Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
Útlönd
Stuttar fréttir r>v
Leiðtogafundur
um kjarn-
orkuvopn
Leiðtogar helstu iðnríkja
heims, hinna svokölluðu G-8
ríkja, koma saman til skyndifund-
ar í London 12. júní til þess að
ræða tilraunasprengingar Ind-
verja og Pakistana með kjarn-
orkuvopn. Tilraunirncir hafa
kynt undir ótta um að kjamorku-
vopnakapphlaup sé að heíjast í
Suður-Asíu.
Tilraunirnar veröa einnig á
dagskrá fundar kjarnorkuveld-
anna fimm og fastafulltrúa í Ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna,
það er Bandaríkjanna, Rússlands,
Kína, Bretlands og Frakklands, í
næstu viku.
Forseti Frakklands, Jacques
Chirac, hefur lagt til að Indlandi
og Pakistan verði boðið til fúndar-
ins.
Clinton vill ekki
láta Starr^fir-
heyra sig
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
vill ekki láta saksóknarann Kenn-
eth Starr og kviðdóm hans yfir-
heyra sig í máli
Monicu Lew-
insky, að því er
greint er frá í
nýjasta tölu-
blaði tímaritsins
Time. Monica
var lærlingur í
Hvita húsinu.
Rannsókn
Starrs beinist aö þvi hvort Clint-
on hafi staðið í ástarsambandi við
Monicu og síðan hvatt hana til
þess að ljúga um sambandið.
Time vitnar í ónafngreinda
heimildarmenn í Hvita húsinu
sem segja að Clinton vfiji heldur
láta þingið fjalla um málið en að
standa frammi fyrir Starr og
mönnum hans. Bandaríska dóms-
málaráðuneytið ætlar að áfrýja
úrskurði um að lífverðir forset-
ans verði að bera vitni.
Bandarískur
unglingur myrti
fjölskyldu sína
Enn einn harmleikurinn skek-
ur nú Bandaríkjamenn. 15 ára
piltur í Battle Mountain í Nevada
í Bandaríkjunum skaut ásamt
jafnaldra sínum á laugardaginn
foreldra sína og tólf ára systur til
bana. Ekki er vitað um ástæðu
ódæðisverksins en pilturinn er
sagður hafa lent í rifrildi viö móð-
ur sína og orðið mjög æstur.
Hann hringdi sjálfur í lögregluna
eftir moröin. Var hann handtek-
inn ásamt félaga sinum tveimur
klukkustundum seinna.
Rannsaka riki-
dæmi Suhartos
Indónesíu-
forseta
Yfirvöld í Indónesiu tilkynntu í
gær að þau hygðust rannsaka
auðæfi þau sem
Suharto, fyrr-
verandi
Indónesíufor-
seti, rakaði sam-
an á 32 ára
valdaferli sín-
um. Kröfumar
um rannsókn á
auðæfum forset-
ans fyrrverandi höfðu gerst æ há-
værari frá því að hann fór frá
völdum 21. maí síðastliðinn. Fjöl-
miðlar hafa giskað á að auöæfi
Suhartos og fjölskyldu hans nemi
um 40 milljörðum dollara.
Ekki hefur verið tilkynnt hvort
rannsókn fer fram á eignum sex
bama Suhartos.
Jaröskjálftinn í Afganistan:
Öttast að fimm
þúsund hafi farist
Óttast er að að minnsta kosti 5
þúsund manns hafi farist í jarð-
skjálftanum sem reið yfir norðaust-
urhluta Afganistans á laugardag-
inn. Björgunarmenn telja að fómar-
lömb jaröskjálftans geti jafnvel ver-
ið enn fleiri.
Nokkrir eftirskjálftar riðu yfir
norðurhluta Afganistans í gær sam-
tímis því sem björgunarmenn
reyndu að komast með hjálpargögn
til neyðarsvæðanna.
Það er mat hjálparstofnana að um
70 bæir hafi lagst í rúst í skjálftan-
um á laugardaginn sem mældist 7,1
á Richter. Skjálftinn nú var öflugri
en skjálftinn mikli í febrúar sem
lagði um 14 bæi í rúst. Fómarlömb
skjálftans í febrúar vom nær 4 þús-
und.
