Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 21
Natasha Henstridge, sem leik- ur Evu í Species II, lék I fyrstu kvikmynd sinni fyrir þremur árum þegar hún lék Sil í Species. Hinar miklu vinsældir Species gerðu það að verkum að hún fékk mörg tilboð í kjölfarið og lék því næst í Maximum Risk á móti Jean-Claude Van Damme. Species II er þriðja kvikmyndin sem hún leikur í og hefur verið sýnd almenningi. Þar með er ekki sagt að hún hafi verið aðgerðalaus í millitíðinni, fjórar kvikmyndir með henni eiga eftir að koma fyrir augu almennings, gamanmyndin Dog Park, Kids in the Hall, þar sem Janeane Garofolo leikur á móti henni, Standoff, þar sem mót- leikarar hennar eru Robert Sean Leonard og Keith Carrdine, Bela Donna, dramatísk mynd sem ger- ist í Brasilíu, og It Had to Be You, rómantísk mynd sem gerist í New York en stutt er síðan tökiun á þeirri mynd lauk. Natasha Henstridge er fædd á Nýja-Sjálandi en ólst upp hjá for- eldrum sínum í Alberta-fylki í Kanada. Leið hennar í kvikmynd- imar lá í gegnum tískuheiminn sem hún hefur nú sagt skilið við. Henstridge sagöi nýlega í viðtali að þótt hún hefði orðið þekkt fyrir leik sinn í Species þá liti hún ekki á það hlutverk sem neinn stökkpall enda hefði það ekki krafist neins af henni sem leikkonu. Hún hafði aft- ur á móti búist við meiru i Mamimum Risk: „Sú reynsla að leika á móti Jean-Claude Van Damme olli mér nokkrum von- brigðum. Það kom fljótt í ljós að hann hafði í raun engan áhuga á öðru en að myndin fengi góða að- sókn, allt annað skipti engu máli. Atriðin voru tekin upp með það fyrir augum hvað félli áhorfendum best í geð. Þetta gerði það að verk- um að við sem einhvem metnað höfðum misstum áhugann." Nú verður dálítil bið á að Natasha Henstridge leiki í kvik- mynd því hún er ófrísk og hefur ákveðið að taka sér góða hvíld. -HK Laugarásbíó framsýnir í dag Species II, framhaldsmynd óvænts smells frá jþví fyrir tveimur áram, þar sem Natasha Henstridge glímir við Michael Madsen Skorkvikindi Regnboginn Phantoms Phantoms inniheldur mikiö af mögnuðum senum og sitúasjónum sem gera hana bara nokkuð eftirminniiega. Það er fátt sem kemur á óvart, en hér er unnið vel úr gömlum tuggum, og með vel völdum og ágæt- um leikurum má vel hrylla sig (ánægjulega) yfir þessari. -úd The X-files ★★ Einhvern veginn þýddust ráðgát- urnar illa á stóra tjaldið. Þarna er sannleikann bak við þættina að finna, en það er eins og að- standendur hafi aldrei almennilega getaö gert upp við sig hvort gera skuli langan sjónvarps- þátt eða bíómynd. David Duchovny sýnir enn og sannar aö hann er og verður aldrei annað en þriðja flokks sjónvarpsleikari, meðan Gillian Anderson ber breiðtjaldið betur. -úd í konugæru sigað á illa innrættan geimfara Geimhrollvekjan Species, sem sýnd var fyrir tæpum tveimur árum, átti miklum vinsældum að fagna. Þegar klingir í dollurum eiga framleiðendur í Hollywood erfitt með sig og fyrst þeir gátu endurvakið Ripley frá dauðum í fjórðu Alien-myndinni þá var ekki mikið mál að endurvekja Sil, hálfa konu, hálfa ófreskju, eða gera eft- irmynd hennar eins og raunin er í Species II sem Laugarásbíó frumsýnir í dag. Hin glæsilega leikkona, Natasha Henstridge, er aftur mætt til leiks í