Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Síða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
Afmæli
Hjörleifur Brynjólfsson
Hjörleifur Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri og oddviti Ölfus-
hrepps, Básahrauni 4, Þorlákshöfn,
er fertugur í dag.
Starfsferill
Hjörleifur fæddist á Selfossi en
ólst upp í Þorlákshöfn frá fæðingu.
Hann var í Bama- og unglingaskól-
anum í Þorlákshöfn, lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskólanum í Hvera-
gerði og stundaði nám við MS. Þá
lauk hann prófi sem fiskiðnaðar-
maöur frá Fiskivinnsluskólanum
1984.
Hjörleifur stundaði ýmis almenn
störf á unglingsárunum, var verk-
stjóri hjá Meitlinum hf. frá 1980, síð-
an framleiðslustjóri þar til 1985,
varð þá frystihússtjóri hjá Suðurvör
hf. á Eyrarbakka og starfrækti síð-
an, ásamt fleirum, frystihús á Eyr-
arbakka 1987-91.
Hjörleifur stofnaði Humarvinnsl-
una hf., ásamt Magnúsi, bróður sín-
um, 1992, og jafnframt fiskvinnslu-
fyrirtækið Portland hf. 1993 og hef-
ur verið framkvæmdastjóri þeirra
fyrirtækja síöan.
Hjörleifur sat í stjórn
Fiskmarkaðarins í Þor-
lákshöfn, og Hafnar-
mjöls ehf. í Þorlákshöfn
og gegndi um skeið
stjómarformennsku í
báðum þessum fyrir-
tækjum, situr í sveitar-
stjóm Ölfúshrepps fyrir
Sjálfstæðisflokkin frá
1994, er oddviti þar frá
1998, var formaður skóla-
nefndar Ölfushrepps og
leikskólanefndar
1994-98, átti sæti í hreppsráði á
sama tíma, situr í héraðsnefhd og
héraðsráði frá 1998. Hann var einn
af stofnendum Lúðrasveitar Þor-
lákshafnar, sat þar í stjóm og spil-
aði um skeið með sveitinni og hefur
sungið með Söngfélagi Þorlákshafn-
ar.
Fjölskylda
Hjörleifur kvæntist 15.8. 1987
Gróu S. Erlingsdóttur, f. 10.10. 1963,
húsmóður. Hún er dóttir Erlings
Ævarrs Jónssonar, f. 20.10. 1932,
skipstjóra í Þorlákshöfn, og k.h.,
Sigríðar B. Ólafsdóttur, f.
23.9. 1939, húsmóður.
Böm Hjörleifs og Gróu
em Brynjólfur, f. 2.4. 1984;
Erlingur Ævarr, f. 8.6.
1988; Ingibjörg, f. 27.4.
1996.
Systkini Hjörleifs eru
Magnús, f. 2.3. 1952, fram-
kvæmdastjóri í Þorláks-
höfn; Vigdís, f. 20.12.1959,
skrifstofumaður í Þorláks-
höfh; Sigurbergm-, f. 9.3.
1964, vélvirki í Þorláks-
höfn.
Foreldrar Hjörleifs vom Brynjólf-
ur Magnússon, f. 15.7. 1922, d. 19.1.
1983, verkamaður í Þorlákshöfn, og
k.h., Ingbjörg Hjörleifsdóttir, f.
14.11. 1929, d. 3.12. 1993, húsmóðir.
Ætt
Brynjólfur var sonur Magnúsar,
hreppstjóra á Flögu í Villingaholts-
hreppi Árnasonar, hreppstjóra að
Hurðabaki Pálssonar, b. á Þingskál-
um, bróður Jóns, afa Jóns Helgason-
ar skálds. Páll var sonur Guðmund-
ar, b. að Keldum Brynjólfssonar, b.
í Vestur-Kirkjubæ Stefánssonar, b. í
Árbæ, bróður Ólafs, langafa Odds,
langafa Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Stefán var sonur Bjama,
ættfoður Víkingslækjarættarinnar
Halldórssonar. Móðir Áma var Þur-
íður Þorgilsdóttir, b. á Rauðnefs-
stöðum Jónssonar, bróður Guðrún-
ar, ömmu Eyjólfs landshöfðingja,
langafa Guðlaugs Tryggva Karlsson-
£ir.
