Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 15 Ógöngur í írak Farsi Vopnaleitin I írak hefur verið í mörg ár. Staðan í þeim málum hef- ur verið augljós síðan 1993. Allt sem á hefur gengið síðan, svo sem bullið um falin gjöreyðingarvopn í þjóðarminnismerkjum í írak, sem í áróðri eru kallaðar „hallir Sadd- ams“, er fyrirsláttur til að fram- lengja bannið. Þetta gengur í fá- fróðan almenning og jafnvel hæst- virtan utanríkisráðherra íslands, sem þuldi þetta samviskusamlega utanbókar í febrúar, orðrétt eftir Madeleine Albright. Það er ekki fjárskortur sem þjakar íraka. Þar er nóg af fé í umferð, auk tekna af takmarkaðri olíusölu. En það ríkir algjört samskipta- bann alira aðildarríkja SÞ gagn- vart írak. Enginn innflutningur er Auk næringar- og lyfjaskorts deyr nú heil kynslóð íraskra barna af smitsjúkdómum af menguðu vatni, sem raf- magn skortir til að hreinsa. segir m.a. í greininni. - Götumynd frá Bagdad. Sú stefna sem SÞ hafa fylgt gagnvart írak síðan 1990 er löngu gengin sér til húðar. Þær stór- yrtu yfirlýsingar sem Öryggisráðið samþykkti í hita leiksins 1991 binda nú hendur þess í trássi við augljósan raunveruleika. Öll nágrannaríkin vita, jafnvel Kúveit, að engin ógn stafar lengur af írak. En bandarískir leiðtog- ar eru fangar eigin orða. Þeim er af pólitískum ástæð- um heima fyrir ógerlegt að taka íraka í sátt með Saddam við völd. Því stendur allt fast i Öryggisráð- inu. Risaveldi getur ekki snúið við blaðinu, hvað sem öllum skynsam- legum rökum líður. Á sama tíma og SÞ stunda hjálparstarf á hörm- ungasvæðum um heim allan, deyja hundruð þúsunda íraka, beinlínis fyrir tilverknað Samein- uðu þjóðanna, á ábyrgð almenn- ings, þar á meðal íslendinga, til þess eins að Bandaríkin þurfi ekki að éta ofan í sig stóru orðin. leyfður nema með leyfi seinvirkrar nefndar undir forystu Banda- ríkjanna. Jafnvel lyf og matvæli berast seint og illa. Ekki fLytja inn sjúkrabíla, þá má nota i hemaði. Ekki má flytja inn vörubíladekk af sömu ástæðu. Engar tölvur, engan tækni- búnað, ekki einu sinni til að dreifa á dekkja- lausum vörubílum frá Jórdaníu og sunnan frá Persaflóa. Af þessu stafar neyðin í írak, ekki fjárskorti eða eyðslusemi valdhafa. Sprengingar í stríðinu voru eyðilögð öll raforkuver, flestar dælustöðvar og vatnshreinsistöðvar, lyfjaverk- smiðjur, jámbrautamannvirki, áburðaverksmiðjur og jafnvel mjólkurduftsverksmiðjur. (Þetta vom kallaðar sýklavopnaverk- Kjallarinn Gunnar Eyþórsson blaðamaður smiðjur). Varahlutir í raforkuver eru bannaðir. Það mundir gera Saddam „kleift að búa til gjöreyð- ingarvopn á ný“, eins og það heit- ir. Afleiðingin er hmn heilbrigðis- kerfisins, sem fyrir stríð var eitt það besta í þessum heimshluta. Auk næringar- og lyfjaskorts deyr nú heil kynslóð íraskra barna af smitsjúkdómum af menguðu vatni, sem rafmagn skortir til að hreinsa. Nú er enn talað um að sprengja. Ástæðan er að írakar sjá ekki lengur neinn tilgang með sam- vinnu. Samvinna hefur engu skil- að, nema nýjum tylliástæðum til að halda banninu áfram. Banda- ríkin hafa með ofríki sínu tryggt að Öryggisráðið mun aldrei aftur setja sig í sjálfheldu með því að gefa neinu ríki einróma umboð til hernaðar, eins og gert var vegna Kúveits. Sá tími mun koma að ábyrgð SÞ á hálfri annarri milljón dauðs- falla í írak verð- ur réttilega álit- inn svartasti