Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 14
0 §U]3 Carson vakti fyrst athygli fyrir ævintýra- legt útlit brimbretta-blaösins The Beach Culture. Síðar sá hann um útlit Ray Gun, sem varö viö það sama mikið tískublað. stauta sig eftir heldur sem hráefni til að skapa síðuna. Ljósmyndir, teikningar, krot, tákn - jafnvel prentklessur og skítur - fá sömu meðferð. Ekkert virðist hafa neitt gildi í sjálfu sér, aðeins notagildi fyrir expressioníska heildarmynd sem Carson vill ná fram. Hann er þvi nokkurs konar Pollock hönnuðanna. Og eins og Pollock hefur hann ekki grænan grun um hvað þessi heildarmynd er að segja eða meina. Hún bara virkar. Þetta er einmitt ein af helstu kenningum Car- sons í hönnun, að fólk eigi ekki að spyrja sig af hverju þessi mynd sé þama en ekki hérna eða hvers vegna þessi stafur svona stór eða lítill. Ef fólki finnst að síðan gangi upp eins og hún er þá er hún eins og hún á að vera. Það þarf ekki að rökstyðja það frekar. Ef fólk vill sannfæra sig með orðum um að það sé að gera rétt festist það í einhverjum klisj- um og bulli. Ráðið er því að þegja og gera; mér finnst þetta ganga upp af því að mér finnst þetta ganga upp. Punktur. Carson er kominn til íslands og ætlar að halda fyrirlestur í Há- skólabíói á föstudaginn og um helgina tekur hann 25 íslenska hönnuði í læri. Það komust færri að en vildi á námskeiðið en nem- endafiöldinn var takmarkaður. Reyndar eru íslendingar ekki alveg ókunnugir hönnun Car- sons. Fyrir n o k k r u m ámm var am- eríska blaðið Ray Gun í nokkurri tísku hér en það var helsti vett- vangur Car- sons lengi vel. Nú er hann hættur og blaðið vart svipur hjá sjón, eftirmenn hans reyna að éta upp eftir honum helstu stælana en skortir stílinn. Áhrifa Carsons gætti einnig nokkuð í „0“ (lesist: Núllið) sem Mál og menning gaf út fyrir nokkrum árum en ekki síður í flestu sem Eiður og Einar Snorrar sendu frá sér, til dæmis Extrablaðið. Það er Guðbjörg Gissurardótt- ir hönnuður sem tók upp á því að flytja Carson til landsins. Hún fór á fyrirlestur hjá honum í Banda- ríkjunum og spurði hvort hann væri til í að koma til íslands. Hann sagði okay og er kominn. Engar útskýringar. f Ó k U S 9. október 1998 Þessir 25 ættu hins vegar að geta breitt eitthvað út af viðhorfum Carsons. Ekki veitir af eftir íhaldssama hönnun undangeng- inna kreppuára. David Carson er umdeildur - hönnuður. Hann gerir allt vitlaust og brýtur allar reglur, sjálfsagt vegna þess að hann hefúr aldrei innbyrt nein fræði eða kenningar um hönnun. Hann er félagsfræð- ingur og brimbrettafrík sem tók að sér að sjá um útlit á litlu brim- blaði sem gefið var út í Los Angel- es fyrir rúmum áratug eða svo. En þrátt fyrir að hann vissi ekkert um hönnun - eða líkast til vegna þess - sneri hann öllu á haus, braut allar reglur og skapaði eitt- hvað ótrúlega nýtt. Síðan þá hefur hann hannað allt mögulegt; tíma- rit, pakkningar, auglýsingar. En þrátt fyrir mikla velgengni er hann enn umdeildur, bæði vegna þess að hann er utangarðsmaður - ómenntaður plebbi innan um há- menntaða hönnuði með skotheld- an smekk - en einnig vegna þess að fólk getur átt æði erfitt með að lesa blöðin sem hann hannar enda hefur verið sagt um hönnun hans að hún sé svanasöngur hinnar deyjandi prenttækni. Hann smyr letrinu á blaðsíðumar eins og málari olíu á dúk, hann virðist ekki líta á það sem tákn til að Uppboð Galleri Fold stendur fyrir llstaverkauppboðl á Hótel Sögu á sunnudagskvöldið og hefst það kl. 