Móðir Brynjólfs var Vigdís Stef-
ánsdóttir, b. á Selalæk Brynjólfsson-
ar, og Guðríðar Guðmundsdóttur.
Ingibjörg var dóttir Hjörleifs,
bróður Gíslrúnar, móður Sigur-
bjöms Einarssonar biskups, fóður
Karls biskups. Önnur systir Hjör-
leifs var Ingibjörg, móðir Aðalheið-
ar Bjamfreðsdóttur. Hjörleifur var
sonur Sigurbergs, b. í Fjósakoti Ein-
arssonar, b. í Bakkakoti Magnús-
sonar. Móðir Hjörleifs var Ámý Ei-
riksdóttir, b. í Lágu-Kotey Einars-
sonar.
Móðir Ingibjargar var Ingveldur
Ámundadóttir, b. í Kambi í Vill-
ingaholtshreppi Sigmundssonar og
Ingibjargar Pálsdóttur, systur Áma,
hreppstjóra að Hurðarbaki.
Hjörleifur
Brynjóifsson.
Bergljót Böðvarsdóttir
Bergljót Böðvarsdóttir, kennari
við Rimaskóla, Skjólbraut 20, Kópa-
vogi, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Bergljót fæddist á ísafirði og ólst
þar upp. Hún lauk hefðbundnu
námi á ísafirði, stundaði nám við
Samvinnuskólann og lauk þaðan
prófum 1968, lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
1990, stundaði nám við KHÍ og lauk
þaðan kennaraprófi 1993.
Bergljót var búsett á ísafirði til
1972. Hún flutti þá í Kópavoginn og
hefur átt þar heima síðan.
Bergljót stundað almenn verslun-
ar- og skrifstofustörf á árunum
1968-74 og hefur verið kennari við
Rimaskóla frá 1993.
Fjölskylda
Bergljót giftist 12.7. 1969 Jóni
Guðlaugi Magnússyni, f. 20.4. 1947,
framkvæmdastjóra. Hann er sonur
Magnúsar Guðlaugssonar, f. 15.7.
1916, úrsmiðs í Hafnarfirði, og k.h.,
Lám Kristínar Jónsdóttur, f. 13.11.
1921, d. 30.11. 1995, húsmóður.
Böm Bergljótar og Jóns Guðlaugs
eru Iðunn, f. 24.1. 1968, viðskipta-
fræðingur, búsett í Barcelona;
Magnús Freyr, f. 21.1.
1972, stýrimaður í Kópa-
vogi; Böðvar, f. 17.4. 1976,
nemi við Samvinnuskól-
ann.
Systkini Bergljótar:
Haukur Böðvarsson, f.
18.10. 1949, d. 26.2. 1980,
skipstjóri á ísafirði; Ei-
ríkur Brynjólfur Böðvars-
son, f. 9.11. 1956, fram-
kvæmdastjóri í Hafnar-
firði; Kristín, f. 1.6. 1958,
húsmóðir og skrifstofu-
maður á ísafirði.
Foreldrar Bergljótar:
Bergljót
Böðvarsdóttir.
Böðvar
Sveinbjamarson, f. 7.4. 1917, fram-
kvæmdastjóri á Isafirði,
og Iðunn Eiríksdóttir, f.
9.6. 1921, d. 24.5. 1974,
kaupkona á ísafirði.
Ætt
Böðvar er sonur Svein-
bjöms Halldórssonar og
Helgu Jakobsdóttur.
Iðunn var dóttir Eiríks
B. Finnssonar, og Krist-
ínar Einarsdóttur.
Bergljót er stödd í
Barcelona á
afmælisdaginn.
Andlát
Ásta B. Þorsteinsdóttir
Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir,
alþm., hjúknmarfræðingur og vara-
formaður Alþýðuflokksins, Hofgörð-
um 26, Seltjamamesi, lést á heimili
sínu mánudaginn 12.10. sl. Útfor
hennar fer fram frá Hallgrímskirkju
í dag, kl. 15.
Starfsferill
Ásta fæddist í Reykjavík 1.12.
