Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 10
24 tónlist
** 'A'
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 I l' \.
ísland
-plöturog diskar ———
|| 1(1) Adore
Smashing Pumpkins
t 2 ( - ) Stereo
Páll Óskar & Casino
# 3(2) Nákvæmlega
Skítamórall
| 4(4) Wedding Singer
Úr kvikmynd
$ 5(3) Mezzanine
Massive Attack
| 6(5) Best of
Nick Cave &The Bad Seeds
t 7(19) GlingGló
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfss.
t 8 ( - ) For Ya Mind Vol. 1
Ýmsir flytjendur
It 9 ( - ) Premonition
John Fogerty
t 10 (11) VersionZO
Garbage
4 11(7) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
4 12 ( 6 ) Big Willie Style
Will Smith
t 13(14) Savage Garden
Savage Garden
t 14(17) Experience Hendrix
Jimi Hendrix
4 15 ( 9 ) Blue
Simply Red
4 16 ( 8 ) íslenskir karlmenn
Stuðmenn & Karlakórinn Fóstbr.
4 17 (16) All Saints
All Saints
4 18(12) Pottþóttll
Ýmsir flytjendur
4 19(10) Bulworth
Ur kvikmynd
4 20(15) Moon Safari
Air
London ^
—-........ — lög— -------------------
t 1. ( - ) 3 Lions '98
Baddier & Skinner & The Ligh..
t 2. ( - ) Vindaloo
Fat Les
t 3. ( - ) Got The Feeling
5
4 4. (1 ) C'est La Vie
B*witched
t 5. ( - ) Carnival De Paris
Dario G
t 6. (- ) The Rockafeller Skank
Fatboy Slim
4 7. ( 2 ) Horny
Mousse T Vs Hot 'n' Juicy
t 8. (- ) Life
Des'ree
4 9. ( 3 ) The Boy Is Mine
Brandy & Monica
4 10. ( 5 ) Feel It
The Temporer featuring Maya P..
New York
| 1. (1 ) The Boy Is Mine
Brandy & Monica
t Z ( 3 ) You're Still the One
Shania Twain
4 3. ( 2 ) Too Close
Next
| 4. (4) MyAII
Mariah Carey
| 5. ( 5 ) I Get Lonely
Janet (Feat. Blackstreet)
| 6. ( 6 ) Everybody (Backstreet's Back)
Backstreet Boys
t 7.(12) They Don't Know
Jon B
4 8. ( 7 ) All My Life
K-Ci & Jojo
t 9. (11) Adia
Sarah McLachlan
4 10. ( 8 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
Bretland
—plötur og diskar—
Ít 1. (-) TheGoodWillOut
The Embrace
4 Z ( 1 ) Blue
Simply Red
| 3. ( 3 ) Talk On Corners
The Corrs
4 4. ( 2 ) When We Were The New Boys
Rod Stewart
4 5. ( 4 ) Where We Belong
Boyzone
| 6. ( 6 ) Life Thru a Lens
Robbie Williams
t 7. (12) Left Of The Middle
Natalie Imbruglia
$ 8. ( 8 ) All Saints
All Saints
4 9. ( 7 ) Urban Hymns
The Verve
) 10. (10) Intemational Velvet
Catatonia
Bandaríkin
— plötur og diskar —
t 1. (- ) MP Da Last Don
Master P
t Z (- ) Adore
Tho Smashing Pumpkins
I 4 3. (1 ) City of Angols
Ur kvikmynd
t 4. ( 2 ) Godzilla
Úr kvikrnynd
t 5. (15) Hope Floats
Úr kvikmynd
t 6. ( 3 ) It's Dark and Hell Is Hot
DMX
4 7. ( 5 ) Backstreet Boys
Backstreet Boys
t 8. (- ) lf You See Him
Reba McEntire
t 9. ( 4 ) The Limited Sories
Garth Brooks
t10. (- ) Shut 'Em Down
Onyx
„Þaö er kalt á toppnum og langt niður!“
„Eldri kynslóðin heldur alltaf að við séum þrettán ára eða eitthvað, en við
erum alveg háaldraðir."
q y
Sölvi Blöndal úr Quarashi er í
viðtali og gleypir í sig spæld egg
um leið, enda í mat.
Er Quarashi fuU vinna?
„Já. Við erum tveir sem erum
bara í Quarashi en Höskuldur er í
hálfri vinnu í fatabúð. Það veit í
rauninni enginn hvar Steini held-
ur sig, hann skýtur upp kollinum
af og tH en ég er farinn að undir-
búa næstu plötu.“
Á hún að koma út fyrir jólin?
