Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: ffiJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar plmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Þeir velja sérhagsmunina Þegar landsfeður okkar velja milli almannahagsmuna og sérhagsmuna, hallast þeir yfirleitt á sveif með hinum síðamefndu. Til dæmis þóttust þeir vera að staðfesta þjóðareign á auðlindum hafsins, en voru í rauninni að af- henda útgerðarmönnum eignarhaldið. Nýjasta dæmið af þessu tagi er stjóm hálendisins, sem landsfeðurnir hafa afhent fjörutíu fámennishreppum í flömtíu hrepparenningum, þótt mótmælabylgja hafi ris- ið með þjóðinni. Hún hefur skollið á daufum eyrum landsfeðranna og tindáta þeirra á Alþingi. Skoðanakannanir sýna yfirgnæfandi andstöðu þjóðar- innar við þennan geming. Flestar stofnanir og samtök em sama sinnis og þjóðin, þótt þær séu ósammála um aðra þætti hálendismála. Landsfeðurnir þrýstu samt málinu gegnum málþóf á Alþingi. Landsvirkjun og vegagerðin vilja framkvæmdir á há- lendinu, náttúraverndar- og ferðamálastofnanir hafna þeim. Þótt þessir aðilar séu á öndverðum meiði, eru þeir sammála þorra þjóðarinnar um, að stjómsýslan sé betur komin í höndum ríkisins en hreppanna. Fundaályktunum og mótmælum rigndi yfir alþingis- menn, ekki sízt þá, sem kjömir vom af umbjóðendum ut- an fámennishreppanna fjörutíu. Samt barði forsætisráð- herra í borðið og sagðist láta þingið sitja svo lengi fram eftir sumri sem þyrfti til að koma málinu fram. Stundum em almannahagsmunir þögulir, en sérhags- munir háværir. Slíku var hvorki til að dreifa, þegar auð- lindir hafsins voru afhentar útgerðarmönnum, né þegar auðlindir hálendisins voru afhentar fámennishreppun- um fjörutíu. Skýringin á þrjózkunni liggur dýpra. Þeir landsfeður, sem nú sitja að völdum, og þeir, sem áður hafa setið þar, vita, að almenningur refsar þeim ekki fyrir að taka sérhagsmuni fram yfir almannahags- muni. Menn æmta um stund, en láta síðan reka sig í hefðbundna dilka, þegar til kastanna kemur. Sauðfjáreðli almennings lýsir sér í fleiri myndum. Menn gráta hástöfum yfir meðferð tryggingafélaga á sér. Þegar samtök bíleigenda fá nýtt tryggingafélag til að bjóða betri kjör, færa bíleigendur ekki tryggingar sínar, heldur bíða eftir lækkun gömlu kúgaranna sinna. Af því að íslenzkir neytendur vilja áfram vera hjá kúg- urum sínum, fást nýir aðilar tæpast til að koma inn á fá- okunarmarkaðinn hér á landi. Af því að íslenzkir kjós- endur vilja áfram styðja kúgara sína, endurspegla ís- lenzk kosningaúrslit einhver af fyrri úrslitum. Skeytingarleysi neytenda og kjósenda um almanna- hagsmuni kastar landsfeðrum í faðm sérhagsmuna. Því er ekki hægt að kenna fyrrverandi og núverandi lands- feðrum einum um ofurvald sérhagsmunanna. Neytendur og kjósendur geta sjálfum sér um kennt. Á grundvelli þekkingar landsfeðra á sauðfjáreðli kjós- enda hefur verið byggt upp svonefnt ráðherralýðræði. Það er séríslenzkt fyrirbæri, þar sem framkvæmdavald- ið lætur löggjafarvaldið færa sér vald til að þjónusta sér- hagsmuni eftir geðþótta landsfeðra á hverjum tíma. Þannig hefur verið byggt upp opinbert kerfi banka og