1945 og ólst þar upp í Vesturbænum.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar 1962, prófi
frá Norfolk High School í Norfolk í
Nebraska í Bandaríkjunum 1963,
stundaði nám við Hjúkrunarskóla
íslands og lauk þaðan prófum sem
hjúkrunarfræðingur 1968, stundaði
framhaldsnám i hjúkrunarstjómun
við Nýja hjúkrunarskólann 1987-88
og stundaði nám í skurðhjúkrun á
íslandi og í Danmörku.
Ásta var skurðhjúkmnarfræðing-
ur á Borgarspítalanum 1968-69,
hjúkmnarfræðingur við geðdeild i
Árósum í Danmörku 1971, skurð-
hjúkmnarfræðingur við Árhus
Kommunehospital 1972-80, hjúkmn-
arfræðingur við göngudeild Land-
spítalans 1980-81, skurðhjúkranar-
fræðingur við skurðdeild kvenna-
deildar Landspítalans 1982-88 og
hjúkmnarframkvæmdastjóri við
Landspítalann með hléum frá
1988-97.
Ásta sat í stjóm Landssamtak-
anna Þroskahjálpar 1983-95 og var
formaður 1987-95, var varaformað-
ur NFPU, Norrænna hagsmunasam-
taka um málefhi þroska-
heftra 1991-97, var full-
trúi Þroskahjálpar í
stjóm Þroskaþjálfaskóla
íslands, starfaði m.a. í
nefnd um endurskoðun á
lögum um málefni fatl-
aðra 1992-96, sat í nefnd
um forgangsröðum í heil-
brigðismálum 1997 og í
nefnd um skipun fram-
haldsmenntunar fatlaðra,
var fulltrúi íslands í Nor-
diska námden fór Hand-
icap Frágor, og sat í stjóm
Norrænna foreldrasamtaka fatl-
aðra.
Ásta var fyrsti vþm. í Reykjavík
fyrir Alþýðuflokkinn frá 1995-98 og
alþingismaður. flokksins í Reykja-
vík frá ársbyrjun 1998, gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
flokkinn og var varaformaður
flokksins frá 1996. Hún ritaði grein-
ar um heilbrigðismál og málefni
fatlaðra i blöð og tímarit.
Fjölskylda
Ásta giftist 10.9. 1966 Ástráði
Benedikt Hreiðarssyni, f. 14.12.1942,
yfirlækni við Landspítalann og dós-
ent við Hl. Hann er sonur Hreiðars
Stefánssonar, f. 3.6. 1918, d. 1995,
kennara og rithöfúndar, og k.h.,
Jennu Jensdóttur, f. 24.8.1918, kenn-
ara og rithöfundar.
Böm Ástu og Ástráðs em Amar,
f. 17.2. 1967, læknir í Gautaborg en
eiginkona hans er Steinunn J.
Kristjánsdóttir fomleifa-
fræðingur og era böm
Steinunnar frá fyrra
hjónabandi Sigurhjörtur
og Helga Valgerður; Ás-
dis Jenna, f. 10.1. 1970,
guðfræðinemi, búsett á
Seltjarnarnesi, en
unnusti hennar er Heim-
ir H. Karlsson kennara-
nemi; Þorsteinn Hreiðar,
f. 19.9. 1975, læknanemi
við HÍ, búsettur á Sel-
tjarnamesi en unnusta
hans er Björg Sæmunds-
dóttir, ritari hjá fastanefnd SÞ í
New York.
Systkini Ástu em Víglundur, f.
19.9. 1943, framkvæmdastjóri BM
Vallár; Hafís Björg, f. 25.4. 1955, sál-
fræðingur i Danmörku.
Foreldrar Ástu: Þorsteinn Þor-
steinsson, f. 8.7. 1918, d. 20.2. 1975,
fisksali og sjómaður í Reykjavík, og
k.h., Ásdis Eyjólfsdóttir, f. 14.12.
1921, fyrrv. skattendurskoðandi.
Ætt
Faðir Þorsteins var Þorsteinn,
sjómaður í Reykjavík Guðlaugsson,
verkamanns í Reykjavík, bróður
Markúsar, afa Harðar Ágústssonar
listmálara og langafa Markúsar
Amar Antonssonar. Guðlaugur var
sonur Þorsteins, b. í Gröf í Hmna-
mannahreppi Jónssonar. Móðir Þor-
steins eldra var Guðrún Jónsdóttir,
b. í Galtafelli Bjömssonar, b. í
Galtafelli Bjömssonar.
