Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 2
16
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 JjV
kvikmyndir
KVIKMYIÍDA
Háskólabíó - A Thousand Acres
Pelíkanadætur 'k'trk
Það vakti
nokkra at-
hygli þegar
fréttist að
kvikmynda
ætti A
Thousand
Acres. Þessi
fræga skáld-
saga Jane
Smiley, sem
hlaut æðstu
verðlaun
bandarískra
bókagagnrýn-
enda og Pulitzerverðlaunin, er endurgerð á harmleik Shakespeares um
Lé konung (meira að segja nöfn aðalpersónanna hafa sömu upphafs-
stafi). Lér afsalar konungdæmi sínu í hendur dætrum og tengdasonum
en lærist ekki að laga sig að breyttri samfélagsstöðu. Harmleikur Lés
snýst meðal annars um að hann telur sig enn konung en þar sem hann
er valdalaus líta flestir til dætra hans.
í Þúsund ekrum segir frá stórbóndanum Larry Cook (Jason Robards)
sem ánafnar dætrum sínum, Ginny, Rose og Caroline (Jessica Lange,
Michelle Pfeiffer og Jennifer Jason Leigh) aleigunni. Þær Ginny og Rose
taka gjöflnni með þökkum en Caroline leyflr sér að efast um réttmæti
ákvörðunarinnar. Larry, sem ekki er vanur því að dómar hans séu
dregnir í efa, kastar henni á dyr. Hann sér þó fljótt eftir ákvörðun sinni
því honum lætur illa að sitja auðum höndum og hann hefur nú glatað
því ægivaldi sem hann hafði yfir dætrum og tengdasonum. í miklu upp-
gjöri heldur hann af bænum óveðursnótt eina og í samráði við yngstu
dóttur sína reynir hann að endurheimta jörðina með hjálp dómstóla.
Barátta Larrys við dætumar snýst ekki aðeins um peninga. Átökin má
rekja til ósagðrar fortíðar allra.
Það er alltaf erfitt að gera vinsælum skáldsögum skil í kvikmynda-
handriti. Margt þarf að fella niður og list aðlagandans felst í að skapa
nýja heild. Þetta tekst Lauru Jones ágætlega framan af en þegar líður á
myndina bregst henni bogalistin. í sögu Smiley eru karlpersónurnar án
efa einfaldari en konumar. Þessi tilhneiging er ýkt upp úr öllu valdi í
kvikmyndahandritinu þar sem karlpersónumar verða að flötum og nei-
kvæðum fulltrúum karlveldisins. Enn vantar ákveðið jafnvægi í þessa
nýju kvikmyndagrein, „kvennamyndina", eins og sést á því hversu
ósannfærandi karlpersónurnar vilja verða.
Leikurinn er ágætur hjá Lange, Pfeiffer og Leigh en sérstaklega ber
að nefna túlkun Robards sem margir telja einn fremsta sviðsleikara
Bandaríkjamanna. Hann er frábær í hlutverki ættföðurins erfiða.
Leikstjóri: Jocelyn Moorhouse. Aðalhlutverk: Michelle Pfeiffer, Jessica
Lange, Jennifer Jason Leigh, Colin Firth, Keith Carradine og Jason
Robards. Guðni Elísson
Kringlubíó - Úr öskunni í eldinn:
Þunnir sveitabrandarar
Tim Allen
hefur slegið í
gegn sem
sjónvarps-
smiðurinn í
Handlögnum
heimilisfoður
og er einn af
fáum sjón-
varpsleikur-
um sem hafa
einnig náð
fótfestu í
kvikmynd-
um. Kirstie
Alley er ekki
síður vinsæl
sjónvarps-
leikkona en hefur ekki náð sömu fótfestu í kvikmyndum og Allen. En
þegar miðað er viö frammistöðu þeirra í Úr öskunni í eldinn (For Richer
or Poorer) ættu þau að halda sig í sjónvarpinu.
í þessari heimskulegu kvikmynd sem er á mörkum þess að vera farsi
leika þau hjón á kafi í lífsgæðakapphlaupinu um leið og þau stunda sam-
kvæmislífið af miklum eldmóði. Þegar myndin hefst hafa þau lifað um
efni fram, auk þess sem endurskoðandi þeirra hefur verið að taka af
þeim peninga sem skatturinn hefði átt að fá. Allt kemst upp og í ljós
kemur að hinn umsvifamikli verktaki skuldar fimm milljónir dollara í
skatt. Hjónin, sem voru um það bil að skilja, leggja því á flótta til þess
að sleppa við handtöku og fangelsisvist og þurfa endilega að lenda hjá
Amish-fólki, sem hefur ekki rafmagn, síma eða sjónvarp. Þau dulbúast
og láta sem þau séu frændi og frænka sem komin eru langt að. Eftir
þetta byggist myndin að miklu leyti á fimmaurabröndurum á kostnað
þess einfalda lífs sem viðgengst í sveitinni þegar miðað er við lífið í há-
hýsum á Manhattan og þær tilraunir hjónanna að ná því til baka sem
þau áttu.