bletturinn á sögu samtakanna. Nú sækjast íslend- ingar eftir sæti í Öryggisráðinu. Óskandi væri að okkur eigi eftir að gefast tækifæri til að greiða þar atkvæði með afnámi þessa sví- virðilega banns, sem er því meiri glæpur sem hann er framinn í nafni alþjóðasamfélagsins. Gunnar Eyþórsson „Öll nágrannaríkin vita, jafnvel Kúveit, að engin ógn stafar leng■ ur af írak. En bandarískir leiötog- ar eru fangar eigin oröa. Þeim er afpólitískum ástæöum heima fyr- ir ógerlegt aö taka íraka í sátt meö Saddam viö völd.“ Góð leið til útflutnings á íslenskum matvælum Þessa dagana er landslið Klúbbs matreiðslumeistara að keppa á heimsmeistaramóti matreiðslu- meistara sem haldið er í Lúxem- borg. Ég hef í nokkurn tima fylgst með starfi þessara meistara sem standa orðið mjög framarlega í iðngrein sinni á alþjóðavísu. í raun er vart rétt að kalla þessa grein matreiðslu- meistaranna iöngrein, réttara væri að kalla hana listgrein, svo langt hafa meðlimir Klúbbs matreiðslumeistara náð. Uppeldis- og land- kynningarstarf í fljótu bragði gerir fólk sér ekki grein fyrir því hve margþætt uppeld- is- og landkynningastarf klúbbsins er. Kynningar- starfið hefúr m.a. aukið vinsældir greinarinnar meðal ungs fólks. Enn skortir á að jafhvægi og sam- svarandi virðing ríki milli bók- náms og verknáms á íslandi en fagmennska sem þessi hefur veru- leg áhrif á að verknám njóti þeirr- ar virðingar sem því ber. Kynningarstarfið er einnig fólg- ið í því að vekja athygli Islendinga og umheimsins á því gæðahráefni sem framleitt er á íslandi. Þar má benda á landbúnaðarvörur hvers konar, s.s. kjöt og grænmeti og mjólkur- og fiskafurðir. Þegar hrá- efnið hefúr verið meðhöndlað að hætti þessara meistara eykst verð- mæti þess til mikilla muna og það verður margfalt seljanlegri vara á innlendri sem erlendri grund um leið og vakin er athygli á íslandi og sérstöðu þess. Nútíma ferða- mennska er m.a. fólgin í því að að bragða á þeim mat sem i boði er í hveiju landi. Mataruppeldi og forvarnastarf Störf matreiðslumeistaranna hafa oft jafnmikið að segja og fal- leg náttúra landsins og eftir vel- heppnaða máltið gleym- ast fljótt rok og rigning, hafi ferðamaðurinn ver- ið óheppinn með veður, en eftir standa minning- ar um frcimúrskarandi matargerðarlist. Þess vegna er ekki úr vegi að kalla stéttina nýja sendi- herra íslands þótt lítið fari fyrir sendiherrabústöð- um og embættis- mönnum í kring- um þessa sendi- herra. Klúbbur matreiðslumeist- ara stóð fyrir merkilegum þátt- um fyrir ungt fólk sl. vetur, í sam- vinnu við Sjónvarpið, þar sem fram fór kennsla í mat- reiðslu. Á þennan hátt er hægt að kenna ungu fólki um nær- ingargildi einstakra tegunda, vekja athygli þeirra á hollustu matar o.fl. Þama fer í senn fram menningarlegt mataruppeldi og forvamastarf. Áfram ísland Framleiðendur hvers konar landbúnaðarafurða, fiskútflytjend- ur og aðrir þeir sem framleiða ís- lensk matvæli eiga að leggja sig í líma við að styrkja hið merka starf Klúbbs matreiðslu- meistara í land- kynningarskyni. Það gera ná- grannaþjóðir við sína matreiðslu- meistara s.s. Norð- menn, Danir, Sví- ar og Finnar svo einhverjir séu nefndir. Ég hyggst leggja fram þingsálykt- unartillögu á næstunni þar sem skoðað verði sér- staklega í hverju landkynningarstarf Klúbbs mat- reiðslumeistara er fólgið til þess að undirstrika