Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 3
g f n i
meömæl i
9. október 1998 f ÓkUS
Grímaldin er
sonur Megasar
Trúbador
eins og
pabbinn 4
{ '*
Umbúðagagnrýni
Guðmundar Odds:
Staurinn er póst-
módernísk klisja
Jónas um Carpe Diem
Tilviljanakennt 6
>
i
South Park-teiknimyndaþættirnir á Sýn á
mánudagskvöldum eru svo æðislegir aö
það er glæpur gegn mannkyninu aö horfa
ekki á þá. Húmorinn er svartari og svalari
en maður á að venjast þótt áhrifa gæti frá
Simpsons-fjölskyldunni. Fjórir strákar rata
í alls kyns heimskuleg ævintýri og inn í
þau blandast hinir fullorðnu, t.d. mötu-
neytiskokkurinn, sem gamli fönkarinn. Isa-
ac Hayes talar fyrir. Pípandi snilld.
MH Norðurkjallarl í kvöld. •':W
Skáldiö sem öskrar, Ron -Jf
Whitehead, er mætt til
landsins ásamt Frank té
Mesina. Lætin byrja
klukkan níu og standa in*
fram til miðnættis. Öruggt að allir sem
mæta munu upplifa eitthvað alveg nýtt.
Whitehead er flottasti bítnikarinn og á
heiðurinn af endurreisn menningarinnar.
Spjallið á vlslr.ls I
dag kl 16-17.
Fyndnasti maður á
Islandi, Sveinn
Waage, spjallar og
reytir af sér
brandara.
irnir færa
leikhúsið heim
„Þetta byrjaði þegar við Halldóra
vorum í Leiklistarskólanum, við
vorum saman í bekk og unnum
þetta spunaverkefni á lokaárinu
okkar,“ segir Bergur Þór Ingólfs-
son leikari. „Síðan þá hafa trúðam-
ir verið að poppa upp hér og þar,
sundur og saman. En nú hafa þeir
fengið tækifæri til að spreyta sig á
eigin sýningu."
Hverjir standa fyrir sýningunni?
„Leikhús-heimsendingarþjónusta
í samvinnu við Kaffileikhúsið og
í
W'
'4 / í
Egil Ingibergsson, ljósa- og hljóð-
stjóra. Við Halldóra Geirharðs-
dóttir stofnuðum þetta leikhús,
Leikhús-heimsendingarþjónustu,
fyrir ái'i. Þetta er upphaflega hugsað
sem heimsendingarþjónusta. Það
dæmi er að vísu ekki komið í gang
en i náinni framtíð er stefnt að því
að heimsenda leikhús. Þá verður
hægt að kaupa allt frá félagsskap við
uppvaskið að kammerverki. Leik-
húsið okkar á að vera bara svona
eins og hver önnur pitsa sem maður
pantar.“
Frumsýning í kaffileikhúsinu á
sunnudag? Er ekki veriö aö œfa á
fullu?
„Nei, þetta er ekki æft sem slíkt
heldur undirbúum við Halldóra sýn-
inguna. Við ákveðum efni og efnis-
tök en ætlum okkur annars bara að
leyfa Barböra og Úlfari að taka völd-
in og frá okkur séð munu þau örugg-
lega klúðra því sem við höfum
ákveðið. Því þessir trúðar eru ein-
staklingar og lifa sjálfstæðu lífi. Og
við hleypum þeim svó út á sunnu-
daginn, óritskoðuðum að sjálf-
sögðu.“
En hvað er svona í gangi hjá þér
annaö?
„Ég er að æfa farsann Tveir
tvöfaldir sem verður frumsýndur
í Þjóðleikhúsinu einhvern tíma í
nóvember. Það er ekki alveg komið
á hreint. Svo er ég að skrifa og leik-
stýra hjá áhugaleikfélaginu La-gó í
Grindavík ásamt því að poppa ann-
að slagíðf úþpí .Leikhúsporti Iðnó.“
■.•Plf-i'í -MT
Hvar er þín fornaidarfrægð? Hvar er frelsi og
manndáðin mest? Hvar er popparinn Geiri Sæm?
Ekki fór lítið fyrir opnun klassa-
staðarins Rex á laugardaginn var.
