Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Síða 17
16
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
17
Iþróttir
Sveinn Logi Sölvason badmintonmaður:
Stefnt á Sidney
Sveinn Logi Sölvason og Guðný Káradóttir skrifa undir samning þess efnis
að Eimskip mun styrkja Svein um 200.000 krónur ári og hjálpa honum að
komast á Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. DV-mynd E.ÓI
Sveinn Logi Sölvason badminton-
maður hefur tekið stefnuna á að
taka þátt í ólympíuleikunum í Sydn-
ey áriö 2000.
Sveinn er einn fimm íslenskra
íþróttamanna sem eru á styrk frá
Alþjóða ólympíusambandinu og í
gær skrifaði hann undir samning
við Eimskip sem ætlar að styrkja
hann um 200.000 krónur á ári.
„Það er okkur mikil ánægja að
styrkja Svein og ég vona að okkar
framlag hjálpi honum til að komast
á ólympíuleikana," sagði Guðný
Káradóttir, kynningarstjóri Eim-
skips, eftir að hafa skrifað undir
samninginn fyrir hönd Eimskips.
Hefur tekið miklum framför-
um
Sveinn hefur dvalið við æfingar
og keppni í Danmörku síðan í haust
og hefur tekið miklum framförum
enda að æfa með bestu badminton-
spilurum Danmerkur. Hann tók á
dögunum þátt í tveimur alþjóðleg-
um mótum í Brasilíu og Argentínu
og á síðarnefnda mótinu komst
hann alla leið í undanúrslitin. Með
þeim árangri klifraði hann upp
stigalistann og er í dag í 136. sæti.
Niður fyrir 100 um áramótin
„Ég hef tekið stefnuna á að vera
kominn niður fyrir 100 á listanum
um áramótin. Það er raunhæft
markmið að ætla sér að komast á
ólympíuleikana en til þess þarf ég
aö komast niður í 50.-60. sæti á
stigalistanum. Ég er að spila með
liði Triton í Álaborg auk þess sem
ég hef verið að æfa með úrvalsliði
Dana. Ég hef æft mjög vel og þessar
æfingar eru famar að skila sér.
Auðvitað hjálpar svona styrkur
manni mikið og ég er mjög þakklát-
ur Eimskip. Hann á að létta undir
það að ég komist til Sydney," sagði
Sveinn eftir undirskriftina í gær.
Sveinn, sem er tvítugur að aldri,
er góð fyrirmynd. Hann hvorki
drekkur né reykir og leggur stund á
æfingar og keppni af alúð.
Fyrsta mótið í evrópsku
mótaröðinni hér á landi
Sölvi verður í eldlínunni ásamt
besta badmintonfólki landsins um
helgina en þá fer fram alþjóðlegt
mót sem er í evrópsku mótaröðinni.
Mótið er samþykkt af Alþjóða bad-
mintonsambandinu og gefur stig á
alþjóða styrkleikalistann. Þetta er í
fyrsta sinn sem mót úr evrópsku
mótaröðinni er haldið hér á landi.
Sveinn Sölvason, Tryggvi Nielsen
og Tómas Garðcirsson sem allir æfa
og spila í Danmörku verða á meðal
keppenda svo og og „gamli maður-
inn“ og íslandsmeistarinn Broddi
Kristjánsson sem er í mjög góðu
formi og hefur unnið öll mót vetrar-
ins. 17 erlendir keppendur frá fimm
þjóðum hafa skráð sig til keppni.
Þeirra sterkastir eru Tjitte Weistra
frá Hollandi sem er í 57. sæti á
styrkleikalistanum, Svisslending-
arnir Bundgaard og Del’etang sem
eru í 37. sæti í tvíliðaleik karla og
Wibowo og Baumeyer frá Sviss sem
eru í 34. sæti í tvíliðaleik kvenna.
Mótið sem fer fram í TBR-húsinu
hefst klukkan 19 í kvöld, klukkan 10
á laugardagsmorgun hefjast 8-liða
úrslitin og klukkan 15 á sunnudag
heQast undanúrslitin.