20.30. Meöal verkanna eru að sjálfsögðu nokkur eftir hina svokölluðu gömlu meistara. Opnanir Gallerí Borg. Þorstelnn Helgason opnaði í gærkvöldi sýningu á 20 verkum, öllum unnum með olíulitum á striga. Galleriiö er opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16. Gallerí Geyslr, Hinu Húsinu viö Ingólfstorg. Úðarafélaglð í Reykjavík opnar sýningu á laugardaginn kl. 16 og sýnir þar og sannar að úðaþrúsinn er pensill næstu aldar. Sýningin er opin mánudega til fimmtudaga frá kl. 8-23, föstudaga 8-19 og um helgar frá kl. 13- 18. Gangurlnn, Rekagranda 8. Listamaðurinn Charly Banana/Ralf Johannes sýnir verk sem samanstendur af 50 Ijósmyndum. Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar. Á laugardaginn kl. 16 verður opnuð sýning á verkum norska listamannsins Terje Rlsbergs. Ustasafn ASÍ. Á morgun verða opnaðar tvær sýningar í safninu kl. 14. í Ásmundarsal sýn- ir Inga Þórey Jóhannsdóttlr verk sín en I Gryfjunni Ólöf Erla Bjarnadóttlr. Opiö er frá 14- 18 alla daga nema mánudaga. Gallerí Nema hvaðl, Skólavörðustíg 22 c. I dag opna Ragnhelður Tryggvadóttlr og Már Örlygsson sýningu. Sýningin er opin flmmtu- daga til sunnudaga frá 14-18. Ustakot, Laugavegi 70. Inga Rún sýnir keramísk verk. Á sýningunni eru einnig mál- verk eftir föður hennar, Hörö Ingólfsson. Sýn- ingin er opin mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga og sunnudaga kl. 11-16. Kafflhús Súflstans í j húsi Máls og menn- ingar við Laugaveg. I Opnuö hefur verið j sýning á dagbókar- færslum í tengslum við Dag dagbókar- Innar. Meöal þeirra j sem leyfa fólki að I kíkja í bækurnar sín- ar eru Thor Vllhjálmsson, Hallgrimur Helga- son, Auður Jónsdóttlr, Ragna Garðarsdóttlr, Slgrún Slgurðardóttlr og Svanur Krlstbergs- son. Sýningin er opin á sama tima og kaffi- húsiö, frá kl. 9-22. Imeira á. I www.visir.is frarnan siö Það er ekkert óalgengt að hljóm- sveitir og tónlistarmenn sem mað- ur hefur aldrei heyrt minnst á áður dúkki upp og gefi út plötu. Sjaldgæft er þó að þær séu jafn- vandaðar og góðar og fyrsta plata hljómsveitarinnar Lo-Fi, sem gaf út geislaplötuna „Nano“ fyrir stuttu. Lo-Fi kennir sig við tripp hopp og Friðgeir Eyjólfsson er heilinn á bak við nafhið. Þó hann vinni hjá Landflutningum neitar hann alfarið að leyfa mér að segja að hann sé verkamaður sem poppi á kvöldin og segir að hann sé nú meira svona tölvukarl. „Maður var alltaf að reyna að setja saman hljómsveit, en það var alltaf eitthvað sem klikkaði,“ segir hann. „Ég er gítarleikari að upp- lagi og átti einhverja fimm gítara, en þegar ég fór í heimsókn til vin- ar míns og sá tölvu og samplersá ég framtíðina. Þetta var lausnin og ég seldi alla gítarana um leið, nema þann lélegasta, og keypti mér tölvu. Það eru svona þrjú, fiög- ur ár síðan.“ Með nýju tólin fór Friðgeir að semja, og semur öll lög og texta á Nano. „Ef ég ætti að lýsa hljómsveit- inni Lo-Fi þá eru eiginlega þrjú el- ement í gangi hjá mér; gaur með gítar, sá sem semur ljóðin og svo er það síðasti hlutinn, tölvukarl- inn, sá sem útsetur tónlistina. En ég fékk gott fólk með mér til að spila og syngja á plötunni, t.d. þrjár söngkonur og þrjá gítarleika sem aðstoða mig. Ég er mjög dipló svo það fengu allir að njóta sín.“ Hvaöa fólk er þetta - eitthvaö sem maður á aö þekkja úr bransanum? „Varla. Mæsí, eða Gulla, er kisulóra; stelpa sem er að læra hjá rússneskum söngkennara héma í bænum - virkilega góð og gott að vinna með henni. Flestir koma fram undir dulnefni. Hlemm spilar t.d. á gítar.