Hönnuður staðarins var í bænum,
brjálaðar kynningar, opnunarpartí og
staðurinn strax orðinn sá flottasti í
bænum. Það sem meira er að yfir-
kokkurinn er enginn annar en tónlist-
armaðurinn Geiri Sæm sem lítið hef-
ur heyrst frá á undangengnum árum.
Er brjálaö að gera?
„Já, þetta er að fara virkilega vel af
stað.“
Hvernig mat vilja gestir Rex?
„Þetta er létt lína sem við erum
með. Fusion-eldhús þar sem áhrifin
eru héðan og þaðan. En við göngum
út frá öllu sem er létt. Erum ekki í
þungum eða rauðum steikum í hveiti-
eða rjómasósu. Reynum frekar að ein-
beita okkur að kjúklingi, pasta,
rizotto, fiski, grænmeti og uppsetn-
ingin er í einfaldari kantinum en um
leið frekar funky með mikilli lita-
gleði."
Hyer er staöan í tónlistinni?
„Ég er nú bara svona að vinna á
bak við tjöldin. Hef verið í samvinnu
við Saga film og Nýja bíó og samið á
þeirra vegum tónlist við auglýsing-
ar, heimildarmyndir og sjónvarps-
þætti. Svo er ég eitthvað að dunda
mér með Styrmi Sigurðssyni kvik-
myndagerðarmanni. Við erum
komnir með allsæmilegan lager af
músík en erum ekkert búnir að gera
það upp við okkur hvað verður. Ég
sé samt ekki alveg fyrir mér að gefa
út geisladisk en það gæti verið að
við sendum frá okkur eitt, tvö lög á
næstunni."
Það er því bara að bíða og sjá
hvað verður. En þangað til er hægt
að lofa því að enginn verður svikinn
af matreiðslu Geira Sæm á Rex í
Austurstræti.
TVúðarnir Barbara og Úlfar eru til alls vísir. Þetta eru andar sem taka sér
bólfestu í líkömum Bergs Þórs Ingólfssonar og Halldóru Geirharðsdóttur.
Þossi á X-inu:
Danstónlistin dó
þegar dópið hvarf 7
Bráðsmellnar slysfarir
Drengurinn sem
pumpaði sig í hel 8
Aldursmunur
elskenda í bíó
Yngismeyjar
krækja í
karlfauska 9
Forsíðumyndina tók
Pjetur af Þossa á X-inu
Eltt allra flottasta bakarí á landlnu er
Mosfellsbakari viö Urðarholt. Þar fæst fá-
dæma girnilegt kruðerí og Ijúffeng brauð.
Staðsetning og útlit er framandi (nema fyr-
ir Mosfellinga auðvitað) og nánast eins og
maður sé kominn til útlanda, eða kannski
bara orðinn þátttakandi í Húsinu á slétt-
unni. Boðið er upp á fyrirtaks kaffiað-
stöðu, en enn betra er að fara með bakst-
urinn að Esjurótum og nota Esjuna sem
matarborð. Það þarf ekki alltaf að vera
dýrt að fara rómantískt út að borða.
Foreldrar, farið með börnin á
Sögusvuntuna uppi í Gerðu-
bergi á sunnudag klukkan
tvö. Allt niður í eins árs börn
mega mæta og fínt aö venja börnin
við ieikhús strax. Þetta er að vísu frumsýn-
ing og verkið gæti verið virkilega leiðinlegt
en börnin verða líka að venjast vondu leik-
húsi.
Hvað er að gerast?
Fyrir börnin...................4
Klassík........................6
Veitingahús ....................6
Leikhús .......................8
Popp..........................11
Myndlist......................14
Sjónvarp...................15-18
Bíó...........................20
Hverjir voru hvar.............22
Fókus
fylgir DV á
föstudögum
Islendingar í útlöndum
Um allan heim
að gera það gott
Hallgrímur Helgason
Dagbók Keikós 19
Hið fullkomna morð
Milljónamæringur
vill kála konunni 20
Natasha
Henstridge
Hasar-
kroppur
af öðrum
heimi 21
Party Zone
Á gráu svæði
í leik og starfi 22
Lauryn Hill
Herrann
ber
3