-GH
Gianluca Vialli og allir leikmenn
hans hjá Chelsea hafa tileinkað
Pierluigi Casiraghi sigurinn stóra
gegn Arsenal á Highbury í fyrrakvöld
þar sem leikmenn Viallis hreinlega
nðurlægðu Englandsmeistara Ars-
enal. Casiraghi meiddist mjög illa á
dögunum er Chelsea lék gegn West
Ham. Hann gekkst undir aðgerð
vegna meiðslanna á hné og stóð
aðgerðin yfir í íjórar klukkustundir.
Gianluca Vialli og Casiraghi eru
mjög nánir vinir. Vialli var alveg
miður sín eftir leikinn gegn Arsenal
og hvergi nærri búinn að ná sér eftir
áfallið með félaga sinn. Vialli treysti
sér ekki til að ræða við blaðamenn
eftir leikinn og aðstoðarmaður hans
sagði það meðal annars vegna þess
hve miður sín hann væri vegna
afdrifa vinar sins.
Lee Sharpe á ekki framtíð fyrir sér á
Elland Road hjá Leeds United. David
O'Leary, framkvæmdastjóri Leeds,
sagði þetta í gær og tilkynnti um leið
aö Sharpe hefði verið settur á
sölulista. Sharpe hefur átt viö þrálát
meiðsli að stríða frá því hann var
seldur til Leeds frá Manchester United.
Ágúst Gylfason lék með varaliði
enska knattspyrnufélagsins Tran-
mere þegar það sigraði WBA, 2-1, i
fyrrakvöld. Agúst fékk ágæta dóma
fyrir frammistöðu sína.
ívar Ingimarsson lék með varaliði
Watford sem gerði 0-0 jafntefli við
Luton. Graham Taylor, fram-
kvæmdastjóri Watford, er sagður hafa
hug á að hafa Ivar áfram hjá félaginu,
og hann vill jafnframt fá KR-ingana
Siguró Örn Jónsson og Bjarna Þor-
steinsson aftur til frekari skoðunar.
Graharn Taylor gerir þó ekki mikið
næstu dagana. Hann var fluttur á
sjúkrahús f gærkvöld með mikla önd-
unarörðugleika og þarf að liggja þar
næstu daga.
Kúba varð í gær heimsmeistari
kvenna í blaki með 3-0 sigri á Kina í
úrslitaleik í Osaka i Japan.
-SK/VS
Malone vill
yfirgefa Utah
- segist vilja leika meö LA Lakers
Karl Malone „Póstmaðurinn"
sem leitt hefur sína menn í Utah
Jazz til úrslita í NBA-körfuboltan-
um undanfarin tvö
ár vill yfirgefa her-
búðir liðsins.
„Mér finnst ég
þurfa að komast í
burtu frá Utah og
ég vona að þegar
búið verður að
leysa deiluna í
NBA þá komist ég
til annars liðs. Ég
mundi svo sannar-
lega vilja fá tæki-
færi til að leika
með Los Angeles
Lakers, annaðhvort
eftir að deilumar i
deildinni hafa verið
til lykta leiddar eða
eftir að samningi
mínum við Utah
lýkur,“ sagði
Malone við frétta-
menn þegar hann
tilkynnti ákvörðun
sína. Malone, sem
er 35 ára gamall, á
eitt ár eftir af samningi sínum við
Utah.
Malone, sem hefur borið uppi lið
Utah Jazz mörg undanfarin ár, hef-
ur ekki verið sáttur við stjóm fé-
lagsins og eigandann Larry Miller
og á fundi með blaðamönnum kall-
aði hann þessa menn bleyður.
„Ég hef leikið minn síðasta leik í
Salt Lake City og það er kominn
tími fyrir Malone
að fara,“ sagði
Malone.
Malone hefur verið
gangrýndur í Salt
Lake City fyrir að
hafa ekki farið alla
leið með sína menn
og tapað í tvígang
fyrir Michael Jord-
an og félögum hans
í Chicago í úrslit-
um NBA. Þetta hef-
ur Malone sviðið
sárt.
Hann skoraði 27
stig að meðaltali og
tók 10,3 fráköst á
síðasta keppnis-
tímabili sem var
hans 13. tímabil en
hann er 35 ára
gamall.