“ Hvernig myndiröu lýsa tónlist- inni? „Þetta er einhvers konar fram- tíðartónlist. Það er sama upplagið í lögumnn en samt eru þau ólík, oft á tíðum ævintýrakennd - þetta er mjög dökk og hæg tónlist, kannski gæti ég sagt að þetta sé valíum- Popp.“ Sándiö minnir mig t.d. á Portis- head. „Já, ég er mikill Portishead-aðdá- andi og fila tripp hoppið, Tricky og þessa karla. Maður hefur verið að tala við helling af fólki og það koma allir með sína sýn á plötuna, emn líkti þessu t.d. við Tom Waits sem ég skil ekki alveg. Maður verður auðvitað fyrir áhrifúm af öllu sem maður heyrir og sér, t.d. af bíómynd- um. Stundum held ég að ég hafi horft aðeins of mikið á Star Trek.“ Reyndirðu aö fá útgefanda áöur en þú gafst plötuna út sjálfur? „í raun og veru ekki. Diskurinn átti bara að koma út í hundrað ein- tökum en bróðir minn sem var milligöngumaður í Þýskalandi misskildi mig eitthvað og gerði þúsund. Þetta átti bara að vera lít- ið, færri lög, en svo vafði þetta upp á sig. Maður lærir helling á þessu og verður alltaf reynslunni ríkari, hvað svo sem kemur út úr þessu.“ Hvaö er svo fram undan? „Ég ætla að gera video um helg- ina við lagið „Bad Taste“ og svo er jafnvel hugmynd að gera video við alla plötuna, eitthvað súrrealískt. Friðgeir Eyjóifsson er heilinn á bak við Lo-Fi, tripp hopp-sveit sem sendi frá sér disk upp úr þurru um daginn, þrælgóðan og vandaðan. Friðgeir er verkari hjá Land- flutningum á daginn. Hann poppar bara á kvöldin og um helgar. Ég ætla að gera músík við sýningu vinar míns. Hann heitir Bjami og verður með sýningu í febrúar. Hann hefur verið að gera verk úr ljósum, ryksugum og alls konar dóti og ég ætla að gera ambient- tónlist við sýninguna. I raun er ég svo búinn að semja næstu plötu, sem verður meira popp. En maður þarf alltaf að bíða og það er bara heilbrigt að liggja yfir hlutunum.“ Hvaö meö tónleika? „Það verður ekki fyrr en næsta sumar. Krakkamir sem voru með mér í þessu eru allir komnir út um hvippinn og hvappinn, þetta eru jú níu manns og erfitt að ná þeim öll- um saman.“ Er ekki hœtta á aö tölvutónlist úreldist um leiö og þaö koma betri grœjur? „Það eru náttúrlega alltaf ein- hver tískusánd sem verða gömul, en svo eru auðvitað sígild sánd líka, sem lifa. Ég er annars mikill kassagítarkarl og sem þetta allt þannig, í nærbuxunum með kassagítarinn fyrir framan sjón- varpið. Ég hef annars verið að pæla i tímaleysinu og hvemig sé hægt að gera tímalausa tónlist." Er þetta ekki bara spurning um góö lög? „Jú, líklega. Þetta hljómar oft helvíti vel bara á kassagítar. En svo er maður með tölvu og hefur alla möguleikana. Umgjörðin getur verið svo margvísleg. Með tölv- unni getur maður prófað allar hlið- ar. Það era allir með skoðanir á því hvemig tónlistin er; fólk kem- ur til mín og segir: þetta er alltof hægt, alltof hratt eða eitthvað, en maður getur bara verið trúr sjálf- um sér. Það er í raun ekki hægt að gera tónlist fyrir aðra. Ef þú ferð að gera það er þetta ekki tónlist lengur. Þá geturðu alveg eins farið að búa til blómvendi fyrir fólk.“ -glh Fyrir rúmum áratug rak hönnuði í rogastans yfir hundakúnstum Davids Cai brimbrettakappa sem fyrir hálfgerða slysni tók að sér að hanna útlit á tímai Má þetta? spurðu hinir settlegu hönnuðir. Síðan þá hafa áhrif Carsons út um allt, meira að segja hingað upp á skerið. Hann er nú sjálfur ma og ætlar að kenna íslendingum að bijóta allar reglur í hönnun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.