það á hvem hátt við getum nýtt þeirra starf í land- kynningarskyni með útflutning á íslenskum matvælum í huga. Það er ekki úr vegi, um leið og ég óska landsliðssveit matreiðslumeistar- anna góðs gengis, að segja eins og gjaman er sagt þegar um lands- leiki er að ræða: Áfram ísland" og í hvatningunni felast margfóld skilaboö. ísólfur Pálmason „Ég hyggst leggja fram þings■ ályktunartillögu á næstunni þar sem skoöaö veröi sérstaklega í hverju landkynningarstarf Klúbbs matreiöslumeistara er fólgiö til þess aö undirstrika þaö á hvern hátt viö getum nýtt þeirra starf í landkynningarskyni mmm Kjallarinn Isólfur Pálmason þingmaður Með og á móti Var Leifur heppni örugglega íslendingur? Elnar Benediktsson sendiherra. Deilur sem heyra brátt sögunni til „Við getum gengið út frá því að Leifur Eiríksson sé fæddur kringum 975 að Eiríksstöðum í Dalasýslu og að faðir hans, Eirík- ur rauði, sé fæddur á íslandi eftir 930 en á þvi ári er Alþingi stofnað og ísland verö- ur til sem þjóð- ríki. Það því ekki annað en sorglegur mis- skilningur að telja hvom þeirra sem er annað en ís- lending því vissulega vora þeir sem hér fæddust, þ.e.a.s. frá og með annarri kynslóð, sér örugglega meövitandi að þeir voru íslending ar og þá vissulega ekkert annað. Með þessu er það alls ekki sagt að forfeður okkar haö ekki vel flestir komið frá vestúrströnd Noregs. Þaðan vom þeir og þaðan kemur okkar göfúga tunga, lög okkar og fyrst heiöin og síðan kristin trú. Við íslendingar erum því stoltir af því að vera norræn þjóð sem ein hefúr varöveitt mik- inn menningararf. Megi aðrar Norðurlandaþj óðir þá Iíka vera stoltar af því að hér í landi er þjóð sem enn talar okkar fomu tungu. Á íslensku og af okkur íslend- ingum hefur varðveist saga þeirra og menningararfleifð. Deilur um þjóðerni Leifs Eiríkssonar og for- feðra okkar munu brátt heyra sög- unni til, spái ég.“ „Ek em maðr grænlenskr" „Ef Leifur hefði haldið blaða- mannafund suður í New York þeg- ar hann var í könnunarleiðangri sínum þar um slóðir og blaðamað- ur hefði spurt hann: „Hvaðan kemur þú, Leifur? þá er ég sann- færður um að hann hefði svarað: „Ek em maðr græn- lenskr". En ég get ekki sannað það. Ekki finnst orð skrifað um Leif Eiríksson fyrr en meira en 200 árum eft- ir að hann var uppi. Það er álíka langur tími og frá Innrétt- ingum Skúla Magnússonar eöa Móðuharðindum til okkar daga. Þess vegna er augljóst að ekkert um Leif getur t|list alveg öraggt. Það á þó ekki að koma í veg fyrir að viö notum sögur af honuin og ályktum gætilega af þeim hvað st er um haun, hans. aö er ekki séi um að Gunnar Karlsson, prófessor í sagn- ■ hafi; líkli þjó; ályj að hverju leyti verið íslenskur, líkt og Vestur-Isléndingar í Kanada skynjuðu sig að misjafnlega miklu leyti sem íslenska og gera jafnvel sumir enn. En það er fjarstæða að fullyrða að hann hafi verið alis- lenskur eða séríslenskur að þjóð- emi. Ég verð að segja að mér fmnst ekki sæmandi af málsvör- um og forystumönnum þjóðarinn- ar að halda slíku fram í trássi viö álit nánast allra sérfræðinga. Það er yfirlýst markmið og metnaðar- mál samfélags okkar að viröa fræðilega þekkingu eins og henn- ar er aflað af mestri alvöra og ein- lægni hverju sinni - slá ekki sam- an því sem við höldum að sé og því sem við viijum að sé.“ -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.