Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 23 Iþróttir BlcancS i P oka Þorkell Gudbrandsson heldur áfram að skora grimmt fyrir Cottbus í þýsku C-deUdinni i handknattleik. Hann gerði 9 mörk um helgina þegar lið hans gerði jafntefli, 25-25, við Lichtenrade á útivelli. Cottbus er efst í sínum riðli og Þorkell er marka- hæstur. Hollenska knattspyrnufélagió Fey- enoord hefur verið tekið til rann- sóknar fyrir meint skattsvik. Þau eru talin tengjast kauptun á erlendum leikmönnum á þessum áratug en þar á meðal eru Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir sem Feyenoord fékk frá ÍA árið 1992. Ellefu rauð spjöld litu dagsins ljós í tíu leikjum i spænsku A-deildinni í knattspyrnu um helgina. Þetta er versta umferð i deildinni í niu ár að þessu leyti. Johan Cruyff fyrrum þjáifari Barcelona, skrifaði í blaðið Marca í gær að helmingur brott- vísananna hefði átt rétt á sér, hinn helminginn mætti skrifa á dómarana sem virtust túlka reglur íþróttarinn- ar hver á sinn hátt. Ófarir belgíska knattspyrnurisans Anderlecht halda áfram. Um helgina féll liðið út í 32-liða úrslitum bikar- keppninnar fyrir B-deildarliði Dend- erleeuw í vitaspyrnukeppni eftir 3-3 jafntefli liðanna. Þá voru meistarar Club Brugge slegnir út af B-deildar- liði Liege. Trond Sollied, þjálfari norsku meist- aranna í knattspyrnu, Rosenborg, er að fara til Belgíu þar sem hann tekur við liði Gent. Massimo Morrati, forseti ítalska knattspyrnufélagsins Inter Milano, bað i gær stuðningsmenn félagsins af- sökunar á tapi liðsins, 3-5, fyrir Lazio í fyrrakvöld. Peter Knowles og Colin Haughton, landsliðsmenn Englands í badmint- on, voru i gær dæmdir i bann í lands- liðinu. Eftir keppni í Hollandi fyrir skömmu brutu þeir upp kústaskáp á hóteli i ölæði og notuðu kústana til að spila krikket. Sveinn Áki Lúðviksson var endur- kjörinn formaður íþróttasambands fatlaðra til tveggja ára á sambands- þingi þess á laugardaginn. Ein breyt- ing varð á stjórn, Kristján Svan- bergsson var kjörinn gjaldkeri í stað Guðmundar Grímssonar sem gaf ekki kost á sér. Tómas Ingi Tómasson þótti standa sig mjög vel í fyrsta leik sínum með AGF i dönsku knattspyrnunni á sunnudaginn. AGFvann þá Aarhus Fremad í nágrannaslag í A-deildinni og vann, 3-2. Sagt var í dönskum blöðum að Tómas hefði barist af miklum krafti ailan leikinn á erfiðum og rennblautum vellinum. Hann ætti eftir að laga sig að hraðanum en stuðningsmenn AGF hefðu fagnað honum vel þegar honum var skipt af velli seint í leiknum. Steingrímur Jóhannesson, marka- kóngm- úr Eyjum, er kominn heim frá þýska félaginu Frankfurt. Hann fékk ekki tilboð um samning, enda hafa Þjóöverjamir verið að prófa mikinn fjölda knattspyrnumanna síðustu daga. Sænska félagið Elfsborg hefur falast eftir Steingrími en óljóst er með framhaldið. Róbert Julian Duranona skoraði 4 mörk á laugardaginn þegar lið hans, Eisenach, tapaöi fyrir Frankfurt, 25-19, í þýsku A-deildinni í hand- knattleik. Martin O’Neill, framkvæmdastjóri enska knattspymufélagsins Leicest- er, tók sér í gærkvöld sólarhrings frest til að ákveða hvort hann fari til starfa hjá Leeds. Stuöningsmenn Lei- cester ákölluðu hann um að fara hvergi á leik liðsins við