hlutverki Evu sem er í útliti kvenmaður af fullkomn- ustu gerð en að innan frekar í ætt við skorkvikindi og, það sem verst er, hennar innra dýr getur þegar minnst varir tekið völdin af henn- ar ytri manni. í Species II er hún þó á mála hjá jarðarbúum við að eyða hættulegum óvini sem kemst tU jarðarinnar í líkama geimfar- ans Patricks Ross, sem þar að auki er sonur öldungadeildarþing- manns. Það kemur í hlut dr. Lauru Baker að affrysta gen sem bæði geta verið hættuleg en einnig gagnleg og búa til úr þeim mannveru sem getur unnið á hin- um hættulega óvini og þannig verður Eva til. Auk Natöshu Henstridge leika í myndinni Michael Madsen og Marg Helgenberger sem bæði voru til staðar í fyrri myndinni. f leikhópinn hafa síðan bæst við Justin Lazard og Mykelti Willi- amson, sem leika geimfara, James Cromwell, George Dzundra og Peter Boyle. Leikstjóri er Peter Medak sem lengi er búinn að starfa í Hollywood. Upprunalega kom hann til Bandaríkjanna frá Ung- verjalandi en hann flúði land ásamt frænku sinni eftir að upp- reisnin árið 1956 fór út um þúfur. Með fjörutíu ár að baki í kvik- myndabransanum er Peter Medak með mikla reynslu og hefur starf- að í flestum geirum kvikmynd- anna. Hann hóf þó ekki að leik- stýra kvikmyndum fyrr en seint á ferli sínum. Meðal kvikmynda hans eru Romeo is Bleeding, The Men's Club, Pontiac Moon og Let Him Have It. Peter Medak er gift- ur óperusöngkonunni Juliu Mig- enes. Les visiteuis 2 ★ Þótt Jean Reno sé skemmti- legur leikari með mikla útgeislun getur hann ekkert gert tii þess að bjarga þessari mynd sem líður fyrir óvenju vont handrit. Þegar upp er staðið er myndin ekkert annaö en tíma- eyösla. -ge Stjörnubíó The Mask of Zorro ★★* Þeir nafnar og félagar Ant- onio Banderas og Ant- hony Hopkins náðu ein- hvern veginn aldrei sér- lega vel saman í þessari mynd um tvær kynslóðir skylmingahetjunnar Zorró. Hins vegar mátti vel skemmta sér yfir þessum ýktu hetjulátum og útblásnu rómantlk og myndin var ákaflega áferöarfalleg, glæsileg og glamúrus og flott og smart, en einhvem veg- inn vantaði herslumuninn. -úd Hlmnabál ★★★ Gráleit gamanmynd sem byrj- ar vel, bætir jafnt og þétt við sig og hrynur svo á síðustu 20 mlnútunum. Ég var þess lengi vel fullviss að þessi ástralska vegamynd næði að feta einstigið milli ofbeldis og húmors, en myndin tapar áttum og missir fiugið. Það er miður þvl að lengi vel átti ég von á aö þetta yrði ein eftirminnilegasta mynd haustsins. -ge Godzllla ★★★ Godzilla er skemmtileg en ekki gallalaus. En hún hefur þaö sem máli skiptir: Godzillu. Og hún er stór, og hún er flott og hún er afskaplega tæknilega fullkomin; og hún er myndin. Emmerich tekst að ná flottum senum með magnaðri spennu, sérstaklega var lokasenan algerlega frábær og nægir ein og sér til að hala inn þriðju stjörnuna. -úd -HK itiex3t*a a. www.visir.is Michael Madsen bregöur sér aftur í hlutverk Press Lennox, fyrrum starfsmanns sjóhersins, sem hafði aftökur að aðalstarfi. 9. október 1998 f Ókus www.simnet.is internetforritin i töluuna jrína Komdu meö tölvuna þína til okkar í nýja Þjónustuverið Grensásvegi 3 og þú færð hana daginn eftir með öllum internetforritum uppsettum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.