10. árið í röð fór
hann yfir 2000
stiga múrinn og
það met á hann
með Wilt Chamberlain, Kareem
Abdul Jabbar, Moses Malone og
Elin Hayes.
Malone hefur eini sinni verið út-
nefndur besti leikmaður NBA en
það var tímabilið 1996-97.
-GH
Karl Malone skorar fyrir Utah í
leik gegn Lakers á sfðasta tíma-
bili.
Sigurður og
Jón marka-
hæstir
- Ásmundur annar
íslendingar setja mikinn svip
á bandaríska háskólameistara-
mótið í knattspyrnu þessa dag-
ana.
Eins og
áður hefur
komið fram
er Sigurdur
Ragnar Eyj-
ólfsson úr ÍA
marka- og
stigahæstur
yfir aila efstu
deildina i Bandaríkjunum. Hann
hefur skorað 25 mörk í 21 leik og
er með 62 stig samtals, en þar
eru gefin tvö stig fyrir mark og
eitt fyrir stoðsendingu sem leiðir
til marks.
í B-deildinni
er Jón Þor-
grimur Stef-
ánsson úr
Val marka-
og stigahæst-
ur yfir öll
Bandarikin.
Jón hefur
skorað 25 mörk í 18 leikjum og er
með 62 stig.
Á hæla
honum kem-
ur Ásmund-
ur Haralds-
son úr Þrótti,
sem hefur
gert 23 mörk í
18 leikjum og
er næststiga-
hæstur yfir Bandaríkin með 60
stig.
í efstu deild kvenna hefur Ást-
hildur
Helgadóttir
úr KR verið í
fararbroddi í
stoðsending-
um. Hún er
nú í 5. sæti
yfir öll
Bandaríkin
með 16 stoð-
sendingar í 19
leikjum síns liðs. Hún var að
auki valin í úrvalslið á sínu
svæði nú í vikunni. -VS
Rúnar sigraði
alla meistarana
stórkostlegur árangur á bogahestinum
Breytingar á kvennaliðum
Útlit er fyrir að nokkuð verði um félagaskipti hjá knattspyrnukonum á næstunni. Flest
bendir til þess að Kristbjörg Ingadóttir sé á leið yflr í Val á ný eftir eitt ár hjá KR en
hún hefur æft með Hlíðarendafélaginu að undanförnu. Valur verður hins vegar án
landsliðskonunnar Hjördísar Símonardóttur á næsta tímabili en hún verður i
barneignafríi. Hildur Sævarsdóttir, Haukastúlkan efnilega, hefur æft með
Breiðabliki undanfarnar vikur og flytur sig væntanlega um set yfir í
Kópavoginn. Þá eru nokkur lið með erlenda leikmenn í athugun, og
þar munu Stjarnan og ÍBV vera fremst í flokki. Bæði þessi lið
hafa hug á að ógna toppliðunum enn frekar á næsta tíma-
bili.
Arangur Rúnars Alexander-
sonar á bogahesti á alþjóðlegu
boðsmóti í Finnlandi í fyrra-
kvöld er án efa besti árangur sem
islenskur fimleikamaður hefur
náð til þessa.
Andstæðingar Rúnars voru
ekki af verri endanum. Þar má
nefna Ivan Ivankov, heimsmeist-
ara í fjölþraut frá Hvíta-Rúss-
landi, Valery Belenky frá Þýska-
landi sem varð i 1.-3. sæti á boga-
hesti á síðasta heimsmeistara-
móti, Ioannis Melissanidis frá
Grikklandi, ólympíumeistari í
gólfæfingum og að auki núver-
andi og fyrrverandi heimsmeist-
arar á svifrá, Jesus Carballo frá
Spáni og Finninn Jani Tansk-
anen.
Á þessari upptalningu sést hve
árangur Rúnars var glæsilegur.
Hann náði sínum besta árangri
til þessa á bogahestinum og hlaut
einkunnina 9,80. Ivankov og
Belenky urðu að gera sér annað
sætið að góðu með 9,75.
Rúnar keppti einnig á tvíslá.
Þar náði hann bronsverðlaunum
með 9,3 í einkunn. Belenky sigr-
aði með 9,4. Þá varð Rúnar í
fjórða sæti í keppni á svifrá með
einkunnina 9,1. Þar sigraði Jesus
Carballo með 9,825.
