið. Björg Jóns- dóttir, Huginn og Gullbergið eru á leiðinni og munu koma til með að landa á Austfjarðahöfnum. -ÞVE Vorið og æskan eru komin á kreik. Þessar ungu hnátur nutu blíöviðrisins á dögunum í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum. Þeim þótti gott að fara í fótabað undir heiðskírum himni. Mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.