Tottenham í gærkvöld og stjóm Leicester er til- búin með nýjan og glæsilegan samn- ing handa O’Neiil. Eigendur NBA-liöanna í körfu- knattleik fengu tromp á hendi í gær- kvöld í samningsstríði sínu við leik- menn. Þá úrskurðaði réttur í New York að þeir þyrftu ekki að greiða leikmönnum á meðan verkbannið stæði en það hefur verið i gildi frá 1. júli. Ef dæmt hefði verið leikmönnum i hag, hefði verið þýðingarlitið fyrir eigendur að halda verkbanninu til streitu en nú er pressan öll á leik- mönnunum aö semja. Fyrstu umferð- um NBA-deildarinnar hefur þegar verið frestað. -VS Jóhannesi hrósað DV, Belgíu: Jóhannes Karl Guðjónsson, Skagamaðurinn ungi, fékk mikið hrós fyrir frammistöðu sína með Genk gegn Zultse í belgísku bikarkeppninni í blaðinu Het Nieuwsblad í gær. Eins og fram kom í DV í gær var þetta fyrsti leikur Jóhannesar í byrjunarliði Genk en hann tók stöðu Þórð- ar bróður síns sem er meiddur. „Ég er dauðþreyttur því þetta var fjórði leik- urinn minn á einni viku,“ sagði Jóhannes við belgíska blaðið, en hann lék þrjá leiki með unglingalandsliði íslands í Frakklandi. „Ég var mjög ánægður með að fá að byrja og var að vonast eftir því fyrst Þórður og Hor- vath eru meiddir,“ sagði Jóhannes. -KB „Eg er ekki bestur í heimi“ - Mark O’Meara hógværðin uppmáluð Bandaríski kylfmgurinn Mark O’Meara segist ekki vera besti kylfingur heims um þessar mund- ir. Þetta sagði O’Meara skömmu eftir að hann hafði tryggt sér heimsmeistaratitilinn í holukeppni með sigri yfir Tiger Woods í úrslit- um. „Ég held að ég sé sá þriðji besti sem stendur og er yfir mig ánægð- ur með það. David Duval og Tiger Woods eru í sætunum fyrir ofan mig. Duval hefur átt frábært tíma- bil og sigrað á sjö mótum. Tiger Woods hefur kannski oft unnið fleiri mót en hann verðskuldar fyrsta eða annað sætið. Ég hef aldrei sett stefnuna á að vera sá besti í heimi, aðeins að leika eins gott golf og ég frekast get,“ sagði O'Meara. O'Meara vann sigur á US Masters og British Open á þessu ári og þrátt fyrir hógværðina er hann af mörgum talinn sá besti í heiminum í dag. Mark O’Meara tryggði sér heimsmeistaratitilinn í holukeppni um helgina en segist þrátt fyrir það ekki vera besti kylfingur heims í dag. Reuter Lindsay Davenport frá Bandaríkjunum fagnar hér sigri sínum á Evrópumeistaramótinu í tennis innanhúss. Davenport lék til úrslita gegn Venus Williams og sigraði 7-5 og 6-3. Davenport er nýlega komin í efsta sæti heimslistans í tennis kvenna og virðist ekki ætla láta þetta eftirsótta sæti af hendi á næstunni. Reuter Gigi Simoni, þjálfari Inter Milan, var ekki upplitsdjarfur eftir hrikalegt tap Inter á heimavelli sínum gegn Lazio i ítölsku knattspyrnunni um síðustu helgi. Hér gengur hann af leikvelli eftir 3-5 tapið sem er eitt versta tap Inter á heimavelli í ítölsku A-deildinni frá upphafi. Reuter Markus Wieser frá Þýskalandi siglir hér skútu sinni ásamt áhöfn til sigurs í alþjóðlegri siglingakeppni sem fram fór á Spáni og lauk í gær. Sigur Wiesers var mjög öruggur og langt í næstu skútu. Reuter Pete Sampras hampar hér verölaunum sem hann fékk um síöustu helgi fyrir sigur á opna austurríska meistaramótinu innanhúss í tennis. Sampras sigraði Karol Kucera frá