Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
7
sandkorn
Árni blankur
Yflrvofandi brotthvarf Þorsteins
Pálssonar úr pólitík kom fáum á
óvart enda Sandkom búið að margít-
reka að ráðherrann
væri á forum, saddur
pólitískra lífdaga.
Einn er þó sá sem var
alveg blankur og ekk-
ert vissi um málið. í
King kong-þætti
Bylgjunnar í gær
upplýsti Árni John-
sen, samþingmaður
Þorsteins, að hann hefði ekki haft
hugmynd um að Þorsteinn væri á for-
um. Þegar King kong-menn gengu
frekar á hann og spurðu hvort tvær
heilsíðuauglýsingar í Mogga bentu
ekki til að Ámi hefði vitað eitthvað
sór hann það af sér og sagði: „Spyrjið
þið bara Þorstein sjálfan." Ekki þykir
Þorsteinn sérlega ábyggileg heimild
svo sem sjá má í blaðinu Degi fyrir
nokkrum vikum þar sem hann sagðist
alls ekki á fómm úr pólitík. Nú mun
það útbreidd skoðun að þingmennim-
ir af Suðurlandi séu þeir vellygnustu
á landinu...
Með reynslu
Þá er það ljóst að Jakob Bjöms-
son, fyrrum bæjai'stjóri á Akureyri,
ætlar að freista þess að hafa 1. sætið á
lista Framsóknar-
ftokksins á Norður-
landi af Valgerði
Sverrisdóttur þing-
flokksformanni.
Framarar ætla í hálf-
opið prófkjör og það
er talið nýtast Jak-
obi betur þótt Val-
gerður hafi reyndar
einnig stutt að sú leið yrði farin. Það
sem kann hins vegar að torvelda Jak-
obi baráttuna er að tveir aðrir Akur-
eyringar, Elsa Friðfinnsdóttir og
Daníel Árnason, sækja fast á 2. sæti
listans. Baráttan er hafm og Valgerð-
ur hefur þegar lýst því yfir að hún
hafi 12 ára reynslu af þingstörfúm
sem hljóti að teljast henni til tekna.
Helsta tromp stuðningsmanna Jakobs
verður án efa að tími sé til kominn að
Akureyringur leiði lista flokksins í
kjördæminu ...
Varað við vegi
Um nokkur ár hafa verið erjur
milli Vegagerðarinnar á ísafirði og
Djúpbátsins sem em í samkeppni um
ökumenn til ísafjarðar.
Svo rammt kvað að
þessu að stýrimaður
Djúpbátsins tók sér
stöðu við vegamót þar
sem komið er niður
af Steingrímsfjarðar-
heiðinni og stöðvaði
ökumenn til að vara
þá við veginum um
Djúp og hvetja þá til að taka ferjuna.
Andófinu gegn Djúpbátnum stjómaði
Kristinn Jón Jónsson, þáverandi
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar, sem
vildi að bílstjórar ækju fyrir Djúp. Nú
er komið annað hljóð í strokkinn hjá
Kristni Jóns því hann er tekinn við
rekstri Djúpbátsins og það sem meh’a
er, á launum frá Vegagerðinni sem
gerði við hann einn feitasta starfs-
lokasamning allra tíma. Gámngar
segjast vænta þess að Kristinn Jón
muni taka sér stöðu á vegamótunum
góðu og vara við veginum ...
Gunnar að baki Kára
Svo sem Sandkorn hefur greint frá
stendur Gunnar Steinn Pálsson að
baki auglýsingaherferð LÍÚ sem ætlað
er að bæta ímynd
meintra sægreifa.
Gunnar Steinn hefur
fleiri járn í eldinum
þvi hann hefur
einnig tekið að sér
að tryggja hlýhug
þjóðarinnar í garð
íslenskrar erfða-
greiningar. Þannig’
sér Gunnar Steinn um alla ráðgjöf til
Kára Stefánssonar forstjóra hvað
varðar framkomu og annað það sem
snýr að almenningi...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Fréttir
Örn og Ragnhildur Hannesdóttir, íbúar á Seilugranda, með lyfjakassann sem fannst í bílskýlinu. Á innfelldu mynd-
inni má sjá æðaleggi sem voru m.a. í kassanum. DV-mynd S
Vítavert kæruleysi:
Lyf og notaðar sprautunálar
- skilin eftir á glámbekk í bílskýli
íbúunum við Seilugranda í
Reykjavík brá illilega í brún þegar
þeir vora að taka til í bílskýlum sín-
um ekki alls fyrir löngu. Þá fundu
þeir kassa sem í voru 3 tegundir af
töflum, innúðunarefni, lyfjaglas
með dropum og 3 pakkar af notuð-
um sprautunálum.
„Þessi kassi er merktur Lauga-
vegsapóteki," sagði Öm Ingólfsson,
íbúi að Seilugranda 2, við DV.
„Lyfjaglösin eru merkt nafni ein-
stáklings en það kannast enginn hér
í húsinu við nafnið. Það er vitavert
kæruleysi af fólki að skilja svona
nokkuð eftir á glámbekk. Börnin
hér era að leik í bílskýlunum þegar
kalt er í veðri. Það er hægt að
ímynda sér hvað komið gæti fyrir ef
þau gleyptu einhver lyf af óvitaskap
eða væru að fikta með notaðar nál-
ar og styngju sig á þeim.“
Öm kvaðst mundu fara með lyfin
til eyðingar. -JSS
ELFA
R LEMMENS
HITABLÁSARAR
Fyrir verslanir - iðnað - lagera
Fyrir heitt vatn.
Afköst 10 -150 kw
Öflugustu blásararnir á
markaðnum, búnir
miðflóttaaflviftum og
ryksíum.
Betri hitadreifing - minni
uppsetningarkostnaður,
lægri rekstrarkostnaður.
Hagstætt verð
Margrét Frímannsdóttir:
Klofningur þing-
liðs nær ekki til
flokksmanna
„Óneitanlega hafa þetta verið erf-
iðir tímar og enginn dans á rósum
fyrir mig sem forystumann í Al-
þýðubandalaginu þar sem hluti
þingflokksins hefur ákveðið að
fylgja ekki sameiningarferlinu. En
þessi úrslit skoðanakönnunarinnar
styrkir mig í þeirri vissu minni að
mikill meirihluti alþýðubandalags-
manna og vinstrimanna vill sam-
fylkingu. Ég er því afskaplega
ánægð að heyra þetta, ég get nú
ekki dulið það,“ sagði Margrét Frí-
mannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, í samtali við DV í í
tilefni þess að hún er ótvírætt for-
ingjaefni samfylkingar jafnaðar-
manna samkvæmt skoðanakönnun
DV sem birt var í gær.
Margrét sagði að niðurstaðan
væri ekki aðeins góð fyrir sig per-
sónulega heldur væri hún ánægju-
leg fyrir konur almennt. Þrjár kon-
ur fengu flest atkvæðin í könnun-
inni. Þetta sýndi líka vel að klofn-
inginn í þingmannaliðinu væri ekki
að finna meðal flokksmanna.
Aðspurð um hvenær ákveðið yrði
um leiðtoga hins nýja stjómmála-
afls sagði Margrét að það væri enn
ekki afráðið. „Við höfum ekki eytt
miklum tíma í að ræða þetta heldur
unnið sem samvirk forysta þessara
flokka. Það er ekki verið að leggja
þá niður," sagði Margrét. -JBP
.-24. OKTÓBER
NYJAR VORUR
med sérstökum afslsetti
20%-50%