Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Side 23
Stefnumótanauðgunartyfið Rohypnol er selt hér á landi í massavís í sinni hættulegustu mynd
Bannað í Bandarflqunum - vinsælt á isl
Lyfíö sem er notað við stefnumóta-
nauðganir heitir Rohypnol og er
svefnlyf. Það er bannað í Bandaríkj-
unum og í Bretlandi fæst það ekki
selt nema pillumar séu húðaðar
þannig að þær leysist hægar upp í
vökva og liti hann jafnframt bláan.
Þetta lyf er hins vegar selt hér á
landi í óbreyttri mynd. Grunur leik-
ur á að þaö hafl verið misnotað við
nauðganir á sex stúlkum.
Eyrún Jónsdóttir, umsjónar-
hjúkrunarfræðingur á neyðarmót-
töku fómarlamba nauðgana, segir
vandamálið við sönnunarbyrði vera
að lyfið hreinsast mjög fljótt úr lík-
amanum. „Efnið er horfið á innan
við sólarhring og því miður eru kon-
ur oft lengi að koma sér á staðinn.
Það em nokkur mál þar sem mann-
eskjur halda því fram að þeim hafi
verið gefið lyf og þær hafi misst með-
vitund en við höfum enn ekki náð að
sanna það með prófunum. En það er
þekkt erlendis frá að í bæði kynferð-
isglæpum og ofbeldi sé lyfið notað og
ekkert bendir til annars en það eigi
við hér, því miður.“
Theódóra Þórarinsdóttir hjá
Stígamótum segir að a.m.k. sex kon-
ur hafi leitað til þeirra og sagst hafa
orðið rænulausar eftir eitt vínglas og
vaknað síðan tíu tímum síðar og
fundið ummerki á likama sínum
sem bentu til þess að þeim hefði ver-
ið nauðgað. „Ég veit ekki hvort það
er bara þetta tiltekna lyf,“ bætir hún
við. „En það sem ég hef heyrt um
virkni lyfsins samræmist lýsingum
fómarlambanna. Annars sýnist mér
að þeir sem eiga að fjalla um þetta
mál séu ekki að gera það sem þarf,
það er að banna lyfið og rannsaka
þessi mál frekar."
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
hefur eitthvað borið á þvi að konur
tali um að þær hafi dottið út á
skemmtistað og muni ekki neitt fyrr
en þær vakna á ókunnum stað dag-
inn eftir með ummerki eftir þvingað-
ar samfarir eða nauðgun. En vanda-
málið er að það er ekkert hægt að
sanna neitt eða hengja þetta á eitt
ákveðið lyf.
Haukur Ingason, lyfjafræðing-
ur hjá Thorarensen-lyfjum, sem er
umboðsaðili lyfsins, segir að lyfið
Rohypnol sé bannað í Bandaríkjun-
um og hafi ekki verið leyft á Bret-
landsmarkaði nema með breyting-
um. Um þrjú þúsund íslendingar
nota lyfið hins vegar daglega sem
svefnlyf.
Stendur til aö breyta lyfinu?
„Já, við erum búin að fá sam-
þykkt fyrir því að flytja nýja lyfið
inn og við eigum von á því á næstu
vikum," segir hann. Fram að þeim
tíma verður selt af birgðum af
Rohypnol í óbreyttri mynd.
-MT
Hluti af lagernum sem tll er af stefnu-
mótanauðganalyfinu.
Skorrl Rafn Rafnsson er fjórtán ára
Gopet-gæi. Hér er hann á gripnum
sem vakið hefur verðskuldaða athygli
á götum og gangstígum bæjarlns.
Hlaupa-
drengurínn
Skorri
„Ég keypti það fyrir svona
þrem, fjórum mánuðum," segir
Skorri Rafh Rafnsson, aðspurð-
ur um hvenær hann fékk þetta
furðulega Gopet-hjól sitt.
„Það er frá Bandaríkjunum,"
heldur hann áfram og bætir við að
það sé umboðsmaður fyrir svona
gripi hér á landi. Þetta er víst
nýjasta æðið hjá þrettán ára kauð-
um eins og Skorra.
Og hvaö eru margir á þessu?
Veistu þaö?
„Ég held að það séu aUs konar
svona hjól til. En fyrir sjö mánuð-
um var ekki neinn á þessu. Nú
erum við kannski sjö til tíu, eða
eitthvað svoleiðis."
Þarftu próf til aö aka þessu
tryllitœki?
„Nei, þetta er bara bensíngjöf og
bremsa. Hver sem er getur verið á
þessu. Það ætti allavega ekki að
þurfa próf.“
En hvaö segir löggan? Er hún
ekkert aö ónáöa þig?
„Jú, eitthvað. Þeir eru svona að
athuga hvort það þurfi ný lög yfir
þetta. En ein lögga sem ég talaði
við sagði mér að ég ætti bara að
nota þetta eins og reiðhjól. Sam-
kvæmt því á ég að vera á götum
inni i íbúðarhverfum en á gang-
stéttum í kringum stórar götur.
Það er stranglega bannað að vera
á Gopet á hraðbrautum."
Hvaö kemst gripurinn svo hratt?
„No comment."
Er hœgt aö leika kúnstir á
þessu?
„Já, það er hægt að prjóna og
stökkva upp kanta, skransa og alls
konar. Þetta er æðislega mergjað
og skemmtilegt. Ég á líka vini sem
eru stundum með mér á rúntin-
um. Við erum oft að keppa og
leika okkur á þessu. Síðan fórum
við bara út um allt,“ segir Skorri
og er rokinn burt á Gopet-hlaupa-
hjólinu sínu. -MT
OS eitJHLCYf^ '.![
Ánsesw
Hrekkjusvínin tóku Lög unga fólksins upp snemm-
sumars 1977 í góðu veðri í Firðinum. Hrekkjusvínin voru
Eggert Þorleifsson, sem blés í klarinett og flautur, einlék
á píanó, lék á slagverk, bumbur, söng og baksöng.
Leifur Hauksson, sem lék á hljómgítar, slagverk, barði
bumbur, söng og baksöng. Magnús Einarsson, sem lék
á bassagítar, slagverk, alls oddi (norskum) og baksöng.
Valgeir Guðjónsson, sem lék á raf og hljómgítar,
harmoníum, greiðu, pianó, slagverk, söng og baksöng.
Ragnar Sigurjónsson barði rautt trommusett, Egill
Ólafsson söng og baksöng, Ingólfur Steinsson bak-
söng, Jónas R. Jónsson ýtti á gulu, rauðu og grænu
takkana í stjórnklefa og baksöng örlágt, Garðar Hansen
var til aðstoðar, Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson
gerði umslag.
Allan texta samdi Pétur Gunnarsson.
Tónlist sömdu Leifur Hauksson og Valgeir Guðjónsson.
AFASONGUR
HVAD ÆTLAR ÞÚ AÐ VERÐA?
GETTU HVAD ÉG H0TI
GRÝLA
EKKIBÍL
LYGARAMERKIÁ TÁNUM
SUMARDAGURINN FYRSTI
SÆMIROKK
HREKKJUSVÍN
GESTIRÚTUMALLT
KRÓMKALLAR
ÆVINTÝRI
GAGNOGGAMAN
Loksins aftur fáanleg!
*