Slóvakíu í úrslitum, 6-3, 7-6 og 6-1. íþróttir DV Hógvær meistari ETjl ENGLAND Bryan Robson hefur skrifaö undir nýjan fimm ára samning við Middles- brough og verður við stjómina áfram hjá liðinu þrátt fyrir vangaveltur um annað. Robson hafði verið orðaður við enska landsliöið. „England hefur ágætan þjálfara og ég er ánægöur hér hjá Middlesbrough. Við erum á réttri leið en margt er enn ógert og ég vil taka þátt i frekari uppbyggingu hjá Middlesbrough," sagði Robson í gær. Glenn Hoddle, iandsliðsþjálfari Eng- lands, hefur sagt að hann sé ekki að hætta sem landsliðsþjálfari. „Allir sem þekkja mig vita hve það er mér mikils virði að standa mig í minu starfi. Ég mun vinna að því áfram að standa mig i minu starfi og að enska liðið nái góðum árangri." Einn af for- ráðamönnum enska knattspyrnusam- bandsins bað menn í gær um að halda ró sinni og gefa Hoddle tæki- færi til aö sinna sinu starfi í friði. Mjög liklegt er talið að Peter Schmeichel taki á ný stöðu sína í marki Manchester United er liðið leikur gegn danska liðinu Bröndby i meistaradeild Evrópu á morgun. Schmeichel æfði í hálfa klukkustund með United um síðustu helgi en hann hefur verið mjög slæmur i maga. Alex Ferguson hefur ekki misst trúna á danska markveröinum þrátt fyrir hrikaleg mistök í síðasta leik sínum með United gegn Bayern Múnchen í meistaradeildinni. „Hann er enn einn besti markvörður heims í dag,“ sagði Ferguson. Steve McManaman á í viöræðum við forráðamenn Liverpool um endumýj- aðan samning. Samningur McMan- amans rennur út eftir yfirstandandi tímabil. „Við erum að ræða við Mc- Manaman og erum bjartsýnir á að niðurstaða líti dagsins ljós á næstu dögurn," sagði Roy Evans, stjóri Liverpool í gær. B-deildarlið Wolves hefur orðið fyr- ir miklu áfalli. Robbie Keane, einn mesti markaskorari liðsins, er illa meiddur á hné og verður að gangast undir uppskurð. Hann verður frá I nokkrar vikur og Wolves er þegar farið að leita að nýjum leikmönnum. George Graham, stjóri Tottenham, segir aö Sol Campbell sé álitlegur kostur sem fyrirliði enska landsliðs- ins i framtíðinni. -SK Keflavík mætir KFÍ Dregið var til 32-liða úrslitanna í bikarkeppni karla í körfuknattleik á sunnudag. Tveir innbyrðis leikir verða á milli úrvalsdeildarliða, Keflavík fær KFÍ í heimsókn og Valur tekur á móti KR. Bikarmeistarar Grindavikur hefja titilvörnina gegn 2. deildar liði Dalvíkur á útivelli. Þessi lið mætast í umferð- inni sem fer fram um mánaðamótin: Hvöt - Þór Þorlákshöfn Smári - Öminn Reynir, Hellissandi - Þór, Akureyri Stafholtstungur - Tindastóll Selfoss - Breiðablik Reynir, Sandgerði - Njarðvík ÍV - Stjarnan Golfklúbbur Grindavíkur - Sindri Hamar - ÍS Fjölnir - Snæfell Skallagrimur - Grindavík B ÍR - Haukar Dalvík - Grindavík Valur - KR Keflavík - KFÍ HK-ÍA -VS Sviss-ísland á morgun: Patrekur er líklegur - ætti að geta spilað í Aarau Þórður Guðjónsson: Lærvöðv- inn er rifinn í gær kom í ljós að Þórður Guðjónsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, er meö rifmn vöðva í læri. Nokkur bjartsýni var um að Þórður hefði sloppið með tognun en læknisrannsókn í gær leiddi annað í ljós. Þetta þýðir að Þórður verður minnst þrjár vikur frá keppni og sennilega