sjóða, sem hefur á þessum áraug brennt nokkrum tugum milljarða í þágu gæludýra af ýmsu tagi. Þannig er millj- örðum brennt á hverju ári í þágu fyrirtækja og stofnana, sem hvíla á herðum landbúnaðarins. íslenzk stjómmál snúast einkum um sérhagsmuni, að- gang stjómmálamanna að valdi til geðþóttaákvarðana um afhendingu almannagæða í hendur gæludýra. Jónas Kristjánsson Sveitarstjórnarkosningamar og úrslit þeirra eru um margt athygl- isverðar og ljóst að miklar pólití- skar breytingar eru að gerjast með þjóðinni. Staða Sjálfstæðisflokks- ins vekur þar sérstaka athygli og yfirburðastaða hans í flestum stærstu bæjum landsins. Reykja- neskjördæmi, kjördæmi Ólafs heitins Thors, hefur eftir daga þess mikla foringja sjálfstæðis- manna átt undir högg að sækja fyrir ágangi vinstrimanna. Þar má nefna yfirráð þeirra um lengri og skemmri tíma í stærstu bæjunum, Kópavogi og Hafnarfirði. Úrslit þessara kosninga leiða í ljós að áhrif vinstrimanna em að hverfa. Sameining þeirra í Reykjanes- kjördæmi virðist ekki hugnast kjósendum, þvert á móti virðast þessi framboð rugla fólk í ríminu sem er skiljanlegt. Sífelldar breyt- ingar á framboðum vekur upp spurningar um varanleika og ábyrgðartengt hlutverk stjórn- málaafla sem bíður hnekki við sí- endurteknar númerabreytingar. Að skipta alveg út fólki af fram- boðslistum virðist einnig virka illa og kenningin um að „nýir vendir sópi best“ gilda ekki sé mið tekið af úrslitunum á Seltjarnar- nesi. Þar vann einn okkar besti „Tilfinning margra viröist þó vera sú að sveitarfélögin séu að ræna Mið- hálendinu frá fólkinu," segir Kristján m.a. Miðhálendið og miðin sjálfstæðisforingi, Sigur- geir Sigurðsson, sinn stærsta pólitíska sigur, eftir 36 ára óslitna setu sem bæjarstjóri á Nes- inu. Af þessu má draga þá ályktun að reynsla er hærra metin en nýja- bmm og að forystumenn framboða þurfa að gefa sér tíma til að sanna sig fyrir kjósendum sínum. Sterk staöa Góð staða Sjálfstæðis- flokksins er einmitt ekki hvað síst þvi að þakka hversu öflugu starfi flokksmenn skila í sveit- arstjómunum og í stafni standa góðir forystu- menn sem njóta trausts, margir eftir langa setu. Úrslitin nú sýna að staða Sálfstæðisflokksins hefúr styrkst um tæp 4% í Reykjaneskjördæmi eða úr 39% fylgi í tæp 43%. í einstöku bæjarfélög- um hefur staðan þó breyst mun meira og stendur þar hæst 11% fylgisaukning flokksins á Seltjarnarnesi og 9% fylg- isaukning í Reykjanes- bæ. Að loknum þessum kosning- um mun Sjálfstæðisflokkurinn stjóma 8 sveitarstjórnum í Reykja- neskjördæmi af 11 þar sem búa um 90% íbúa kjördæmisins. í alþingiskosningunum árið 1995 fékk Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi 39,2% at- Kjallarinn Kristján Pálsson alþingismaður kvæða eða nánast sama fylgi og í sveitarstjórnar- kosningunum árið áður. Ekki er ástæða til að ætla annað en þessi fylgisaukning í sveitarstjómar- kosningum komi fram í alþingis- kosningunum að ári, enda staða Sjáifstæðisflokks- ins á landsvísu sterk samkvæmt könnunum. - Traust forysta Daviðs Oddssonar skiptir þar mestu „Núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfí hefur sannað sig sem öfí- ugt og