Úr öskunni í eldinni er ein endemis vitleysa frá upphafi til enda þar
sem hver mótsögin rekur aðra. Tim Allen virðist á einhverju egótrippi
þar sem hann er oft á tíðum í mótsögn við persónuna sem hann leikur
og Kirstie Alley, sem alls ekki er skemmtileg leikkona og hefur aldrei
verið, er enn leiðinlegri en Allen. Einstaka aukpersónur standa fyrir
sínu, sérstaklega Wayne Knight í hlutverki endurskoðandans, en þegar
upp er staðið er Úr öskunni í eldinn misheppnuð gamanmynd.
Leikstjóri: Bryan Spicer. Handrit: Jana Howington og Steve Lukanic. Kvik-
myndataka: Buzz Feitshanz. Tónlist: Randy Edelman.
Hilmar Karlsson
Hard Rain, sem Regnboginn og
Sam-bíóin frumsýna í dag, er
spennumynd sem gerist í smábæn-
um Huntington þar sem stanslaust
úrfelli hefur gert það að verkum að
flóð eru í aðsigi. Lögreglustjórinn
(Randy Quaid) og þeir sem alltaf
hafa búið í borginni hafa farið í
gegnum þetta ferli áöur og vita hvað
koma skal og eru gerðar ráðstafanir
til að rfstýra því að þjófar fari á
kreik þegar flóðin ná hámarki. Einn
sem á leið um bæinn er Tom
(Christian Slater) sem er á skotvörð-
um bíl ásamt frænda sínum Charlie
(Ed Ashner). Eru þeir með peninga-
sendingu í bílnum. Bíllinn festist og
þegar þeir ætla að biðja um hjálp í
talstöð er sambandið slitið og áður
en þeir vita af eru þeir um-
kringdir skuggaleg
um mönnum sem
stjórnað er af
Jim (Morgan
Freeman) og er
greinilegt að
Jim veit að
Tom er með
þrjár millj-
ónir doll-
ara í
bílnum.
Auk
þeirra
Christi-
ans Sla-
ters,
Morgans
Freemans, Rabdys Quaids og Ed
Ashner leikur Minnie Driver stórt
hlutverk í myndinni. Leikstjóri er
Mikael Salomon sem lengst af hefur
verðlauna á því sviði. Var það fyrir
Backdraft og The Abyss. Hann er
auk þess þekktur kvikmyndatöku-
maður og meðal afreka hans á því
Christian Slater leikur annaö aöalhlutverkiö
Rain á móti Morgan Freeman.
Hard
starfað sem
brellumeistari
og hefur
tvisvar verið
tilnefndur
til óskars-
sviði má nefna Far and Away, Alwa-
ys, Arachnophobia og Torch Song
Trilogy.
Christian Slater, sem leikur Tom,
er einnig einn af framleiðendum
myndarinnar. Hann hefur mikið
verið í fréttum að undanfórnu
vegna slæmrar hegðunar og
fékk góðfúslega leyfi til að
vera við frumsýningu
Hard Rain áður en
hann færi að afplána
dóm. -HK
Minnie Driver
leikur kvenhetj-
una í Hard Rain.
HHH
Grease á sínum tíma. Nú er komið að nýrri kyn-
slóð að hafa gaman af Grease, og er ekki að efa
að myndin meö sínum saklausa og hreina boð-
skap á eftir að fara vel í unga fólkið. -HK
í tilefni af því að tuttugu ár eru frá
því ein vinsælasta táningamynd alira
tíma, Grease, var frumsýnd hefur verið
flikkað upp á hana og henni verið
dreift í kvikmyndahús um allan heim
og hefur aðsókn verið með miklum
ágætum. Háskólabíó mun taka hana
til sýningar og er vel við hæfi að hún sé
sýnd í sama bíói og á árum áður.
Grease var frumsýnd 1978 og urðu
tekjur af henni 340 milljónir dollara.
Alla tíð síðan hefúr myndin verið mjög
góð söluvara á myndbandamarkaðinum
og eru lögin úr henni orðin sígild. Grease
er upprunalega söngleikur og þess má
geta að hann verður tekinn til sýningar í
sumar í Borgarleikhúsinu.
Aðalpersónumar í Grease heita Danny,
Sandy og Rizzo og í þessum hlutverkum eru
John Travolta, Olivia Newton-John, og Stockard
Channing.
Söngleikurinn varð til árið 1971 og hefúr hann
verið sýndur í 2200 skipti á Broadway. Sá sem
valdi í hlutverkin á sinum tíma var Robert
Stigwood, hinn framkvæmdaglaði Breti sem
alltaf var meö einhver stór verk í gangi. Var
hann búinn að tryggja sér John Travolta í
Grease áður en Saturday Night Fever var frum-
sýnd, en sú mynd geröi Travolta að stórstjömu
í Hollywood. Olivia Newton-John, sem leikur
Sandy, var ein vinsælasta poppsöngkonan á þess
um árum en hafði aidrei leikið í kvikmynd áður.
Þótti hún standa sig með mikilli prýði, eins og raun
ar allir sem léku í myndinni.
Allt ungt fólk sem vildi vera með