eitthvað lengur. Hann missir því ömgglega af báðum leikjum Genk við Mallorca í Evrópukeppni bikarhafa en sá fyrri fer fram á fimmtudagskvöldið og sá síðari tveimur vik- um síðar. -VS - líkur á að bræðurnir þrír spili saman Nokkrar líkur eru á því að enska Rúmena í Evrópukeppninni á mið- knattspyrnufélagið Newcastle láni vikudaginn. Bjama Guðjónsson til belgíska félags- -VS ins Genk. Hann myndi þá leika þar við hlið bræðra sinna, Þórðar og Jóhannesar. Bjami hefur fengið heimild frá Newcastle til að fara á lánssamning til annars félags í minnst þrjá mánuði. Hann hefur engin tækifæri fengið í leikmannahópi aðalliðs félags- ins. Hann var í Belgíu um helgina og er væntanlegur aft- ur þangað i dag. Á fostudag spilar hann leik með varaliði Genk og í kjölfarið kemur í ljós hvort af lánssamningnum verður. Genk vantar tilfinnanlega sóknarmann því í ljós er kom- ið að ungverski leikmaðurinn Horvath er fótbrotinn. Hann Þórður og Bjarni Guðjónssynir gætu orðið samherjar hjá Genk innan meiddist í leik Ungverja og skamms ef Bjarni verður lánaður til félagsins. DV-mynd GH Má boxa íþróttanefnd Nevada-fylkis í Bandaríkj- unum gaf í gærkvöld Mike Tyson leyfi til að taka þátt í hnefaleikakeppni í fylk- inu á ný. Tyson hefur verið í banni síð- an hann beit eyrað af Evander Holyfi- eld í bardaganum alræmda á síðasta ári. Leyfinu fylgja afar ströng skilyrði um hegðun og framkomu Tysons og honum var gerð grein fyrir því að þetta yrði hans allra síðasta tækifæri til að koma ferli sínum á réttan kjöl á ný. Á myndinni bregður Tyson á leik í dóms- salnum í gær og sýnir eiginkonu sinni tennurnar beittu. Reuter Þrjú met á Ægismótinu Þrjú aldursflokkamet voru slegin á sundmóti Ægis í Sund- höll Reykjavíkur um helgina. Hermann Ragnar Unnarsson, Njarðvík, setti sveinamet í 200 m flugsundi, 2:43,27 mínútur. Jón Oddur Sigurðsson, Njarð- vík, setti drengjamet í 50 m bringusundi, 33,13 sekúndur. Öm Amarson, SH, setti pilta- met í 100 m skriðsundi, 51,09 sek- úndur. Þær Elín Sigurðardóttir úr SH og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir frá Akranesi vom sigursælustu einstaklingamir á mótinu en þær unnu þrjár greinar hvor. -VS DV, Suhr: Islenska landsliðið í handknatt- leik er komið til Suhr í Sviss en á miðvikudagskvöld mæta íslending- ar Svisslendingum í undankeppni HM og fer leikurinn fram í Aarau. Fimm leikmenn lögðu í hann eldsnemma í gærmorgun en það voru leikmennirnir sem leika á fs- landi. Þeir hittu svo fyrir atvinnu- mennina níu sem leika í Þýskalandi að undanskildum Júliusi Jónassyni, sem spilar í Sviss, á flugvellinum í Zúrich. Þaðan hélt íslenski lands- liðshópurinn til Suhr sem er spöl- kom frá keppnisstaðnum í Aarau. Patrekur Jóhannesson verður að öllum líkindum með í leiknum en eins og fram hefur komið hefur hann átt í meiðslum og á tímabili var tvísýnt hvort hann gæti leikið - - gegn Svisslendingum. Patrekur spil- aði með liði Essen á sunnudags- kvöldið en lék að mestu í vörninni. Patrekur sagði í samtali við DV í gærkvöld að hann væri allur að koma til og líklega yrði hann klár í slaginn annað kvöld. Að öðru leyti era allir íslensku landsliðsmennirn- ir heilir og tilbúnir í erfitt verkefni gegn