„Nei, hún kemur bara þegar
hún er tHbúin og það verður ekki
fyrir jól. Ég er ekki nógu góður
fyrir íslenska hugsunarháttinn að
það þurfi aUtaf að gera plötu fyrir
hver jól. Ég tek svo mikinn tíma,
ég er svo mikiU snigiU, er ógeðs-
lega lengi að gera lög, er aldrei
ánægður. Ég var eitt og hálft ár að
semja síðustu plötu og svo fóru
þrír mánuðir i að taka upp radd-
imar.“
Fullkomnunarárátta?
„Eitthvað svoleiðis eða að ég er
aldrei ánægður. Þegar ég verð
ánægður þá hætti ég bara. Þá hef
ég ekkert lengur að gera í þessu.
Ég hef mikla trú á þessum snigla-
vinnubrögðum."
Sölvi stundar sína tónlist í Quar-
ashi-hljóðverinu með sampler,
hljómborð, ýmis tæki og tól og
stóra tölvu. Hann hefur þó reynslu
af hefðbundnari hljómsveitar-
vinnubrögðum, trommaði með
2001 og Stjömukisa. „Ég prófaði
þann pakka í nokkur ár. Það hafði
sína kosti, gaman að fara á koju-
fyUirí á æfingum, en þar fyrir utan
kom aldrei neitt gott út úr þessu.“
Alltof mikið lýðræði í gangi?
„Nei, ég held að það hafi ekki
verið meinið. Frekar að enginn
einstaklingur í bandinu var með
einhverja heUdarmynd i höfðinu
um það hvemig þetta ætti að vera.
Það vom bara aUir að taka sóló,
allir að reyna að vera stjaman.
Það er svo sem gaman að vera í
hljómsveit, en ég varð að hætta
þegar Quarashi varð aðalmálið. Ég
hafði verið að undirbúa Quarashi i
eitt ár áður en „Switchtance“ kom
út. Þetta átti svo sem aldrei að
verða neitt, bara hobbí, því ég ætl-
aði í Háskólann, þetta átti bara að
vera svona með. Ég stefni eiginlega
enn þá á að fara í Háskólann,
nenni ekki að vera í þessu helvítis
poppi. Þetta er bara rugl, þetta er
bara fyllirí. Nei, ég segi bara
svona.“
Lög sem fólki finnst
skemmtileg
Hvemig starfar bandið? Þú
hangir í tölvunni og gerir lag, ,já
og þeir fá það á kassettu. Semja
textann, koma í stúdíóið, ég tek
upp og pródúsera. Þannig hefur
þetta alltaf gengið fyrir sig, það er
mjög skýrt. Svo emm við líka með
DJ.“
Já, er ekki kominn nýr snúð-
ur í bandið?
„Jú, hann heitir DJ Dice, eða
Bjössi úr Versló, en það er meira
kúl að kalla sig Dice. Hann er
sannur Quarashi-bróðir."
Hvað varð um gamla DJ-bróð-
urinn?
„Hann hvarf tU annarra starfa,
sem ég veit ekki hver eru.“
Ég reyni að pumpa Sölva með
nýja efnið. „Það er komið búnt af
hugmyndum, en ég get ekki slegið
á það hvað þetta eru mörg lög,
kannski svona fimm ný lög á loka-
stigi. Fyrir næstu plötu verða sam-
in það mörg lög að það verður
hægt að velja úr, eða gerð tvöföld
plata ef fólki finnst aUt nógu
skemmtilegt. Aðalmarkmið Qu-
arashi er að gera lög sem fólki
finnast skemmtUeg. í alvöru talað.
Lög sem lætur fólki líða vel. Ég sé
ekki tUganginn í einhveiju þung-
lyndispoppi. Það er gott að gera
skemmtUeg lög og skemmtUeg lög
þurfa ekki að vera eitthvað sveita-
baUapopp."
Sölvi byijar fyrst að stama þeg-
ar hann er spurður út í sveitaböU-
in sem þeir hafa verið að taka með
S.S.Sól. Eitt var í Miðgarði fyrir
viku og annað kvöld er ball í
Njálsbúð. „Quarashi hefur aldrei
stefnt á að spUa á sveitaböUum, en
okkur var boðið það og við áváð-
um að tékka á því. BaUið í Mið-
garði kom mér skemmtUega á
óvart því krakkarnir gjörþekktu
lögin. Ég ætlaði ekki að ná mér
fyrir undrun. Við skemmtum okk-
ur konunglega, það var geðbUað
að sjá 600 blindfuUa sveitakrakka
diUa sér við „Switchtance", eitt-
hvert hard core rapp. Við ætlum
ekkert að túra í sumar, en tökum
kannski nokkur böU ef tími gefst.