Stjómarandstæðingar, sem ráða
ríkjum á því svæði sem skjálftinn
reið yfir á laugardag, segja aö bær-
inn Shahr-e-Bozurg í Badakhshar-
héraði hafi orðið sérstaklega illa
úti. Þar hafi nær 3 þúsund manns
látið lífið. Hjúkrunarfólk, sem kom-
ist hefur til bæjarins, óttast að far-
sóttir eigi eftir að herja á íbúana.
Þeir sem komust lífs af úr skjálft-
anum sofa undir beru lofti í fjalls-
hliðum. Margir hafa lagt á flótta frá
hamfarasvæðinu i leit að mat, vatni
og þaki yfir höfúðið.
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
vonast til að geta leigt þyrlur frá
Tadzjikistan til að koma hjálpar-
gögnum til skjálftasvæðisins. Erfitt
er að komast á bílum til svæðisins.
Eina leiðin til að komast til af-
skekktra svæða er að ferðast á ösn-
um en það tekur langan tíma. Það
tekur til dæmis fimm daga að kom-
ast til bæjarins Shahr-e-Bozurg frá
næsta bæ á asna. Engir bílvegir
tengja svæðið við umheiminn, að
því er segir í tilkynningu starfs-
manna Sameinuðu þjóðanna.
Um 60 þúsund manns búa á
skjálftasvæðinu. Þó svo að ekki sé
með vissu vitað hversu margir fór-
ust þykir vist að mörg þúsund séu
heimilislaus og að fjöldi manns sé
alvarlega slasaður.
Aðeins tvö sjúkrahús eru í þess-
um landshluta, eitt í Faizabad,
helstu borg Badakhshan, og eitt í
Taloqan, höfuðborg Takhar. Bæði
sjúkrahúsin eru langt frá svæðinu
sem skjálftinn reið yfir.
.
■ *$ r » J§ -H '
[ : /
Margrét Þórhiidur Danadrottning og Henrik prins, eiginmaður hennar, tóku á móti Akihito Japanskeisara og Michiko
keisaraynju í Kaupmannahöfn í gær. Keisarahjónin eru í fimm daga heimsókn í Danmörku. Símamynd Reuter.
^ Sigur umbótasinna í SvartQallalandi:
Afall fyrir Milosevic
Stuðningsmenn Milos Djukanovics í
Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands,
skutu í loft upp af byssum sínum og
sungu og dönsuðu af fógnuði aðfara-
nótt mánudags. Sigur Djukanovics, for-
seta Svartfjallalands, yfir keppinaut
sínum, Momir Bulatovic, sem er for-
sætisráðherra Júgóslavíu, í þingkosn-
ingunum á sunnudaginn kann að vera
upphafið að endalokum Júgóslavíu.
Djukanovic vill bola Slobodan
Milosevic, forseta Júgóslavíu, frá völd-
um. Milosevic hefur áður kallað
Djukanovic glæpamann og sagt að
hann myndi ekki viðurkenna sigur
hans I kosningunum. Bulatovic, sem er
skjólstæðingur Milosevics, viður-
kenndi ósigur sinn og sagði að kosn-
ingamar hefðu verið fijálsar og réttlát-
ar. Yfirlýsing hans þótti draga úr
spennu í Svartfjalllandi og hættu á
vopnuðum átökum.
Þegar búið var að telja 94 prósent at-
Slobodan Milosevic, forseti Júgó-
slavíu.
kvæða hafði umbótaflokkur Djuka-
novics hlotið 49,5 prósent atkvæða en
sósialistaflokkur Bulatovics 36 pró-
sent. Bandalag frjálslyndra fékk 6 pró-
sent atkvæða.
Djukanovic var áður stuðningsmaður
Bulatovics og Milosevics er Júgóslavía
leystist upp á árunum 1991 til 1992.
Hann snerist síðar gegn þeim. Sagði
hann Svartfjallaland líða fyrir ágrein-
ing Milosevics við Vesturlönd vegna
viðskiptaþvingana Sameinuðu þjóð-
anna.