„Ég er alveg í
sjöunda himni
með þennan
árangur og
veit eiginlega
ekki í hvorn
fótinn ég á að
stíga,“ sagði
Rúnar þegar úrslitin
lágu ljós fyrir.
Mati Kirmes, þjálfari Rúnars,
sagði að Rúnar væri búinn að
íþróttir
æfa mjög vel undanfarið
og hann væri auðvitað
mjög ánægður með þennan
glæsilega árangur Rúnars í
Finnlandi og á mótum almennt
undanfarið. -SK/-AIÞ
Þórður
samdi
Asthildur í sumarfríi?
Ekki er öruggt að Ásthildur Helgadóttir leiki
áfram með KR á næsta tímabili. Sam-
kvæmt heimildum DV ihugar hún
að taka sér frí næsta sumar en
hún spilar með Vanderbilt-
háskóla í Bandaríkj-
unum á veturna og
hefur leikið sam-
fleytt sumar og
vetur síð-
ustu
misser-
in.
-VS
Evans
ákvað
að hætta
Roy Evans ákvað í gær að
hætta sem framkvæmda-
stjóri Livei-pool. Evans tók
þessa ákvörðun eftir viðræð-
ur við forráðamenn Liver-
pool.
Frakkinn Gerard Houllier,
sem starfaði með Evans,
verður einn framkvæmda-
stjóri en Phil Thompson
verður aðstoðarmaður hans.
Evans hefur verið starfandi
hjá Liverpool síðustu þrjá
áratugina. „Ég kveð félagið
með miklum söknuði og von-
ast eftir þvi að félagið nái sér
sem fyrst,“ sagði Evans í gær
en hann afþakkaði annað
starf hjá félaginu. _sk
David Bevis, körfuknattleiksmaður hjá ÍA:
Þórður Þórðarson, markvörður Skagamanna í knattspyrnunni, gekk
í gær frá tveggja ára samningi við sænska félagið Norrköping. Hann
leysir þar af hólmi Birki Kristinsson, sem líklega er á forum til Lille-
ström í Noregi, annars heim til íslands. Þórður fer utan um áramót.
„Ég er mjög ánægður með að þetta sé í höfn og þetta er spennandi
dæmi. Þarna fer ég í harða samkeppni við Eddie Gustavsson, mark-
vörð sænska 21-árs landsliðsins, sem hélt Birki utan við liðið mest allt
þetta tímabil. Ég er tilbúinn í þann slag og ætla mér að sjálfsögðu að
verða markvörður númer eitt hjá félaginu," sagði Þórður við DV í gær-
kvöld.
Skagamenn þurfa því að huga að markmannsmálum sínum en í
þeirra röðum eru margir á því að rétt sé að gefa hinum tveimur mark-
vörðum liðsins, Guðjóni Skúla Jónssyni og Baldri Bragasyni, tækifæri
til að slást um stöðuna. Þá hafa þeir Birkir Kristinsson, Kristján Finn-
bogason, markvörður KR, og Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður ÍR,
Magni þjálfar Víði
Magni Blöndal Pétursson var í gærkvöld ráð-
inn þjálfari 1. deildarliðs Víðis í knattspyrnu
fyrir næsta tímabil. Viðismenn sigruðu með yf-
irburðum í 2. deildinni í sumar. Magni er einn
leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi en hann
hefur verið i fríi frá knattspyrnunni síðan hann
þjálfaði síðast lið Selfyssinga árið 1995. -VS
allir verið orðaðir við IA.
-VS
Jafnt í Víkinni
Vikingur og Fylkir skildu jöfn, 16-16, í toppslag í
2. deild karla í handknattleik sem fram fór í Vík-
inni í gærkvöld. Fylkir var yfir í hálfleik, 8-11.
Mikil spenna var undir lokin og bæði lið fóru illa
með færi til að tryggja sér sigurinn. Eymar Kruger
skoraði 7 mörk fyrir Fylki en Davor Kovacevic 6
fyrir Víking og Þröstur Helgason 5.
