Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 28
28
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 T>V
sam-
niður
„Mín skoöun og margra fleiri
er að réttast væri
aö leggja þessi sam- |
tök niður í núver-
andi mynd og út- j
vega starfsmönn-
um, sem þó er að-
allega fram-
kvæmdastjórinn, (
eitthvert arðbært starf og
spara íbúunum peninga."
Pétur Jónsson borgarfulltrúi,
um Samtök sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu, í DV.
Tekst LÍÚ að útrýma
prentfrelsinu
„Tækist þeim að útrýma
prentfrelsinu af síðum Morgun-
blaðsins, eins og hugurinn
stendur greinilega til, væri
komið að nýjum kafla í barátt-
unni fyrir lýðræði á íslandi."
Jón Sigurðsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri um útgerðar-
menn, i Morgunblaðinu.
Hvítt verði svart
„LÍÚ er að bæta
sína ímynd og telja
fólki trú um að |
hvítt sé svart.“
Grétar Mar Jónsson,
form. Vísis, félags
skipstjórnarmanna
á Suðurnesjum, í
Degi.
Skjótum markverðina
inn í landsliðið
„Við höfum einstakt lag á að
skjóta markverði andstæðing-1
anna í landsliðið og greinilegt er
aö við verðum að fara að athuga
okkar gang í þessum efhum."
Guðmundur Karlsson, þjálfari
Hauka, eftir að markvörður
Fram hafði varið átta vítaskot, í
Morgunblaðinu.
Einfaldleikinn er
oímetinn
„Ég held einfaldlega að ein-
faldleikinn sé ofmet-
inn og það sé of
mikil áhersla hjá j
agapáfum íslenskra
bókmennta á að
allir séu að skrifa f
einhvern sim-
skeytastíl - sem
ég kalla hinn norræna þurr-
kuntustíl."
Sindri Freysson rithöfundur, í
Degi.
Jólaboðskapurinn
afbakaður
„Þeir eru að afbaka jólaboö-
skap okkar með hræsni. Þeir
hafa engan áhuga á að hjálpa
stríðshrjáðum bömum, era að-
eins að nota athyglina, sem
þetta fær í fjölmiðlum, verslun
sinni til framdráttar."
Ástþór Magnússon, um jóla-
sveinagarðinn Norðurpól á Ak-
ureyri, í DV.
Pálína Magnúsdóttir, formaður Félags um vefbókasafn:
Áhugamálin tengjast vinnunni
DV Suðurnesjum:
í dag verður formlega opnað vef-
bókasafn og fer opnunin fram á
Bókasafni Seltjamamess en íslensk
almenningsbókasöfn hafa undanfar-
ið verið að vinna að vefvakt á Net-
inu. Bókasafnið verður aðgengilegt
aUan sólarhringinn, auk þess sem
það verður opið almenningi á bóka-
söfnum þannig að aUir eigi kost á að
nýta sér þessa þjónustu.
Pálína Magnúsdóttir er forstöðu-
maður Bókasafns Seltjarness og for-
maður Félags um vefbókasafn.
„Hugmyndin að einhvers konar
vefvakt bókasafna fæddist á fundi
forstöðumanna almenningsbóka-
safna. Síðastliðið vor var myndaður
undirbúningshópur sem byrjaði að
móta hugmyndir að vefnum og þetta
hefur síðan hlaðið utan á sig svo að
ákveðið var að stofna félag í kring-
um verkefnið. Stofnfundurinn var
síðan haldinn 9. október sl. Þetta er
samstarfsverkefni fjórtán almenn-
ingsbókasafna og við erum með
þessu að reyna að koma ákveðinni
reglu á Netið en þeir sem nota það
mikið vita að þar ríkir mikil óreiða.
Við gefum slðunum efnisorð og röð-
um þeim undir efnisorö. Efnisorðin
eru valin eftir kerfisbundnum efnis-
orðalykli. í raun era þetta sömu að-
ferðir og notaðar eru við að skrá
bækur. Síðan gefum við öllum vef-
síðum umsagnir til að auðvelda
fólki að velja síður.“
Pálína segir að framtíðarsýn
þeirra sem að þessu standa sé sú að
koma þessu safni í gagnagrunn
enda opnist þá fleiri möguleikar við
Pálína Magnúsdóttir.
notkun þess. í dag séu um 2.600
krækjur í safninu en einnig sé farið
að tína inn erlendar krækjur. „í
framtíðinni sjáum við fyrir okkur
að þegar fólk vantar heimildir um
ákveðið efni geti það farið á Netið,
Maður dagsins
síðan inn í miðlægan gagnagrunn
safna, slegið inn efnisorði og fengið
heimildir um efniö úr bókum, tíma-
ritum, vefsíðum eða öðram miðlum.
Fyrir 20 árum kom út bók sem í
daglegu tali er kölluð Bláa bókin.
Það var samstarfsverkefni nokk-
urra bókasafnsfræðinga þar sem
þeir tóku skráningu Landsbóka-
safns á bókum frá árunum 1944 til
1974 og settu saman i eitt rit en árið
1974 hófst útgáfa íslenskrar bóka-
skrár. Þessi bók kom út 13. nóvem-
ber árið 1978, fyrir nákvæmlega 20
árum, og því er þessi dagsetning
valin nú til að opna vefbókasafnið.“
Pálína segir áhugamál sin tengj-
ast mikið vinnunni. „Ég les mjög
mikið og hef áhuga á bútasaumi.
Sem stendur er ég í árs bamsburð-
arleyfi en áhuginn var svo mikill
fyrir vinnunni að ég gat ekki sleppt
því að taka að mér að vera með í
þessu verkefni."