árangursríkt stjórnkerfí fyrir þjóðarbúið í heild og aukið almenna hagsæld í landinu. Samt virðist tilfínning þjóðarinn- ar sú að hún hafí verið rænd af útgerðarmönnum. “ og hefur honum tekist að fleyta ríkisstjóminni yfir erfiðustu sker- in á kjörtímabilinu án áfalla og þess nutum við í sveitarstjórnar- kosningunum nú. Stærstu málin Á næstu mánuðum er nauðsyn- legt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að skilgreina vel fyrir þjóðinni stöðu þeirra mála sem munu brenna heitast í komandi kosningarbar- áttu. Þar verða tvö mál mest áber- andi, flskveiðistjórnunin og stjóm Miðhálendisins. Báðum þessum málum virðist auðvelt að snúa í andhverfu sína gegn sitjandi ríkis- stjórn og meirihluta Alþingis þó hún hafi góðan málstað að verja. Núverandi fiskveiðstjórnunar- kerfi hefur sannað sig sem öflugt og árangursríkt stjórnkerfi fyrir þjóðarbúið í heild og aukið al- menna hagsæld í landinu. Samt virðist tilfinning þjóðarinnar sú að hún hafi verið rænd af útgerð- armönnum. það sama getur gerst í umræðunni um Miöhálendið. Stjómkerfi sveitarstjóm- anna hefúr sannað sig sem lýðræðislegt og sanngjamt enda þrautreynt. Tilfinning margra virðist þó vera sú að sveitarfélögin séu að ræna Miðhálendinu frá fólkinu. Þetta er sérkenni- leg staða þegar á það er lit- ið að ríkið telst eigandi Mið- hálendisins og mun ráða þar öllu sem máli skiptir. Sjálfstæðisflokkurinn og ríkisstjómin verður að koma þessum málum í ásættanlegan farveg meðal annars með því að skýra sín sjónarmið fyrir þjóðinni og afleiðingar þess- ara beytinga. Takist það verður staða Sjálfstæðisflokksins og ríkis- stjórnarflokkanna beggja sterk fyrir næstu alþingiskosningar. Kristján Pálsson Skoðanir annarra Þjóðarsátt um vesaldóm „Sárast er fátæktin begar kemur að aðhlynningu sjúkra. Ekki er hægt að nýta sjúkrahús né fæmi vel menntaðs starfsfólks vegna þess að ekki eru til pen- ingar í landinu til að reka lögbundna heilbrigðis- þjónustu. Ekki eru efni til að halda starfsfólki í vinnu og sífellt er verið að loka deildum og skerða þjónustu við sjúka og þurfandi. Biðlistar sjúklinga og hrjáðra gamalmenna eftir hjálp og umönnun eru merki um sjúkt samfélag, sem ekki kann að for- gangsraða verkefnum" Oddur Ólafsson í Degi 29. maí. Gott samstarf „Þeir sem eru á móti sameiginlegu framboði stjómarandstöðuflokkanna hafa gjaman bent á að það muni ganga illa að láta hina fornu fjendur í A- flokkunum vinna saman. Það virðist hins vegar vera raunin mjög viða um landið að samstarf fólks í þess- um flokkum hefur gengið mjög vel. Það hefur komið fram sem samstæður hópur í þessum kosningum og hefur unnið vel saman.“ Bryndís Hlöðversdóttir í Degi 29. mai. Skattar eru óæskilegir „Það er þekkt staðreynd að of háir skattar leiða tU minni velmegunar. Það eitt á að vera stjórnmála- mönnum nægjanlegt aðhald til að forðast að leggja á of háa skatta. En skattar em ekki einungis skaðleg- ir fyrir efnahagslega afkomu fólksins. Of háir skatt- ar hafa mjög neikvæð áhrif á möguleika fólks tU að lifa því lifi sem hugur þess stendur tU.“ lllugi Gunnarsson í Mbl. 29. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.