Þór á Akureyri er með 9 stig, Fylkir 8, Víkingur
7 og Breiðablik 6 stig, en tvö fyrmefndu liðin hcifa
leikið einum leik meira. -VS
Svekktur
og sár“
- dæmdur í leikbann fyrir aö henda vatnsbrúsa
í vegg 4 mínútum eftir leik
Stórleikur
hjá Bow
Jónatan Bow átti stórleik og skoraði 22 stig
fyrir lið sitt, Edinburgh Rocks, gegn toppliði
bresku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, Man-
chester Giants, síðasta sunnudag. Það dugði þó
ekki til, Edinburgh tapaði leiknum, 77-89, og hef-
ur enn ekki náð að vinna í tíu fyrstu umferðum
deildarinnar.
Jónatan Bow er íslenskur rikisborgari, hefur
spilað 6 landsleiki og bíður þess að fá keppnis-
leyfi með landsliðinu á alþjóðamótum. -VS
Ágúst tekur
sér hvíld
Ágúst Ólafsson, knattspyrnumaður úr Fram,
hefur átt við slæm meiðsli i baki að stríða og hef-
ur rætt við Ásgeir Elíasson þjálfara um að hann
taki sér frí frá knattspyrnuiðkun næsta sumar.
„Læknar telja að hér sé um brjósklos að ræða.
Ég hef verið slæmur undanfarið en er í meðferð
hjá sjúkraþjálfara. Úr því sem komið er mun ég
einbeita mér að því að fá mig góðan. Ljóst er að
ég þarf á hvíldinni að halda og þvi er ég að hugsa
um að taka mér hvíld á næsta tímabili," sagði
Ágúst Ólafsson í samtali við DV. -JKS
Sigur og tap hjá ÍS
ÍS sigraði Stjömuna, 3-0 (15-11, 15-12, 16-14), í
1. deild karla í blaki í gærkvöld. Kvennalið ÍS
tapaði hins vegar fyrir Víkingi, 0-3 (7-15, 13-15,
6-15). -VS
Bland 1 P oka
Andreas Köpke, markvörður
franska liðsins Marseille og lands-
liðsmarkvörður Þjóðverja í knatt-
spyrnu, hefur tilkynnt forráða-
mönnum Marseille að hann vilji
fara frá félaginu og það strax.
Köpke og Stephane Porato hafa
skipst á í marki Marseille og það
er Þjóðverjinn afar ósáttur við.
Norska knattspyrnulióið Viking
Stavanger, lið Ríkharós Daóa-
sonar og Auöuns Helgasonar,
keypti í gær Morten Berre frá
Haugasund fyrir 38 milljónir
króna.
Rúnar Alexanderson og þjálfari
hans misstu af lestinni sem þeir
hugðust taka á fimleikamótið í
Finnlandi vegna veðurs. Fóru
þeir því akandi í einkabíl og svaf
Rúnar ekki dúr nóttina fyrir mót-
ið. Er árangur Rúnars enn glæsi-
legri fyrir vikið.
Jóhann Möller, 19 ára knatt-
spymumaður frá Siglufirði, er
mjög eftirsóttur þessa dagana.
Hann hefur æft með Skagamönn-
um og farið í Færeyjaferð með
Leiftursmönnum, og þá hafa
Framarar sýnt piltinum áhuga. Jó-
hann skoraði 15 mörk í 2. deild og
bikarkeppninni fyrir KS i sumar.
Jón Þ. Sveinsson, fyrirliði knatt-
spyrnuliðs Fram, hefur ekki
stigið mikiö í fæturna að
undanförnu. Hann var skorinn
upp á báðum ökklum vegna
þrálátra meiðsla. Jón reiknar
með að byrja að æfa á fullu um
áramótin.
ÍS sigraöi Fylki, 72-67, i 1. deild
karla í körfuknattleik í gærkvöld.
-SK/VS
Sigtryggur fer aftur
í markið hjá KA
Sigtryggur Albertsson mun á ný standa í marki KA þegar liðiö mætir
Aftureldingu í Nissandeildinni í handknattleik um helgina.