Móðir Þorsteins var Ástriður,
systir Guðmundar í Alþýðubrauð-
gerðinni. Annar bróðir Ástríðar var
Sigurjón, faðir Odds skólastjóra,
fóður Guðmundar Oddssonar í
Kópavogi, og afa Lúðvíks Bergvins-
sonar alþm. Systir Ástríðar var Sig-
ríður, amma Péturs Guðmundsson-
ar, flugvallarstjóra á Keflavíkur-
flugvefli. Ástriður var dóttir Odds,
formanns í Brautarholti í Reykjavík
Eyjólfssonar og Guðrúnar, systur
Þorkels, langafa Páls Jenssonar pró-
fessors. Guðrún var dóttir Áma, b. i
Guðnabæ Guðnasonar og Steinunn-
ar Þorkelsdóttur frá Krýsuvík.
Ásdís er dóttir Eyjólfs frá Mið-
húsum Brynjólfssonar, b. i Miðhús-
um Eyjólfssonar frá Laugarvatni.
Móðir Ásdísar var Kristín, systir
Finnboga, föður Kristins fram-
kvæmdastjóra. Kristín var dóttir
Áma, b. í Miðdalskoti í Laugardal
Guðbrandssonar, b. í Miðdal, bróð-
ur Jóns, afa Margrétar Guðnadóttur
prófessors og Guðnýjar, móður Guð-
laugs Tryggva Karlssonar hagfræð-
ings. Móðir Guðbrands var Margrét
Jónsdóttir, b. á Ægissíðu Jónsson-
ar. Móðir Jóns var Guðrún Brands-
dóttir, b. á Felli Bjamasonar, ætt-
fóður V íkingslækjarættarinnar
Halldórssonar. Móðir Áma var Sig-
ríður, systir Ófeigs, afa Tryggva
Ófeigssonar útgerðarmanns. Sigríð-
ur var dóttir Ófeigs, ættfóður
Fjallsættarinnar Vigfússonar, og
Ingunnar Eiríksdóttur, ættfóður
Reykjaættarinnar Vigfússonar.
I
Ásta Bryndís
Þorsteinsdóttir.
Til hamingju með afmælið 20. október
85 ára
Einar Söring, Njarðvíkurbraut 3, Njarðvík. Krlstín Haraldsdóttir, Silfurtúni 16 A, Garði. Magnús Jóhannesson, Hraungerði, Skeggjastaðahr.
80 ára
Otti Sæmundsson, Kleppsvegi 62, Reykjavík.
75 ára
Bjarney Ólafsdóttir, Hlíf II, Torfnesi, ísafirði. Sigríður Eyja Henderson, Óðinsgötu 6 A, Reykjavík.
70 ára
Bergur Helgason, Kálfafelli II, Skaftárhreppi. Magnúsína Jónsdóttir, Hlíf, Torfnesi, ísafirði.
60 ára
Edda Laufey Pálsdóttir, Klébergi 7, Þorlákshöfn. Guðlaugur Bergmann, Brekkustíg 1, Ólafsvík. Þórður Ólafsson, Lyngbergi 6, Þorlákshöfn. Hann er að heiman.
50 ára
Garðar Pétursson, Heiðar\'egi 44, Vestmeyjum. Ragnhildur Pálsdóttir, Logafold 70, Reykjavík.
40 ára
Egill Sölvason, Langatanga 5, Seyðisfirði. Ella Kristín Sigurðardóttir, Lerkigrund 5, Akranesi. Haraldur Kulp, Eikjuvogi 26, Reykjavík. Jón Ingvar Gunnarsson, Fannafold 143, Reykjavík. Kristin Einarsdóttir, Brekkugötu 16, Vogum. Kristján Einar Birgisson, Efri-Lækjardal, Engihlíðarhr. Marta Guðríður Georgsdóttir, Fagrahjalla 14, Kópavogi. Pétur Kristófer Pétursson, Krókabyggð 28, Mosfellsbæ. Sigríður Bjömsdóttir, Vallargötu 16, Keflavík. Sigurður Ásgeir Kristinsson, Nesvegi 61, Reykjavík.
staögreiöslu-
og greiöslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
1X21
550 5000