En ef það þvælist eitthvað fyrir
minni stúdíóvinnu þá sleppum við
því bara, sama hvaða peningar eru
í boði. Stúdíóvinnan kemur fyrst.“
Quarashi alltaf númer
eitt
Á „Kvistum", væntanlegri safn-
plötu á Quarashi lagið „Mr. Jinx“:
„Þetta var ósungið á plötunni en
nú er rappað oná. Mjög flott. Svo
eru komnar þrjár vinyl-plötur með
Quarashi, ein sem er alveg ófáan-
leg og tvær sem við sitjum á. Það
eru lög af plötunni og óútgefin lög,
þ.á m. eitt sem er það allra fyrsta
sem Quarashi gerði. Þá vorum ég
og Hössi ekki búnir að kynnast
Steina. Við vorum að prófa okkur
áfram með hard core rapp, mjög
áhugavert. Það getur verið að við
látum þetta frá okkur á næstunni,
nokkur eintök í einhverjar plötu-
búðir. Það má reyndar lesa aUt um
þetta á heimasíðunni okkar sem er
nýopnuð - this.is/quarashi - ég
hvet aUa tU að kíkja þangað."
Segðu okkur frá Prodigy-mix-
inu.
„Ég hitti Liam þegar þeir komu
hingað síðast og það tókst ágætur
kunningsskapur með okkur. Hann
var yfir sig hrifinn af bandinu og
plötunni - virkUega hrifinn, og
þeir aUir reyndar. Tveim, þrem
vikum síðar hringdi gaur frá XL,
hljómplötufyrirtækinu þeirra, og
sagði að Liam vUdi að ég rímixaði
„Diesel Power“. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég kynntist því að
vinna undir þessum Stasi-njósna-
sampl aga, því þetta er auðvitað
Prodigy og það má ekki sampla
hverju sem er, ekki eins og á
gömlu góðu dögunum þegar var
minna pælt í höfundarréttarhlið-
inni.“
Hvemig mix gerðirðu?
„Þetta er bara rokk og ról, mjög
hard core og í svipaða átt og Qu-
arashi stefnir."
Hvar kemur þetta út?
„Ég veit það ekki, þetta kemur
allavega í bíómyndasándtrakki
þar sem Prodigy á lög. Ég þarf að
tékka betur á því. Miðað við að
þetta eru súperstjörnur fannst mér
nokkuð fyndið að þeir skyldu
grafa okkur upp og gefa séns. Þeir
filuðu okkur rosalega vel og sögðu
það við okkur. Það er auðvitað frá-
bær tUvUjun því Prodigy - sér-
stakiega Liam sem prógrammer -
hefur verið ein af uppáhaldshljóm-
sveitunum mínum í mörg ár. Fólk
er upptekið við að líkja okkur við
Beastie Boys, en viU gleyma því að
það eru sterk áhrif frá Prodigy og
Chemical Brothers líka.“
Eru fleiri rímix á borðinu?
„Það er spurning hvað maður
hefur mikinn tíma, því Quarashi
er aUtaf númer eitt. Mig langar tU
að gera eitthvað með hljómsveit-
inni Spitsign, lítið rokkband með
flottum strákum sem eru með aUt
á hreinu. Það kemur í ljós hvort
þaö verður tími til þess.“
Einhver ný tónlist sem þú hef-
ur verið að fíla upp á síðkastið?
„Það er dálitið hallærislegt að
segja frá því en ég féU alveg fyrir
tónlistinni sem PhUip Glass gerði
fyrir myndina „Kundun". Ég hef
verið að hlusta mikið á sándtrökk
og mikið af seventís fonki líka, það
er auðvitað grunnurinn að þessu
öUu. Svo datt ég inn á rappara,
sem ég hélt ég myndi aldrei fíla,
Puff Daddy. Ég hef lært að meta
hann, ftnnst hann alveg briUjant
rappari með góðar hugmyndir."
Sannir aðdáendur bíða
bara
„Það er kalt á toppnum og langt
niður,“ segir Sölvi aðspurður um
stöðu sveitarinnar á íslandi. „Það
er ekkert mont að segja að við
séum vinsælasta hljómsveit lands-
ins. Við erum það. Eldri kynslóðin
heldur aUtaf að við séum þrettán
ára eða eitthvað, en við erum al-
veg háaldraðir."
Er þá ekki takmarkið að
halda vinsældunum og gera
plötu á þessu ári?
„Ég segi nei við því. Það væri
ekkert mál að gera ágæta plötu, en
næsta verður bara að vera betri en
síðasta plata. Það er aðalmálið.
Siðasta plata var helvíti góð en ég
gef ekki út plötu nema hún verði
betri, þá er betra að sleppa því. Að
gera plötu bara tU að selja önnur
sex þúsund eintök, ég nenni því
ekki, frekar fæ ég mér vinnu í
sjoppu."
Ertu ekki hræddur um aö fólk
gleymi Quarashi?
„Ef þetta eru sannir aðdáendur
þá gleyma þeir ekki. Þá bíða þeir
bara.“ -glh