Reynir Þór Reynisson, sem varið hefur mark KA það sem af er
tímabilinu, þarf að fara í mávægilega aðgerð og verður frá æflngum og
keppni í einhvem tíma. KA-menn brugðu því á það ráð að kalla á Sigtrygg
en hann fór á sjóinn eftir síðasta tímabil og hefur ekkert leikið síðan hann
varði mark KA á síðustu leiktíð. -JJ/SK
Hinrik til Valsmanna
Hinrik Gunnarsson, körfuknattleiksmaður úr Tindastóli, gekk í gær
til liðs við úrvalsdeildarlið Vals, en hann hefur ekkert leikið með Sauð-
krækingum í vetur. Hinrik, sem er 2ja metra miðherji, hefur spilaö 29
landsleiki og ætti að styrkja Valsmenn sem em í vandræðum við botn
deildarinnar. Þá er ívar Webster, fyrrum landsliðsmaður, enn á ný bú-
inn að taka tram skóna og er byrjaður að æfa með Valsmönnum. -VS
Bandaríkjamaðurinn David
Bevis sem leikur með Akurnes-
ingum í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik hefur verið úrskurð-
aður í eins leiks bann.
Bergur Steingrímsson dóm-
ari ritaði á skýrslu sína að Bev-
is hafi kastað vatnsbrúsa í átt
að dómurum eftir leik ÍA og
Þórs um síðustu helgi en Skaga-
menn töpuðu leiknum með eins
stigs mun. í skýrslu Bergs segir
aö vatn hafi gusast yfir dómar-
ana og aðra starfsmenn leiks-
Opna veiðileyfi á
leikbönn
Skagamenn eru mjög ósáttir
við þennan úrskurð aganefndar
KKÍ og Sigurður Sverrisson,
formaður Körfuknattleiksfélags
Akraness, segir að með honum
sé verið að opna veiðileyfi á
leikbönn. Sigurður sagði í sam-
tali við DV í gær að hann skildi
ekki hvernig Bergur gæti tekið
þetta sem árás á sig en á skýrsl-
unni er þetta atvik metið sem ógn-
un eöa árás á starfsmenn leikja
eöa dómara.
Þetta er lygi
„Ég á ekki orð yflr þessa ákvörð-
David Bevis segist vera mjög hissa á vinnu-
brögðum dómarans og aganefndar.
un dómstólsins og þetta er með ólík-
indum. Ég var mjög svekktur eins
og strákarnir eftir leikinn og 4 mín-
útum eftir að honum lauk sat ég
með Bjama Magnússyni á bekkn-
um. Ég hélt á vatnsbrúsa í hendinni
og um leið og ég stóð upp henti
ég brúsanum í vegginn. Tapp-
inn brotnaði af og það slettist
vatn yflr ritaraborðið þar sem
dómarinn (Bergur) var að
ganga frá skýrslunni. Að ég
hafi hent brúsanum í dómar-
ana er lygi. Ég var eingöngu að
svekkja mig á leiknum. Ef ég
hefði átt eitthvað vantalað við
dómarana hefði ég látið heyra í
mér. Dómararnir sáu ekki hvað
gerðist en samt segir annar
þeirra í skýrslunni að ég hafi
hent brúsanum í þá,“ sagði Bev-
is í samtali við DV i gær.
Dómarann í bann frekar
en mig
„Ég er mjög hissa á vinnu-
brögðum aganefndar KKÍ. Þar
er skýrslan frá dómaranum lát-
in duga. Ég fæ ekkert tækifæri
til að verja mig. Ég átti ekki
orðastað við dómarana í leikn-
um og var ekki að svekkja mig
á dómgæslunni. Það hefði frek-
ar átt að dæma dómarann í
bann frekar en mig því hann dæmdi
leikinn mjög illa. Ég er mjög svekkt-
ur og sár og fmnst þetta mjög órétt-
látt,“ sagði Bevis en hann missir af
leik Akumesinga gegn Snæfelli i
næstu viku. -GH
Hópleikur er þegar
tippari, einn eða fleiri
hafa sérstakt
hópnúmer. Getraunir
skrá árangur hópa í
viku hverri og veita
þeim hópum sem
standa sig best vegleg
verðlaun. Þú færð
hópnúmer frítthjá
íslenskum getraunum.
ENGU AÐ TAPA!