Pálína er fædd í Reykjavík en hef-
ur síðan búið á Seltjamamesi. Eig-
inmaður hennar er Árni Geir Sig-
urðsson rafmagnsverkfræðingiu- og
eiga þau tvö böm, Sigurð, 12 ára, og
Mist Sigriði, níu mánaða. -A.G.
Barbara & Úlfar í
Kafíileikhúsinu í
Hlaðvarpanum.
Persónurnar Bar-
bara og Úlfar yfir-
taka líkama leikar-
anna Halldóru
Geirharðsdóttur
og Bergs Þór Ing-
ólfssonar, oft með
ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór
Ingólfsson ætla að gera eitthvað hræði-
legt í kvöld.
Leikhús
Barbara og Úlf-
ar á miðnætti
í tilefni af föstudeginum
13. nóvember verður sér-
staklega „hræðileg" miðnæt-
ursýning á spunaleikritinu
Barbara og Úlfar
munu í Splatter-
sýningunni sýna á sér nýja
og hræðilega hlið, sem
byggist á klassískum hryfl-
ingskvikmyndum, bók-
menntum og leikritum og
ætti enginn hryllingsunn-
andi að láta sýninguna
fram hjá sér fara.
Myndgátan
Skólpdýr
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
Kvintett Corretto leikur í Norræna
húsinu í kvöld.
Sænsk samtímatónlist
í kvöld kl. 20.30 mun Kvintett
Corretto halda tónleika í Norræna
húsinu. Á efnisskránni er nær
eingöngu sænsk samtímatónlist.
Höfundar verkanna eru Torbjöm
Iwan Lundquist, Folke Rabe, Bo
Nilson, Sven-David Sandström og
Witold Lutoslawsky. Kvintett
Corretto er málmblásarakvintett
sem var stofnaður árið 1994 og
hefur komið víða fram. Bæði hef-
ur hann haldið sjálfstæða tónleika
sem og komið fram við ýmis tæki-
færi. Meðlimir kvintettsins eru
flestir hljóðfæraleikai-ar i Sinfón-
íuhljómsveit íslands og hafa um
árabil starfað með helstu kamm-
erhópum á Reykjavíkursvæðinu,
meðal annars Caput, Kammer-
sveit Reykjavíkur og Stórsveit
Reykjavíkur.
Tónleikar
Corretto fór sl. sumar í tón-
leikaferð til Þýskalands þar sem
haldnir voru þrennir tónleikar og
gekk sú ferð vonum framar. Má
nefna gagnrýni sem birtist eftir
fyrstu tónleika hópsins í
Metzingen í suður Þýskalandi.
Þar segir m.a„ í lauslegri þýðingu:
„Þessir ungu menn, menntaðir í
háskólum beggja vegna Atl-
antsála, era greinilega meistarar í
sínu fagi: tónninn hreinn og
hnökralaus, inntónun gallalaus,
hrynjandin létt og leikandi. Sér-
lega vel samspilaður hópur.“
Meðlimir Kvintetts Corretto
era: Einar Jónsson á trompet, Ei-
ríkur Öm Pálsson á trompet, Emil
Friðfinnsson á hom, Sigurður
Þorbergsson á básúnu og Þórhall-
ur Ingi Halldórsson á túbu.
Bridge
Þessi hönd á sér kómískar hliðar
en hún kom upp í sveitakeppni fyrstu
deildar í Danmörku. í einum leiknum
gengu sagnir þannig i opnum sal, suð-
ur gjafari og allir utan hættu:
4 76
* 952
4 D108
* 108732
4 D1082
•» 843
4 9754
* G9
4 Á5
«4 ÁD7
4 KG632
* ÁD5
Suður Vestur Norður Austur
2 grönd pass pass pass
Sagnir tók fljótt af og vestur spilaði
út fjórða hæsta spaða sínum. Sagn-
hafi drap strax á ásinn og spilaði tígli
sem vestur fékk á ásinn. Vestur tók
síðan tvo spaðaslagi og spilaði svo
„skynsamlega" austri inn á fjórða
spaðann til þess að fá gegnumspil,
annaðhvort í hjarta eða laufi. Austur
spilaði hjarta og sagnhafi, sem þegar
hafði farið niður á ÁD blönk í hjarta
og laufi, las rétt í stöðuna. Hann fór
upp með hjartaásinn og tók fjóra slagi
á tígul. Vestur lenti í þvingun og varð
að fara niður á hjartakónginn blank-
an til að passa laufkónginn. Þá var
hjarta einfaldlega spilað og vestur
varð að spila frá laufkóngnum upp í
ÁD sagnhafa. í lokuðum sal enduðu
sagnir í þremur gröndum á suður-
höndina. Útspilið var einnig spaði og
vestur fór inn á tígulásinn í öðrum
slag. Hann tók nú alla! spaðaslagina
sín megin og nú var komið að sagn-
hafa að lenda i þvingun. Suður átti
eftir ÁD í hjarta, KG63 í tígli og ÁD í
laufi þegar henda þurfti í fimmta
spaðann. Sagnhafi vonaðist eftir því
besta með því að henda hjartadrottn-
ingunni. Vestur spilaði þá hjarta,
sagnhafi fór inn i blindan á tigul og
svínaði laufdrottningunni. Þijú grönd
fóra því 5 niður í lokuðum sal en 2
grönd stóðu slétt I opna salnum.
ísak Öm Sigurðsson
4 KG943
«4 KG106
4 Á
* K64