Svisslendingum. Með myndband frá Sviss Þorbjöm Jensson og landsliðs- strákarnir skoðuðu leiki Svisslend- inga gegn Ungverjum á myndbandi í gærkvöld en spóluna fékk Þor- björn frá svissneska samhandinu og í staðinn lét hann Svisslendinga fá spólu af leikjum íslendinga og Finna. -GH Patrekur Jóhannesson virðist vera kominn í gott stand. AIK stendur best að vigi - í baráttunni um sænska meistaratitilinn AIK þykir sigurstranglegast í bar- áttunni um sænska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Örebro í gærkvöld. Með tapinu er Örebro úr leik í titilslagnum. Hlyn- ur Birgisson lék allan leikinn í vöm Örebro. Þessi úrslit setja mikla pressu á Hammarby, lið Péturs Marteinsson- ar og Péturs Bjamar Jónssonar. Hammarby mætir Halmstad á morgun og verður að sigra til að halda í við AIK. AIK er með 41 stig og á 3 leiki eft- ir. Hammarby er með 38 stig og á 4 leiki eftir, Helsingborg er með 38 stig og á 3 leiki eftir og Halmstad er með 36 stig og á 4 leiki eftir. Barátt- an um titilinn stendur á milli þess- ara fjögurra liða í lokaumferðunum. Norrköping tapaði sínum Fimmta leik í röð, 1-3, fyrir Frölunda, og er komið í fallhættu. Birkir Kristins- son sat að vanda á varamanna- bekknum hjá Norrköping. -VS Sex frá Jasoni Jason Ólafsson skoraði 6 mörk um helg- ina þegar lið hans, Dessau, vann Hildes- heim, 21-19, á útivelli í þýsku B-deildinni í handknattleik. Jason hefur þar með skorað 52 mörk í fyrstu sjö leikjunum. Dessau komst í 7. sæti norðurriðils deildarinnar með sigrinum en liðið er með 8 stig eftir 7 leiki. Nordhorn er efst með 16 stig en síðan kemur Hameln, und- ir stjóm Alfreðs Gíslasonar, með 15 stig. -VS Leicester vann Tottenham Leicester vann Tottenham, 2-1, í ensku knattspyrnunni í gærkvöld. Les Ferdinand kom Tottenham yfir en Emile Heskey og Muzzy Izzet svöraðu fyrir Leicester, sem komst með sigr- inum í 11. sæti A-deildar með 12 stig. Tottenham er í 14. sæti með 11 stig. -VS Guðrún dæmir í Þýskalandi Guðrún ísberg, alþjóðlegur dómari í þolfimi, verður á meðal dómara á opna þýska meistara- mótinu í greininni sem fram fer í Hannover í næsta mánuði. Þýska fimleikasambandið falað- ist eftir því að fá Guðrúnu, sem dæmir með rússneskri konu, Jel- enu Levina. -VS Bjarni lánað- ur til Genk? Badminton: Broddi og Elsa best á Akranesi DV, Akranesi: Broddi Kristjánsson og Elsa Nielsen úr TBR sigr- uðu í einliðaleik meistaraflokk á Atlamótinu í bad- minton sem fram fór á Akranesi á laugardaginn. Broddi mætti Egidijus Jankauskas úr UMFH i úr- slitaleik karla og sigraði, 15-9 og 15-11. Elsa mætti Brynju Pétursdóttur úr TBR og sigraði, 13-10, 6-11 og 11-7. Guðmundur Adolfsson og Jónas Huang úr TBR sigr- uðu í tvíliðaleik karla, Brynja Pétursdóttir og Elsa Nielsen úr TBR í tvíliðaleik kvenna og þau Elsa og Njörður Ludvigsson úr TBR sigruðu í tvenndarleik. í A-flokki sigruðu Eva Petersen, TBR, og Aðalsteinn Huldarsson, ÍA, í einliðaleik kvenna og karla. Davíð Guðmundsson og Helgi Jóhannesson, TBR, sigruöu í tvíliðaleik karla, Eva Petersen og Unnur Magnúsdótt- ir úr TBR í tvíliðaleik kvenna og Davíð Guðmundsson og Oddný Hróbjartsdóttir úr TBR í tvenndarleik. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.