Djukanovic tilkynnti eftir að úrslit
lágu fyrir að hann hygðist halda áfram
að berjast. „Þetta er ekki lokasigur
okkar. Hann hefur ekki náðst fyrr en
lýðræðið hefur sigrað í allri
Júgóslavíu." Milosevic nýtur nú fylgis
meirihluta neðri deildar Júgóslavíu-
þings en aukin áhrif Djukanovics í efri
deildinni kunna að leiða til sundrung-
ar.
Þúsundir fiýja Kosovo
Albönsk stjómvöld hvöttu til
þess i gær að komið yi'ði í veg fyr-
ir strið í Kosovo. Um 2 þúsund
manns flúðu frá Kosovo til Alban-
íu um helgina.
Létust í óveðri
Sextán manns létust í ofsaveðri
viðs vegar í Bandaríkjumnn um
helgina. Hundruð heimila
skemmdust og þúsundir urðu raf-
magnslausar í kjölfar skýstróka
sem gengu yfir miðvesturríkin og
austm'ströndina.
Undirbýr árás á Blair
William Hague, leiðtogi stjóm-
arandstöðunnar
í Bretlandi, til-
kynnti í gær
umfangsmikla
uppstokkun í
skuggaráðu-
neyti sínu. „Það
bætast við ný
hæfileikarík
andlit,“ sagði Hague í gær. Meðal
nýrra manna era Francis Maude
og Ann Widdecombe. Hlutverk
þeirra verður meðal annars að
vekja athygli á mistökum ráð-
herra Tonys Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands.
Hrun í Rússlandi
Verðhran varð á verðbréfa-
markaðnum í Moskvu í gær þrátt
fyrir að yfirvöld reyndu að róa
markaðinn og þrátt fyrir loforð
Bandaríkjanna um að styðja nýj-
ar lánveitingar til Rússlands.
Flugverkfall í Frakklandi
Yfirmenn franska flugfélagsins
Air France ætla að ræða við full-
trúa stéttarfélaga franskra flug-
manna í dag. Óttast er að verkfall
flugmanna, sem hófst í gær, raski
heimsmeistarakeppninni í fót-
bolta.
Neitar að vera hommi
Fyrrverandi forseti Simbabve,
Canaan Banana, vísaði því á bug
fyrir rétti í gær að hann væri
samkynhneigður og hefði þving-
að aðra karla til samræðis við sig.
Samkynhneigö er bönnuð í
Simbabve. Banana er kvæntur og
fjögurra bama faðir.
Andrés í Lettlandi
Andrés Bretaprins kom í gær
til Riga, höfuð-
borgar Lett-
lands. Prinsinn
hefur verið á
ferðalagi í Eist-
landi og Rúss-
landi. í Riga
mun Andrés
heimsækja
bamaspítala og ræða við Guntis
Ulmanis, forseta Lettlands.
Ástarbréf Einsteins
Níu bréf, skrifuð af Albert Ein-
stein, sýna að hann átti í ástar-
sambandi í seinni heimsstyrjöld-
inni við rússneskan njósnara,
Margaritu Konenkovu. Ástarbréf-
in verða seld á uppboði hjá Sothe-
by’s í New York.
Kaunda látinn laus
Fyrrum forseti Sambíu, Kenn-
eth Kaunda, átti að koma fyrir
rétt í gær vegna ákæra um að
hafa leynt áætlunum um valda-
rán. Saksóknari dró ákæruna til
baka i gær.
Lögmaöurinn rekinn
Elaine Sharp, lögmaður bresku
bamfóstrunnar
Louise Wood-
ward, hefur ver-
ið rekin úr lög-
mannahópnum
sem rekur mál
barnfóstrunnar.
Lögreglumaður,
sem tók Sharp
fyrir ölvunarakstur, segir hana
hafa tjáð sér að hún efaðist um
sakleysi Louise. Sharp vísaði orð-
um lögreglumannsins á bug.
Hann krefst nú þess að Sharp
biðjist afsökunar á því að segja
hann hafa logið.